Reykjavík

„Leggjum mikinn metnað í að þetta sé sýning en ekki bara tónleikar“
Stærsta og skemmtilegasta afmælispartí aldarinnar verður haldið í Höllinni í kvöld en þá munu þeir Auddi, Steindi og Egill halda upp á, ásamt þjóðinni, að tíu ár eru frá því FM95Blö fór fyrst í loftið.

Ertu að meina eitthvað með þessu, Dagur?
Sæll Dagur. Takk fyrir síðast. Það var ánægjulegt að rekast á þig utan við Leiknisvöllinn á frídegi verkalýðsins. Fallegt veður og góð stemning. Ég ákvað að inna þig ekki svara um íþróttaaðstöðuna í Laugardalnum enda hafðir þú sagt við mig nokkru áður að 1. maí væri helgur dagur, ætlaður til samstöðu en ekki í pólitískt argaþras. Því er ég sammála.

Slökkvum á iPodinum í Reykjavík
Ég er 22 ára gömul, og þekki ekkert annað en að Reykjavík sé stjórnað af Degi B. Eggertssyni og félögum. Borgarstjórinn hefur verið í áhrifastöðu í borginni – með örstuttum hléum – í tuttugu ár.

Breiðholt, besta hverfið
Það er frábært að vera í Breiðholtinu og búa. Þetta vitum við í Viðreisn, enda ekkert hverfi sem á jafn marga fulltrúa á okkar lista og Breiðholtið. Hér höfum við báðar alist upp. Önnur býr hér enn með fjölskyldu sinni á meðan hin fluttist yfir Elliðaár, yfir í Árbæ.

Tvennt í boði í borginni
Á morgun, laugardag, gefst borgarbúum færi á því að velja það hvernig borginni okkar er stýrt næstu fjögur árin.

DÓTTUR til forystu í Reykjavík
Allir í crossfit heiminum kannast við hugtakið „dóttir”. Það stendur fyrir þann kraft og styrk sem felst í íslenskum konum og það hugrekki að trúa því að við getum gert allt það sem við ætlum okkur.

Setjum fólkið í fyrsta sæti!
Um helgina verður kosið um forgangsröðun verkefna á borðum þeirra sem með völdin fá að fara að fengnu umboði kjósenda og skattgreiðenda.

Meirihlutinn sem gleymdi að byggja
Aðrar borgarstjórnarkosningarnar í röð eru húsnæðismál stærsta kosningamálið í Reykjavík. Það segir ákveðna sögu um loforð og efndir í þeim málaflokki. Á þeim fjórum árum sem liðin eru frá síðustu kosningum hefur staðan á húsnæðismarkaði í Reykjavík versnað enn frekar og er nú orðin grafalvarleg. Sú staða er ekki náttúrulögmál, hún er mannanna verk. Hún er á ábyrgð þeirra sem hafa stjórnað Reykjavíkurborg samfleytt í meira en áratug.

Bitist um borgina í hörðum kappræðum
Oddvitar níu framboða af ellefu í Reykjavík mættust í kappræðum á Stöð 2 í gærkvöldi og reyndu hvað þeir gátu að sannfæra áhorfendur um að þau væru einmitt rétta fólkið til að stjórna borginni.

Valið er skýrt í Reykjavík
Borgarbúar standa frammi fyrir augljósum kostum nú á laugardag. Að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og nýja forystu í borgina, eða einhvern hinna og stuðla með því að enn einni útfærslunni af því sama í Reykjavík. Valið er skýrt.

Stóraukin þjónusta fyrir heimilislaust fólk
Á þessu kjörtímabili hefur þjónusta við heimilislaust fólk tekið stakkaskiptum í Reykjavík. Hérlendis hefur borgin lengi verið í forystu í málaflokknum með einu neyðarskýli landsins, borgarverði og fleira.

Framsókn í leikskólamálum
Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í dag og hefur sá fjöldi nánast haldist óbreyttur undir stjórn núverandi borgarstjórnarmeirihluta. Þessu verður að breyta. Staðan hefur gríðarleg áhrif á líf fólks enda er framfærsla flestra fjölskyldna háð því að báðir foreldrar vinni úti.

Braust inn í tvær skartgripaverslanir á Laugavegi með viku millibili
45 ára karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir tvö innbrot í skartgripaverslanir á Laugaveginum í apríl 2020. Innbrotin voru gerð með viku millibili og hafði hann rándýra skartgripi upp úr krafsinu.

Andstaðan við borgarlínu mest hjá eldri karlmönnum
Ríflega 46% borgarbúa eru ýmist mjög eða frekar hlynnt borgarlínu og flestir treysta Samfylkingunni til að halda utan um samgöngumálin í borginni. Tæp 32% eru aftur á móti frekar eða mjög andvíg borgarlínu. Flestir sem setja sig upp á móti henni eru eldri karlmenn og íbúar austan Elliðaáa.

Borgin okkar
Hann er sennilega vandfundinn sá sem ekki þykir hugmyndin um göngugötu og vistgötu sjarmerandi. Möguleikinn á að geta setið úti og gætt sér á góðum mat í góðra manna hópi er nokkuð sem okkur öllum þykir eftirsóknarvert.

Sperrileggir alræðis
Elliðaárdalurinn, hin fjölskrúðuga útivistarparadís, með grænum lundum, fossum, flúðum, hólmum og hásætum allt um kring hefur í hundruð ára verið athvarf okkar ungra sem aldna.

Farsæl börn á höfuðborgarsvæðinu
Á laugardaginn fara fram sveitarstjórnarkosningar og er mikilvægt að hver og einn einstaklingur kjósi þá forystu sem viðkomandi vill sjá í sínu nærumhverfi. Sveitarstjórnir landsins stýra og/eða framkvæma stóran hluta af þeirri þjónustu sem við, sem íbúar á Íslandi, njótum í nærumhverfi okkar daglega og því mikilvægt að við nýtum öll okkar raddir á laugardaginn og höfum áhrif á næstu fjögur ár.

Hittumst á Skólavörðutúni
Á dögum sem þessum iðar Klambratúnið af lífi. Fólk leggst á grasið með drykki og mat. Börn príla í leiktækjum. Hundar mætast og þefa hvor af öðrum og frisbídiskar lenda í körfum með tilheyrandi hljóðum. Þetta virkar.

Árangur í þágu borgarbúa
Kjósendur í Reykjavík hafa um margt að velja þegar gengið verður til kosninga á laugardag. Framboðin eru jafn ólík og þau eru mörg en í grunninn snýst valið bara um tvennt, málefni og trúverðugleika. Hvað framboðin ætla að gera næstu árin og hvort þeim sé treyst til slíkra verka.

Tilkynnt um hópslagsmál á skemmtistað í miðbænum
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um hópslagsmál á skemmtistað í miðbænum um klukkan eitt í nótt.

Ákall til innflytjenda – Fjölmennum á kjörstað!
Rúmlega 50 þúsund innflytjendur búa á Íslandi, eða tæplega 16% af íbúum landsins. Ríflega 31 þúsund af okkur hafa kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum, en einungis um 20% greiddu atkvæði í kosningum fyrir fjórum árum.

Hringtorg á vinstri hönd
Eftir tvo daga verður gengið til sveitarstjórnarkosninga um allt land. Þær kosningar ætti allt ungt fólk að láta sig varða því þar verður kosið um málefni sem skipta okkur verulegu máli í daglegu lífi.

Við unga fólkið og kosningar
Kæru jafnaldrar. Núna á laugardaginn eru kosningar, og ekki bara hvaða kosningar sem er, heldur eru þær mjög mikilvægar og skipta sköpum fyrir okkar framtíð hér í Reykjavík.

Lausnin á húsnæðisvanda borgarinnar
Viku fyrir kosningar þegar góð ráð eru dýr virðast Vinstri græn hafa fundið lausnina á húsnæðisvanda borgarinnar. Lausnin er einfaldlega að taka upp stefnu annars flokks í húsnæðismálum.

Ég vil búa í borg með náttúruna í bakgarðinum
Eitt það jákvæða við að búa í borg eins og okkar er nálægðin við náttúruna. Hvort sem hún er manngerð eða eins og hún hefur verið um aldir, þá er aldrei langt að fara út í náttúruna hér í Reykjavík.

Minnkum báknið og fækkum borgarfulltrúum
Fyrir fjórum árum var borgarfulltrúum í Reykjavík fjölgað úr 15 í 23 eða um 53%. Fjölgunina mátti rekja til breytinga á sveitarstjórnarlögum, sem ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG beitti sér fyrir árið 2011 en fjölgunin tók gildi 2018.

Gæti verið brot á kosningalögum og jafnvel hegningarlögum
Framboð E-listans í Reykjavík kemur til með að standa þó að einn frambjóðandi telji að undirskrift hennar við framboð hafi verið fölsuð. Forsvarsmenn listans kannast ekki við neina fölsun en frambjóðandinn gagnrýnir að þeir gangist ekki við broti sínu. Yfirkjörstjórn í Reykjavík mun vísa málinu til Héraðssaksóknara og fela þeim að kanna hvort um sé að ræða brot á kosningalögum eða jafnvel hegningarlögum.

Samfylkingin stærsti flokkurinn í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu
Samfylkingin er stærsti flokkurinn í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna en Sjálfstæðisflokkurinn fylgir þar fast á eftir. Meirihluti flokkanna fjögurra sem mynda meirihluta í borgarstjórn heldur.

Mótorhjólaslys í Laugardal
Minnst einn slasaðist í mótorhjólaslysi nærri Pylsuvagninum í Laugardal upp úr klukkan sex í kvöld.

Harmar að forsvarsmenn E-listans sjái ekki að sér og gangist við brotinu
Fyrrverandi þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir segir að yfirkjörstjórn hafi engin lagaleg úrræði til að fella nafn hennar af E-listanum, Reykjavík - besta borgin. Hún segir ljóst að laga þurfi verklag og ferla hjá kjörstjórnum.