Grindavík
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 72 ›
Rafmagn komið á helming Grindavíkur Búið er að koma rafmagni á helming Grindavíkur og unnið er að því að koma því á í bænum öllum. Rafmagn fór af klukkan 13:40 og því hefur verið rafmagnslaust í helmingi bæjarins í um sex klukkustundir. Innlent 5.3.2021 19:34
Enn rafmagnslaust í Grindavík Rafmagnslaust hefur nú verið í Grindavík í um fimm klukkustundir. Landsnet segist hafa komist fyrir bilun sem varð í tengivirki í Svartsengi en starfsmenn HS Veitna leita enn að orsökinni hjá sér. Innlent 5.3.2021 18:12
Rafmagnslaust í Grindavík Rafmagnslaust hefur verið í Grindavík og nágrenni síðan klukkan 13:14 þegar leysti út spennir í tengivirkinu í Svartsengi. Landsnet leitar að orsök bilunar, segir í tilkynningu. Innlent 5.3.2021 14:57
Þúsund fleiri skjálftar en minni líkur á gosi: „Við getum auðvitað aldrei útilokað neitt enn“ Um þúsund fleiri jarðskjálftar hafa mælst í dag en í gær en alls hafa mælst um 3.500 síðasta sólarhringinn. Einkum hefur skjálftavirkni verið meiri nær Grindavík í dag en í gær, þótt enn sé mikil virkni við Fagradalsfjall. Minni líkur eru þó á að eldgos sé yfirvofandi en gert var ráð fyrir í gær. Náttúruvársérfræðingur segir ekkert gos yfirvofandi eins og er, en á sama tíma sé ekkert hægt að útiloka enn. Innlent 5.3.2021 00:14
Molnaði úr veggjum í skjálftanum: „Fannst eins og sprengju hefði verið varpað á húsið“ Steypa molnaði úr veggjum og ryk féll úr lofti HS-orkuhallarinnar í Grindavík eftir jarðskjálfta upp á 4,2 sem reið yfir klukkan 19:14 í kvöld, einni mínútu áður en flautað var til leiks í viðureign Grindavíkur og Hattar í Domino‘s deildinni í körfubolta. Innlent 4.3.2021 22:48
Höllin í Grindavík skalf fyrir körfuboltaleik Jarðskjálfti upp á 4,1 sem skók Grindavík í kvöld fannst vel í HS-Orku-höllina rétt áður leikur Grindavíkur og Hattar í körfubolta hófst á áttunda tímanum í kvöld. Titringurinn náðist greinilega á mynd í útsendingu Stöðvar 2 frá höllinni. Upptökuna má sjá neðst í fréttinni. Innlent 4.3.2021 20:11
Óttaslegin í stóru blokkinni í Grindavík og vilja annað Kristín María Birgisdóttir, upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri Grindavíkur, segist vita um pólska íbúa í stóru blokkinni í Grindavík sem vilja ekki búa þar lengur. Nú ríði á að upplýsa pólska samfélagið og von sé á sérfræðingum frá Veðurstofu til að svara spurningum sem brenni á þeim. Túlkur verði fenginn til að auðvelda fræðsluna. Innlent 4.3.2021 14:05
Óþægilegt að finna skjálftana færast nær „Það er ekki því að neita að eftir því sem þetta færist nær að þá er þetta óþægilegra, og við finnum það betur á eigin skinni,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni á Reykjanesskaga en skjálftavirknin hefur verið að færast sunnar og nær Grindavík, sem þýðir að Grindvíkingar finna enn meira fyrir skjálftunum en áður. Innlent 4.3.2021 12:29
Áfram gert ráð fyrir að gos muni hefjast Áfram er mikil skjálftavirkni á Reykjanesskaganum þó eitthvað hafi dregið úr óróapúlsi í nótt. Þó er enn gert ráð fyrir að eldgos muni hefjast, að sögn Kristínar Jónsdóttur náttúruvársérfræðings. Stór skjálfti reið yfir í morgun en hann er sá stærsti í rúma tvo sólarhringa. Innlent 4.3.2021 11:50
Kortleggja minjar sem gætu farið undir hraun Friðaðar og friðlýstar minjar, þar á meðal bæjarstæði, hús og kirkjur, gætu farið undir hraun ef gos hæfist á Reykjanesi. Minjastofnun hefur kortlagt hvaða menningarminjar sem hún hefur á skrá séu í hættu út frá nýjasta spálíkani eldfjallafræði- og náttúruváhóps Háskóla Íslands. Innlent 3.3.2021 17:31
Líklegast að hraun renni til suðurs Líklegast er að hraun frá eldgosi sem er mögulega að hefjast sunnan af Keili á Reykjanesi renni til suðurs. Þetta sýna útreikningar eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. Innlent 3.3.2021 15:58
Telur kviku á sjö kílómetra dýpi vera að þrýsta sér upp Jarðskjálfti upp á 5,1 stig með upptök við Keili varð um hálffimmleytið nú síðdegis. Hann er sá öflugasti í dag í hinni miklu hrinu sem nú skekur suðvesturhorn Íslands og ekkert lát virðist á. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir hrinuna núna skýrustu vísbendingu á síðari árum um að við séum að nálgast nýtt eldgosatímabil á Reykjanesskaga. Innlent 1.3.2021 22:06
Áhersla lögð á að koma réttum upplýsingum til skelkaðra íbúa af erlendum uppruna Bæjarstjórinn í Grindavík segir að mikil hræðsla hafi gripið um sig hjá fólki af erlendum uppruna í samfélaginu vegna jarðskjálftana undanfarið. Margir hafi litla reynslu af jarðskjálftum og eina þekkingin komi frá fréttamyndum af miklum hörmungum í kjölfar þeirra. Áhersla sé lögð á að koma réttum upplýsingum til hópsins. Innlent 1.3.2021 12:33
Ómögulegt að spá fyrir um framhaldið en „fólk getur verið rólegt heima hjá sér“ „Málið var nú fyrst og fremst að bera saman bækur, þannig að allir væru á sömu blaðsíðu,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur um fund Vísindamannaráðs almannavarna sem lauk síðdegis. Innlent 27.2.2021 18:19
Mæla hvort kvikugas streymi til yfirborðs Jarðvísindamenn fylgjast náið með því hvort einhverjar vísbendingar sjáist um kvikuhreyfingar í tengslum við jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Einn liður í eftirlitinu eru daglegar mælingar á gasuppstreymi. Innlent 27.2.2021 13:31
Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð Líklegustu eldgosasvæði vegna skjálftahrinunnar á Reykjanesi eru talin suður af Keili og í áttina að Þorbirni. Þetta kemur fram í spá Eldfjallafræði og náttúruváhóps Háskóla Íslands. Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð en gæti flætt yfir Reykjanesbraut. Innlent 27.2.2021 12:15
Sprungur í Suðurstrandavegi afleiðing skjálfta Vegagerðin varar við sprungum sem myndast hafa í Suðurstrandarvegi á Reykjansskaga, vestan við Vigdísarvallaveg. Sprungurnar hafa líklega myndast í kjölfar jarðhræringa sem hafa verið á svæðinu. Innlent 27.2.2021 10:28
Jarðskjálftinn í kvöld sá þriðji öflugasti í hrinunni Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna, USGS, telur jarðskjálftann sem varð á Reykjanesskaga klukkan 22.39 í kvöld hafa verið 4,9 stig að stærð. Veðurstofa Íslands mat skjálftann í fyrstu upp á ýmist 4,3 stig eða 4,7 stig en núna hefur Veðurstofan endurmetið styrk hans og telur hann einnig hafa verið 4,9 stig. Innlent 26.2.2021 23:31
Grindavík hristist á ný Tveir snarpir jarðskjálftar hafa orðið nú í hádeginu á Reykjanesinu. Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík segir bæjarbúa hafa fundið vel fyrir þeim báðum og að það hafi hrist vel. Íbúar séu orðnir flestu vanir eftir síðustu tvo daga. „Þetta venst en það er óþægilegt ef þeir eru mjög stórir,“ segir Fannar. Innlent 26.2.2021 12:34
Fréttaauki frá Grindavík: „Við vitum að það mun gjósa hérna“ Grindvíkingar voru uggandi í dag vegna linnulausra jarðskjálfta sem dundu yfir Reykjanesskaga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður varði deginum í Grindavík; ræddi við heimamenn og fór yfir stöðu mála í sérstökum fréttaauka sem sýndur var að loknum kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 24.2.2021 21:47
