Haukar

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 80-50 | Haukar sópuðu Keflavík og mæta Val í úrslitum
Haukar eru komnir í úrslitaeinvígi Domino´s deildar kvenna þar sem þær mæta liði Vals. Haukar sópuðu Keflavík í sumarfrí í kvöld með stórsigri á heimavelli.

Sara Rún: Við gerðum þetta saman
„Ég er virkilega ánægð. Við mættum tilbúnar, Keflavíkurstelpurnar voru flottar í þessari seríu og þetta voru skemmtilegir leikir, “ sagði Sara Rún Hinriksdóttir leikmaður Hauka eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitaeinvígi Domino´s deildar kvenna.

Haukar örugglega í 16-liða úrslit
Haukar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handbolta með 32-24 sigri á Selfyssingum á Ásvöllum í kvöld. Haukar mæta nágrönnum sínum í FH í 16-liða úrslitum.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Haukar 68-80 | Útlitið dökkt fyrir Keflvíkinga
Haukar eru í afar vænlegri stöðu í undanúrslita einvíginu eftir 68-80 sigur í Keflavík í kvöld.

„Maður hefur nokkru sinnum skotið á þessar körfur í gegnum alla yngri flokkana“
Haukar eru komnar í 2-0 forystu í undanúrslita einvígi sínu við Keflavík eftir 68-80 sigur á Reykjanesinu í kvöld. Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í liði gestanna í kvöld en Sara Rún er uppalin Keflvíkingur.

Heiðursmyndband eftir tólfta deildarmeistaratitilinn á öldinni
„Haukar verða alltaf bestir,“ eins og segir í laginu, hefur átt vel við ansi margar leiktíðir á 21. öldinni, í handbolta karla. Enn ein verðlaunin bættust í safnið þegar Haukar urðu deildarmeistarar um helgina.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 22-28 | Valskonur sendu Hauka í sumarfrí í KFUM slag
Valskonur sendu Hauka í sumarfrí eftir sigur í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Olís-deildar kvenna í dag. Valskonur byrjuðu leikinn af krafti og voru með yfirhöndina allan tímann, lokatölur 22-28.

Björgvin Páll: Sauð upp úr fjórum, fimm sinnum í vikunni
Björgvin Páll Gústavsson var á meðal bestu manna vallarins er lið hans, Haukar, vann öruggan 34-26 sigur á nágrönnum sínum í FH að Ásvöllum í kvöld. Haukar tryggðu jafnframt deildarmeistaratitilinn með sigrinum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - FH 34-26 | Haukar tryggðu deildarmeistaratitilinn með stórsigri
Haukar eru deildarmeistarar Olís-deildar karla eftir stórsigur á erkifjendum sínum í FH. Lokatölur á Ásvöllum 34-26 Haukum í vil.

Körfuboltakvöld kvenna: Keflavík fann engin svör við vörn Hauka
Í Körfuboltakvöldi kvenna í gærkvöldi var farið yfir fyrsta leik Hauka og Keflavíkur í úrslitakeppni Domino's deildarinnar. Sérfræðingar kvöldsins voru sammála um það að Keflvíkingar hafi átt í erfiðleikum með að finna svör við þéttri vörn Hauka.

Öruggt hjá Haukakonum í fyrsta leik
Haukar tóku á móti Keflavík í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld. Keflvíkingar skoruðu fyrstu stig kvöldsins, en það var í eina skiptið sem þær voru yfir í leiknum. Haukakonur lönduðu að lokum 14 stiga sigri, 77-63.

„Þetta eru svakalegar fréttir“
Pálína Gunnlaugsdóttir og sérfræðingar hennar fóru yfir einvígi Hauka og Keflavíkur í undanúrslitum Domino´s deildar kvenna en fyrsti leikurinn í einvíginu er í kvöld. Keflavík bætti við sig landsliðskonu fyrir úrslitakeppnina.

KR vann í Kórnum á meðan Grindavík og Haukar gerðu jafntefli
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í dag. KR vann 4-1 sigur á útivelli gegn HK og Grindavík og Haukar skildu jöfn 1-1.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 25-19 | Sterkur sigur Valskvenna
Valur vann 25-19 sigur á Haukum í fyrsta leik liðanna í fyrstu umferð í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta. Valur er einum leik frá sæti í undanúrslitum.

„Ég held að hann sé aldrei að fara að spila í 1. deildinni“
Sérfræðingarnir í Domino´s Körfuboltakvöldi veltu fyrir sér í hvaða leikmenn Hattar og Hauka hin liðin munu hringja nú þegar Höttur og Haukar spila ekki í Domino´s deildinni næsta vetur.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Haukar 29-35 | Haukar áfram á sigurbraut
Fram tók á móti Haukum í 19. umferð Olís-deildar karla í dag. Hörkuleikur en Haukar sigldu fram úr á síðustu mínútunum. Lokatölur 29-35.

Aron Kristjánsson: Við vorum í bílstjórasætinu allan leikinn en Fram var aldrei langt undan
Haukar styrktu stöðu sína í að landa deildarmeistaratitlinum er þeir mættu fram í 19. umferð Olís-deildar karla í dag. Hörkuleikur sem endaði með 6 marka sigri Hauka, 29-35.

Leik lokið: Þór Ak. - Haukar 96-87 | Þórsarar í úrslitakeppni
Þór Akureyri endar Domino's deildina á sigri og tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.

Haukakonur halda heimavallaréttinum
Lokaumferð Dominos deildar kvenna í körfubolta fór fram í dag en öll helstu sætin í stöðutöflunni voru ráðin þegar kom að lokaumferðinni.

Sigrar hjá ÍBV, Val og Stjörnunni
Lokaumferðin í Olís-deild kvenna fór fram í dag. Úrslitaleikurinn um deildarmeistaratitilinn var í Safamýri en þrír aðrir lekir fóru fram.

Augnablik lagði KR, montrétturinn er Hauka og markasúpa í Víkinni
Lengjudeild kvenna fór af stað í kvöld með fimm leikjum. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós.

Umfjöllun: Haukar - Höttur 100-104 | Hafnfirðingar fallnir en Höttur heldur í vonina
Haukar eru fallnir úr Domino´s deild karla eftir tap gegn Hetti á heimavelli í kvöld. Gestirnir halda enn í veika von um að halda sæti sínu í deildinni. Lokatölur 95-101 í Ólafssal í kvöld.

Yfirferð Gaupa: Haukar komnir með aðra hönd á 2. sætið
Haukar fóru langt með að tryggja sér 2. sæti Domino's deildar kvenna í körfubolta með sigri á Keflavík, 67-63, í Ólafssal í gær. Guðjón Guðmundsson fór yfir næstsíðustu umferð deildarinnar.

Sextán stig gætu á sama tíma dugað inn í úrslitakeppnina en ekki til að bjarga liði frá falli
Lokaumferðir Domino´s deildar karla í körfubolta eiga örugglega eftir að bjóða upp á mikla dramatík enda eru lið á sama tíma á barmi þess að komast í úrslitakeppnina og að falla úr deildinni.

Fallbaráttufimmtudagur í Domino's deildinni: „Finnst við vera með betra lið“
Það er sannkallaður fallbaráttufimmtudagur í Domino‘s deild karla í körfubolta í kvöld. Þá mætast fjögur neðstu liðin innbyrðis. Höttur sækir Hauka heim og ÍR tekur á móti Njarðvík.

Orri Freyr samdi við norsku meistarana
Íslenskir hornamenn halda áfram að fara út í atvinnumennsku því Haukamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson hefur samið við norska félagið Elverum.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 67-63 | Haukar hirtu annað sætið af Keflavík
Haukar unnu Keflavík 67-63 sem gerði það að verkum að liðin áttu sæta skipti og eru Haukar komnar í kjörstöðu með að fá heimaleik í fyrstu umferð úrslitakeppnarinnar.

Bjarni: Varnarleikur liðsins vann leikinn
Haukar tóku stórt skref með sigri í kvöld á Keflavík í átt að heimaleikja rétt í úrslitakeppninni. Haukar spiluðu mjög vel í kvöld og var Bjarni Magnússon þjálfari liðsins afar kátur með frammistöðuna.

Öflugur sigur Blika og Fjölnir burstaði KR
Þrír leikir fóru fram í Domino’s deild kvenna í kvöld. Haukar höfðu betur gegn Keflavík, Fjölnir burstaði KR og Breiðablik vann góðan sigur á Skallagrím á heimavelli.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 33 - 25 | Haukar völtuðu yfir Mosfellinga
Haukar voru í engum vandræðum með Aftureldingu og völtuðu yfir þá, leikurinn endaði með 8 marka sigri Hauka 33-25 sem hefði vel getað verið stærri.