
Ástin og lífið

Hvenær er óhætt að fara í sleik við ókunnuga?
New York Times birti á dögunum athyglisverða fréttaskýringu þar sem blaðamaður spyr sérfræðinga að því sem eflaust margir eru að velta fyrir sér nú þegar heimsfaraldur kórónuveiru hefur geysað í rúmt ár; „hvenær er óhætt að fara í sleik við ókunnuga?“

Óvænt gifting á Hvolsvelli tilkynnt í páskaeggi
Það var mikið húllum hæ í húsi á Hvolsvelli í morgun þegar páskaeggin voru opnuð. Ástæðan er sú að þar var miði inn í, sem tilkynnti um óvænta uppákomu, sem fór fram í skjóli nætur.

„Pabbi hélt að hann þyrfti að taka á móti barninu á leiðinni upp fjallið“
„Ég verð að segja að ég leyfði heimsfaraldrinum að hafa mjög mikil áhrif á mína upplifun af meðgöngu og sængurlegu, það situr smá í mér,“ segir Alexandra Sif Nikulásdóttir í viðtali við Vísi.

Spurning vikunnar: Hefur þú stungið af á stefnumóti?
Það er fátt vandræðalegra en stefnumót sem eru alls ekki að ganga upp. Óþægilegar þagnir, óæskilegur sviti og ævintýralega óáhugavert umræðuefni. Hvað skal gera?

Festu heitin í stein við eldgosið
Par sem staðfesti trúlofunarheit sín við eldgosið í Geldingadölum í morgun segir það hafa verið einstaka stund. Prestur sem átti leið hjá þar sem þau voru uppábúinn bauðst til að gefa þau saman. Þau voru ekki alveg til í það en fengu blessun.

Jason Derulo að verða pabbi
Tónlistarmaðurinn Jason Derulo á von á barni með kærustu sinni, fyrirsætunni Jenu Frumes.

Flestir vilja daðra í sambandinu sínu
Daður er oft á tíðum eitthvað sem fólk tengir meira við tilhugalífið heldur en hversdagslífið. Fólk sullar út sjarmanum og skreytir fjaðrirnar sínar þegar það vill vekja áhuga fólks og sömuleiðis sýna hann.

Edda Falak: „Ég vil eiga kærasta sem er bara stoltur af mér“
„Eins og ég geti ekki verið framakona og samt birt kynþokkafulla mynd af mér á samfélagsmiðlum. Af hverju finnst fólki ég lítillækka mig með því að birta sexí mynd? Eins og konur sem birti mynd af sér á bikiní geti ekki verið klárar. Þetta fer mjög mikið í taugarnar á mér,“ segir CrossFit stjarnan og áhrifavaldurinn Edda Falak í viðtali við Makamál.

Spurning vikunnar: Af hverju hélst þú framhjá?
Flestir myndu telja framhjáhöld þau svik sem rista hvað dýpst í samböndum. Þegar fólk svíkur maka sinn á þennan hátt er oftar en ekki mikil vanlíðan og sorg sem fylgir í kjölfarið. Sum sambönd ná að vinna sig út úr þessum svikum en önnur ekki.

Bíómyndabónorð við gosið sem heppnaðist fullkomlega
„Ég var alltaf með einhverja svona bíómyndasenu í huga og þetta var búið að vera á planinu í smá tíma, ég hafði bara aldrei fundið rétta tímann. Svo byrjaði bara að gjósa,“ segir hinn nýtrúlofaði Ásmundur Þór Kristmundsson í samtali við Vísi.

„Hversu ömurlegt að ég hafi ekki getað hlustað á konuna mína og bara skilið hana?“
„Til að mætast sem par þarf meira átak en bara samtal. Það er til dæmis mín einlæga og sterka skoðun að allt fólk sem ætli sér að eignast börn saman þurfi að fá faglegan stuðning í samskiptum og nánd. Það ætti bara að vera skilyrði – ég í alvöru held það,“ segir Þorsteinn V. Einarsson í viðtali við Makamál.

Alma Möller orðin amma
Alma Möller hefur fengið nýtt hlutverk en fyrir viku síðan eignaðist hún sín fyrstu barnabörn. Jónas Már Torfason sonur Ölmu eignaðist tvíburadætur með kærustu sinni Andreu Gestsdóttur.

Biðin eftir bónorðinu endaði við gosstöðvarnar
Ólöf Helga Jónsdóttir var á leið með dóttur sinni í leikhús í morgun þegar unnusti hennar, Sigurbjörn Hlöðver Jóhannsson, tilkynnti henni að það yrði breyting á því plani þar sem hann ætlaði með hana í óvissuferð. Óvissuferðin stóð undir nafni og endaði hún með bónorði við gosstöðvarnar í Geldingadal.

Kunnum við ekki nógu vel að meta maka okkar?
Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis um upplifun þeirra á því hvort maki þeirra kynni að meta þá. Niðurstöðurnar komu töluvert á óvart.

Spurning vikunnar: Daðrar þú við makann þinn?
Í byrjun sambands þegar fiðrildin flúga hömlulaust í maganum eigum við fullt í fangi með það að heilla maka okkar, hrósa honum og sömuleiðis taka við hrósum. Við döðrum eins og enginn sé morgundagurinn.

Guðmundur og Guðlaug nýtt par
Guðmundur Hafsteinsson fjárfestir sem oft er kenndur við Google og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, forstjóri Stekks fjárfestingafélags, eru nýtt par.

Móðurmál: „Þú ert ekkert meiri ofurmamma ef þú gerir allt sjálf, allir foreldrar þurfa hvíld“
„Það kom mér á óvart hvað ég varð stolt af sjálfri mér. Allar þessar nýju tilfinningar komu líka á óvart þrátt fyrir að hafa heyrt um þær. Hvað það er hægt að elska mikið og hvað ég þráði frá fyrsta degi að veita henni alla heimsins ást og öryggi,“ segir Jóna Kristín Birgisdóttir í viðtalsliðnum Móðurmál.

Ástin blómstrar hjá Bergþóri og Laufeyju
Laufey Rún Ketilsdóttir starfsmaður Sjálfstæðisflokksins og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, eru nýtt par.

Einhleypan: Æst í að dýfa sér í stefnumótalaugina
„Ef mig hefur vantað félagsskap þá hef ég bara farið í endurvinnsluna. En ég er orðin æst í að dýfa mér í deitlaugina,“ segir Særún Ósk Böðvarsdóttir í viðtali við Makamál.

„Þurfið ekki að senda mér fleiri samúðarkveðjur“
Crossfit-stjarnan Edda Falak og Brynjólfur Löve hafa ákveðið að fara í sitthvora áttina en þau voru par í nokkra mánuði.

Enginn feiminn við kynlífstæki lengur
Bedroom.is er vefverslun vikunnar á Vísi.

Föðurland: „Gleymi leiknum strax þegar ég hitti dætur mínar“
„Eftir að stelpurnar komu í heiminn þá lít ég allt öðrum augum á körfuna. Ég er ennþá mjög kappsamur og þoli ekki að tapa en þegar ég kem heim eftir erfiðan leik eða æfingu þá gleymi ég leiknum strax þegar ég hitti dætur mínar,“ segir körfuboltamaðurinn Finnur Atli Magnússon í viðtali við Makamál.

Nokkuð algengt að fólk feli rafræn samskipti fyrir maka sínum
Samskipti og samskiptaleiðir hafa breyst á mjög skömmum tíma og í dag eru samskipti á rafrænu formi stór hluti af daglegu lífi okkar flestra. Hvort sem það eru samskipti við maka, fjölskyldumeðlimi, vini eða vinnufélaga.

Segist tikka í öll box hjá Lindu Pé: „Ég vona að hún taki bara vel í þetta“
Ragnar Kristinsson, viðskiptastjóri hjá Íslandspósti, segist tikka í öll þau box sem Linda Pétursdóttir sagði nauðsynlegt að mögulegur framtíðarkærasti væri búinn. Ragnar lýsti þessu yfir í bréfi til Lindu sem hann birti á Facebook síðdegis í dag.

Spurning vikunnar: Upplifir þú að maki þinn kunni að meta þig?
Eitt af algengari vandamálum í samböndum er þegar annar aðilinn upplifir það að hann sé ekki metinn að sínum verðleikum og jafnvel tekið sem sjálfsögðum hlut.

Erfiðast að endurheimta traust og virðingu fyrrverandi maka þegar skilnaður er frágenginn
„Oftast eru það umgengnismálin sem valda ágreiningi. Þar eru oft mestu tilfinningarnar í spilinu og ef málin eru erfið, þá er það þessi angi skilnaðarins sem er oftast erfiðast að eiga við,“ segir Torfi Ragnar Sigurðsson hæstaréttarlögmaður hjá Lögmönnum Suðurlandi/Reykjavík í viðtali við Makamál.

„Fékk skilaboð frá honum um að hann gæti ekki hætt að hugsa um mig“
„Ég og Gummi vorum áður miklir og góðir vinir en hann var einnig búinn að vera kírópraktorinn minn í einhvern tíma. Síðan fékk ég skilaboð frá honum að hann gæti ekki hætt að hugsa um mig og vildi endilega fá að bjóða mér á deit. Ég tók því bara fagnandi því nokkrum vikum áður var ég sjálf byrjuð að hugsa mikið til hans og við vorum greinilega bæði farin að laðast að hvoru öðru,“ segir Lína Birgitta í viðtali við Makamál.

MacKenzie Scott giftist kennara við skóla barna sinna
MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur gifst kennaranum Dan Jewett sem kennir við skóla barna Scott og Amazon-stofnandans Jeffs Bezos.

Hugsið vel um konuna ykkar, bæði fyrir og eftir fæðingu
„Það voru sumir sem voru hissa að ég hafi tekið þrjá mánuði í fæðingarorlof. Einnig heyrði maður suma tala um að pabbarnir væru ekki í stóru hlutverki fyrstu mánuðina, ég upplifði það alls ekki þannig,“ segir Þorgeir Logason í viðtalsliðnum Föðurland.

Flestum finnst sjálfsfróun heilbrigð í sambandi
Í síðustu könnun Makamála var spurt um viðhorf fólks til sjálfsfróunar maka. Könnunin var að þessu sinni kynjaskipt til að sjá hvort einhver greinanlegur munur væri á svörum kynjana.