
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

CNN í beinni frá djamminu: „Gefðu mér smá séns hérna, vinur“
Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN sendi á dögunum fréttamann til Íslands til þess að kanna hvernig tekist hefur að glíma við kórónuveirufaraldurinn hér á landi. Fór sjónvarpsstöðin í beina útsendingu frá miðborg Reykjavíkur skömmu eftir miðnætti. Djammþyrstir gestir miðborgarinnar trufluðu útsendinguna.

Ráðherra ræddi breytingar á aðgerðum
Ríkisstjórnin situr nú á fundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu þar sem meðal annars eru til umræðu næstu aðgerðir innanlands í kórónuveirufaraldrinum.

Fangelsisdómur yfir einum þeirra sem ætlaði að ræna ríkisstjóra
Dómstóll í Michigan dæmdi karlmann á þrítugsaldri í rúmlega sex ára fangelsi fyrir aðild sína að ráðabruggi um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan, í fyrra. Samsærismennirnir voru ósáttir við takmarkanir sem Whitmer setti á vegna kórónuveirufaraldursins.

Stöðva notkun bóluefnis Moderna eftir að agnir fundust í lyfjaglösum
Heilbrigðisyfirvöld í Japan og bóluefnaframleiðandinn Moderna hafa ákveðið að bíða með notkun 1,6 milljón bóluefnaskammta eftir að agnir fundust í nokkrum skömmtum af 560 þúsund skammta framleiðslulotu.

Nýi ríkisstjórinn leiðréttir tölu látinna í faraldrinum
Raunverulegur fjöldi látinna í kórónuveirufaraldrinum í New York-ríki er um tólf þúsund manns hærri en opinberar tölur sögðu til um. Nýr ríkisstjóri greindi frá þessu eftir að hann tók við embættinu.

Gigtarlyf í flýtimati sem meðferð við Covid-19
Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur hafið mat á því hvort gigtarlyfið RoActemra nýtist sem meðferð við alvarlegum Covid-19 sjúkdómi. Einna helst er til skoðunar hvort lyfið gagnist fullorðnum sjúklingum sem liggja á sjúkrahúsi, eru á sterameðferð og þurfa súrefnisgjöf eða öndunarvélastuðning.

Vonar að 500 fái að koma saman og hraðpróf komi í stað fjarlægðartakmarkana
Ríkisstjórnin fundar á morgun um næstu aðgerðir í baráttunni við faraldurinn en sviðslistafólk hefur verið í samtali við yfirvöld um næstu skref.

Ríkisstjórnin fundar um næstu aðgerðir á morgun
Ríkisstjórnin kemur saman til fundar á morgun en núverandi sóttvarnaaðgerðir renna út á föstudag. Bæði sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra hafa sagt að tilefni sé til að létta á aðgerðum.

Minnst 84 greindust smitaðir í gær
Samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is greindust 84 smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær.

Komust ekki að niðurstöðu um uppruna veirunnar
Bandarísku leyniþjónustunni tókst ekki að komast til botns í því hvernig nýtt afbrigði kórónurveirunnar barst fyrst í menn. Í skýrslu sem hún skilaði Joe Biden Bandaríkjaforseta er engin afgerandi niðurstaða um hvort að veiran hafi borist náttúrulega úr dýrum í menn eða hvort hún hafi sloppið af rannsóknastofu.

Lögregla leitar ljósum logum að karókíþyrstu Covid-sjúklingunum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veit engin deili á fólki sem tilkynnt var um að ætlaði sér á karókíkvöld á skemmtistaðnum Gauknum í Reykjavík í gær, þrátt fyrir að hluti hópsins væri Covid-smitaður. Málinu er þó ekki lokið af hálfu lögreglu.

Biður fólk um að koma vinsamlegast ekki til Havaí
Ólíkt stjórnvöldum á Íslandi og víðsvegar annars staðar í heiminum hefur ríkisstjóri Havaí biðlað til ferðamanna um að koma vinsamlegast ekki til eyjanna eins og sakir standa.

Dregur nokkuð úr vörninni eftir því sem mánuðirnir líða
Vísindamenn segja nokkuð draga úr vörn bóluefna Pfizer og AstraZeneca eftir því sem líður frá bólusetningu. Við þessu sé þó að búast og að bóluefnin veiti áfram góða vörn.

57 prósent þjóðarinnar vilja að ríkið veiti miklu meira fé til Landspítalans
Um 57 prósent þjóðarinnar vilja að ríki veiti miklu meira fé til Landspítalans en nú er gert, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Fréttablaðið lét gera og birti í morgun.

Þrjátíu og níu Covid-flutningar og ketti bjargað úr tré
Síðasti sólahringur var nokkuð annasamur hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, sem sinnti 155 sjúkraflutningum. Þar af voru 32 forgangsverkefni og 39 Covid-19 flutningar.

Missti stjórn á sér og stuggaði við mótmælandanum
Faðir barns sem fékk bólusetningu í morgun hálf sér eftir að hafa stuggað við mótmælanda sem hrópaði að börnunum að þau væru að fara að láta sprauta í sig efnavopni. Hann kveðst kannast við manninn og viljað koma honum í burtu frá börnunum.

Prófa mótefnalyf sem gæti fækkað spítalainnlögnum
Mótefnalyf sem Landspítalinn notar við meðferð á Covid-19 hefur gefið góða raun hingað til. Lyfið er gefið fólki í sérstökum áhættuhópi og hefur það allt sloppið við spítalainnlögn.

Gauknum lokað skyndilega vegna karaokíþyrstra Covid-sjúklinga
Skemmtistaðurinn Gaukurinn verður lokaður í kvöld eftir að stjórnendum staðarins barst það til eyrna að karaokí þyrstir Covid-sjúklingar hygðust mæta á karaokí-kvöld, sem átti að vera á staðnum í kvöld. Þetta staðfestir rekstrarstjóri Gauksins í samtali við fréttastofu.

Fækkar á gjörgæslu og engin ný tilfelli á Landakoti
Nú liggja 22 sjúklingar inni á Landspítalanum vegna Covid-19. Þar af eru fimm á gjörgæsludeild og fækkar um einn milli daga. Allir fimm sjúklingarnir eru í öndunarvél. Engin ný tilfelli hafa komið upp á Landakoti eftir að starfsmaður greindist með Covid-19 á föstudag.

Fleiri greinast á Seyðisfirði
Alls hafa nú tveir til viðbótar greinst með Covid-19 á Seyðisfirði í tengslum við smit sem rakið hefur verið til leikskólans í bænum. Sex af þeim tíu virku smitum sem eru á Austurlandi nú eru rakin til leikskólans.

Landhelgi íslenskrar ferðaþjónustu - 0 mílur
Fyrir Covid var komin af stað réttmæt umræða um að rekstrarstaða margra íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja væri slæm og hefði versnað. Hluti vandans var rakin till falls WOW en einnig til almenns rekstrarvanda í greininni og skakkrar samkeppnisstöðu.

Spítalinn gerir athugasemdir við málflutning formanns félags sjúkrahúslækna
Framkvæmdastjórn Landspítalans gerir efnislegar athugasemdir við málflutning Theodórs Skúla Sigurðssonar, formanns félags sjúkrahúslækna, sem hefur að undanförnu komið fram í fjölmiðlum og gert vanda spítalans að umfjöllunarefni sínu.

Misskiptingin gæti ekki verið skýrari
Framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar tekur undir með Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni um að ríkari þjóðir aðstoði þær fátækari mun betur í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Á meðan aðeins nokkur prósent séu bólusett í Eþíópíu sé rætt um að gefa fólki örvunarskammt hér á landi.

Mótmælandi hrópaði á foreldra og börn sem biðu eftir bólusetningu
Mótmælandi lét ókvæðisorð falla að foreldrum sem biðu með börnum sínum í röð eftir bólusetningu fyrir utan Laugardalshöll í morgun.

Sammála því að tilefni sé til að slaka á
Heilbrigðisráðherra er sammála sóttvarnalækni um að tilefni sé til að slaka á sóttvarnareglum. Sóttvarnalæknir hafi verið samstíga henni að heimila notkun sjálfsprófa, þótt hann mælti ekki með því.

Einn lagður inn á spítala eftir innbyrðingu kremsins
Ástæða þess að Lyfjastofnun og embætti landlæknis sendu út áréttingu þess efnis að lyfið Soolantra, sem inniheldur ivermektín, ætti einungis að nota útvortis er sú að einstaklingur var lagður inn á Landspítalann eftir að hafa innbyrt lyfið, sem er í kremformi. Mbl.is sagði fyrst frá.

Minnst sextíu greindust smitaðir í gær
Í gær greindust hið minnsta sextíu innanlands með Covid-19.

Rannsaka risastórt hópsmit á tónlistarhátíð á Englandi
Heilbrigðisyfirvöld í Englandi hafa hafið opinbera rannsókn eftir að 4.700 manns sem sóttu tónlistar- og brimbrettahátíðina Boardmasters sem haldin var í Cornwall á dögunum greindust smitaðir af kórónuveirunni.

Þrír Valsmenn smitaðir og Evrópuleikirnir í uppnámi
Óvissa ríkir um Evrópuleikina sem Íslandsmeistarar Vals áttu að spila gegn króatíska liðinu RK Porec um helgina eftir að þrír Valsmenn greindust með kórónuveirusmit.

Grunur um alvarlegar aukaverkanir: Vara við inntöku húðkrems gegn Covid-19
Lyfjastofnun og embætti landlæknis vilja árétta að lyfið Soolantra (ivermektín) er einungis notað til útvortis notkunar á húð, en ekki til inntöku. Stofnanirnar hafa áreiðanlegar upplýsingar um að sjúklingar með COVID-19 hafi tekið lyfið um munn og rökstuddan grun um að það hafi haft alvarlegar aukaverkanir í för með sér.