
Reykjavík

Póstberi vekur athygli fyrir hjálpsemi í Vesturbæ
Póstberinn Lorenz hefur vakið athygli fyrir hjálpsemi í Vesturbænum en hann hefur til viðbótar við póstburð aðstoðað fólk við að komast til vinnu í snjóþunganum. Lorenz segir að fólk mætti vera duglegra að hjálpa náunganum.

25 ákærðir fyrir hnífaárásina á Bankastræti Club
Héraðssaksóknari hefur ákært 25 í tengslum við rannsókn sína á hnífaárás á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember í fyrra. Einn er ákærður fyrir tilraun til manndráps.

Einn á slysadeild eftir árekstur
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir nokkuð harðan árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar í Reykjavík á öðrum tímanum í dag.

Vilja félagsmiðstöð og bókasafn í Laugardalsstúku
Borgarráð hefur samþykkt að bókasafn og félagsstöðvar- og menningarrými verði útbúið í stúku Laugardalslaugar fyrir Laugarnes- og Laugarlækjaskóla. Blásið verður til hugmyndakeppni um útfærslu hugmyndarinnar.

Klæðir sig upp fyrir lyfjagjöfina
Símtalið sem enginn vill fá en alltof margir neyðast til að taka. Lífið er skyndilega breytt. Stóru málin verða allt í einu að algjöru aukaatriði. Baráttan er fram undan.

„Alltaf brælur í kortunum, lægðagangur og ógeð“
Loðnuvertíðin er að fara á fulla ferð þessa dagana og styttist í að loðnan verði hæf til frystingar á Japansmarkað. Síendurteknar brælur eru hins vegar í veðurkortunum og gætu hamlað veiðum.

Margrét sakfelld fyrir hótanir í garð Semu Erlu á Grensásvegi
Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsíðunnar frettin.is, var í dag sakfelld fyrir að hafa hótað Semu Erlu Serdar aðgerðarsinna fyrir utan Benzin Café á Grensásvegi árið 2018. Margrét var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Sema Erla segir fagnaðarefni að réttlætið hafi sigrað.

Einstakt fataherbergi Ingu Tinnu minnir á fataverslun
Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi DineOut, býr í þakíbúð í Borgartúni í Reykjavík. Í nýjasta þætti af Heimsókn kíkti Sindri Sindrason í heimsókn til Ingu Tinnu og tók út þessa einstöku íbúð.

Stálhnefar og silkihanskar
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í vikunni að minnka lóð í eigu almennings svo að eigendur einkalóða geti stækkað eigin lóðir. Með því er verið að setja fram ákveðið fordæmi, og það slæmt þegar kemur að lóðamörkum. Lagt var til að samið yrði við eigendur tiltekinna lóða við Einimel um að þeir fengju land borgarbúa eftir að girðingar höfðu verið settar þar inn fyrir.

Alvarlegar athugasemdir við hækkun æfingagjalda í Reykjavík
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar hefur gert alvarlegar athugasemdir við hækkanir einstaka íþróttafélaga í Reykjavík á æfingagjöldum. Ráðið óskar eftir því að félögin endurskoði hækkanir sínar.

Einstök hönnun á nýju hverfi á Héðinsreit í Vesturbæ
Í Vesturbæ Reykjavíkur á gamla Héðinsreitnum, sem kallast nú Vesturvin, er að rísa spennandi hverfi, alveg niður við sjóinn.

Fjögurra bíla árekstur á Sæbraut
Fjögurra bíla árekstur varð á Sæbraut við Skeiðarvog í Reykjavík skömmu fyrir klukkan ellefu í dag. Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild en er ekki talinn vera alvarlega slasaður.

Lukas Graham ásamt hljómsveit í Hörpu í apríl
Danska sveitin Lukas Graham er væntanleg hingað til lands í vor og efnir til stórtónleika í Silfurbergi Hörpu 26. apríl næstkomandi.

Leita að „verkefnastjóra framtíðarinnar“ í miðju ráðningarbanni
Reykjavíkurborg auglýsir eftir verkefnastjóra framtíðarinnar. Auglýsingin hefur verið sögð óljós og borgarfulltrúi minnihlutans gagnrýnir ráðningu sem þessa í miðju ráðningarbanni.

Orkuveitan nefnir niðurrif Árbæjarstíflu sem valkost
Niðurrif Árbæjarstíflu er meðal valkosta sem Orkuveita Reykjavíkur hefur lagt fyrir borgaryfirvöld með ósk um samstarf um það sem kallað er „niðurlagningaráætlun Elliðaárvirkjunar“. Umhverfis- og skipulagsráð borgarinnar hefur fallist á að málið verði unnið áfram.

Átta ára fangelsi fyrir skotárás með þrívíddarprentaðri byssu
Ingólfur Kjartansson, tvítugur karlmaður, var í nóvember á síðasta ári dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að hafa ætlað sér að bana karlmanni í bílastæðahúsi við Bergstaðastræti. Saksóknari krafðist tíu ára dóms.

Neitaði að borga og ógnaði leigubílstjóra
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um farþega sem neitaði að borga fyrir leigubíl. Viðkomandi hótaði einnig leigubílstjóranum. Þetta var í Grafarholti en í dagbók lögreglunnar segir að annar leigubílstjóri hafi verið áreittur í Múlunum.

„Það fyrsta sem ég reyndi að gera var að opna hurðina“
Slökkvilið var með mikinn viðbúnað þegar eldur kom upp í gámahúsi í Örfirsey í morgun en húsið reyndist mannlaust. Starfsmaður Olíudreifingar sem hringdi á neyðarlínuna segir eldinn hafa virst lítinn í fyrstu en hann hafi fljótt orðið að stóru báli.

Valbjörg Elsa heiðursiðnaðarmaður ársins
Valbjörg Elsa Haraldsdóttir hársnyrtimeistari var um helgina útnefnd heiðursiðnaðarmaður ársins á nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Böðvar Páll Ásgeirsson var gerður að heiðursfélaga en forseti Íslands er verndari hátíðarinnar og afhenti verðlaunin.

Hjólanotkun eykst í Reykjavík
Árið 2022 var gott hvað hjólreiðar varðar og hefur hjólandi greinilega fjölgað.

Björk tilkynnir tónleikaröð í Reykjavík: Stærsta sýningin hingað til
Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir var að tilkynna tónleikaröð hérlendis í júní en hún mun halda þrenna tónleika í Laugardalshöll.

Eldur í íbúð við Írabakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu fyrir klukkan níu í morgun eftir að eldur kom upp í íbúð við Írabakka í Breiðholti í Reykjavík.

Eldur í gámahúsum á Örfirisey
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í gámahúsi á Örfirisey í Reykjavík um klukkan átta í morgun. Tvær stöðvar voru sendar á staðinn og þrír sjúkrabílar, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Grunuðu allsgáðan ökumann um akstur undir áhrifum eftir tvo árekstra
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út um klukkan 17:30 í gær þegar tilkynnt var árekstur þar sem ökumaður hafði ekið af vettvangi. Fram kemur að ökumaðurinn hafi ekki náðst en stuttu síðar var tilkynnt um sama bíl þar sem að ökumaðurinn hefði ekið á öðru sinni.

Fjölmörg bílslys seinni partinn
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynningar um fjölmörg bílslys seinni part dags. Þar á meðal var minnst fimm bíla árekstur á Kringlumýrarbraut við Bústaðaveg en mörg slysanna má rekja til mikillar hálku sem myndaðist í dag.

„Lúmsk hálka“ á höfuðborgarsvæðinu
Nokkuð hefur verið um hálkuslys á höfuðborgarsvæðinu seinni partinn í dag. Vaktstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sagði lúmska hálku hafa verið á götunum.

Gatnamótin eru aftur ljóslaus
Umferðarljós á gatnamótum Laugavegs/Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar biluðu aftur í dag. Þau höfðu verið óvirk um helgina og voru löguð í morgun. Sú viðgerð virðist ekki þó hafa haldið þar sem ljósin biluðu aftur í dag.

Útkall í verslunareiningu á Hagamel
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu stendur þessa stundina í reykræstingu á veitingastaðnum Asia food við Hagamel í vesturbæ Reykjavíkur.

Borgin gefur út enn eitt starfsleyfið fyrir skotsvæðið á Álfsnesi
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að veita Skotveiðifélagi Reykjavíkur nýtt starfsleyfi til tveggja ára á Álfsnesi. Deilur hafa staðið um starfsemina um árabil og segir formaður nefndarinnar að með ákvörðuninni sé verið að reyna að koma til móts við báða aðila. Ljóst sé að skotsvæðið mun á endanum fara.

Gatnamótin ljóslaus og vinstri beygjur bannaðar
Umferðarljós á gatnamótum Laugavegs/Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar hafa verið óvirk síðustu daga og verða ekki löguð fyrr en á morgun, í fyrsta lagi. Búið er að loka fyrir vinstri beygjur yfir gatnamótin.