

Akranes er nýtt flutningaskip sem siglir nú vikulega á milli Danmerkur, Færeyja og Þorlákshafnar.
Tvær rútur með 38 ferðamenn voru á austurleið þegar þær höfnuðu út af Suðurlandsvegi á Hellisheiði í morgun.
Ekki er talið að neinn sé alvarlega slasaður og viðbragð í samræmi við það.
Málið er hið eina óupplýsta sinnar tegundar á Íslandi en ekki hefur verið fjallað um það áður, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Suðurlandi.
Birgitta Jónsdóttir fyrrverandi alþingismaður er dóttir Jóns Ólafssonar, sem hvarf á aðfangadag 1987. Birgitta var tvítug þegar faðir hennar hvarf og segir það fyrst og fremst mikla friðþægingu að líkamsleifar hans hafi fundist.
Lögreglan á Suðurlandi greindi frá því í dag að kennsl hefðu verið borin á líkamsleifar manns sem var talinn hafa fallið í Sogið árið 1987.
Lögreglan á Suðurlandi bar nú í janúar kennsl á höfuðkúpu manns sem fannst haustið 1994 við Ölfusá.
Ökumaður sem tók upp myndband af því þegar annar bíll snerist fyrir framan hann segir að aðeins örlitlu hefði munað að bíllinn ylti.
Vegagerðin hyggst fyrir lok mánaðarins bjóða út stærsta útboðsverk sitt á árinu, breikkun sjö kílómetra kafla Suðurlandsvegar um Ölfus, 2+1 veg með aðskildum akstursstefnum.
Birgitta Björt Rúnarsdóttir, 15 ára stelpa í Þorlákshöfn seldi 20 myndir eftir sig á klukkutíma á fyrstu málverkasýningu sinni, sem stendur nú yfir í Þorlákshöfn.
Bæjarstjóri Árborgar hélt að stór trukkur hefði keyrt á Ráðhús Árborgar þegar jarðskjálfti varð klukkan 13:10 í dag en svo áttaði hann sig á því að um jarðskjálfta væri að ræða.
Tilkynningar um skjálftann, sem var 3,9 stig, hafa borist frá íbúum víða á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu.
Skipafélagið Smyril Line hefur fest kaup á nýrri vöruflutningaferju sem mun hefja áætlunarsiglingar um miðjan janúar 2020 milli Þorlákshafnar og Hirtshals í Danmörku.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Ölfuss hafa hafnað ósk Hvergerðinga um viðræður um sameiningu sveitarfélaganna.
Minningarathöfn fer fram við Kögunarhól á milli Hveragerðis og Selfoss klukkan 14:00 í dag til að minnast fórnarlamba umferðarlysa og þeirra sem látist hafa í umferðinni.
Ölfus hefur þegar hafnað boði Árborgar um viðræður og sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps er hikandi.
Tap Icelandic Water Holdings jókst um 61 prósent á milli ára og nam 25,6 milljónum dollara árið 2018. Það jafngildir um 3,2 milljörðum króna. J
Paradise Farm þarf raforku sem samsvarar hámarksafli Blönduvirkjunar ef áform um 500 þúsund fermetra gróðurhús verða að veruleika. Talsmaður segir að leggja þyrfti í miklar fjárfestingar til að flytja raforkuna að stöðinni.
Fjárfestar stefna að því að reisa allt að fimm hundruð þúsund fermetra gróðurhús hér á landi. Formaður Félags garðyrkjubænda og einn aðstandenda félagsins segir hugmyndina að Ísland verði matvælaland heimsins. Háð orkuverði hvort verkefnið sé raunhæft.
Vegagerðin segir frá því að umferð sé nú beint um Þrengsli.
Dagný Magnúsdóttir listakona rekur kaffihúsið Hendur í höfn í Þorlákshöfn sem gegnir einnig mikilvægu menningarhlutverki í bænum.
Sjúkraflutningamenn frá Selfossi og Reykjavík auk tækjabíls frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og lögreglu sinna nú útkalli nærri Þrengslaafleggjara en tilkynnt var um að þar hefði bíll farið út af veginum.
Eitt bílslys og annað umferðaróhapp urðu í Þrengslum um klukkan átta í morgun vegna hálku á vegi.
Ökumaður bifreiðar sem hafnaði utan vegar í Hveradalabrekku á Suðurlandsvegi, oft nefnd Skíðaskálabrekkan, var fluttur slasaður á slysadeild í Fossvogi skömmu eftir hádegi í gær.
Foreldrar eru áhyggjufullir vegna illkvittins hrekks sem gengur út á að losa dekk undan reiðhjólum barna. Alvarleg slys hafa orðið vegna þessa og lítur lögregla málið alvarlegum augum.
Drengur fæddur 2007 slasaðist þegar framhjól datt undan reiðhjóli hans í Þorlákshöfn.
Fulltrúar Hafrannsóknarstofnunar munu í næstu viku koma fyrir atvinnuveganefnd Alþingis vegna ákvörðunar um að skera niður veiðiheimildir á sæbjúgu.
Hvalurinn á að giska 30 tonn í fjörunni við Þorlákshöfn.
Helgi Sigurður Haraldsson, forseti bæjarstjórnar í Árborg vill sjá sameiningu allra sveitarfélaga í Árnessýslu í eitt stórt og öflugt sveitarfélag.
Brunavarnir Árnessýslu fengu í gær afhenta nýja Bens tankbifreið í bílaflota slökkviliðsins. Henni er ætlað að tryggja enn frekar öryggi í sumarhúsabyggðinni í Árnessýslu.