Reykjanesbær

Sveiflaði hníf og hrelldi fólk
Lögreglan á Suðurnesjum handtók um síðustu helgi karlmann í annarlegu ástandi sem var að sveifla hníf og hrella fólk.

Slökkvilið kallað út að hóteli í Keflavík
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja hefur verið kallað út að Marriott-hótelinu á Aðalgötu í Keflavík.

Hætta skapaðist þegar kviknaði í bíl
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja fengu tilkynningu nú klukkan hálf þrjú um að eldur logaði í bíl við Klettatröð í Reykjanesbæ.

Sundköppum vísað frá affallinu stórhættulega
Lögreglan á Suðurnesjum fylgdi í gærkvöldi fjórum sundköppum frá útfallinu við Reykjanesvirkjun þar sem þeir voru að baða sig. Stórhættulegt getur verið að baða sig í útfallinu, líkt og komið hefur fram í fréttum.

„Það smellir enginn fingri til að redda fullt af störfum“
„Við vitum að það smellir enginn fingri til að redda fullt af störfum, redda einhverjum milljörðum frá NATO vegna þess að ástandið þar er ekki gott um þessar mundir.“

Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar fékk gullið afhent 37 árum eftir að hafa orðið Íslandsmeistari
Rúnar Júlíusson var einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar en hann var ekki bara lunkinn tónlistarmaður því í fótbolta var hann einni öflugur og varð meðal annars Íslandsmeistari með Keflavík árið 1964.

12,5 milljarða varnaruppbygging þegar í pípunum
Í umræðunni um mögulega varnaruppbyggingu í Helguvík telur utanríkisráðherra mikilvægt að halda því til haga að NATO sé nú þegar í framkvæmdum á Íslandi.

Munu ekki geta staðið undir lögbundinni þjónustu
Ráðherra sveitarstjórnarmála segir ljóst að einhver sveitarfélög muni þurfa á aðstoð á halda.

Segir stjúpmóður sína líklegast aldrei eiga eftir að ná fullum bata eftir árekstur á Sandgerðisvegi
Fjölskylda konunnar íhugar að stefna Ríkislögreglustjóra. Áreksturinn varð eftir að lögreglan hafði veitt manni á stolinni bifreið eftirför.

Keflvíkingar grilluðu fyrir framlínufólk
„Það er gaman að geta gert eitthvað svona fyrir framlínufólkið okkar,“ segir Kristján Helgi Jóhannsson, stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild Keflavíkur, en deildin bauð heilbrigðisstarfsfólki upp á grillaða hamborgara til að sýna þakklæti fyrir störf þess á tímum kórónuveirufaraldursins.

Ætla að segja upp samningi við Thorsil í Helguvík
Samningi Reykjaneshafnar og Thorsil ehf. um uppbyggingu kísilverksmiðju á Helguvík verður sagt upp. Stjórn Reykjaneshafnar fól hafnarstjóra að rifta samningnum frá og með mánaðamótum á fundi sínum í dag.

Ánægð með ráðherra VG sem lögðust gegn hugmyndum um framkvæmdir á vegum NATO
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, varaformaður utanríkismálanefndar, segir að hugmyndir um framkvæmdir á vegum Atlantshafsbandalagsins á Suðurnesjum hafi ekki verið formlega ræddar á vettvangi þingsins.

Vill aðgerðir í atvinnumálum en samt ekki kísilverksmiðju
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ kalla eftir aðgerðum ríkisvaldsins vegna gríðarlegs atvinnuleysis á Suðurnesjum. Bæjarstjórinn segir þó ekki stemmningu fyrir því að kísilmálmverksmiðjan í Helguvík verði endurræst.

Kynnir endurbætur á kísilverinu í Helguvík
Eigandi kísilversins í Helguvík, sem staðið hefur ónotað í þrjú ár, stefnir að því að hefja endurbætur á verksmiðjunni í byrjun næsta árs með það að markmiði að hún geti tekið til starfa á ný eftir tvö ár. Skýrsla um umhverfismat endurbótanna hefur verið auglýst.

Arion banki í bulli
Það er eins og Arion banka sé fyrirmunað að taka skynsamlegar ákvarðanir þegar kemur að kísilverinu í Helguvík segir Tómas Guðbjartsson læknir.
Palli hefði getað valið úr flugvélum
Keflavíkurflugvöllur er tómlegur þessa dagana svo vægt sé til orða tekið. Icelandair heldur úti flugi til Stokkhólms, Boston og London en annars er lítið annað en fraktflutningar sem ratar hingað til lands.

Atvinnuleysi 28% í Reykjanesbæ þar sem veiran bætir gráu ofan á svart
Atvinnuleysi í Reykjanesbæ nam í apríl 28 prósentum, þar af er 16,1 prósent í hlutabótaleiðinni svokölluðu. Á Suðurnesjunum nam atvinnuleysi 25,2 prósentum.

Þeir sem böðuðu sig upp úr affalli Reykjanesvirkjunar böðuðu sig einnig upp úr affalli fiskeldisstöðvar
Fjöldi svalaði sundlaugaþorsta sínum í affalli Reykjanesvirkjunnar í blíðviðrinu um helgina. Um stórhættulegt athæfi er að ræða og ekki beint hreinlegt.

Feitur og pattaralegur og veifaði ekki einu sinni bless
Búið að sleppa hringanóranum sem Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fékk í fangið.

Vara við baðferðum í „stórhættulegu“ affalli eftir sprengingu á samfélagsmiðlum
HS Orka varar við því að stórhættulegt getur verið að baða sig í affalli Reykjanesvirkjunar á Reykjanesi. Endurteknar tilkynningar og birtingar á samfélagsmiðlum bendi til þess að það sé að færast í aukana að fólk sé að baða sig í affallinu.

Herra Njarðvík og Herra Keflavík urðu Íslandsmeistarar saman
Friðrik Ingi Rúnarsson rifjaði það upp á fésbókinni þegar hann, Teitur Örlygsson og Guðjón Skúlason unnu Íslandsmeistaratitil saman fyrir 42 árum.

Lagði til að rúmum milljarði yrði varið í framkvæmdir við höfnina í Helguvík
Utanríkisráðherra segir að þegar kallað hafi verið eftir tillögum innan ráðherranefndar um ríkisfjármál um innviðauppbyggingu í kjölfar kórónuveirufaraldursins hér á landi hafi hann lagt til að ráðist yrði í framkvæmdir við höfnina í Helguvík.

Fannar um bikarúrslitin 1999: Það komu seríur af alls konar rugli
Hinn margfaldi Íslandsmeistari í körfubolta Fannar Ólafsson segir að mestu vonbrigðin á sínum körfuboltaferli hafi verið tapið með Keflavík í bikarúrslitaleiknum gegn Njarðvík árið 1999.

Sætir nálgunarbanni vegna gruns um ítrekað heimilisofbeldi
Landsréttur staðfesti á föstudag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá 8. apríl síðastliðnum um að maður skyldi sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili vegna gruns um ítrekað heimilisofbeldi og hótanir við konu sína.

Skoða uppbyggingu fyrir herskip í Helguvík
Reykjaneshafnir hafa áhuga á að ráðast í uppbyggingu í Helguvíkurhöfn þannig að herskip geti lagt þar að höfn.

Setja fjóra milljarða í framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli
Ríkisstjórnin hyggst auka hlutafé Isavia um fjóra milljarða með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

Tvö andlát rannsökuð sem sakamál: Aukin hætta á heimilisofbeldi á tímum COVID-19
Tveir karlmenn eru í haldi lögreglu vegna láts konu um sextugt í heimahúsi í Hafnarfirði í nótt. Þriðji karlmaðurinn er í gæsluvarðhaldi í tengslum við lát konu í Sandgerði fyrir rúmri viku.

Suðurnesjamenn kalla eftir því að ríkisstjórnin ráðist í frekari aðgerðir
Suðurnes hafa farið einna verst út úr þeirri niðursveiflu sem nú ríður yfir landið vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og hafa sumir íbúar kallað eftir sértækum ríkisaðgerðum á svæðinu.

Hætta á að Keflavíkurflugvöllur nái sér ekki á strik fyrr en 2021
Keflavíkurflugvöllur er einn stærsti vinnustaður landsins en í kringum 9000 manns vinna á flugvellinum eða í störfum tengdum honum. Bæjarstjóri segir hættu á að flugvöllurinn nái sér ekki aftur á strik fyrr en 2021.

Sögulegar uppsagnatölur og bæjarstjóri áhyggjufullur
Aldrei hafa fleiri misst vinnuna eða hluta úr vinnu á jafn skömmum tíma líkt og nú, að sögn forstjóra Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysið er mest í Reykjanesbæ og óttast bæjarstjóri að það gæti farið upp í tuttugu prósent.