Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Strætó mun banna grímulausa farþega
Strætó hefur ekki tök á því að útvega grímur fyrir farþega sína.

Telur ekki að of brátt hafi verið farið í opnun landsins
Forsætisráðherra telur það ekki hafa verið mistök að liðka fyrir komu ferðamanna hingað til lands. Þá segir hún mögulegt að aðgerðir á landamærunum verði hertar síðar meir.

Tveimur hátíðum aflýst meðan nýju reglurnar voru kynntar
Tveimur útihátíðum um verslunarmannahelgina var aflýst á meðan blaðamannafundur stjórnvalda um hertar kórónuveiruaðgerðir stóð yfir.

Vilja að öllum kappleikjum verði frestað um viku
Víðir Reynisson sagði á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar og sóttvarnayfirvalda að fresta ætti öllum íþróttakappleikjum fullorðinna um viku.

Tíu ný innanlandssmit bætast við
Tíu manns greindust með nýtt afbrigði kórónuveiru innanlands í gær og 39 eru nú í einangrun. Af þeim sem eru með virk smit eru 28 svonefnd innanlandssmit.

Hertar aðgerðir: Tveggja metra reglan skylda og 100 manna samkomumörk
Hertari aðgerðir vegna kórónuveirunnar taka gildi á hádegi á morgun. Þeirra á meðal er að fjöldatakmörk verða lækkuð úr 500 manns niður í 100 manns.

Spítalainnlögn vegna Covid-19
Einstaklingur hefur verið lagður inn á Landspítalann vegna kórónuveirusýkingar

Svona var blaðamannafundur um breyttar sóttvarnaraðgerðir
Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar í Safnahúsinu við Hverfisgötu klukkan 11 í dag, fimmtudaginn 30. júlí.

Ríkisstjórnin fundar um aðgerðir
Ríkisstjórn Íslands fundar klukkan níu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Banna heimsóknir í Viktoríuríki vegna veirunnar
Kórónuveirufaraldurinn virðist alls ekki í rénun í stærstu ríkjum heims.

Íslendingar blésu á varnaðarorð um reykingar í faraldrinum
Á meðan sum nýttu tilbreytingaleysi samkomubannsins í gönguferðir, framkvæmdir og umpottun virðast önnur hafa reykt sem aldrei fyrr.

Tillögur komnar á borð ráðherra
Tillögur sóttvarnalæknis um aðgerðir vegna faraldurs kórónuveirunnar eru komnar á borð heilbrigðisráðherra. Þetta staðfestif Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill Sóttvarnalæknis.

Grípa til forvarna til að koma í veg fyrir að veiran berist inn á Landspítalann
Yfirlæknir smitsjúkdómalækninga Landspítalans telur að kórónuveiran sé orðin útbreiddari í samfélaginu en opinber gögn bera vitni um. Ákveðið hefur verið að takmarka aftur heimsóknir gesta á spítalann og grípa til annarra ráðstafana til að sporna gegn því að veiran berist þar inn

Tónleikum Á Móti Sól á Akranesi aflýst: „Höfum engan áhuga á að stofna fólki í hættu“
Tónleikum hljómsveitarinnar Á Móti Sól sem áttu að fara fram laugardaginn næsta, 1. ágúst á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi hefur verið aflýst vegna óvissu ástands sem skapast hefur vegna faraldurs kórónuveirunnar.

„Þetta er íþyngjandi fyrir alla“
Stjórnendur, íbúar og aðstandendur hjúkrunarheimila hafa áhyggjur þeirri þróun sem orðið hefur í kórónuveirufaraldrinum og þá sérstaklega eftir að takmarkanir hafa verið settar á sumum heimilanna eftir fjölgun nýrra smita hér á landi.

Ákvörðun um tveggja metra reglu gæti legið fyrir á næstu dögum
Landlæknir segist reikna með því að sóttvarnalæknir sendi ráðherra minnisblað sitt sem inniheldur tillögur um aðgerðir vegna kórónuveirunnar í kvöld og að ákvörðun heilbrigðisráðherra geti legið fyrir á næstu dögum.

Telja Rússa standa að upplýsingafalsi um faraldurinn
Rússneska leyniþjónustan er sögð dreifa fölskum upplýsingum um kórónuveiruheimsfaraldurinn á enskumælandi vefsíðum sem beint er að fólki í Bandaríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum, að sögn bandarískra embættismanna. Áróðurinn er sagður ýmist upphefja Rússland eða gera lítið úr Bandaríkjunum.

Athugull starfsmaður Reebok fitness stöðvaði brot á sóttkví
Fulltrúar smitrakningarteymis almannavarna þurftu í dag að senda einstakling sem átti að vera í sóttkví heim úr líkamsræktarstöðinni Reebok fitness við Lambhaga í Reykjavík.

Þingmaður sem átti að fljúga með Trump smitaðist
Hann hefur reglulega gengið um ganga þinghússins án grímu og hunsað sóttvarnir, samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs.

Herða reglur um heimsóknir á dvalarheimilum
Landlæknir hvatti hjúkrunarheimili í gær að endurskoða heimsóknarreglur.

„Frústreraður því menningar- og tónlistarviðburðir eru litnir hornauga“
Einn skipuleggjenda tónlistarhátíðarinnar Innipúkans segir að ef frekari samkomutakmarkanir og tveggja metra reglan verði sett aftur í gildi þurfi líklegast að aflýsa eða fresta hátíðinni.

Sjö börn fæddust andvana vegna manneklu
Mannekla er talin ástæða þess að sjö börn fæddust andvana á sjúkrahúsi í Harare, höfuðborg Simbabve á mánudagskvöld. Hjúkrunarfræðingar eru nú í verkfalli til að mótmæli skorti á nauðsynlegum hlífðarbúnaði gegn kórónuveirunni.

Eitt smit tengt Akranesi, annað ferðamanni en hin óþekkt
Ekki hefur tekist að rekja uppruna tveggja innanlandssmita kórónuveiru af þeim fjórum sem greindust í gær.

Óttast að veiran sé að breiðast út með leifturhraða um samfélagið
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, óttast að kórónuveiran sé að breiðast út aftur með leifturhraða um íslenskt samfélag. Skimun hefst hjá Íslenskri erfðagreiningu í dag.

Lífið hjá þeim moldríku í miðjum faraldri
Síðustu mánuðir hafa heldur betur reynt á alla heimsbyggðina þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur sett svip sinn á líf allra.

Breytt hegðun og ungt fólk að baki fjölgun smita
Ungt fólk er nú hærra hlutfall þeirra sem greinast með nýtt afbrigði kórónuveiru víða í Evrópu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að breytt hegðun fólks sé orsök þess að hópsýkingar hafa komið upp og smitum fjölgað aftur að undanförnum.

Ástandið á dvalarheimilum í Ástralíu alvarlegt
Yfirvöld í Ástralíu hafa sent sérstakar neyðarsveitir, sem iðulega eru sendar til hamfarasvæða, á dvalarheimili í Melbourne þar sem þær eiga að berjast gegn verstu útbreiðslu kórónuveirunnar í héraðin.

Fjögur ný innanlandssmit greindust í gær
Ekki er búið að skera úr um það hvort þau séu tengd þeim sýkingum sem komið hafa upp síðustu daga.

Covid-tengdir sjúkraflutningar hvorki ávísun á smit né innlögn
Enginn liggur inni á Landspítalanum vegna Covid-19, sjúkdómsins sem kórónuveiran veldur.

Sólveig tvístígandi varðandi Flórídaför: „Leiðinlegt að þetta sé svona akkúrat þegar maður ætlaði út“
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen hefur stefnt að því í mörg ár að komast í bandaríska háskólafótboltann. Markmiðið átti að verða að veruleika í næsta mánuði en nú ríkir óvissan ein vegna kórónuveirufaraldursins.