
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Dæmi um að greiðsluhækkanir til ellilífeyrisþega skerðist um 75 prósent
Hækkun greiðslna Lífeyrissjóðs verslunarmanna til félagsmanna skerðast um allt að 75 prósent vegna lækkunar bóta Tryggingastofnunar á móti. Þá skerðist eingreiðsla lífeyrissjóðsins til félagsmanna um tugi prósenta.

Fimm hundruð manna samkomubann og grímuskylda
Fimm hundruð manna fjöldatakmörkun tekur gildi næsta miðvikudag. Þá verður grímuskylda tekin upp á morgun þar sem ekki er hægt að virða eins metra nálægðarreglu.

Bein útsending: Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs
Ríkisstjórnin fundar nú fyrir hádegi í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu og verða nýjustu tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um sóttvarnaaðgerðir til umfjöllunar þar.

Ríkisstjórnin fundar fyrir hádegi og ræðir tillögur Þórólfs
Ríkisstjórnin hittist á fundi nú fyrir hádegið þar sem farið verður yfir nýjustu tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum.

Býst við minnisblaði frá Þórólfi um innanlandsaðgerðir í dag
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra býst við því að fá minnisblað frá sóttvarnalækni um aðgerðir innanlands í dag. Þá reiknar hún með því að ræddur verði möguleiki á hertum aðgerðum innanlands á ríkisstjórnarfundi í fyrramálið.

Leiðtogar Norðurlanda heita auknu samstarfi í öryggismálum
Leiðtogar norrænu ríkjanna lögðu áherslu á aukið samstarf um neyðarviðbúnað og annan viðbúnað á fundi Norðurlandaráðs í dag. Ríkin búi sig undir alls konar neyðarástand og kreppur, hvort sem þær eru af völdum manna eða náttúru.

Stefnir í stóra viku í pólitíkinni
Í næstu viku gæti dregið til tíðinda í stjórnarmyndunarviðræðum og líklegt er talið að Alþingi komi saman. Vinna undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa er nú á lokametrunum og greinargerð ætti að liggja fyrir á næstu dögum. Næsta vika gæti því orðið tíðindamikil á sviði stjórnmálanna.

Bjarni telur nýja ríkisstjórn verða myndaða í næstu viku
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segist telja að ný ríkisstjórn verði mynduð í næstu viku. Viðræðum hafi miðað vel.

Skora á stjórnarflokkana að taka á málefnum bráðamóttökunnar
Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands skorar á formenn stjórnarflokkanna að taka á málefnum bráðamóttöku Landspítalans í stjórnarmyndunarviðræðum sínum. Meira fjármagn þurfi til að tryggja nauðsynlega mönnun og rétt flæði innan spítalans til framtíðar.

Rætt um peninga og raunverulegar aðgerðir
Forsætisráðherra segir jákvætt að umræðan á loftslagsráðstefnunni í Glasgow snúist að miklu leyti um peninga og raunverulegar aðgerðir. Íslenskir lífeyrissjóðir ætla að fjárfesta fyrir um sex hundruð milljarða króna í grænum lausnum á næstu níu árum.

Katrín á COP26: Tíminn til að skapa framtíðina er núna
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vitnaði í rithöfundinn Andra Snæ Magnason er hún ávarpaði gesti á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í hádeginu í dag. Sagði hún tímann til að skapa framtíðina vera núna, auk þess sem hún lagði áherslu á að horft væri til kynjajafnréttis við ákvarðanatöku í loftslagsmálum.

Óljóst hvort loftslagsráðstefnan skili nægilegum árangri
Umhverfisráðherra segir óljóst hvort COP26 ráðstefnan muni skila nægilegum árangri í loftslagsmálum þrátt fyrir að einhver framfaraskref verði stigin. Forsætisráðherra kynnir stefnu íslenskra stjórnvalda í dag.

Bein útsending: Katrín ávarpar gesti á COP26 í Glasgow
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpar gesti á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í hádeginu í dag.

Fimmtíu manna sendinefnd á leið á loftslagsráðstefnuna í Glasgow
Umhverfissamtök segja íslensk stjórnvöld þurfa að gera mun betur í loftslagsmálum og krefjast þess að atvinnugreinum verði sett skýr losunarmörk. Þetta kemur fram í afdráttarlausri áskorun þeirra í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar COP26 í Glasgow.

Hótelin með snjóhengju skuldbindinga eftir faraldurinn
Formaður félags Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir að það muni taka hótelin tíma að koma rekstrinum í jafnvægi eftir hrun ferðaþjónustunnar í covid faraldrinum. Bankar og fleiri aðilar þurfi að sýna þeim skilning og stjórnvöld að jafna stöðu hótelanna gagnvart leiguíbúðum og hótelskipum.

