Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
175 176 177 178 179 180 181 182 183 … 334 ›
Aðgerðir stjórnvalda kostuðu ríkissjóð 60 milljarða á síðasta ári Útgjöld ríkisins með ýmsum aðgerðum vegna kórónuveirufaraldurins á síðasta ári námu sextíu milljörðum króna samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Stærsti hlutinn fór í hlutabótaleiðina eða rúmir tuttugu og fjórir milljaðar króna. Innlent 18.1.2021 09:48
„Við getum ekki farið að slaka á meira núna“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir ekki tímabært að fara að ræða tilslakanir á núverandi samkomutakmörkunum þrátt fyrir að reglur á landamærum hafi verið hertar og fáir hafi greinst með kórónuveiruna innanlands undanfarna daga. Innlent 18.1.2021 08:01
Bjó á flugvellinum í Chicago í þrjá mánuði Aditya Singh, 36 ára gamall maður frá Kaliforníu, var handtekinn um helgina á O‘Hare-alþjóðaflugvellinum í Chicago og ákærður fyrir ýmis brot, meðal annars þjófnað og að hafa farið í leyfisleysi inn á lokað svæði á vellinum. Erlent 18.1.2021 07:21
Sóttvarnarbrot á veitingastað þar sem voru hátt í fimmtíu gestir Laust eftir klukkan sex í gær fór lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á veitingastað út af sóttvarnarbroti. Í dagbók lögreglu segir að veitingastaðurinn sé í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem er þá annað hvort í Kópavogi eða Breiðholti, en ekki er nánar tilgreint hvar staðurinn er. Innlent 18.1.2021 06:22
Koma heim úr jarðarförum, brúðkaupum eða afmælum og reynast smituð Flestir sem hafa greinst með kórónuveiruna á landamærum undanfarið koma frá löndum á borð við Danmörku og Pólland, sem hafa hvað mesta tengingu við Ísland. Dæmi eru um að stórir hópar komi heim úr jarðarförum eða brúðkaupum og reynist jákvæðir í skimun á Keflavíkurflugvelli. Innlent 17.1.2021 19:14
Engin störukeppni við óstýriláta farþega í dag Ekkert kom upp á við sýnatökuhlið Keflavíkurflugvallar í dag og allir farþegar virtu skimunarskyldu án vandkvæða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Innlent 17.1.2021 18:26
Vongóð að meirihluti þjóðarinnar verði bólusettur um mitt ár Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segist bjartsýn á það að meirihluti þjóðarinnar verði bólusettur við kórónuveirunni um mitt ár. Hún segir þó að við munum þurfa að lifa með sóttvarnaaðgerðum í einhvern tíma eftir það. Innlent 17.1.2021 18:00
Phil Spector er látinn Bandaríski tónlistarframleiðandinn og lagahöfundurinn Phil Spector er látinn 81 árs að aldri. Erlent 17.1.2021 16:17
Hegðun fólks hættulegri en breska afbrigðið Hegðun fólks í faraldri er mun hættulegri en breska afbrigði kórónuveirunnar. Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í samtali við fréttastofu. Innlent 17.1.2021 14:29
Nær allir sem greindust komu með sömu flugvélinni Fjórtán greindust með kórónuveiruna á landamærunum í gær, nær allir úr sömu flugvélinni. Yfirlögregluþjónn telur stöðuna á faraldrinum hér á landi almennt góða; Ísland sé í einstakri stöðu, jafnvel á heimsvísu, en enn þurfi að hafa allan varann á. Innlent 17.1.2021 13:17
Hjón neituðu að fara í skimun en snerist hugur eftir þriggja klukkutíma bið Hjón með ung börn sem komu til landsins með flugi í gær neituðu að fara í skimun fyrir kórónuveirunni á Keflavíkurflugvelli. Þau biðu í þrjá til fjóra tíma við sýnatökuhlið á flugvellinum en snerist á endanum hugur og fóru í sýnatöku. Innlent 17.1.2021 12:59
Einn greindist með veiruna innanlands og var í sóttkví Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var í sóttkví. Innlent 17.1.2021 11:04
Fór ekki í einangrun og var fluttur af lögreglu í farsóttarhús Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nótt uppi á einstaklingi sem greinst hafði með Covid-19 við komuna hingað til lands en sinnti ekki reglum um einangrun. Lögregla flutti viðkomandi í farsóttarhús, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 17.1.2021 07:21
Fleiri bólusettir fyrir veirunni en hafa smitast á Bretlandi Fleiri hafa nú verið bólusettir fyrir kórónuveirunni en hafa greinst smitaðir á Bretlandi. Nú hafa meira en 3,5 milljónir Breta fengið fyrsta skammt bólusetningarinnar við veirunni og þegar hafa 447 þúsund fengið báða skammta. Hingað til hafa 3,3 milljónir manna greinst smitaðir af veirunni á Bretlandi. Erlent 16.1.2021 22:50
Rúmir fjórir mánuðir síðan enginn greindist síðast Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, í fyrsta sinn í rúma fjóra mánuði. Sóttvarnalæknir segir stöðuna á faraldrinum góða en allt velti nú á landamærunum. Innlent 16.1.2021 19:01
