
Reykjavík

Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni
Magnús Árni Skjöld Magnússon varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík norður hefur sett íbúð sína við Ásvallagötu 1 í Reykjavík á sölu. Um er að ræða 120 fermetra eign í sögufrægu húsi frá árinu 1930. Ásett verð er 99,9 milljónir.

Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg
Lögreglan var kölluð til vegna brothljóða í nótt en þá höfðu allar rúður verið brotnar á staðnum Just Kebab við Lækjargötu. Rúðurnar eru þrjár stórar og svo voru rúður í dyrum einnig brotnar.

Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný
Í nótt var maður á ferð sem lét sig ekki muna um að brjóta rúður í versluninni Korakmarket sem er við Skólavörðustíg 21. Ætla má að þarna sé sami maðurinn á ferð og fyrir fáeinum dögum en þá voru nánast allar rúður brotnar í versluninni.

Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir ýmsa telja óþægileg hagsmunatengsl á milli Reykjavíkurborgar og Ríkisútvarpsins í tengslum við umdeildan samning við olíufélögin. Formaður borgarráðs segist klóra sér í höfðinu yfir fyrirspurninni.

Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára
Afkoma samstæðu Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3,4 milljarða króna í fyrra samanborið við sex milljarða króna hagnað árið 2022. Afkoma A-hluta batnar þó um tæplega ellefu milljarða á milli ára.

Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu
Aðaldagskrá Iceland Innovation Week var birt í morgun. Þátttakendur frá meðal annars Google, Microsoft, Snapchat, NATO Innovation Fund og UN World Food Programme eru væntanlegir til landsins á hátíðina, sem fer fram dagana 13-17. maí.

Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum
Sala hófst í dag á fyrsta áfanga af fjórum á Orkureitnum svokallaða. Um er að ræða 68 íbúðir í sjö hæða húsi við Suðurlandsbraut, vestan við Orkuhúsið. Stærð íbúða er á bilinu 38 - 166 fermetrar.

Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti
Haraldur Þorleifsson hefur lokað veitingastað sínum Önnu Jónu á Tryggvagötu. Hann segist enn vera að melta hlutina en segir ákvörðunina vera gríðarlega mikinn létti. Erfitt rekstrarumhverfi hafi spilað sinn þátt.

Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr
Fjöldi fólks lét sjá sig þegar Jón Gnarr forsetaframbjóðandi opnaði dyrnar að kosningaskrifstofu sinni við Aðalstræti 11 í dag. Boðið var upp á kræsingar og skemmtiatriði í tilefni opnunarinnar.

„Það er hart sótt að okkar fólki“
Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjöldi landsmanna kom saman í kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur og var gengið niður að Ingólfstorgi þar sem fram fór fjölmennur útifundur.

Í ker eða kistu
Þótt það hafi aukist mikið og á eftir að aukast e.t.v. enn meira að fólk ákveði í lifanda lífi að jarðneskar leifar þess skuli brenndar verður ávallt að vera til reitur – kirkjugarður í Reykjavík sem hefur pláss fyrir kistur. Ákvörðun um hvort kista eða ker verði fyrir valinu liggur einnig oft hjá aðstandendum hins látna.

Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu
Hópur stúdenta tók þátt í samstöðulautarferð fyrir Palestínu á túninu fyrir framan Háskóla Íslands seinni partinn í dag. Skipuleggjandi segir mikilvægt að hreyfingin fái leyfi fyrir viðburði af þessu tagi svo hægt sé að krefja skólann aðgerða sem snúa að samstöðu með Palestínu.

Mýtan um launin
Ég rak upp stór augu um daginn, þegar ég las yfirskriftina „Segir lág laun leikskólakennara mýtu” á frétt á Vísi. Sem leikskólakennari varð ég auðvitað að skoða þetta nánar.

Gerða og glæsilegar gellur á Edition
Íþróttafrömuðurinn Gerður Jónsdóttir, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, bauð sannkölluðum ofurskvísum í partý á hótelinu Reykjavík Edition síðastliðið miðvikudagskvöld í tilefni opnun vefsíðunnar In shape.

Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut
Að minnsta kosti fjögurra bíla árekstur varð á Miklubraut á leiðinni í austurátt um klukkan korter yfir þrjú í dag. Þá lá eitt mótorhjól sömuleiðis á götunni.

Snorri og Harpa selja á Njálsgötu
Snorri Engilbertsson leikari og kærastan hans Harpa Hilmarsdóttir hafa sett sjarmerandi risíbúð við Njálsgötu í Reykjavík á sölu. Um er að ræða 75 fermetra eign í húsi sem var byggt árið 1952. Ásett verð er 74,9 milljónir.

Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda
Aðfararnótt mánudags gekk grímuklæddur maður inn Njálsgötuna, upp að Skólavörðustíg 21 og stillti sér upp fyrir framan nýlenduvöruverslunina Korakmarket. Þar skaut hann með reglubundnum hætti gat á hverja einustu rúðu. Þrjátíu að tölu.

Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn
Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu, eða til 27. maí, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann var handtekinn á sunnudagskvöld eftir eftirför á ógnarhraða um Vogahverfi í Reykjavík.

Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum í nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða og handtók meðal annars mann á Austurvelli sem var að áreita gesti á bar í nágrenninu með ógnandi hegðun.

Jafnaðarmannastefnan – stefna velferðar
Samfylkingin hefur stefnu jöfnuðar í efnahagsmálum þjóðarinnar – hvernig nýta skuli tekjustofna ríkisins. Í stað þess að sækja allar tekjur ríkisins í vasa launafólks og hlífa þannig peningaöflunum er litið til þess að sækja tekjur í ríkissjóð með öðrum hætti, láta þá ríku borga meira og innheimta alvöru auðlindagjöld.

Aðalsöngvari The Commitments stígur á svið í Háskólabíói
Það verður mikið fjör á tónleiksýningu í Háskólabíói þegar fjölmennur hópur íslenskra tónlistarmanna flytur lög úr kvikmyndinni The Commitments frá árinu 1991. Andrew Strong, sem var aðalleikari og söngvari kvikmyndarinnar, kemur fram á sýningunni.

Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til
Birna Sigmundsdóttir hefur komið upp miklu jólaþorpi í garði sínum að Dragavegi fimm í Laugardalnum ár hvert í fimmtán ár. Nú standa yfir nágrannaerjur við fólk á efri hæðinni sem vill ekkert með skreytingarnar hafa. Birna hefur yfirleitt skreytt garðinn með álfastyttum í stað jólakrauts á sumrin.

Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands hefur miklar áhyggjur af starfsumhverfi lyfjafræðinga. Svo virðist sem uppákomur eins og vopnuð rán séu að færast í aukana.

Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna
Brynja Nordquist fyrrverandi flugfreyja og Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður hafa sett hús sitt við Nýlendugötu á sölu. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu en fermetraverðið er í hærra lagi eða 1,2 milljón á fermetrann.

Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt
Plokkdagurinn mikli var haldinn hátíðlegur með skipulagðri ruslatínslu víða um land í dag. Dagurinn er nú haldinn í sjöunda skipti og var settur með viðhöfn í Grafarvogi í morgun, að viðstöddum forseta Íslands og umhverfisráðherra. Vaskir plokkarar hófu leika strax í kjölfarið og ætla má að borgin sé orðin talsvert þrifalegri eftir yfirferð þeirra, enda safnaðist víðast hvar hratt í ruslapokana.

Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna
Maður var handtekinn í kvöld eftir ofsaakstur í Vogahverfi í Reykjavík. Lögreglan veitti manninum eftirför með aðstoð sérsveitarinnar. Maðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis.

Lögregla með eftirför í Vogahverfi
Lögregla veitti ökumanni eftirför í Vogahverfi í Reykjavík nú um kvöldmatarleytið. Ekki hefur náðst í lögreglu vegna málsins.

Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann poka í Mosfellsbæ í dag þar sem finna mátti hræ fimm hvolpa. Matvælastofnun hefur verið gert viðvart og grunur er um brot á lögum um velferð dýra.

Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó
Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðandi og lögmaður, bauð stuðningsmönnum sínum í framboðsgleði í Iðnó á föstudagskvöld. Fjöldi fólks sótti viðburðinn.

Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti
Lögregla var kölluð til seinni partinn í gær þegar unglingsstrákar sem voru með leiðindi við sundlaugarvörð neituðu að fara upp úr. Þegar lögreglu bar að garði voru þeir fljótir að láta sig hverfa.