![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2018-10-22T153245.909Z-Manchester_City_FC_badge.svg.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/gracenote/4087.png)
Sala Jólaálfs SÁÁ er hafin en álfurinn er seldur til að styrkja sálfræðiþjónustu barna hjá SÁÁ. Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra keypti þann fyrsta í húsakynnum samtakanna í gær en sala Jólaálfsins stendur fram á laugardag.
Lyfjatengd andlát á síðasta ári voru tvöfalt fleiri en fyrir áratug og í um fjórðungi þeirra var um vísvitandi sjálfseitrun að ræða. Framkvæmdastjóri hjá SÁÁ segir mikilvægt að stjórnvöld bregðist af alvöru við vandanum. Heilbrigðiskerfið eigi ekki að þurfa að berjast um bitlinga
Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem sautján ára piltur lést. Senda þurfti börn frá Stuðlum á Vog vegna brunans, þar sem starfsfólk undirbjó móttöku þeirra á aðeins fáeinum klukkustundum.
Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri SÁÁ segir nýjan samning samtakanna við Sjúkratryggingar Íslands tímamótasamning. Samningurinn felur í sér fimmfalda aukningu á aðgengi að lyfjameðferð hjá SÁÁ fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóðafíkn.
Þann 2.september sl. var tímamótadagur í þjónustu við fólk með fíknsjúkdóma. Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson staðfesti viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknsjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknisjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar.
Mummi Týr Þórarinsson, fyrrverandi forstjóri Götusmiðjunnar segist hafa verið sannkallað götubarn sem hafi ekki átt neinn alvöru samastað á uppvaxtarárum sínum. Þetta kom ekki til af góðu en Mummi flúði óbærilegar aðstæður sem voru heima fyrir.
Framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, Elías Guðmundsson, segir það afar ánægjulegt að geta fjölgað meðferðarrýmum hjá sér í 29 á meðferðarheimilinu Krýsuvík. Með því verði hægt að styrkja kvennastarf samtakanna og kynjaskipta meðferðinni.
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir að lokunin sé vegna fjárskorts og hún megi heita skeytingarleysi gagnvart fólki með fíknisjúkdóm.
Ég fékk það staðfest fyrr í dag að SÁÁ lokar meðferðarstöðinni Vík í sumar vegna fjárskorts. Og göngudeildinni. Enn og aftur þarf að loka í sex vikur. Fólk sem leitar sér aðstoðar á Vogi í sumar fær sem sagt ekki neina samfellu í sinni meðferð. Eftir tíu daga á Vogi tekur ekkert við, hvorki göngudeild né Vík, fyrr en eftir dúk og disk.
Kolfreyja Sól Bogadóttir er tónlistarkona og vinnur á frístundaheimili í grunnskóla. Fyrir ári síðan var hún heimilislaus og djúpt sokkin í neyslu ópíóíða. Hún segir líf sitt hafa breyst með undraverðum hætti eftir að hún dvaldi á Hlaðgerðarkoti í langtímameðferð.
Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur.
„Svakalega er kallinn á flottum bíl, sagði Guðný við mig í símanum þegar ég renndi í hlaðið. Þegar ég stíg út úr bílnum sé ég þó um leið á svipnum á henni að þetta er eitthvað skrítið, enda spyr hún „Hvar er meistarinn?“ segir Árni Magnússon forstjóri ÍSOR og fyrrum ráðherra, sem fyrir tóman misskilning mætti í myndatöku fyrir átak SÁÁ, Edrúar febrúar.
Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað þrjátíu milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum, einkum ópíóíðafíkn. Hæsti styrkurinn, átta milljónir króna, rennur til verkefnis Matthildar, samtaka um skaðaminnkun.
Hér á landi eru morfínlyf notuð sem vímuefni hjá sumu fólki með fíknsjúkdóm. Það er reyndar líka tilfellið í öðrum löndum. Neysla morfínlyfja til að komast í vímu er sams konar og á heróíni. Neysla þessara ópíóíða er hættuleg, því notaðir eru háir skammtar og efnin gjarnan reykt eða þeim sprautað í æð. Afleiðingar eru ofskammtar, sýkingar og dauði.
Lyfjaávísanir morfínlyfja til fíkla í nafni skaðaminnkunar er engin lausn, að mati framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ. Fíklar sem séu í neyslu geti fengið lyfjameðferð.
Geðlæknir á fíknigeðdeild Landspítala og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ segja það að skrifa út morfíntöflur fyrir fíkla ekki taka á mestu hættunni sem steðjar að þeim.
Tilefni þessara skrifa er umræða sem hefur átt sér stað vegna ávísana sjálfstætt starfandi læknis á morfíntöflum í nafni skaðaminnkunar, til handa fólks sem sprautar í æð.
Síðasta föstudag greiddum við atkvæði um fjárlögin. Eitt af málum Flokks fólksins var að fá aukið fjármagn til stofnana eins og SÁÁ, Hlaðgerðarkots og Krýsuvíkur svo þær gætu sinnt þeim fárveiku einstaklingum sem bíða eftir hjálp.
Ástrós Lind Eyfjörð var 24 ára gömul þegar hún ánetjaðist spilakössum. Hún þróaði strax með sér gífurlega sterka fíkn og þráhyggju og tapaði háum fjárhæðum á stuttum tíma. Á tímabili var vanlíðan hennar svo mikil að hún íhugaði að svipta sig lífi.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mætti í strætóskýlið við Lækjartorg til að taka á móti Jólaálfi SÁÁ, sem að þessu sinni kom til byggða með strætó.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, leitaði sér hjálpar á Vogi í sumar. Hann hefur miklar áhyggjur af dauðsföllum hér á landi af völdum fíknisjúkdóms. Tólf manns hafi látist í fyrra á meðan bið stóð eftir plássi í framhaldsmeðferð. Staðreyndin sé sú að það kosti engar óskaplega fjárhæðir að kippa þessu í liðinn. Mun minna en mislæg gatnamót svo dæmi sé tekið.
Það hafa fimm einstaklingar látið lífið það sem af er ári í umferðarslysum. Við erum sammála um að það er of mikið, þótt vissulega hafi fleiri látist í umferðinni en nú í ár. Í samfélaginu er stöðugt ákall um öruggari umferð og er það vel. Gerðar eru áætlanir og samgöngusáttmálar langt fram í tímann um úrbætur á vegakerfinu sem meðal annars eiga að auka öryggi og fækka dauðsföllum.
Gulur september er mikilvæg vitundarvakning fyrir okkur öll þar sem geðrækt, líðan og sjálfsvígsforvarnir koma okkur öllum við. Í samfélagi þar sem mörg upplifa auknar kröfur og meiri hraða virðist tíminn fyrir geðrækt og áherslur á andlega líðan fara minnkandi.
Ekki allir eiga heima í meðferð hjá SÁÁ. Formaður segir mikilvægt að allir geti fengið meðferð, en að yfirvöld þurfi að setja sér heildræna stefnu svo hægt sé að útbúa meðferð sem henti þeim sem eru til dæmis þroskaskert og með fíknivanda.
Foreldrar þroskaskerts ungs manns með mikinn fíknivanda gagnrýna úrræðaleysi fyrir ungt fólk með tvíþættan vanda. Syni þeirra var vísað af geðdeild vegna hegðunarvanda en ekki er langt síðan hann reyndi að fyrirfara sér. Foreldrar hans óttast hvað gerist næst.
„Já mig grunar að þetta hafi verið viljaverk. Afbrýðisemin var svo mikil að hann hafði oft sagt við mig að hann gæti ekki hugsað sér að einhver annar fengi mig eða að einhver annar karlmaður fengi að ala upp son hans,“ segir María Kristín Þorleifsdóttir þegar hún minnist bílslyssins 9. október 1997 þar sem tveggja og hálfs árs sonur hennar og barnsfaðir létu lífið og sjálf slasaðist hún mjög alvarlega.
Göngudeildum SÁÁ og meðferðarstöðinni í Vík verður lokað í sumar vegna fjárskorts á sama tíma og fréttir berast af ópíóðafaraldri. Yfirlæknir segist ekkert hafa heyrt frá heilbrigðisráðherra eftir að hann boðaði aukna fjárveitingu fyrir rúmum tveimur vikum.
Skaðaminnkunarsinni segir þungan anda yfir vímuefnaneytendum og aðstandendum vegna frétta af ofskömmtunum. Sjálfur segist hann aðallega hitta æskuvini sína í jarðarförum þessa dagana. Hann telur aðgerðir sem heilbrigðisráðherra kynnti nýverið sem viðbragð við ópíóðafaraldrinum ekki ganga nógu langt.
„Álfurinn boðar gæfu og gleði fyrir alla sem fá hjálp frá SÁÁ. Ég er viss um að þessir jákvæðu álfastraumar fylgja mér upp á sviðið í Liverpool,“ segir söngkonan Diljá Pétursdóttir, sem keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision.