Reykjavík

Hart deilt um fyrirhugaða sumarlokun
Hart var deilt um fyrirhugaða sumarlokun einstakra almenningsbókasafna borgarinnar á borgarstjórnarfundi í vikunni. Fulltrúar Sósíalistaflokksins segja borgaryfirvöld á hættulegri vegferð en meirihlutinn segir þjónustuna þá mestu á höfuðborgarsvæðinu.

Réðst á starfsmann vegna tveggja daga gamalla erja
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um líkamsárás í matvöruverslun í dag. Þar réðst viðskiptavinur að starfsmanni með hnefahöggi.

Hlemmur gjörbreytist í sumar
Bílaniður víkur fyrir taktföstum skrefum og mannlífsins hljómi - ómi hjarta Hlemmtorgsins sem fær loksins að slá. Þannig kemst borgarfulltrúi Pírata að orði um breytingar á Hlemmi sem verða að veruleika í sumar. Strætó kveður Hlemm með breytingunum og ekki verða almenningssamgöngur þar fyrr en Borgarlínan leggur í hann.

Vill axla ábyrgð eftir misheppnað rán á Pizzunni
23 ára karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rán á veitingastaðnum Pizzunni fyrir rúmum tveimur árum. Hann hafði lítið upp úr krafsinu og missti bæði síma sinn og lykla á vettvangi glæpsins. Hann sagðist fyrir dómi vilja axla ábyrgð á brotum sínum en hann hefur farið í meðferð vegna fíknivanda.

Fimm fantaflottar miðbæjarperlur
Í miðborg Reykjavíkur má finna fjölda eigna í öllum stærðum og gerðum. Sögufræg hús, nýjar eignir, lúxusíbúðir og allt þar á milli. Lífið á Vísi tók saman nokkrar eignir sem má finna í póstnúmeri 101.

Ný stefna, nýtt nafn og nýtt merki: „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“
Síðustu vikur og mánuði hefur farið fram mikil vinna við nýja stefnu Orkuveitu Reykjavíkur. Meðfram nýrri stefnu hefur ásýnd fyrirtækisins verið endurmörkuð. Héðan af verður það kallað Orkuveitan í daglegu tali, nýtt merki hefur verið hannað og einkennislitnum breytt úr bláum í grænan. Þá hefur setningin „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“ verið gerð að eins konar einkunnarorðum Orkuveitunnar.

Leita barna sem köstuðu klaka af brú á Miklubraut
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar þriggja stráka á barnsaldri, mögulega á aldrinum níu til ellefu ára, sem grunaðir eru um að hafa kastað stórum klaka af göngubrú yfir Miklubraut í Reykjavík á sunnudag. Klakinn hafnaði á framrúðu bíls.

Mest borgað fyrir leigu í austurhluta Kópavogs
Meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu var hæst í póstnúmeri 203 á síðasta ári, en í því sama póstnúmeri voru íbúðir til leigu jafnframt stærri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðið á hvern fermetra var hins vegar hæst í Vesturbænum.

Íslenska er lykill
Rúmlega 20% Reykjavíkinga eru erlendir ríkisborgarar. Rúmlega 30 þúsund manns. Auk þeirra er fjöldi Íslendinga sem hér búa af erlendum uppruna. Þetta er velkominn hópur af fólki sem hér hefur ákveðið að búa og starfa, ala hér upp börnin sín og leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

Eggjum grýtt og unglingar handteknir á Austurvelli
Tveir voru handteknir á fjölmennum mótmælum skólabarna á Austurvelli í dag. Krakkarnir kröfðust vopnahlés á Gasa og að íslensk stjórnvöld kæmu fjölskyldusameiningum til framkvæmda. Forsætisráðherra viðurkennir að málið þyrfti skjóta afgreiðslu en flókin framkvæmd tefji fyrir.

Kvosin í miðbænum verður göngusvæði og bílastæðin fara
Kvosin í Reykjavík verður að heildstæðu göngusvæði og verða bílastæði sem nú eru á svæðinu því tekin. Borgarfulltrúi segir breytinguna verða mikla lyftistöng fyrir staðinn þar sem áhersla verður lögð á gróður, lýsingu og fjölskylduvænt rými.

Bruni í blokk í Hátúni
Tilkynnt var um bruna í blokk í Hátúni um klukkan 15 í dag. Að sögn Hlyns Höskuldssonar deildarstjóra á aðgerðarsviði Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er búið að slökkva eldinn og verið að reykræsta.

Tveir drengir handteknir á mótmælum barna
Tveir drengir voru handteknir á Austurvelli í morgun á mótmælum nemenda í Hagaskóla. Vitni segja engan sérstakan aðdraganda hafa verið að handtöku drengjanna. Yfirlögregluþjónn segir þá hafa ekki hlýtt fyrirmælum, hindrað störf lögreglu og framið skemmdarverk.

Neitar að hafa reynt að drepa fólk í Silfratjörn
Shokri Keryo, tvítugur karlmaður, neitaði sök þegar ákæra á hendur honum fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal var þingfest í dag.

Fengu afsökunarbeiðni og sektin verður endurgreidd
Reykjavíkurborg hefur viðurkennt að mistök hafi verið gerð þegar íbúi við Frakkastíg var sektaður fyrir að leggja í eigin innkeyrslu. Dóttir íbúans segir Bílastæðasjóð þurfa að hafa á hreinu fyrir hvað eigi að sekt og hvað ekki.

Eggjum kastað í þinghúsið
Einstaklingar úr hópi grunnskólabarna, sem komu saman til mótmæla á Austurvelli fyrr í dag, hafa kastað eggjum í Alþingishúsið.

Gengu út úr tíma í Hagaskóla og fóru í verkfall fyrir Palestínu
Nemendur í Hagaskóla gengu í morgun út úr tíma og fóru í „skólaverkfall fyrir Palestínu“. Krakkarnir vilja að ríkisstjórnin bregðist við og sameini fjölskyldur en lýsa aðgerðinni einnig sem stuðningsyfirlýsingu.

Eiriksson eignast systur í Grósku
Veitingahjónin Friðgeir Ingi Eiríksson og Sara Dögg Ólafsdóttir ásamt Sveini Þorra Þorvaldssyni og Guðmundi Ragnarssyni hafa ákveðið að opna veitingastaðinn Eiriksdottir í Grósku í Vatnsmýrinni. Staðurinn mun einblína á hádegisverð.

Erfitt að sjá barnið sitt eiga í erfiðleikum með tungumálin sín
Hjónin Alondra Silva Munoz og Helgi Þorsteinsson Silva gáfu nýlega saman út bókina Töfrandi fjöltyngdur heimur Áka Tahiel. Þau sóttu innblástur að bókinni í sitt eigið líf og til sonar síns sem er á þriðja aldursári og talar þrjú tungumál, íslensku, spænsku og ensku.

Pössuðu ekki nógu vel upp á farangurinn og þurfa að greiða bætur
Ónefnt hótel á Íslandi þarf að greiða hjónum sem greiddu þar fyrir gistingu um 170 þúsund krónur í bætur eftir að farangri hjónanna var stolið af hótelinu.

Engin moska við Suðurlandsbraut?
Útlit er fyrir að umdeildar fyrirætlanir um að reisa mosku við Suðurlandsbraut verði að engu en frestur Félags múslima á Íslandi til að byggja á umræddri lóð rennur út í sumar.

Persónuvernd fær á baukinn og stefnir í milljóna endurgreiðslu
Ríkið þarf að endurgreiða Reykjavíkurborg fimm milljónir króna auk vaxta vegna slapprar stjórnsýslu þegar Persónuvernd sektaði borgina vegna Seesaw-kerfis sem notað var í nokkrum grunnskólum borgarinnar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Kópavogur gæti krafið ríkið um fjögurra milljóna endurgreiðslu.

Tveggja bíla árekstur í Ártúnsbrekku
Árekstur varð í Ártúnsbrekkunni um klukkan þrjú í dag. Tveir bílar skullu þar saman neðst í brekkunni en samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru þrír sjúkrabílar og dælubíll sendir á vettvang.

Leita vitna vegna ágreinings um ljósastöðu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að hörðum árekstri sem varð á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar í Reykjavík í gær.

„Skólinn í sjálfu sér kemur ekkert nærri þessu“
Hópur grunnskólanema í Hagaskóla í Reykjavík hefur boðað til verkfalls á morgun til stuðnings Palestínu. Skólastjóri segist ekki gera sér grein fyrir umfangi verkfallsins og hvort fimm, fimmtíu eða fimm hundruð nemendur muni ganga út úr tímum á morgun. Hann fagnar því að ungt fólk sé hugsandi, taki afstöðu og láti sig samfélagsleg málefni varða.

Fjórði áreksturinn í dag
Fjórir árekstrar hafa orðið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. Þeir hafa flestir verið smávægilegir og aðeins einn hefur verið fluttur á bráðamóttöku.

Lykilsönnunargagn ófundið í lífshættulegri skotárás
Héraðssaksóknari hefur ákært Shokri Keryo, karlmann á 21. aldursári, fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðastliðnum. Miskabótakrafa fimm einstaklinga sem ýmist urðu fyrir skoti eða stóð ógn af skotunum hljóðar upp á samanlagt níu milljónir króna. Skotvopnið er ófundið.

Árekstur á Háaleitisbraut
Betur fór en á horfðist þegar árekstur tveggja fólksbíla varð við gatnamót Háaleitisbrautar og Miklubrautar í Reykjavík í morgun. Þegar slökkvilið bar að garði höfðu allir farþegar bílanna komið sér út úr bílunum og enginn þeirra var slasaður.

Sigurður Hjartarson er látinn
Sigurður Hjartarson, fyrrverandi menntaskólakennari og stofnandi Hins íslenzka reðasafns, er látinn 82 ára að aldri. Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir rithöfundur og dóttir Sigurðar greinir frá andláti hans á Facebook.

Ekki merki um stórfelldan gagnastuld
Það eru ekki merki um stórfelldan gagnastuld þegar tölvuárás var gerð á Háskólann í Reykjavík á föstudaginn. Þó sé ekki hægt að útiloka gagnastuld að hluta.