
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Ábyrgð á eftirliti með vottorðum færð yfir á flugfélög
Flugfélög sem fljúga til Íslands verða frá og með næsta laugardegi að neita þeim um flutning til landsins sem geta ekki sýnt fram á fullgilt vottorð um bólusetningu fyrir Covid-19, fyrri sýkingu eða neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku.

Bein útsending: Ekkert ofbeldi án gerenda
Hvernig náum við til gerenda í ofbeldisbrotum? Öll vitum við að til þess að koma í veg fyrir ofbeldisbrot þurfa gerendur að hætta að beita ofbeldi. Hingað til hafa úrræði fyrir gerendur verið afar takmörkuð.

Ísland verður síðasta þróaða ríkið til að endurheimta fyrri efnahagsstyrk
Ekkert þróað ríki verður jafn lengi að endurheimta fyrri efnahagsstyrk eftir heimsfaraldurinn og Ísland, samkvæmt nýrri spá OECD. Við matið er verg landsframleiðsla á mann notuð sem mælikvarði á þetta.

Útilokað að hálendisþjóðgarðurinn verði samþykktur í núverandi mynd
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannesson, telur útilokað að frumvarp um hálendisþjóðgarð í sinni núverandi mynd verði að lögum á þessu þingi.

Leggja til að fallið verði frá skyldu um lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga
Fallið verður frá skyldu um lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga ef breytingartillaga meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar nær fram að ganga. Ráðherra sveitarstjórnarmála segir að með þessu sé verið að hlusta á sjónarmið minni sveitarfélaga.

Langflestir vilja að Katrín leiði næstu ríkisstjórn
Langflestir eða nærri helmingur aðspurðra í nýrri könnun Maskínu vilja Katrínu Jakobsdóttur sem næsta forsætisráðherra landsins. Stuðningur við formann Samfylkingarinnar helmingast á milli kannana.

Ekkert í störfum Kristjáns Þórs sem gefur tilefni til vantrausts
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki hafa séð neitt í störfum Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem gefi henni tilefni til að vantreysta honum. Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og formanni Sjálfstæðisflokksins finnst ekki eðlilegt að hann tjái sig um samskipti Kristjáns við meðlim svokallaðrar „skæruliðadeildar“ Samherja.

Bjarni segir stefnt á sölu á allt að 35% hlut í Íslandsbanka um miðjan næsta mánuð
Fjármálaráðherra segir stefnt að sölu á allt að þrjátíu og fimm prósenta hlut í Íslandsbanka um miðjan næsta mánuð. Leitað verður til erlendra fjárfesta en ráðherra vonar að almenningur taki virkan þátt í útboðinu og geti keypt hlut fyrir allt niður í fimmtíu þúsund krónur.

Um hundrað þúsund ónýttar ferðagjafir renna út á þriðjudag
Nú fer hver að verða síðastur að nýta ferðagjöf sína sem gefin var út í fyrrasumar. Ferðagjöfin rennur út um mánaðamótin, á þriðjudaginn eftir fimm daga, og enn eiga um hundrað þúsund Íslendingar eftir að nota sína gjöf.

Áforma hlutafjárútboð og skráningu Íslandsbanka í Kauphöll
Bankasýsla ríkisins og Íslandsbanki hafa nú staðfest áform sín um að hefja hlutafjárútboð og í framhaldinu skráningu hlutabréfa Íslandsbanka á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Grætur kaldar kveðjur frænku sinnar krókódílstárum
Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, segir þá staðreynd að Kristján Þór Júlíusson sé ekki horfinn úr sjávarútvegsráðuneytinu ótvíræð skilaboð um að ríkisstjórnin sé fyrst og síðast um óbreytt ástand.

Andstaða almennings vísbending til stjórnmálamanna
Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna er andvígur auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu, samkvæmt nýrri skoðanakönnun BSRB. Rúnar Vilhjálmsson félagsfræðiprófessor, sem annaðist rannsóknina, segir að stjórnmálaöfl sem vilji afla sér fylgis þurfi að hafa þennan almannavilja í huga.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar nokkuð samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, eða um tvö og hálft prósentustig miðað við sambærilega könnun sem gerð var í apríl á þessu ári. Minna en helmingur kveðst ánægður með störf ríkisstjórnarinnar.

Fjölmiðlafrumvarpið samþykkt
Frumvarp Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, um stuðning við einkarekna fjölmiðla var samþykkt á Alþingi í dag.

Katrín: Svona gera menn einfaldlega ekki
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir framgöngu svokallaðrar skæruliðadeildar Samherja óboðlega og óeðlilega.

Fordæma skæruhernað Samherja gagnvart pólítíkinni og fjölmiðlum
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnhagsráðherra, segist ekki hafa fengið veður af tilraunum „skæruliðadeildar“ Samherja til að hafa áhrif á uppröðum á framboðslistum flokksins fyrir kosningarnar í haust.

Segir Bjarna og ríkisstjórnina blóðmjólka eldri borgara
Grái herinn býst til vopna. Ríkið tekur 80 prósent af aukagreiðslum eftirlaunafólks og 45 milljarða árlega af lífeyrisþegum.

Allt annað líf að fá að standa berskjaldaður andspænis kúnnunum
Ætla má að veitingahúsa- og bareigendur landsins hafi margir hverjir séð tilefni til að gleðjast í dag yfir boðuðum tilslökunum á sóttvarnareglum. Það er Björn Árnason, eigandi Skúla Craft Bar, að minnsta kosti en hann segir það muna öllu að fá að afgreiða fólk grímulaus.

Hraunið komið yfir nýlagðan ljósleiðara
Ljósleiðari var grafinn niður fyrir framan annan varnargarðinn á gosstöðvunum síðasta þriðjudag til að mæla áhrif hraunrennslis á ljósleiðara. Ljóst er að ef gosið heldur mikið lengur áfram mun hraun á endanum renna niður að Suðurstrandavegi en áður en það næði þangað myndi það renna yfir ljósleiðara Mílu sem hringtengir Reykjanesið.

Bólusettir verða áfram skimaðir á landamærum
Bólusettir verða áfram skimaðir á landamærum og verður fyrirkomulag um tvöfalda skimun áfram óbreytt, að minnsta kosti til 15. júní. Er það meðal annars vegna þess að bólusettum á leið til landsins mun fjölga á næstunni.

150 mega hittast og almenn grímuskylda heyrir sögunni til
150 mega koma saman frá og með næsta þriðjudegi og fyrstu skref verða tekin í að aflétta grímuskyldu. Þetta staðfesti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra rétt í þessu.

Svandís og Katrín kynntu breytingar innanlands og á landamærum
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum sínum um aðgerðir innanlands.

Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs
Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins.

16,9 milljarðar í styrki vegna faraldursins
Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar með talið einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki.

Sergei Lavrov mættur í Hörpu: Rússneski ráðherrann slær á létta strengi við fréttamenn
Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands hittast á tvíhliða fundi í Hörpu núna innan stundar. Það verður fyrsti fundur háttsettra ráðamanna ríkjanna frá því Joe Biden tók við forsetaembættinu í Bandaríkjunum í janúar.

Steinunn Þóra og Orri Páll í öðru sæti hjá Vinstri grænum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra leiða lista Vinstri grænna í Reykjavík í Alþingiskosningum í haust. Prófkjöri flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum er lokið.

Bein útsending: Kynna skýrslu um leiðir til að bæta afkomu sauðfjárbænda
Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra mun kynna skýrslu um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana á streymisfundi sem hefst klukkan 9:30.

Segir sóun að ætla að stöðva hraunið með varnargörðum
Hafist var handa í dag við að hækka varnargarða á gosstöðvunum upp í átta metra hæð eftir að ríkisstjórnin samþykkti í morgun að verja tuttugu milljónum króna til verksins. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur þetta sóun, engin leið sé að stöðva hraunið með varnargörðum.

Íslenskir ráðamenn þrýstu á Blinken um lausn fyrir botni Miðjarðarhafs
Íslenskir ráðmenn þrýstu á Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum með honum í dag að gera allt sem í hans valdi stæði til að stöðva átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Hann er sammála stefnu íslenskra stjórnvalda um að tveggja ríkja lausn í samskiptum Ísraels og Palestínu sé besta skrefið varðandi framtíð ríkjanna.

Telur víst að minnst eitthundrað megi koma saman eftir helgi
Heilbrigðisráðherra telur nokkuð öruggt að 100 manns hið minnsta verði leyft að koma saman þegar nýjar samkomutakmarkanir taka gildi eftir helgi. Grímuskyldan er einnig til skoðunar en ráðherra telur að hún verði afnumin í áföngum.