Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. september 2025 11:59 Kristin Cabot og Andrew Cabot með tveimur börnum hans af fyrra hjónabandi og önnur mynd af henni með Andy Byron, fyrrverandi forstjóra Astronomer. Fyrrverandi eiginmaður Kristinar Cabot, mannauðsstjóra tæknifyrirtækisins Astronomer, sem var gripin glóðvolg í faðmlögum með Andy Byron, forstjóra Astronomer, á Coldplay-tónleikum í júlí, segir þau þegar hafa ætlað að skilja fyrir fjölmiðlafárið.
Cabot og Byron birtust á stórum sjá á tónleikum Coldplay í júlí en brugðust við með því að snúa sér undan og reyna að komast frá myndavélinni. „Annað hvort eru þau að halda fram hjá eða þau eru bara mjög feimin,“ sagði Chris Martin, söngvari Coldplay, um kollegana en klippan fór í gríðarlega dreifingu á samfélagsmiðlum og varð að fréttamáli. Á daginn kom að bæði Byron og Cabot voru gift fjölskyldufólk sem skýrði viðbrögðin. Þau sögðu jafnframt bæði af sér hjá Astronomer eftir að málið kom upp. Sjá einnig: Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Nýverið bárust svo fréttir af því að Cabot hefði sótt um skilnað við eiginmann sinn, Andrew Cabot, forstjóra fyrirtækisins Privateer Rum. Skilnaðurinn lá í loftinu Talskona hins 61 árs gamla Andrew Cabot tjáði sig við People í fyrradag og sagði þar að ekki væri allt sem sýndist í málinu. Hann sagði að hann og Kristin hefðu þegar verið búin að ákveða að skilja og verið skilin að borði og sæng þegar tónleikarnir fóru fram. „Ákvörðun þeirra um að skilja hafði þegar verið tekin fyrir þetta kvöld,“ sagði talskona Cabot. Samkvæmt NBC News þá sótti Kristin Cabot um skilnað í Portsmouth í New-Hampshire þann 13. ágúst síðastliðinn. @instaagraace trouble in paradise?? 👀 #coldplay #boston #coldplayconcert #kisscam #fyp ♬ original sound - grace Talskonan sagði jafnframt að nú þegar skilnaðarumsóknin væri opinber vonaðist Andrew til þess að yfirlýsing hans myndi binda enda á sögusagnir og gefa fjölskyldunni loksins næði frá fjölmiðlum og samfélagsmiðlaumræðu. „Engar frekari yfirlýsingar verða gefnar út,“ sagði talskonan jafnframt. Kristin Cabot hefur ekki tjáð sig um málið. Andrew á tvö börn úr fyrra hjónabandi en hann og Kristin eiga ekki börn saman. Hvorki Kristin né Byron hafa tjáð sig um samband sitt og ekki liggur fyrir hvort hjónaband Byron hafi staðið af sér Coldplay-faðmlagið og storminn í kjölfarið.
Tónlist Ástin og lífið Bandaríkin Vinnustaðurinn Hollywood Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sahara Ray látin Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira