
Lífið

Bökuðu tvíburaköku fyrir Gleðibankann
Fjórar góðar vinkonur, Heiðrún, Svanhildur Dóra, Svanhildur Margrét og Valgerður Birna ákváðu að taka þátt í kökukeppni í félagsmiðstöðinni sinni, Gleðibankanum í Hlíðaskóla nú í vikunni.

Bera bragð villtrar náttúru
Gæsaveiðitímabilið stendur sem hæst og margir eiga fuglakjöt í forðabúri sínu. Þar sem gæsirnar hafa lifað á berjum og öðru kjarnmeti ber kjöt þeirra bragð úr villtri náttúru landsins.

Býður nám á 40 brautum
Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar því á þessu hausti að rétt fjörutíu ár eru liðin frá því hann var settur fyrst. Af því tilefni var hollvinafélag skólans stofnað á dögunum.

Lífssögur laðaðar fram
Októberstefnumót Söguhrings kvenna er í Borgarbókasafninu í Spönginni, Grafarvogi í dag. Þema haustsins er lífssögur, þvert á tungumál, kynslóðir og tjáningarform.

Mundi vilja verða dýrahirðir
Iðunn Ægisdóttir naut þess að fara upp í sveit um síðustu helgi. Hún dró kindur í dilk, fór í berjamó og gaf hænuungum að borða.

Þetta verður alltaf sveitin mín
Þó að töfrar Árneshrepps á Ströndum séu ótvíræðir á lygnum haustdögum þegar Trékyllisvíkin er spegilslétt og jörðin skartar fegurstu litum, þá steðjar að honum vandi nú vegna fólksfækkunar. Tíu manns eru á förum, þar af fimm börn.

Heppinn að vera vel giftur
Birgir Pálsson, tölvunarfræðingur er fimmtugur í dag og fer í óvissuferð til Köben. Á Kastrup á hann að opna umslag með upplýsingum um hvernig hann á að haga sér.

Skætt sjóslys fyrir 80 árum
Þess er minnst að 80 ár eru liðin síðan franska rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? fórst við Mýrar og með því 40 manns, þar á meðal leiðangursstjórinn Jean-Baptiste Charcot.

Nýtt tímabil eftir fimmtugt
Ball í ráðhúsinu – Til móts við þróttmikið þriðja æviskeið, er yfirskrift ráðstefnu sem haldin er í dag og fjallar um innihaldsríkt líf eftir miðjan aldur.

Kirkjuorgel í nýju hlutverki
Fyrstu reglubundnu bíósýningarnar á Íslandi hófust fyrir 110 árum. Þess verður minnst á árlegum fundi fólks frá kvikmyndasöfnum Norðurlandanna sem haldinn er hér á landi.

Ruglaðist á mömmu og systur hennar
Hann æfir körfubolta, er líka alltaf að hlusta á tónlist en dansar ekki mikið. Mikael Aron Sverrisson fór í útilegu í sumar og hefur frá mörgu að segja.

Fagnar stórafmæli á afrétti
Skúli Gunnar Sigfússon, kenndur við Subway, verður fimmtugur á morgun. Hann ætlar að verja deginum í smölun á afréttum Vestur-Skaftfellinga. Það verður hans veisla.

Hótelið reis á níu mánuðum
Það var töfrum líkast hvernig Hótel Örk í Hveragerði spratt upp fyrir 30 árum. Afmælistilboð eru um helgina og í dag er opið hús með ís, köku, leikjum og töfrabrögðum.

Nýbúin með skírnarkjóla
Hannyrðakonan Aðalbjörg Jónsdóttir situr ekki auðum höndum þó á 100. aldursári sé. Bók um ævistarf hennar kemur út á morgun, hún nefnist Prjónað af fingrum fram.

Dansað kring um makrílinn
Það er ekkert minna en ævintýri sem á sér stað í grennd við Keflavíkurhöfn þessa dagana. Makrílbátarnir stíma að bryggju með fullfermi allt að þrisvar á dag - ef fiskifæla flækist ekki um borð.

Sveppir gera góðan mat betri
Þeim fjölgar sem kunna að meta íslenska sveppi, jafnframt því sem ætisveppir breiðast út með vaxandi skógrækt. Vonandi hafa margir aflað vel í sveppamó undanfarnar vikur og meðan ekki frýs halda sveppir áfram að gægjast upp úr sverði

Myndlist sem minnir á frið
María Loftsdóttir sjúkraliði hefur málað myndir fyrir hvert land heimsins úr vatni sem flæddi um friðarsúluna í Viðey. Hún opnar sýningu á þeim í Gerðubergi á morgun.

Þótti gott að þekkja konu sem gat gert við lykkjuföll
ASÍ býður til dagskrár í Árbæjarsafni á morgun, 28. ágúst, í tilefni aldarafmælis síns. Maríanna Traustadóttir mannfræðingur verður með leiðsögn um sýninguna Hjáverk kvenna.

Ætlar að drekka kaffi hjá Bjarna og eyðileggja bækur
Guðmundur Óli Sigurgeirsson kennari kemst í tölu heldri borgara í dag. Því fagnar hann með upplestri úr nýútkominni æskuminningabók sinni í Bókakaffi á Selfossi.

Partur af því að vera til
Bragi Valdimar Skúlason tónlistarmaður, hugmyndasmiður og málfarsráðunautur er fertugur í dag og treystir á að fá stóra pakka og helst einhverja sjaldgæfa Pokémona.

Æfir ofurhetjuhopp á dýnu
Hann Jakob Gumi Vignisson fimm ára er í skóla sem heitir Austurkór og svo er hann líka í Latabæjarskóla.

Málar mynstur gamalla útskurðargripa
Sæunn Þorsteinsdóttir myndlistarkona opnar sýninguna Mynstur í Sögusetrinu á Hvolsvelli á morgun. Útskurðarmunir í Skógasafni urðu henni innblástur að sumum verkanna.

Hér er bæði skákmót og fagnaðarfundur
Skákmót verður haldið í dag á Reykhólum í minningu Birnu E. Norðdahl, (1919-2004), brautryðjanda sem varð fyrir 40 árum Íslandsmeistari kvenna og Reykjavíkurmeistari.

Fyrstu álkarlar sögunnar
Systkinin Jakob og Svanhvít Antonsbörn og Andri Guðlaugsson urðu um helgina fyrst til að ljúka hinni þrískiptu þrautakeppni Álkarlinum sem háð er á Austurlandi.

Alltaf verið mikið fyrir að hreyfa mig
Selfyssingurinn Eva María Baldursdóttir vippaði sér yfir 1,61 metra háa slá á Unglingalandsmótinu og setti þar með nýtt Íslandsmet í hástökki í flokki 13 ára stúlkna. Þó er hún ekki alveg orðin 13, en það er stutt í það.

Enn á kafi í litunum
Myndir Aðalsteins Vestmanns, málara á Akureyri, prýða nú veggi Gallerís Vest á Hagamel 67. Hann segir þó ekki aðalatriðið að sýna, heldur lifa sig inn í listmálunina.

Gegndi fornum ábúanda
Sveitarómantík, húmor og litagleði einkenna myndir listakonunnar Álfheiðar Ólafsdóttur á sýningu hennar í Króki á Garðaholti sem opin er um helgar í þessum mánuði.

Finnst maður aldrei nógu góður í þessu fagi
Listdans er ástríða og atvinna mæðginanna Katrínar Hall og Franks Fannars Pedersen. Bæði eru þar að takast á við ögrandi verkefni.

Hélt veislu með Orra afa
Þegar Bríet Hrefna Guðlaugsdóttir byrjar í grunnskóla í haust þætti henni skemmtilegast ef krakkarnir fengju að mála skólastofuna.

Eðalmatur fyrir hlaupara
Matgæðingurinn Albert Eiríksson veit hvað hentar best í magann fyrir hlaup. Hann setti saman girnilegan matseðil sem hentar mjög vel fyrir þá sem stunda íþróttir og líkamsrækt. Matseðillinn er stútfullur af hollustu og góðum næringarefnum.