

Kvenréttindafélag Íslands hefur í 113 ár unnið að kvenréttindum og jafnri stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.
Brjóstagjöf hefur nýverið skotið upp kollinum í umræðu um frumvarp um breytingar á lögum um fæðingarorlof þar sem lýst hefur verið áhyggjum af áhrifum jafnræðis í orlofstöku á brjóstagjöf. En er ástæða til þess að hafa áhyggjur af því að brjóstagjöf líði fyrir jafna orlofstöku mæðra og feðra?
Ingólfur V. Gíslason, prófessor í félagsfræði, segir frumvarp um jafna skiptingu foreldra í fæðingarorlofi mikið framfaraskref. Hann segir fullyrðingar um að aðilar vinnumarkaðarins hafi staðið að frumvarpsgerðinni alrangar.
Eitt stærsta jafnréttismál síðari ára voru ný lög um fæðingarorlof sem sett voru árið 2000 sem tryggðu íslenskum feðrum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs.
Konur gegna stjórnarformennsku í einungis um fjórðungi þeirra félaga sem eru í eigu ríkisins. Fjármálaráðherra hvetur þá sem fara með skipunarvald til að huga að þessu og stefna að því að jafna hlut karla og kvenna.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það sé hugsanlegt að dómurinn Roe gegn Wade frá árinu 1973 verði tekinn upp að nýju hjá Hæstarétti verði Amy Coney Barrett, tilnefning hans til Hæstaréttar, kosin til dómsins af öldungadeild Bandaríkjanna.
Fyrsti alþjóðlegi jafnlaunadagurinn er haldinn í dag 18. september og það er sérstaklega ánægjulegt að þessi dagur sé orðinn að veruleika eftir tillögu Íslands að honum til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.
Konur og karlar fá ekki sömu laun fyrir sömu vinnu fyrr en árið 2277 að öllu óbreyttu samkvæmt skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins. Fyrsti alþjóðlegi jafnlaunadagurinn er á morgun.
Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill telur að viðbrögð fjölmiðla og almennings hefðu verið önnur ef kynjunum í máli ensku landsliðsmannanna og kvennanna tveggja sem hittu þá á Hóteli Sögu hefði verið snúið við.
Nú liggur fyrir jafnréttismat á áformum meirihluta borgarstjórnar um styttingu opnunartíma leikskólanna.
Citigroup réði Jane Fraser sem forstjóra bankans. Fraser verður fyrsta konan til að gegna stöðu bankastjóri á Wall Street. Bandarískir bankar hafa legið undir gagnrýni fyrir skökk kynjahlutföll á meðal stjórnenda.
Handknattleikssamband Íslands hefur kynnt nýtt átak hjá sér þar sem á að styðja betur við bakið á handboltakonum landsins.
Snyrtistofa sem neitaði karlmanni um að bóka tíma í svokallað brasilískt vax braut ekki jafnréttislög með synjuninni
Ríkisútvarpið braut ekki jafnréttislög þegar Stefán Eiríksson var ráðinn í starf útvarpsstjóra í janúar síðastliðnum.
Rétt fyrir aldamótin síðustu þá stóð Reykjavíkurborg ásamt öðrum fyrir alþjóðlegum tískuviðburði á Íslandi.
Almennur opnunartími leikskóla er nú frá 07:30 til 16:30 en undanfarin ár höfðu þeir verið opnir til klukkan 17.
Lagt verður mat á hvort heilbrigðisþjónustan taki mið af ólíkum þörfum kynjanna í rannsókn sem heilbrigðisráðuneytið hefur samið við félagsvísindasvið Háskóla Íslands um að gera. Vísbendingar eru um að konur búi að nokkru leyti við lakari heilsu en karlar.
Stjórn Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hún furðar sig á ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að stefna félagsmanni félagsins fyrir dómi.
Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir ráðgjöfum til að sinna verkefnum á sviði fiskimála, jafnréttismála, landgræðslu og sjálfbærrar orku í alþjóðlegu þróunarsamstarfi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að náða Susan B Anthony, brautryðjanda í kvenréttindabaráttu vestanhafs. Trump tilkynnti ákvörðuninna í dag, á aldarafmæli nítjándu viðbótar stjórnarskrár Bandaríkjanna sem tryggði konum kosningarétt.
Aðstoðamaður Landlæknis segir grein Arnars Sverrissonar, sem ber titilinn „Kynröskun stúlkna. Hin nýja móðursýki,“ vera ástæðu tilkynningar sem gefin var út af Landlæknisembættinu í dag, þar sem fjallað er um mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsmenn beri virðingu fyrir hinsegin fólki.
Magnús Harðarson forstjóri Kauphallarinnar segir íslenskt atvinnulíf áhugasamt um þær leiðbeiningar sem gefnar verða út í haust í samstarfi Kauphallar, Hinsegin daganna og Samtakanna 78. Leiðbeiningunum er ætlað að nýtast bæði fyrirtækjum og stofnunum.
Ákvörðun Pólverja um að segja sig frá samningi Evrópuráðsins um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi fellur í grýttan jarðveg.
Nærri sjö milljón börn undir fimm ára aldri bætast í hóp barna sem eru vannærð á þessu ári og má að stórum hluta rekja það til kórónuveirufaraldursins.
Þrjár konur í Hvíta-Rússlandi hafa sameinast og leiða kosningabaráttu fyrir forsetakosningarnar í Hvíta-Rússlandi, sem haldnar verða í næsta mánuði.
Pólland hyggst snúa baki við sáttmála Evrópusambandsins um að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum. Þetta tilkynnti dómsmálaráðherra Póllands í dag.
Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að biskup Íslands hafi brotið jafnréttislög þegar karl var skipaður í embætti sóknarprests í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli.
Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands segir það mikið áhyggjuefni að meðallaun kvenna séu mun lægri en meðallaun karla enn þann dag í dag. Í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands kemur fram að munur á atvinnutekjum allra kvenna og karla árið 2019 voru 1,8 milljónir króna.
Söngkonan Greta Salóme gagnrýnir nýja auglýsingu frá Keiluhöllinni, þar sem auglýstir eru eingöngu viðburðir með karlmönnum. Engin kona virðist hafa komist inn á dagskránna fyrir júlí.
Tíu ár eru í dag frá því UN Women var stofnað og samþykkt af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Heimilisofbeldi gegn konum hefur aukist um 30-40% í Covid-19 faraldrinum á heimsvísu að sögn framkvæmdastjóra UN Women.