Kærkomið að losna við argaþrasið Starfsfólki Keflavíkurflugvallar hefur gengið vel að framfylgja nýrri skimunarskyldu á landamærum í dag. Yfirlögregluþjónn segir gott að losna við þjarkið sem oft fylgdi því að telja farþega á að velja skimun fram yfir sóttkví. Innlent 16.1.2021 17:47
Breskir heilbrigðisstarfsmenn óttast að verða sóttir til saka Breskir heilbrigðisstarfsmenn hafa kallað eftir því að þeim verði veitt lagaleg vernd gegn mögulegum afleiðingum álagsins sem fylgir kórónuveirufaraldrinum. Þeir séu settir í þá stöðu að taka ákvarðanir sem gætu valdið dauðsföllum. Erlent 16.1.2021 16:13
„Áhættan er aldrei núll“ Sóttvarnalæknir segir hættuna á því að hið svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar verði ráðandi hér á landi, líkt og óttast er að gerist í Bandaríkjunum, velta á því hversu vel gangi á landamærum. Innlent 16.1.2021 13:30
Hitta reglulega ferðamenn sem ætla ekki að virða sóttkví eftir skimun Yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir talsvert um það að ferðamenn komi hingað til lands, fari í skimun á flugvellinum en hyggist greinilega ekki virða sóttkví að henni lokinni. Það segi sig sjálft þegar aðeins sé bókuð nokkurra daga ferð. Innlent 16.1.2021 12:30
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þetta hefur fréttastofa fengið staðfest frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Innlent 16.1.2021 11:10
Skipverjum létt að málinu sé lokið en furða sig á refsingunni Skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni sem smituðust af Covid-19 í veiðiferð um borð í skipinu er létt að máli vegna veikinda þeirra sé lokið en óvissan hefur verið þeim þungbær. Einhverjir þeirra séu þó undrandi á dómi skipstjóra togarans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Verkalýðsfélagi Vestfjarða. Innlent 16.1.2021 09:30
Breska afbrigðið verði orðið ráðandi í mars Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, varar nú við því að afbrigði kórónuveirunnar sem talið er meira smitandi en flest önnur, og var fyrst uppgötvað í Bretlandi, verði orðið ráðandi afbrigði veirunnar í Bandaríkjunum fyrir marsmánuð. Erlent 16.1.2021 08:17
Pochettino með kórónuveiruna Maurico Pochettino, nýráðinn þjálfari Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain, hefur greinst með kórónuveiruna. Fótbolti 16.1.2021 08:01
Segir aðgerðir á landamærum ekki geta verið mildari Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, segir að einhvern veginn þurfi að girða fyrir að fólk geti komist hjá því að sæta sóttkví. Heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær að frá og með deginum í dag yrði skylda fyrir þá sem koma til landsins að fara í tvöfalda skimun með fimm daga sóttkví á milli. Þeim sem neita verður meinaður aðgangur að landinu. Innlent 16.1.2021 07:59
Biden vill bæta í bólusetningar Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, lofaði í gær að undir hans stjórn myndu bandarísk stjórnvöld bæta í bólusetningar við kórónuveirunni. Erlent 16.1.2021 07:57
Tvær milljónir manna hafa látist af völdum veirunnar Meira en tvær milljónir manna hafa látist af völdum kórónuveirunnar. 93,4 milljónir hafa greinst smitaðir af veirunni á heimsvísu og flestir í Bandaríkjunum, þar sem tæpar 24 milljónir hafa greinst og 405 þúsund látist af völdum veirunnar. Erlent 15.1.2021 23:26
Ferðamenn þurfa að sýna fram á neikvætt covid-próf áður en þeir fara til Bretlands Bretlandsstjórn ákvað í dag að skylda ferðamenn frá öllum ríkjum í skimun. Koma ferðamanna frá Suður-Ameríku var hins vegar bönnuð vegna nýs brasilísks afbrigðis kórónuveirunnar. Erlent 15.1.2021 22:41
Segir nýjar reglur á landamærum auka fyrirsjáanleika í ferðaþjónustu Áætlun stjórnvalda um að koma á litakóðakerfi á landamærunum eykur fyrirsjánaleika ferðaþjónustunnar fyrir sumarið. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það mikilvægt skref að búið sé að svara ákalli ferðaþjónustunnar. Innlent 15.1.2021 18:48
Loka á flug vegna brasilíska afbrigðisins Bretlandsstjórn bannaði í dag komur ferðamanna frá Suður-Ameríku vegna nýs, brasilísks afbrigðis kórónuveirunnar. Erlent 15.1.2021 17:33
Hæstánægður með skimunarskylduna og vonar að ræðan hafi hjálpað Sigurgeir Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að ákvörðun heilbrigðisráðherra um að skylda alla í tvöfalda skimun á landamærum sé mikið ánægjuefni. Hann þakkar ríkisstjórninni fyrir skjót viðbrögð. Enn eigi þó eftir að útfæra framkvæmd reglugerðarinnar á flugvellinum. Innlent 15.1.2021 17:20