Sjálfstæðisflokkurinn

Trúnaðarbrestur milli stjórnvalda og bótaþega
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda, aldraðra og öryrkja. Umræður um öryrkjaskýrslu Stefáns Ólafssonar endurspeglaði það. Hún vildi vita á Alþingi í dag hvort forsætisráðherra vildi beita sér fyrir fimm ára áætlun í samvinnu við fulltrúa lífeyrisþega í málefnum þessara hópa.

Slippurinn fer hugsanlega ekki
Það kemur til greina að endurskoða áform borgaryfirvalda um að flytja slippinn úr Reykjavík og hefja byggingu íbúðabyggðar á slippssvæðinu, sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, á fundi með útvegsmönnum í gær.

Mótsagnakenndar klisjur
Yfirlýsingar formanns Samfylkingar um að íhaldsmenn og frjálshyggjumenn reyni að skreyta sig fjöðrum jafnaðarmennsku eru mótsagnakenndar og klisjukenndar segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.

Frjálshyggjan á hröðu undanhaldi
Frjálshyggjan er á hröðu undanhaldi um allan heim, líka á Íslandi, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar á flokksstjórnarfundi í morgun. Hún sagði stjórnmálabaráttuna á Íslandi standa milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.
Vilhjálmur sigurstranglegur
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur unnið sigur yfir Gísla Marteini Baldurssyni í baráttunni um fyrsta sætið á lista Sjálfstæðimanna í Reykjavík, samkvæmt fyrstu tölum.
Búið að telja 2.077 atkvæði
Staða í prófkjöri Sjálfstæðismanna er á þann veg að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson heldur áfram fyrsta sætinu með 1.162 atkvæði, þegar 2.077 atkvæði höfðu verið talin fyrir stuttu. Hanna Birna Kristjánsdóttir er í 1.-2. sæti og Gísli Marteinn Baldursson er í 1.-3. sæti.
Vilhjálmur áfram í 1. sæti
Klukkan 19 var búið að telja 1.342 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er áfram í fyrsta sætinu.

Vilhjálmur í efsta sæti eftir fyrstu talningu atkvæða
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er í fyrsta sæti nú þegar 596 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri Sjálfstæðismanna.

Hrærður og þakklátur
Geir H. Haarde var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með nær öllum greiddum atkvæðum á landsfundi flokksins í dag. Nýr formaður sagðist hrærður og þakklátur en sá gamli gekk á táknrænan hátt af hinu pólitíska sviði.

Þorgerður fékk 62,3% atkvæða
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún fékk 728 atkvæði eða 62,3% greiddra atkvæða en mótframbjóðandi hennar, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hlaut 424 atkvæði eða 36,3% greiddra atkvæða. Tíu aðrir sjálfstæðismenn fengu samtals 16 atkvæði.

Bensínstyrkir verði ekki skertir
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag að hvetja til þess að fallið verði frá því að skerða bensínstyrk til öryrkja. Þá vilja sjálfstæðismenn að styrkir hreyfihamlaðra til bifreiðakaupa verði auknir.
Sjálfstæði fjölmiðla verði tryggt
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög sem tryggja sjálfstæði íslenskra fjölmiðla með hagsmuni samfélagsins af heiðarlegri og vandaðri fjölmiðlun að leiðarljósi. Þetta kemur fram í ályktun nefndar um menningarmál sem samþykkt var á fundinum í dag.

Lýsir eftir baráttuanda
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri og frambjóðandi til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins, segist undrast hversu fáir gefi kost á sér í forystusveit flokksins og spyr hvað sé orðið um grasrótina og baráttuandann.

Geir vill selja Landsvirkjun
Geir H. Haarde, verðandi formaður Sjálfstæðisflokksins, segir tímabært að selja Landsvirkjun eftir nokkur ár. Hann segir einkavæðingu ríkisfyrirtækja hafa losað um mikið fé og stuðlað að jöfnuði. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar hafa hins vegar orðið berir að miklum fordómum að hans mati.

Vilja ekki gjaldfrjálsan leikskóla
Ungir sjálfstæðismenn eru andvígir því að boðið verði upp á gjaldfrjálsan leikskóla. Þeir segja nær að efla einkaframtakið á öllum skólastigum. Nýkjörinn formaður Ungra sjálfstæðismanna hyggst bera upp tillögu á landsfundi flokksins sem felur í sér að Íslendingar falli frá framboði til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Álykta gegn framboði Íslands?
Svo gæti farið að Landsfundur sjálfstæðismanna álykti gegn framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og krefjist þess að framboðið verði dregið til baka. Í drögum að ályktunum fyrir flokksþing Ungra sjálfstæðismanna segir að sambandið vilji að framboð Íslands verði dregið til baka.

Bjarni og Árni styðja Þorgerði
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir virðist hafa yfirgnæfandi stuðning í þingliði sjálfstæðismanna til að verða varaformaður flokksins. Bæði Bjarni Benediktsson og Árni M. Mathiesen sem voru taldir líklegastir til að fara gegn henni hafa lýst yfir eindregnum stuðningi við hana.

Bjarni hefur ekki tekið ákvörðun
Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa leitt hugann mikið að varaformannsframboði í flokknum. Það sé enginn þrýstingur á hann og honum liggi ekkert á að ákveða hvort hann fari fram eða ekki. Það komi bara í ljós þegar þar að kemur.

75 ára afmæli SUS á Þingvöllum
Geir H. Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, ætlar í dag að ávarpa hátíðarstjórnarfund SUS sem haldinn verður á Þingvöllum. Tilefni fundarins er sjötíu og fimm ára afmæli SUS en sambandið var stofnað í Hvannagjá á Þingvöllum 27. júlí árið 1930.

Vilhjálmur vill prófkjör
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, vill að flokkurinn haldi prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Hann sækist eftir fyrsta sætinu og lítur ekki á það sem þrýsting á sig þótt Gísli Marteinn Baldursson hafi einnig lýst áhuga á að leiða flokkinn í kosningunum.

Ríkið hætti fjölmiðlaafskiptum
Samband ungra sjálfstæðismanna hvetur ríkið til að hætta afskiptum af fjölmiðlum. Í ályktun ungliðanna er því mótmælt að sett séu fram hugmyndir um að skerða möguleika á fjármögnun einkarekinna fjölmiðla, á sama tíma og frumvarp liggi fyrir sem tryggi Ríkisútvarpinu rétt til aukinna umsvifa á markaðnum.
Öll mismunun máð úr lögum
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur þingmenn til þess að má úr lögum alla mismunun á grundvelli kynhneigðar. Stjórn SUS segir lög um staðfesta samvist og lög um tæknifrjóvganir fela í sér mismunun sem byggist á fordómum en ekki rökum.
Sjálfstæðisflokkurinn fræðir ekki um styrki
Sjálfstæðisflokkurinn neitar að gefa upplýsingar um styrktaraðila sína eða einstaka styrki til flokksins. Fréttablaðið óskaði eftir upplýsingum um styrki olíufélaganna til Sjálfstæðisflokksins í tölvupósti nýlega og barst þá þetta svar. Í svarinu kom einnig fram að flokkurinn hefði um langt skeið fylgt sömu reglu og aðrir stjórnmálaflokkar á Íslandi í þessum efnum.
Vonbrigði fyrir sjálfstæðismenn
Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir að fylgi flokksins í könnun Fréttablaðsins valdi talsverðum vonbrigðum.

Vinstri grænir á flugi
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins myndu Vinstri grænir rúmlega tvöfalda fylgi sitt ef boðað væri nú til kosninga. Helmingur þingmanna Frjálslynda flokksins myndi hins vegar falla af þingi. Fylgi Samfylkingar eykst frá síðustu könnun, en fylgi stjórnarflokkanna dalar.

Nefndarskipan gagnrýnd
Til hvassra orðaskipta kom á Alþingi í gær á milli fjármálaráðherra og þingmanna Samfylkingarinnar. Tilefnið var athugasemd Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns flokksins um störf þingsins.

Samskráning í virðisaukaskattsskrá
Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í gær um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Frumvarpið heimilar skattstjóra að samskrá tvö eða fleiri skráningarskyld hlutafélög og einkahlutafélög á virðisaukaskattsskrá.

Ekki leiðinlegt að eiga við Davíð
Brotthvarf Davíðs Oddssonar úr stól forsætisráðherra setti nokkurn svip á umræður um fyrstu stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar sem forsætisráðherra í gærkvöld. </font />

Davíðs skipar virðingarsess
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands lauk lofsorði á störf þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar í ráðuneytunum sem þeir yfirgáfu um miðjan síðasta mánuð. Sagði forsetinn að Davíð Oddsson myndi skipa "sérstakan virðingarsess í annálum þings og þjóðar." </font />

Arnbjörg varaformaður þingflokks
Sjálfstæðismenn gera nokkrar breytingar á skipan sinna manna í nefndum Alþingis. Þar ber hæst að Guðlaugur Þór Þórðarson verður formaður umhverfisnefndar í stað Sigríðar Önnu Þórðardóttur sem hefur tekið við starfi umhverfisráðherra. Þá hefur Arnbjörg Sveinsdóttir verði kjörin varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.