Auglýsinga- og markaðsmál

Markaðsstjórinn sem missir sig á hrekkjavökunni og yfir hryllingsmyndum
Andrea Sif Þorvaldsdóttir markaðsstjóri Krambúða og Kjörbúða Samkaupa er ekki aðeins hrekkjavökuaðdáandi. Heldur einnig aðdáandi hryllingsmynda.

Myndbönd: Gamlar Suzuki auglýsingar með Michael Jackson
Í gegnum tíðina hafa japanskir bílaframleiðendur gjarnan notað amerískar stjörnur til að auglýsa vörur sínar. Yfirleitt eru stjörnurnar fengnar til að auglýsa bíla sem ekki koma á markað á Vesturlöndum. Dæmi um slíkar stjörnur eru Eddie Murphy, Bruce Willis, Leonardo DiCapro og Meg Ryan. Sennilega stærsta stjarnan var þó Michael Jackson sem auglýsti Suzuki vespuna Love.

Deilur um „örugga eyðingu gagna“ ekki til kasta Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur ákveðið að taka ekki dóm í máli sem snýr að deilum um orðasambandið „örugg eyðing gagna“ til meðferðar.

Ráðnar til Tvist
Hönnunar- og auglýsingastofan Tvist hefur ráðið Stefaníu Ósk Arnardóttur í starf viðskiptastjóra og Emmu Theodórsdóttur í starf grafísks hönnuðar.

Hreggviður ráðinn framkvæmdastjóri The Engine
Hreggviður Steinar Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri The Engine. Hann hefur frá því í október 2018 starfað sem leiðtogi stafrænnar markaðssetningar hjá The Engine og Pipar\TBWA.

Óborganlegar íslenskar auglýsingar frá 1995
Það er fátt skemmtilegra en að rifja upp þá gömlu góðu og finna fyrir nostalgíunni streyma um vit og æðar. Gamlar auglýsingar eru þar engin undantekning.

Daginn sem Icelandair skaut sig í fótinn
Á þessum degi í október fyrir 20 árum kynnti Icelandair „Netsmellur“ til sögunnar, helmingi lægri fargjöld en áður höfðu þekkst hjá félaginu. Þessi fargjöld stóðu engan veginn undir kostnaði Icelandair af flugferðunum. Enda var tilgangur þeirra ekki sá, heldur að fórna tekjum með stórfelldum undirboðum til að drepa fyrirhugaða samkeppni frá Iceland Express.

Mikilvægt að huga að íslensku í auglýsingum
Á árunum 1993 til 2005 hafa 35 mál verið tekin fyrir hjá neytendastofu vegna tungumáls í auglýsingum sem beint er til íslenskra neytenda. Samkvæmt lögum skulu þesskonar auglýsingar vera á íslensku. Eitt slíkt mál er nú til skoðunar hjá neytendastofu en aðeins hafa átta mál verið tekin fyrir síðan 2005. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra segir beitingu laga mikilvæga í þessum efnum.

Ráðinn markaðsstjóri Men&Mice
Elvar Páll Sigurðsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Men&Mice og mun sem slíkur leiða markaðssetningu fyrirtækisins á alþjóðlegum mörkuðum.

Koma ný inn í eigendahóp Brandenburgar
Sigríður Theódóra Pétursdóttir og Arnar Halldórsson hafa bæst í eigendahóp auglýsingastofunnar Brandenburg. Þau hafa bæði starfað sem stjórnendur á stofunni undanfarin ár.

Kulnun eftir Covid áberandi hjá 18-24 ára og sölu- og markaðsfólki
„Það sem gerir niðurstöðurnar fyrir 18 til 24 ára sláandi er hversu mikil breyting er á milli ára. Kulnun hjá þessum aldurshópi mælist 6 til 7% fyrir og í Covid en eykst hratt og mælist 17% eftir Covid. Sú starfsgrein þar sem kulnun mælist líka mjög há er til dæmis hjá sölu- og markaðsfólki,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent.

Fjarvinna og fyrirtækjarekstur: „Okkur langaði til að lifa lífinu öðruvísi en í hasarnum heima“
„Við vorum að horfa á þáttinn Hvar er best að búa? með Lóu Pind, um hjónin sem fluttu til Danmerkur og fóru að reka hótel í Lálandi þegar Torfi lítur allt í einu á mig og spyr: En hvað með Danmörk?“ segir Lóa Dís Finnsdóttir, grafískur hönnuður búsett í Maribo með eiginmanninum Torfa Agnarsyni auglýsingaljósmyndara.

Adidas skoðar framtíð Kanye
Fyrirtækið Adidas er að endurskoða samstarf sitt við tónlistarmanninn Kanye West. „Farsælt samstarf byggir á sameiginlegri virðingu og sömu gildunum,“ sagði fyrirtækið í tilkynningu.

Áhyggjufullir neytendur geta andað léttar
Forstjóri Kólusar segir nýjar, látlausar umbúðir utan um súkkulaðistykkið Þrist, sem vöktu talsverðar áhyggjur netverja í gær, aðeins tímabundnar. Verið sé að bíða eftir sendingu af „gömlu góðu“ umbúðunum.

Kim Kardashian nær sáttum við fjármálaeftirlit Bandaríkjanna
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur náð sáttum við bandaríska fjármálaeftirlitið (SEC) vegna auglýsinga á samfélagsmiðlum hennar um fjárfestingar í rafmyntaafurðum. SEC féll frá ákæru eftir að Kardashian náði samkomulagi um greiðslu upp á 1,26 milljónir dollara, eða sem nemur ríflega 180 milljónum króna.

Opin samkeppni um myndlistarverk fyrir Auglýsingahlé Billboard
Dagana fyrsta til þriðja janúar 2023 verður svokallað Auglýsingahlé á yfir 450 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg en Billboard efnir nú til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur.

„Við eigum ekki að haga okkur svona“
Starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK hefur ýtt úr vör nýju átaki sem snýr að því að koma í veg fyrir og varpa ljósi á kynferðislegt áreiti á vinnustöðum. Átakið hófst með myndbandi þar sem málefninu er skellt upp með húmor, það mætti segja að orðatiltækið „öllu gríni fylgir einhver alvara“ eigi við hér.

Myndaveisla: Markaðsfólk fjölmennti á haustkynningu
Auglýsinga- og markaðsfólk fjölmennti á haustkynningu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis sem fór fram í Gamla bíó í síðustu viku. Fyrirlesarinn Jenni Romaniuk kom fram auk þess að Herra Hnetusmjör og Hugo fengu salinn til að dilla sér með nokkrum frábærum lögum.

Guðrún Edda, Stefanía og Vigdís Perla til liðs við Aton.JL
Aton.JL hefur ráðið þær Guðrúnu Eddu Guðmundsdóttur, Stefaníu Reynisdóttur og Vigdísi Perlu Maack til starfa. Allar hafa þær þegar hafið störf. Guðrún Edda og Stefanía starfa sem ráðgjafar og Vigdís sem verkefnastjóri.

Ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá Arctic Adventures
Sindri Snær Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventure.

Heilsugæslan hvetur fólk til að æla heima: „Þetta er að gefnu tilefni“
Heilsugæslan biðlar til landsmanna að æla heima og bendir réttilega á að það sé hvimleitt að fá niðurgang í bílnum í nýrri auglýsingaherferð. En hvers vegna þykja þessi skilaboð nauðsynleg?

Sælgætisrisar gera upp stóru lakkrísdeiluna: „Danir eru ekkert með góðan lakkrís, og ekki Ameríkanar heldur“
Danski sælgætisgerðarmaðurinn Johan Bulow viðurkennir að Íslendingar eigi heiðurinn af súkkulaðihjúpuðum lakkrís, eftir að milliríkjadeila um sælgætið kviknaði á netinu. Kristín Ólafsdóttir ræddi við Bulow - og hitti framkvæmdastjóra Góu, sem fór yfir uppruna þessarar áratugagömlu íslensku hefðar.

Hugsa eigi um vörumerki eins og litla svarta kjólinn
Það getur ýmislegt mælt með því að breyta útliti rótgróins vörumerki en það er engin ástæða til að gera það ef markmiðið er bara að gera breytingar breytinga vegna. Hugsa á um vörumerki eins og litla klassíska svarta kjólinn í fataskápnum sem passar alltaf og fer líklega aldrei úr tísku.

Danski lakkrísgerðarmaðurinn segist hafa sótt innblástur til Íslands
Danski lakkrísgerðarmaðurinn Johan Bülow segir að vörur hans, sem eru hinar ýmsu útfærslur á súkkulaðihúðuðum lakkrís, hafi verið innblásnar af íslensku sælgæti.

„Þegar ég flutti heim úr námi fannst mér ég vera frábær“
„Þegar ég flutti heim úr námi fannst mér ég vera frábær og hélt að öll fyrirtæki Íslands biðu spennt eftir að fá mig heim. En það varð ekki alveg raunin,“ segir Sigríður Theódóra Pétursdóttir framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg í léttum dúr.

Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að nota íslenskuna
Samtök atvinnulífsins hvetja íslensk fyrirtæki til að nota íslenskuna í ríkari mæli og hætta að grafa undan tungumálinu með ensku. Þau útiloka ekki að ráðast í átak eða grípa til aðgerða á næstunni til að styðja við tungumálið.

Forsetinn segir Dönum að súkkulaðihúða smurbrauðið
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur blandað sér í umræðuna um súkkulaðihúðaðan lakkrís, og hvort um sé að ræða danska eða íslenska uppfinningu, sem hefur farið hátt síðustu daga.

Fyrsta borgin til að banna kjötauglýsingar
Borgin Haarlem í Hollandi hefur ákveðið að bannað auglýsingar á kjötvörum í almannarýmum. Borgin er sú fyrsta í heiminum til að banna auglýsingarnar.

Fullnaðarsigur Íslands í nammideilu við Dani
Danska sælgætisfyrirtækið Lakrids by Bülow segir ljóst að hin klassíska blanda sem svo margir Íslendingar þekkja, lakkrís og súkkulaði, sé sannarlega rammíslensk hefð. Fyrirtækið hefur hingað til stuðst við kynningarefni þar sem því hefur verið haldið fram að Johan Bülow, stofnandi fyrirtækisins, hafi fyrstur manna blandað saman lakkrís og súkkulaði árið 2009.

Anchorman og aðrar klassískar bíómyndir lifna við hjá Stöð 2
Stöð 2 frumsýndi í gær metnaðarfulla auglýsingu þar sem hitað er upp fyrir haustdagskrá stöðvarinnar. Leitað var í smiðju streymisveitunnar Stöðvar 2+ og nokkur fræg atriði úr bíómyndum sem þar eru að finna endurgerð.