Takmarkar tímann sem veiðimenn hafa til að veiða rjúpu
Umhverfisráðherra ákvað í dag að stytta tímann sem veiðimenn fá til að veiða rjúpu yfir daginn til að bregðast við stöðu stofnsins. Verður óheimilt að hefja leit og veiðar fyrir hádegi þá daga sem leyft verður að veiða. Veiðitímabilið hefst þann 1. nóvember.

Verulega ólíklegt að af fullri afléttingu verði 18. nóvember
Heilbrigðisráðherra telur verulega ólíklegt að sóttvarnatakmörkunum innanlands verði aflétt að fullu 18. nóvember líkt og stjórnvöld höfðu boðað. Ráðherra hefur verulega áhyggjur af stöðunni þó enn sé ekki hugað að hertum aðgerðum.

Nýjar reglur stytta sóttkví og einangrun
Einangrun vegna Covid-19 getur styst varað í sjö daga og almenn krafa um sóttkví styttist úr sjö dögum í fimm með breytingum sem heilbrigðisráðherra hefur gert á reglugerð. Breytingarnar eru sagðar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis en þær taka gildi á morgun.

Stytting á sóttkví grunnskólabarna til skoðunar
Til skoðunar er að stytta sóttkví grunnskólabarna og gætu nýjar tillögur legið fyrir í lok vikunnar. Mennta- og menningarmálaráðherra ræddi stöðuna á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Gætu séð til lands í næstu eða þarnæstu viku
Forsætisráðherra segir að flokkarnir þrír sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum gætu farið að sjá til lands í næstu eða þarnæstu viku. Búið er að setja niður texta um einstaka málaflokka en heildarmyndin liggur ekki fyrir.

Útlínur einstakra málaflokka stjórnmálasáttmála að teiknast upp
Bjarni Benediktsson fjármála-og efnahagsráðherra segir stjórnarmyndunarviðræður ganga vel og útlínur einstkra málaflokka farnar að teiknast upp. Það sé þó of snemmt að segja til um hvenær nýr stjórnarsáttmáli verði kynntur.

Leggja drög að stjórnarsáttmála
Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna eru farnir að leggja drög að stjórnarsáttmála samkvæmt heimildum fréttastofu. Niðurstöðu gæti verið að vænta í næstu eða þarnæstu viku.

Þing ekki kallað saman fyrr en undirbúningskjörbréfanefnd hefur lokið störfum
Viðræður formanna stjórnarflokkanna um nýjan stórnarsáttmála ganga vel að þeirra sögn og flest bendir til að þeir muni ná saman um nýja stjórn. Forsætisráðherra segir Alþingi ekki koma saman fyrr en undirbúningskjörbréfanefnd hafi lokið störfum.

Dregið úr sértækum stuðningi og færri nýta sér úrræðin
Dregið hefur úr sértækum stuðningi ríkissjóðs við rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru samhliða efnahagsbata að undanförnu.

Ræddu gang stjórnarmyndunarviðræðna
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, áttu fund á Bessastöðum í morgun þar sem rætt var um gang viðræðna stjórnarflokkanna þriggja um áframhaldandi samstarf.

VG í snúinni stöðu vegna heilbrigðismála
Ekkert hefur bent til annars en að sitjandi ríkisstjórn haldi áfram störfum sínum á næsta kjörtímabili. Formenn flokkanna þriggja hafa fundað reglulega frá kosningum og má búast við að stjórnarmyndunarviðræðurnar haldi áfram næstu vikurnar en eins og prófessor í stjórnmálafræði bendir á liggur þeim alls ekkert á að semja stjórnarsáttmálann og geta tekið sér allan þann tíma sem þeim hentar.

„Það sem öll njósnakerfi heimsins ganga út á“
Formaður Viðreisnar vill fund með ráðherrum til að ganga úr skugga að þjóðaröryggi Íslendinga sé ekki ógnað með sölu á Mílu, dótturfélagi Símans, til fransks fyrirtækis. Tryggja verði að viðkvæmar upplýsingar rati ekki í rangar hendur.

Sigmundur vill að ríkisstjórnin grípi inn í
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, vill að ríkisstjórnin grípi inn í fyrirhugaða sölu Símans á Mílu.

Salan á Mílu ásættanleg að uppfylltum ákveðnum skilyrðum
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir það ásættanlegt að Míla sé seld til erlendra aðila að því gefnu að gengið sé frá ákveðnum úrlausnarefnum sem stjórnvöld telja upp á borði. Viðræður ráðherra og fulltrúa söluaðilans, Símans, eru nýhafnar og er forsætisráðherra með löggjöf í undirbúningi sem ætlað er taka á innviðasölu til erlendra aðila.

„Langt síðan við hættum að horfa sérstaklega á smittölur“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur ekki áhyggjur af því að verið sé að ráðast í afléttingar á samkomutakmörkunum innanlands á sama tíma og smituðum virðist vera að fjölga í samfélaginu. Áttatíu manns greindust með veiruna í gær, sem er mesti fjöldi í tæpa tvo mánuði.