Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir skrifar 8. júní 2026 13:02 Þegar sumarið gengur í garð breytast daglegar venjur margra fjölskyldna. Skólum lýkur, skipulagið verður frjálslegra og börn og ungmenni verja meiri tíma með vinum sínum og utan hefðbundins ramma skóla og tómstunda. Sumarið getur verið dýrmætur tími til að skapa góðar minningar, en það er einnig mikilvægt að foreldrar og samfélagið allt haldi áfram að hlúa að þeim verndandi þáttum sem stuðla að öryggi, vellíðan og heilbrigðum þroska barna og ungmenna. Á síðustu áratugum hefur Ísland vakið athygli víða um heim fyrir árangursríkt forvarnastarf sitt. Um síðustu aldamót var áfengisneysla ungmenna hér á landi meðal þeirrar mestu sem þekktist í Evrópu. Til að bregðast við þessari þróun var ráðist í víðtækt samfélagslegt átak sem síðar varð þekkt sem Íslenska forvarnamódelið. Þar var áherslan á það að efla verndandi þætti í lífi barna og ungmenna með samvinnu allra þeirra sem koma að degi þeirra. Hvað eru verndandi þættir? Verndandi þættir eru þeir þættir sem draga úr líkum á áhættuhegðun og styrkja börn í að takast á við áskoranir lífsins. Þar má nefna góð tengsl við foreldra, reglulega samveru fjölskyldunnar, þátttöku í íþróttum og skipulögðu tómstundastarfi, skýr mörk og reglur, jákvæða jafningjahópa og tilfinningu fyrir því að tilheyra samfélagi. Þegar fjölskyldur, skólar, íþróttafélög, sveitarfélög og önnur samfélagsöfl vinna saman að því að styrkja þessa þætti skapast umhverfi sem styður við heilbrigðan þroska barna. Árangurinn lét ekki á sér standa. Áfengisneysla ungmenna dróst verulega saman og Ísland varð þekkt um allan heim fyrir árangursríka nálgun sína í forvörnum. Þessi árangur varð ekki til af sjálfu sér heldur vegna þess að samfélagið sameinaðist um það markmið að styrkja uppeldis- og verndarumhverfi barna. Verndum og styðjum Árangurinn sem við höfum náð og verið stolt yfir er ekki sjálfgefin og því er mikilvægt að missa ekki dampinn. Áfengisneysla ungmenna eykst gjarnan yfir sumarmánuðina. Sérstaklega á þetta við um ungmenni sem eru að ljúka grunnskóla og hefja nám í framhaldsskóla eða þau sem eru á framhaldskólaaldri. Á þessum tímamótum eiga sumir foreldrar það til að slaka á þeim mörkum sem áður hafa verið sett og jafnvel líta svo á að það sé eðlilegt að ungmenni prófi áfengi. En það er mikilvægt að segja það skýrt: Áfengisneysla barna og ungmenna er hvorki eðlilegur né æskilegur hluti af uppvexti þeirra. Því lengur sem þau bíða með neyslu áfengis því betra.Samkvæmt íslenskum lögum er aldurstakmark fyrir kaup á áfengi 20 ár og óheimilt er að útvega ungmennum áfengi. Foreldrar ættu ekki að hjálpa börnum sínum að brjóta lögin með því að kaupa áfengi fyrir þau eða samþykkja neyslu þeirra. Ástæðurnar eru ekki eingöngu lagalegar. Heilinn heldur áfram að þroskast langt fram eftir unglingsárum og fram á þriðja áratug ævinnar. Áfengisneysla á þessum mikilvæga tíma í þroskaferlinu getur haft neikvæð áhrif á heilastarfsemi, nám, dómgreind og tilfinningaþroska. Ungt fólk þarf svigrúm til að þroskast við sem bestar aðstæður og áfengisneysla getur truflað það ferli. Áfengiskaup eru ekki verndandi þáttur Það er algengur misskilningur að foreldrar haldi að þeir séu að vernda ungmenni sín með því að kaupa fyrir þau áfengi, því þá viti þau hvað og hve mikið þau eru að drekka. Þó sýna rannsóknir að sú leið skilar ekki þeim árangri sem vonast er eftir. Þvert á móti benda niðurstöður til þess að ungmenni sem fá áfengi frá foreldrum sínum drekki meira, oftar og hefji reglulega áfengisneyslu fyrr en jafnaldrar þeirra. Þegar foreldrar útvega áfengi eru þau að senda þau skilaboð að neyslan sé samþykkt eða eðlileg. Ábyrgð foreldra felst ekki í að útvega áfengi heldur að vernda börn sín, styðja þau og hjálpa þeim að taka heilbrigðar og skynsamlegar ákvarðanir. Það felur meðal annars í sér að setja skýr mörk, fylgjast með því hvar börnin eru og með hverjum þau eru, sýna áhuga á lífi þeirra og eiga regluleg og opinská samskipti við þau. Líka þegar þau eldast Sterk tengsl og samvera eru verndandi þættir Sterk tengsl milli foreldra og barna eru meðal öflugustu verndandi þáttanna sem til eru. Samvera skiptir máli, hvort sem hún felst í sameiginlegum máltíðum, ferðalögum, gönguferðum, íþróttaiðkun eða einfaldlega samtölum um daglegt líf. Þegar börn upplifa áhuga, stuðning og nærveru foreldra sinna eru þau betur í stakk búin til að takast á við áskoranir og þrýsting frá umhverfinu. Líka þegar þau eldast. Börn þurfa á foreldrum sínum að halda, jafnvel þótt þau sýni það ekki alltaf. Þau þurfa mörk, leiðsögn og stuðning. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar haldi áfram að vera virkir þátttakendur í lífi barna sinna, líka þegar þau eldast. Nú þegar sumarið er fram undan er því tilefni til að minna okkur á hvað skiptir mestu máli. Við getum öll stuðlað að sterkari verndandi þáttum í lífi barna og ungmenna með því að verja tíma með þeim, sýna þeim áhuga, setja skýr mörk og vera góðar fyrirmyndir. Með því leggjum við okkar af mörkum til að skapa öruggt umhverfi þar sem börn og ungmenni geta dafnað og blómstrað. Höfundur er sérfræðingur í foreldrasamstarfi og forvörnum hjá Heimili og skóla – Landsamtökum foreldra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar