Á reiki um RÚV Páll Magnússon skrifar 13. janúar 2015 07:00 Það var nokkuð kyndugt fyrir kunnugan að fylgjast með þeim umræðum sem spunnust um Ríkisútvarpið við lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir 2015 núna fyrir áramótin. Til að skilja skringilegheitin þarf þó að líta eitt ár aftur í tímann – til afgreiðslu fjárlaga fyrir 2014, en fyrstu drög að þeim voru kynnt í október 2013. Þá var nýlokið rekstrarári RÚV 2012/13 sem skilaði hagnaði, líkt og þrjú af fjórum rekstrarárum frá hruni höfðu gert. Samanlagt höfðu þessi fjögur heilu rekstrarár skilað hagnaði og rekstur RÚV verið í ágætu jafnvægi, þrátt fyrir stöðugan niðurskurð á þjónustutekjum frá 2008. Þeim ítrekaða niðurskurði var einfaldlega mætt með hagræðingu og annarri aðlögun í rekstri. Við lokaafgreiðslu fyrrgreindra fjárlaga fyrir 2014 lá fyrir sú ákvörðun eiganda Ríkisútvarpsins, Alþingis fyrir hönd þjóðarinnar, að umfang RÚV ætti að minnka um sem svaraði 500 milljónum króna. Þetta var stefnumarkandi ákvörðun, væntanlega að tilhlutan menntamálaráðherra og fjármálaráðherra, til þriggja ára – 2014, 2015 og 2016. Menn þurftu sem sagt ekki að fara í neinar grafgötur um það lengur hverjar væru tekjuforsendur fyrir rekstri RÚV næstu þrjú árin og óhjákvæmileg afleiðing þessa væri m.a. að ársstörfum hjá RÚV þyrfti að fækka um 60. Forystumenn RÚV börðust gegn þessari ákvörðun af fremsta megni en þetta varð niðurstaða Alþingis og þar með lög í landinu. Stjórn RÚV samþykkti í nóvember 2013 með sjö atkvæðum gegn tveimur, eftir ítarlega umfjöllun, að ráðast í nákvæmlega útfærða hagræðingu sem myndi skila ofangreindri niðurstöðu – 500 milljóna króna sparnaði. Óhjákvæmilega yrði þrátt fyrir það tap á rekstrarárinu 2013/14, enda talsvert liðið á árið þegar ákvörðun Alþingis lá fyrir, en reksturinn yrði aftur kominn í jafnvægi strax árið eftir. Öllum var ljóst að þetta yrðu harkalegar og erfiðar aðgerðir sem myndu framkalla mótmæli bæði þeirra sem áttu hagsmuna að gæta og ekki síður þeirra sem báru hag og hlutverk Ríkisútvarpsins í samfélaginu einlæglega fyrir brjósti. Ákvörðun Alþingis lá hins vegar fyrir og við henni varð að bregðast.Heyktust á eigin ákvörðun Það er skemmst frá því að segja að stjórn RÚV heyktist á eigin ákvörðun strax við fyrstu mótbáru. Allrafyrst sá þó undir iljarnar á menntamálaráðherranum sem hljóp svo hratt frá sjálfum sér að svo virtist sem fjórir fætur væru á lofti í senn. Stjórnarmennirnir flestir fylgdu svo ráðherranum fast eftir á flóttanum. Þessari atburðarás lauk síðan með því að stjórnin valdi einn úr sínum hópi sem útvarpsstjóra – og sameiginlega lét hann og stjórnin stóran hluta af fyrrgreindri hagræðingu ganga til baka. Þetta þótti ýmsum fallega gert og mildilega. Þegar upp var staðið reyndist þetta hins vegar hinn mesti hermdargreiði við Ríkisútvarpið og ekki síður starfsmenn þess. Ef þessar aðgerðir hefðu gengið eftir væri núna komið jafnvægi á rekstur RÚV og rauntekjuaukningin á árinu 2015 hefði öll getað farið í aukna dagskrárgerð.Fyrsta rauntekjuaukning í sex ár Og þá er komið að kyndugheitunum sem nefnd voru í byrjun greinar. Rauntekjur RÚV frá ríkissjóði aukast nefnilega um meira en 200 milljónir króna milli áranna 2014 og 2015 og er það í fyrsta skipti í sex ár sem það gerist. Nú hefði mátt ætla að forystumenn RÚV hefðu unað nokkuð bærilega við svo búið – 200 milljónir til viðbótar við það sem ákveðið var fyrir ári og þeir gátu reiknað með. Nei, frá stjórn RÚV kom ályktun sem sagði m.a. að þetta myndi „…leiða til stórfelldra breytinga á hlutverki, þjónustu og starfsemi Ríkisútvarpsins með stórtækari niðurskurðaraðgerðum en áður hafa sést hjá félaginu“. Ha? Það var verið að auka framlag ríkisins til félagsins um meira en 200 milljónir króna að raungildi! Og frá „vinum“ RÚV komu greinar með fyrirsögnum á borð við „Leiftursókn öfgafólksins gegn RÚV“, „Herförin gegn RÚV“ og „Hamslaust niðurrif“. Og einn „vinurinn“ sagði í grein: „Ríkisútvarpið sætir grimmilegri og grímulausri pólitískri aðför um þessar mundir, líklega þeirri alvarlegustu sem dæmi eru um í langri sögu útvarps í almannaþágu á Íslandi. Aðförin miðar beinlínis að því að veikja fjárhagslega og menningarlega stöðu RÚV til frambúðar. Nú skal látið sverfa til stáls.“ Sjaldan hafa stærri orð fallið af minna tilefni um málefni RÚV. Með leyfi að spyrja: Hvað hefðu stjórn RÚV og „vinirnir“ sagt ef framlögin hefðu verið skorin niður fyrst hægt var að segja þetta þegar þau voru aukin um meira en 200 milljónir að raungildi? Halda menn að svona þvættingur um stöðu mála gagnist RÚV? Almenningur virtist allavega ekki láta blekkjast. Aðeins um 300 manns mættu á einhvern best auglýsta mótmælafund ársins þar sem poppstjörnur og fleiri listamenn tróðu þó upp. Vígreifur bæjarstjóri okkar Eyjamanna benti á að þetta hefði verið innan við helmingur þess fjölda sem mætti á handboltaleik hjá B-liði ÍBV í sömu viku.Skrýtin yfirlýsing Það var svo til að kóróna kyndugheitin þegar Fréttablaðið hafði þetta eftir útvarpsstjóranum: „Það er ekki búið að teikna upp nein niðurskurðaráform og er ekki í undirbúningi.“ Þetta getur aðeins þýtt annað af tvennu: a) Harmkvælin sem rakin voru hér að framan, og þegar stjórn RÚV hótaði „…stórtækari niðurskurðaraðgerðum en áður hafa sést…“, voru ósönn og innihaldslaus og engin þörf á niðurskurði; b) Yfirstjórn RÚV ætlar sér ekki að stilla útgjöldum til jafns við tekjurnar skv. fjárlögum, heldur halda áfram þeim bullandi taprekstri sem var á nýloknu rekstrarári – og láta skeika að sköpuðu. Í stað þess að sigla nú lygnan sjó með reksturinn í jafnvægi, eins og væri ef aðgerðirnar í árslok 2013 hefðu verið látnar ná fram að ganga, er reksturinn nú í uppnámi með endurtekinni óvissu fyrir starfsmenn. Og ekki nóg með það: flestir þeir sem mesta reynslu og þekkingu höfðu á rekstri RÚV voru reknir, nokkrir til viðbótar hættu af sjálfsdáðum þegar þeir sáu hvað verða vildi, og það góða fólk sem kom í staðinn á flest það sameiginlegt að hafa enga reynslu né þekkingu á rekstri fjölmiðla yfir höfuð. Árangurinn er m.a. sá, þrátt fyrir afburða starfsfólk, að nær allar kennitölur sem notaðar eru sem mælikvarði á frammistöðu RÚV lækkuðu á síðasta ári: Hlutur RÚV í sjónvarpsáhorfi landsmanna minnkaði; hlutur Rásar 2 í útvarpshlustun landsmanna minnkaði (Rás 1 jók hlut sinn lítillega); áhorf á fréttir RÚV minnkaði; traustið á RÚV sem stofnun minnkaði og traustið á fréttastofu RÚV minnkaði. Og reksturinn sjálfur breyttist úr hagnaði í tap sem ekki sér fyrir endann á, þrátt fyrir rauntekjuaukningu á fjárlögum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páll Magnússon Mest lesið Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er einhver í áskrift að peningunum þínum? Vésteinn Örn Pétursson Skoðun Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson Skoðun Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir Skoðun Rót stjórnlausa bruðlsins hjá ríki og borg Guðröður Atli Jónsson Skoðun Lög að leysa leikskólavandann? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Um gæluverkefnin í Reykjavík Sabine Leskopf Skoðun Heilbrigðisráðherra fækkar endó-aðgerðum Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland skrifar Skoðun Innleiðingarblekkingin Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Lög að leysa leikskólavandann? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Er einhver í áskrift að peningunum þínum? Vésteinn Örn Pétursson skrifar Skoðun Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra fækkar endó-aðgerðum Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Um gæluverkefnin í Reykjavík Sabine Leskopf skrifar Skoðun Gervigreindin er ekki ógnin. Ábyrgðarlaus notkun hennar er Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Meðgönguþoka: hvað er að gerast í heilanum? Þórhildur Halldórsdottir skrifar Skoðun Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Orkuveita Reykjavíkur – gerum betur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun …og ég vil að þjóðin segi sitt álit Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar lögbundin þjónusta bíður en milljarðar fara í „chillout“ Björg Maggý Pétursdóttir skrifar Skoðun Það sem skiptir máli Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Stóra Hringbrautarmálið Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Bætum heimaþjónustu aldraðra Margrét Björk Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað þýða hraðar breytingar í gervigreind fyrir íslenskt viðskiptalíf? Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Læsi er grunnur alls náms, við getum gert betur Björn Guðmundsson skrifar Skoðun Kosning um staðsetningu kláfs á Ísafirði? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Það er ekki allt í góðu í orkumálum í Svíþjóð Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Óþarfa „sannleiksleit“ Valdimar Guðjónsson skrifar Skoðun Um Fjarðarheiðargöng og samgönguáætlun Þórhallur Borgarson skrifar Skoðun Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir hækkun skrásetningargjaldsins, Röskva gerði það tvisvar Katla Ólafsdóttir,Vignir Berg Pálsson skrifar Skoðun Ísland í eigin skinni Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stórt félag - lítil aðstaða Bjarni Helgason skrifar Skoðun Kennsluafsláttur framhaldsskólakennara – Er það eitthvað sem má skoða? Guðmundur Grétar Karlsson skrifar Skoðun Kópavogur tekur forystu í menningarmálum Soffía Karlsdóttir skrifar Sjá meira
Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir Skoðun
Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir,Hugrún Vignisdóttir,Anna Sigrún Ingimarsdóttir,Elísa Ósk Línadóttir,Freyja Imsland skrifar
Skoðun Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Gervigreindin er ekki ógnin. Ábyrgðarlaus notkun hennar er Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Þegar lögbundin þjónusta bíður en milljarðar fara í „chillout“ Björg Maggý Pétursdóttir skrifar
Skoðun Hvað þýða hraðar breytingar í gervigreind fyrir íslenskt viðskiptalíf? Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir hækkun skrásetningargjaldsins, Röskva gerði það tvisvar Katla Ólafsdóttir,Vignir Berg Pálsson skrifar
Skoðun Kennsluafsláttur framhaldsskólakennara – Er það eitthvað sem má skoða? Guðmundur Grétar Karlsson skrifar
Andstaða sem er kófdrukkin af þórðargleði yfir tímabundnum hraðahindrunum Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Stöðvum kjaragliðnun örorku- og ellilífeyris Kristján Þórður Snæbjarnarson,Ragna Sigurðardóttir Skoðun
Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði Nína Berglind Sigurgeirsdóttir Skoðun