
Páll Magnússon

„Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“
Þessi orð eru mér ógleymanleg úr fyrstu forsetakosningunum sem ég man eftir.

Ráðherrann ræður
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti einróma fyrir helgi að skora á fjármálaráðherra að draga tilbaka kröfur um að Vestmannaeyjabær láti af hendi til ríkisins stóran hluta af Heimaey og allar úteyjarnar.

Kröfur fjármálaráðherra – ekki Óbyggðanefndar
Nú liggur það fyrir í viðtali á mbl.is í dag að fjármálaráðherra ætlar halda til streitu kröfu um að Vestmannaeyjabær afhendi ríkinu stóran hluta Heimaeyjar og allar úteyjarnar. Þessi kröfugerð varð ekki til hjá Óbyggðanefnd, eins og ráðherrann gefur til kynna, heldur í fjármálaráðuneytinu undir forræði ráðherrans.

Aukaatriðin og aðalatriðin
Mér þótti athyglisvert að lesa hér á Vísi að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hefði sagt þetta á Sprengisandi í gærmorgun: „Páll Magnússon veður fram á ritvöllinn og segist hafa heyrt í manni sem skráði sig fyrir bréfum og seldi þau daginn eftir. Hvernig stendur á því að blaðamenn flytja svona vitleysu umbúðalaust og fleyta þessu áfram í umræðuna þegar allir vita að í fyrsta lagi var uppgjörsdagur á mánudegi og útboðið fór fram á þriðjudegi? Það gat enginn selt daginn eftir.“

Pistill Páls á Sprengisandi: Skortur á trausti
Veltum fyrir okkur einu lykilhugtaki í samfélagsumræðunni - hvort sem verið er að tala um forsetakosningar eða alþingiskosningar. Eða bara hvað sem er.

Er ráðherrann ekki á förum?
Nú er liðið eitt sumar síðan upplýst var að menntamálaráðherra bað um og fékk persónulegan fjárstuðning frá aðila sem hann síðan veitti pólitíska fyrirgreiðslu vegna viðskiptahagsmuna í Kína. Pólitísk spilling verður ekki augljósari en þetta.

Ærðir álitsgjafar
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum er þeirrar skoðunar að ótímabærar upplýsingar til fjölmiðla um meint kynferðisbrot geti verið skaðlegar af tveimur ástæðum: Í fyrsta lagi geti þær aukið enn á þjáningar þolandans, m.a. í erfiðu kæruferli fyrstu dagana eftir brotið. Í öðru lagi geti þær torveldað rannsókn málsins og auðveldað gerandanum að komast undan. Hvort tveggja er stutt svo gildum og augljósum rökum að óþarfi er að fjölyrða um þau hér.

Spilling ráðherra
Að ráðherra þiggi fjárhagslegan greiða úr hendi óskyldra aðila vegna persónulegra vandamála þarf ekki að vera spilling.

Á reiki um RÚV
Það var nokkuð kyndugt fyrir kunnugan að fylgjast með þeim umræðum sem spunnust um Ríkisútvarpið við lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir 2015 núna fyrir áramótin. Til að skilja skringilegheitin þarf þó að líta eitt ár aftur í tímann – til afgreiðslu fjárlaga fyrir 2014,

Rás 1
Núna vona ég að það sé lag til að segja þó ekki væri nema þetta: Það er ekki verið að leggja niður Rás 1. Það er ekki verið að rífa hana á hol. Það er ekki verið að slökkva á menningarvitanum.

Staðreyndir og staðleysur
Síðast þegar ég átti orðastað við ritstjóra Morgunblaðsins í hans eigin blaði birtist svar hans við grein minni á undan greininni sjálfri.

Afvegaleiddur aðstoðarritstjóri
Afvegaleiddur aðstoðarritstjóri - Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2 Satt best að segja finnst mér að Jón Kaldal ætti af umhyggju fyrir sjálfsmynd sinni sem blaðamaður að reyna að gleyma því sem fyrst að hafa skrifað þennan leiðara. Svo ætti Jón að sjá sóma sinn í því að biðja fyrrnefndan fréttamann afsökunar á að hafa vænt hann um lygi. Ég reikna hins vegar ekki með því að Jón Kaldal geri það - og hafi hann þá skömm fyrir.