ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. október 2024 20:49 Daniel Estevas Vieira fór mikinn og skoraði níu mörk fyrir ÍBV. vísir / anton brink ÍBV heimsótti ÍR og vann 41-31 stórsigur í Olís deild karla. KA tók á móti Stjörnunni og kastaði frá sér sigri, 27-27 lokaniðurstaðan.
ÍR - ÍBV 31-41 Sigurinn var aldrei í hættu hjá gestunum sem settu tóninn strax í upphafi og skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins. Heimamenn ÍR komust aldrei nálægt þeim. Daniel Esteves Vieira varð markahæstur með níu mörk úr tíu skotum. Sigtryggur Daði Rúnarsson fylgdi þar eftir með sex mörk úr níu skotum. Fjórir leikmenn skoruðu fjögur mörk en alls komust ellefu leikmenn á blað hjá ÍBV. Pavel Miskevich átti fínan leik í markinu, varði tíu skot auk þess að gefa tvær stoðsendingar. Hjá ÍR dró Baldur Fritz Bjarnason vagninn, langmarkahæstur með ellefu mörk og gaf fimm stoðsendingar að auki. ÍBV hefur nú safnað ellefu stigum úr níu leikjum og situr í þriðja sæti deildarinnar. ÍR er í næstneðsta sæti með fimm stig. Jafnt KA að stigum. KA - Stjarnan 27-27 KA tók á móti Stjörnunni og gerði 27-27 jafntefli eftir æsispennandi leik. Frá upphafsflauti munaði aldrei meira en tveimur mörkum milli liðanna. Stjarnan leiddi og KA elti fyrst um sinn, en það snerist í seinni hálfleik. KA tók tveggja marka forystu þegar tæpar tíu mínútur voru eftir og leiddi leikinn á lokasprettinum. Stjarnan minnkaði muninn í eitt mark þegar minna en mínúta var eftir. KA tók leikhlé fyrir síðustu sóknina en missti boltann og Stjarnan jafnaði. Bjarni Ófeigur reyndi að skora sigurmarkið með skoti fyrir aftan miðju en klikkaði og liðin skiptu stigunum jafnt milli sín. KA er því áfram í neðsta sæti deildarinnar. Stjarnan er í 8. sæti, jöfn Haukum með 8 stig.
Olís-deild karla ÍBV ÍR KA Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira