Stjarnan

Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Blikar minnkuðu forskot Víkinga
Breiðablik vann 2-1 sigur gegn Stjörnunni á Kópavogsvelli. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik og þrátt fyrir að Stjarnan hafi skapað urmul af færum í seinni hálfleik tókst gestunum ekki að jafna. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins
„Auðvitað er mjög erfitt að kyngja þessu en það verður bara að gera það“, sagði Kristján Guðmundsson eftir 3-4 tap Stjörnunnar gegn Breiðabliki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Úrslitin réðust á röngum vítadómi í framlengingu.

Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu
Breiðablik vann Stjörnuna 4-3 og er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. Venjulegum leiktíma lauk með 3-3 jafntefli en úrslitin réðust á kolröngum vítaspyrnudómi sem féll gegn Stjörnunni. Agla María steig á punktinn og skoraði sigurmarkið.

Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni
Stjörnumenn lögðu KR-inga að velli með fimm mörkum gegn þremur þegar liðin áttust við í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld.

Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum
Stjarnan fékk FH í heimsókn á Samsungvöllinn í kvöld, í 5. umferð Bestu deildar kvenna. Boðið var upp á markasúpu en fyrstu fimm mörk leiksins komu á fyrsta korterinu. Lauk leiknum með sigri heimakvenna 4-3.

„Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“
Arnar Guðjónsson, þjálfari nýliða Stjörnunnar, getur gengið sáttur frá borði nú þegar hann lætur af störfum en nýliðarnir voru hársbreidd frá því að leggja deildarmeistara Keflavíkur í oddaleik í kvöld, lokatölur kvöldsins 81-76.

Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit
Keflavík er komið í úrslit Subway-deildar kvenna í körfubolta eftir fimm stiga sigur á Stjörnunni í oddaleik. Deildar- og bikarmeistarar Keflavíkur þurftu heldur betur að hafa fyrir hlutunum gegn nýliðum Stjörnunnar í rimmu sem mun seint gleymast.

Keflavíkurkonur hafa aldrei tapað oddaleik á heimavelli
Augun verða á Blue höllinni í Keflavík í kvöld þar sem deildar- og bikarmeistarar Keflavíkur taka á móti ungu liði Stjörnunnar í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta.

„Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“
„Það er bara tilhlökkun. Þetta verður verðugt verkefni, okkur hlakkar til að taka þátt í þessu. Það verður margt fólk og mikil stemning,“ segir Arnar Guðjónsson um oddaleik liðs hans Stjörnunnar við Keflavík í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ
Mörkin tvö í Garðabæ í gær, þegar Stjarnan og Fram gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik sjöttu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta, voru ekki sérstaklega ólík. Mörkin má nú sjá á Vísi.

„Við erum helvíti seigir“
„Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið sanngjörn úrslit því mér fannst við vera betri,“ byrjaði Óli Valur Ómarsson, leikmaður Stjörnunnar, að segja eftir jafntefli liðsins gegn Fram.

Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka
Annan útileikinn í röð gerði Fram 1-1 jafntefli eftir að hafa lent undir. Strákarnir hans Rúnars Kristinssonar fóru með stig úr Garðabænum eftir leikinn gegn Stjörnumönnum í kvöld.

„Það bjóst enginn við því að við myndum fara svona langt“
Ísold Sævarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, var í skýjunum eftir sjö stiga sigur gegn Keflavík 86-79.

Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 86-79 | Einvígið á leið í oddaleik
Stjarnan og Keflavík mættust í fjórða sinn í undanúrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta. Keflavík gat með sigri sent Stjörnuna í sumarfrí en ólseigar Stjörnustúlkur neituðu að gefast upp.

Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik
Breiðablik vann öruggan 5-1 sigur á Stjörnunni í Bestu deild kvenna í kvöld þegar liðin mættust á Kópavogsvelli. Breiðablik er því með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir en Stjarnan var að tapa sínum þriðja leik.

„Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var ósáttur við stærstan hluta leiksins hjá sínum mönnum gegn Stjörnunni í kvöld. SKagamenn máttu þola 4-1 tap eftir að hafa komist yfir snemma leiks.

„Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var eðlilega kampakátur með 4-1 sigur sinna manna gegn ÍA í fimmtu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum
Keflavík lagði Stjörnuna í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta. Eftir jafnan leik seig Keflavík fram úr og vann sigur sem þýðir að staðan í einvígi liðanna er 2-1 og Keflavík aðeins einum sigri frá úrslitaeinvígi deildarinnar.

„Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“
Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði eitt og lagði upp tvö er Stjarnan vann öruggan 4-1 sigur gegn ÍA í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld.

Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð
Stjarnan vann öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti ÍA í fimmtu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Eftir að hafa tapað fyrstu tveim leikjum tímabilsins hafa Stjörnumenn nú unnið þrjá í röð.

„Við vissum að við þyrftum að þjást“
Tindastóll náði í sín fyrstu stig í Bestu deildinni á þessu tímabili eftir 0-2 sigur á Stjörnunni í Garðabæ. Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls, var að vonum kampa kátur að leik loknum.

Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum
Í kvöld lauk 3. umferð Bestu deildar kvenna. Á Samsungvellinum í Garðabæ náði Tindastóll í sín fyrstu stig með sigri á heimakonum í Stjörnunni. Lokatölur 0-2 þar sem Jordyn Rhodes, framherji Tindastóls, skoraði bæði mörkin.

„Geggjað að hafa náð einum sigri gegn langbesta kvenna félagi á landinu“
Stjarnan jafnaði einvígið gegn Keflavík eftir þriggja stiga sigur á heimavelli 85-82. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var afar ánægður með að hafa tekist að vinna stórlið Keflavíkur.

„Aldrei verið eins stressuð í lífinu“
Stjarnan vann ótrúlegan þriggja stiga sigur gegn Keflavík 85-82. Kolbrún María Ármannsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, var í skýjunum eftir sigurinn.

Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið
Stjarnan skellti deildarmeisturunum eftir ótrúlegan leik. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann þar sem Stjarnan var yfir meiri hlutann af leiknum í forystu. Lokasekúndurnar voru ótrúlegar og heimakonur náðu að klára leikinn. Staðan í einvíginu er jöfn 1-1.

Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila
Sigurbergur Áki Jörundsson fékk ekki tækifæri til að láta ljós sitt skína með Fylki gegn Stjörnunni í gærkvöld vegna samkomulags á milli félaganna þar að lútandi.

Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni
Hinn 15 ára gamli Viktor Bjarki Daðason reyndist hetja leiksins þegar Fram gerði 1-1 jafntefli við stjörnum prýtt lið Vals á Hlíðarenda í gær, og Stjarnan vann dramatískan sigur á Fylki. Mörkin úr leikjunum má nú sjá á Vísi.

Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta
Eins og Jökull Elísabetarson gat verið ánægður þá var Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkismanna mjög súr í bragði skömmu eftir leik. Hans menn í Fylki fengu mark á sig á loka andartökum leiksins og misstu tvö stig sem gætu verið mikilvæg.

Guðmundur Baldvin: Þrjú stig í hús á erfiðum velli og það er bara frábært
Stjarnan vann 1-0 sigur á Fylki í Árbænum í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu og var það varamaðurinn Guðmundur Baldvin Nökkvason sem skoraði sigurmarkið. Guðmundur á eftir að byrja leik þetta tímabilið en markið gæti hjálpað honum í þeim efnum.

Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum
Stjarnan náði að stela öllum stigunum sem í boði voru í Árbænum. Varamaðurinn Guðmundur Baldvin Nökkvason var hetjan. Leikurinn hafði verið í járnum í 92 mínútur.