„Ég hélt að þetta ætlaði aldrei að klárast“ Gísli Benedikt Gunnarsson kennari við 2. bekk í Grunnskólanum í Grindavík segist hafa haldið að jarðskjálftahrinan í morgun myndi aldrei klárast. Kennarar og nemendur hafi búið vel að jarðskjálftaæfingum frá því í fyrra. Dótadagur verður í grunnskólanum í Grindavík á morgun. Innlent 24.2.2021 15:25
Skjálfti reið yfir í miðju viðtali Þótt alvön sé skjálftum þá brá Kristínu Maríu Birgisdóttur, upplýsingafulltrúa Grindavíkurbæjar, þegar stóri skjálftinn reið yfir í morgun sem mældist 5,7 að stærð. Innlent 24.2.2021 15:14
Tár á kinnum grunnskólabarna í Grindavík Hin átta ára gamla Ásdís Vala Pálsdóttir var á meðal nemenda Grunnskóla Grindavíkur sem var nokkuð brugðið í morgun. Stórir skjálftar hafa dunið yfir með reglulegu millibili en upptök þeirra eru í nágrenni bæjarins. Ásdís Vala segir marga krakka hafa verið hrædda í skólanum í morgun. Innlent 24.2.2021 14:52
Hættustigi lýst yfir Hættustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem gengur nú yfir. Hættustigið er sett á til að samhæfa aðgerðir ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Enn fremur er það sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum en ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sér að ræða. Innlent 24.2.2021 14:01
Við tökur á myndbandi til vina þegar 4,6 skjálftinn reið yfir Margrét Kristín Pétursdóttir, Grindvíkingur í húð og hár og starfsmaður hjá fiskvinnslunni Vísi, segir margan bæjarbúann vanann jarðskjálftum, finnist þeir jafnvel spennandi eða fyndnir. Það sem gekk á í morgun hafi verið ólíkt fyrri skjálftum enda margir óvenju stórir skjálftar sem geri að verkum að vanasta fólk verði smeykt. Innlent 24.2.2021 13:26
Segir bæjarbúum líða illa vegna jarðskjálftanna Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir ekki góða stemningu í bænum í þeirri jarðskjálftahrinu sem nú gengur yfir Reykjanesið. Fólki líði illa og hafi í einhverjum tilfellum farið heim úr vinnu. Innlent 24.2.2021 11:01
Suðvesturhornið nötrar og stærsti skjálftinn 5,7 að stærð Jörð hefur skolfið á suðvesturhorni landsins í morgun og virðist ekkert lát á skjálftavirkni. Fyrstu skjálftar fundust upp úr klukkan tíu og enn skelfur jörð þegar klukkan er að verða ellefu. Skjálftar hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu, vestur í Stykkishólm og austur á Helllu. Innlent 24.2.2021 10:07
„Mesta furða hvað fólk ber sig vel“ Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur (VSFK), segir Suðurnesjamenn bjartsýna og bera sig almennt nokkuð vel þrátt fyrir að atvinnuástandið þar sé það versta á landinu. Atvinnuleysi á Suðurnesjum mældist 24,5 prósent í janúar en þar að auki eru margir sem hafa verið þvingaðir í lægra starfshlutfall. Innlent 21.2.2021 16:07
Sigrar hjá úrvalsdeildarliðunum FH, ÍA, Stjarnan og HK unnu öll leiki sína í fyrstu umferð Lengjubikars karla en A-deild Lengjubikarsins hófst í dag. Íslenski boltinn 13.2.2021 14:20
Bláa Lónið nú opið um helgar eftir fjögurra mánaða lokun Bláa Lónið verður opnað á ný á morgun eftir að hafa verið lokað frá 8. október. Bláa Lónið, veitingastaðurinn Lava, Silica hótel og verslun Bláa Lónsins í Svartsengi, verða opin allar helgar fram á vor. Retreat Spa verður opið á laugardögum. Viðskipti innlent 12.2.2021 16:29
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent