
Utanríkismál

Leiðtogar koma til landsins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur í dag á móti Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og Antti Rinne, forsætisráðherra Finnlands.

Vonar að leiðtogar Norðurlandanna lýsi yfir loftslagsneyðarástandi
Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands, sagði það bæði sorglegt og táknrænt að kveðja jökulinn Ok í dag.

Hafnar því að upplýsingagjöf sé ekki nægjanleg til utanríkismálanefndar um fund hans við varaforseta Bandaríkjanna
Formaður Samfylkingarinnar dregur í efa að áhersla verði lögð á efnahags- og viðskipamál og telur líklegt að hernaðarlegt mikilvægi Íslands verði ofarlega á baugi.


Gæti orðið sögulegur leiðtogafundur á Íslandi
Andri Snær Magnason telur að fundur Angelu Merkel Þýskalandskanslara með íslenskum og norrænum ráðamönnum í næstu viku geta orðið sögulegan með tilliti til umhverfismála.

Bandaríkin áfram sterkur bandamaður
Jeffrey Ross Gunter er nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Hann þakkar eiginkonu sinni það að vera nú í sporum sendiherra. Hann ítrekar að varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi á grundvelli varnarsamningsins standi óhagga

Þaulsætni kanslarinn
Angela Merkel sækir Ísland heim sem gestur fundar norrænna forsætisráðherra. Hefur setið lengur en nær allir Þýskalandskanslarar og getið sér gott orð.

Segir utanríkisráðherra skulda útskýringar um heimsókn Pence
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, kemur til Íslands þann 4. september næstkomandi.

Segir skoska sjómenn saka Íslendinga um sjórán vegna aukins makrílkvóta
Makrílveiðar Íslendinga verða til umræðu í fiskveiðinefnd Evrópuþingsins í byrjun september. Chris Davies, formaður nefndarinnar hefur sagt það óábyrgt af íslendingum að auka einhliða kvóta á makríl úr tæpum 108 þúsund tonnum í rúm 140 þúsund tonn.

Pence kemur til Íslands degi síðar en fyrst var tilkynnt
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, kemur til Íslands þann 4. september næstkomandi, ekki þann 3. september eins og fyrst var greint frá á vefsíðu Hvíta hússins.

Merkel kemur til Íslands í næstu viku
Þýski kanslarinn verður sérstakur gestur fundar forsætisráðherra Norðurlandanna í Reykjavík á þriðjudag.

Hvíta húsið staðfestir Íslandsför Mike Pence
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, mun koma í opinbera heimsókn hingað til lands þann 3. september næstkomandi. Þetta kemur fram á vef Hvíta hússins.

Esther fyrsti kjörni ungmennafulltrúi Íslands hjá SÞ
Esther Hallsdóttir var kjörin ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda á fulltrúaráðsfundi Landssambands ungmennafélaga (LUF), sem fram fór á Háskólatorgi Háskóla Íslands í kvöld.

Framkvæmdir Bandaríkjahers skapa yfir 300 ársstörf
Fyrirhugaðar framkvæmdir Bandaríkjahers og Atlantshafsbandalagsins, sem áætla að verja samtals um fjórtán milljörðum króna til uppbyggingar og viðhalds á varnarmannvirkjum hér á landi á næstu árum, munu skapa rúmlega þrjú hundruð ársstörf á svæðinu á meðan á framkvæmdum stendur og meira þegar horft er til afleiddra starfa.

Fjögur ár frá viðskiptaþvingunum Rússa: „Mikilvægt fyrir alla að alþjóðalög haldi“
Fjögur ár eru í dag frá því að Rússar lögðu viðskiptabann á Ísland. Bannið var svar við alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi sem Ísland tekur þátt í. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja of mikla hagsmuni í húfi og ekki sé hægt að réttlæta þáttöku Íslands í þvingunaraðgerðunum.

Segir komu Mike Pence til Íslands hreina og klára vanvirðingu
Samtökin '78 munu ekki sitja undir því þegjandi verði Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, boðinn velkominn hingað til lands af stjórnvöldum.

Með mannúð að leiðarljósi
Sjötíu ár eru frá samþykkt Genfarsamninganna sem veita vernd í vopnuðum átökum og eru hornsteinninn í alþjóðlegum mannúðarrétti. Ótal mannslífum verið bjargað, aðstæður þúsunda stríðsfanga verið bættar og milljónir sundraðra

Ráðuneyti Gunnars Braga lagði til leiðir til að innleiða Þriðja orkupakkann
Í þremur minnisblöðum um Þriðja orkupakkann sem unnin voru í Utanríkisráðuneytinu í ráðherratíð Gunnars Braga Sveinssonar eru lagðar til leiðir til að aðlaga tilskipun Evrópubandalagsins um að koma á fót samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði. Þar kemur jafnframt fram að á meðan íslenska raforkukerfið sé einangrað eigi bindandi ákvarðanir eftirlitsstofnunar Evrópubandalagsins ekki við hér á landi.

Undirbúa heimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, til Íslands
Verið er að undirbúa opinbera heimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, til Íslands. Þetta staðfestir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Reginmisskilningur um EES-samninginn
Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi hefur hafið mikla herferð gegn EES-samningum í fjölmiðlum að undanförnu. Ekki veit ég á hvaða vegferð bæjarstjórinn er eða hvaða tilgangi þessi skrif hans þjóna.

Brexit er Íslandi þungt
Breska blaðið Financial Times segir Ísland í sjötta sæti landa sem verða fyrir mestum áhrifum af Brexit. Bretar undirbúa nú útgöngu án samnings við ESB.

Konur meirihluti forstöðumannanna tvíhliða sendiskrifstofa í fyrsta sinn
Frá og með deginum í dag eru konur nú í í meirihluta forstöðumanna í tvíhliða sendiráðum Íslands í fyrsta sinn. Í dag tóku gildi flutningar á forstöðumönnum sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni sem tilkynnt var um í haust.

Sæstrengjasteypa
Að undanförnu hefur verið áberandi kenning um að við innleiðingu þriðja orkupakkans verði íslenska ríkið skuldbundið til að leyfa lagningu sæstrengs sem flytur raforku til annars ríkis.

Fordæmi Íslands veitir vonarglætu
Það sem við urðum vitni að hjá Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrr í þessum mánuði var í senn hvetjandi og gríðarlega mikilvægt.

Áætlað er að framkvæmdir við varnartengd mannvirki á Keflavíkurflugvelli hefjist á næsta ári
Ögmundur segir það ömurlegra og alvarlegra en orð fá lýst ef Bandaríkjaher snýr aftur til Keflavíkur í boði hans gamla flokks, VG

„EES-samningurinn er til fyrir Íslendinga“
Arnar Þór Jónsson héraðsdómari segir að Alþingi ætti að hafna þingsályktunartillögu um innleiðingu þriðja orkupakkans þegar það kemur saman í ágúst. Þá segir hann að íslensk stjórnvöld verði að gæta hagsmuna Íslendinga betur við upptöku gerða í EES-samninginn.

„Ömurlegra og alvarlegra en orð fá lýst“ snúi Bandaríkjaher aftur til landsins í boði VG
Fyrrverandi ráðherra VG er ekki ánægður með aðgerðarleysi flokksins og vill að þingmenn VG taki afdráttarlausari afstöðu.

Viðvörunarljós
Hættuleg öfl eru á sveimi í íslensku þjóðfélagi og opinbera sig hvað eftir annað. Nýlegt dæmi er að skyndilega var farið að deila um rétt stjórnvalda til að taka fólk af lífi án dóms og laga.

Engin ástæða til þess að tala um Boris með þeim hætti sem hefur verið gert
"Þetta er skemmtilegur maður, vel að sér og vel lesinn. Skarpgreindur en ekki mjög hefðbundinn stjórnmálamaður,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra um nýjan forsætisráðherra Bretlands, íhaldsmanninn Boris Johnson.

Varnarsamningurinn – fíllinn í stofunni
Stóraukin umsvif Nató og Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli hafa verið mikið í fréttum nú í sumar. Fregnir þessar koma illa við marga enda var lokun herstöðvarinnar á Miðnesheiði fagnað mjög haustið 2006.