

Luke Littler og kærasta hans, Eloise Milburn, eru hætt saman eftir tíu mánaða samband.
Handboltaparið Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason hafa gefið syni sínum nafn. Drengurinn fékk nafnið Martin Leo Daníelsson. Parið greindi frá gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á Instagram í gær.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, og unnusta hans María Builien Jónsdóttir, líffræðingur og tölvunarfræðingur, hittust fyrst árið 2008 en felldu ekki hugi saman fyrr en um níu árum síðar. Var það eftir nokkrar viðreynslur Arnars. Parið hefur nú komið sér vel fyrir í Grafarvogi með börnum sínum og hundinum Scully.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Eva Bryngeirsdóttir, þjálfari og jógakennari, hafa verið stinga saman nefjum undanfarna mánuði. Eva segir í færslu á Instagram að lífið sé betra með Kára.
Sara Davíðsdóttir þjálfari og flugfreyja hefur fundið ástina í örmum flugstjórans Stefáns Davíðs Helgasonar. Bæði starfa þau hjá flugfélaginu Icelandair.
Bandaríska söngkonan Camila Cabello og kanadíski söngvarinn Shawn Mendes sáust sitja saman á úrslitaleik Copa America í Flórída um helgina. Þau hafa tvisvar byrjað og hætt aftur saman á síðustu árum en það er spurning hvort allt sé þá þrennt er.
Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er erlendis, úti á landi eða gulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Fjallahlaup, útihátíðir og ástin einkenndi síðastliðna viku.
„Ég hef setið lengi á þessu lagi, en ég elska að gera lög sem hafa mikla orku og eru peppandi, sérstaklega inn í sumarið sem er uppáhalds árstíðin mín,“ segir tónlistarmaðurinn og læknirinn Victor Guðmunsson, sem er þekktur undir listamannsnafninu Doctor Victor, um nýja sumarsmellinn Your Light sem kom út í dag.
Sigmar Vilhjálmsson, athafna- og veitingamaður, og kærastan hans Hafrún Hafliðadóttir nutu lífsins saman í fríi erlendis á dögunum. Simmi birti skemmtilega myndafærslu úr fríinu á Instagram í gær.
Snorri Másson fjölmiðlamaður lenti í því að gleyma afmælisdegi eiginkonu sinnar Nadine Guðrúnar Yaghi. Hann sagði fullum hálsi í hlaðvarpsþætti sínum þar sem stjörnumerki og -speki voru til umræðu að eiginkona hans ætti afmæli fjórtánda mars og væri því hrútur en hvorugar þessara staðhæfinga eru réttar.
Útvarspkonan Valdís Eiriksdóttir, sem margir þekkja sem Völu Eiríks, og Óskar Logi Ágústssonar úr Vintage Caravan eiga von á dreng í nóvember. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman. Vala greinir frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram á dögunum.
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson og Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir eru hætt saman eftir níu ára samband. Albert er leikmaður Genoa á Ítalíu og hefur spilað með landsliði Íslands.
Freyja Stefanía í Vestmannaeyjum slær ekki slöku við en hún er elsti íbúi Eyjunnar, 100 ára gömul. Freyja hefur ferðast víða um heiminn en hún segir að Ísland sé alltaf best og þar séu sætustu karlarnir.
Erna Mist Yamagata listakona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri eiga von á barni saman.
Athafnakonan Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, er trúlofuð sínum heittelskaða Jakobi Fannari.
„Í hjörtum okkar ríkir þakklæti fyrir það að búa í landi þar sem við tveir getum gifst manneskjunni sem við elskum,“ segja hinir nýgiftu Bjarni Snæbjörnsson og Bjarmi Fannar. Þeir gengu í hjónaband í Ráðhúsi Reykjavíkur 21. júní síðastliðinn við litla og einlæga athöfn.
Síðastliðin vika var viðburðarík að vanda en veðrið stendur sannarlega upp úr hjá samfélagsmiðlastjörnunum, hvort sem það hafi verið í bongó blíðu á höfuðborgarsvæðinu, í kulda fyrir norðan eða í suðrænni sól.
Högni Egilsson og Snæfríður Ingvarsdóttir eignuðust stúlku í lok júní. Tíðindunum deilir Snæfríður með fylgjendum sínum á Instagram.
Rithöfundurinn Júlía Margrét Einarsdóttir er gengin út. Sá heppni heitir Aron Björn Kristinsson og er öryggisráðgjafi hjá Öryggismiðstöðinni.
Sigmar Vilhjálmsson, athafna- og veitingamaður, frumsýndi kærustuna sína á Instagram í gær. Sú heppna heitir Hafrún Hafliðadóttir. Fjórtán ára aldursmunur er á parinu.
Börnum á aldrinum 3 til 17 ára sem eiga foreldra sem hafa skilið stendur nú til boða nýtt úrræði á netinu þar sem þau geta fræðst um skilnað og áhrif þess á líf þeirra og tilfinningar. Um er að ræða 28 áfanga á netinu sem eru sérsniðin að aldri og flokkuð eftir þemum. Fjallað er um söknuð, samsettar fjölskyldur, hvernig eigi að bregðast við þegar foreldrar rífast, tilfinningar og réttindi barna.
Tinna Brá Baldvinsdóttir helt upp á fertugsafmæli sitt á laugardag. Fyrst á Reykjavík Röst, áður en gestum boðið út á höfn þar sem snekkja beið þeirra. Tinna Brá þakkar kærasta sínum Ara Eldjárn fyrir að gera afmælið ógleymanlegt.
„Textalega séð hef ég alltaf verið talsvert persónuleg,“ segir tónlistarkonan Margrét Kristín Sigurðardóttir sem notast við listamannsnafnið Fabúla. Blaðamaður ræddi við hana um listina en hún hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi síðastliðna þrjá áratugi.
Sumarlífið einkennist af miklu fjöri hjá stjörnum landsins og síðastliðin vika var stútfull af bæjarhátíðum, ferðalögum innan sem utanlands, afmælum, dagdrykkju og fleira flippi.
Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, eignuðust stúlku þann 26. júní síðastliðinn.
Leikarinn Ari Freyr Ísfeld Óskarsson leikari og Vigdís Perla Maack, sýningarstjóri í Þjóðleikhúsinu og verkefnastjóri, eignuðust stúlku þann 7. júní síðastliðinn. Vigdís lýsir fæðingu dótturinnar á einlægan og kómískan hátt í færslu á samfélagsmiðlum.
Hvað er dásamlegra en sólríkar sumarnætur í guðs grænni náttúrunni í góðum félagsskap? Að mati margra er það ómissandi þáttur af sumrinu. Þegar kemur að því að pakka niður fyrir ferðalagið er að mörgu að huga fyrir utan þann grunnbúnað sem fylgir útilegunni.
Damon Younger leikari, sem heitir sínu rétta nafni Ásgeir Þórðarson, og Ásdís Spanó myndlistarkona eru hætt saman eftir átta ára samband. Damon greinir frá sambandslitunum í einlægri færslu á Facebook á dögunum.
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn, jafnan þekktur sem Gústi B, er genginn út. Kærastan heitir Hafdís Sól, fyrrum fimleikadrottning og nemi í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Sömuleiðis er hún besta vinkona Friðþóru kærustu súkkulaðistráksins Patriks Atlasonar, sem er besti vinur Gústa B.
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er komin á fast. Sá heppni heitir Charlie Christie og vinnur hjá útgáfurisa í tónlistarbransanum í Los Angeles.