Stríð sem breytir heimsmyndinni Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 21. mars 2022 07:01 Stríðið í Úkraínu hefur breytt öllu. Hlutverk stjórnmálanna núna er að bregðast við breyttri heimsmynd af ábyrgð. Það þarf að ræða og mynda skilning á hvaða áhrif hin breytta staða hefur á Evrópu og á Ísland. Út frá því tökum við svo næstu skref. Allir flokkar eiga þess vegna að sameinast um að fram fari opið samtal á vettvangi stjórnmálanna um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Þeir flokkar sem eru andvígir alþjóðlegu samstarfi innan Evrópusambandsins eiga ekki að neita þjóðinni um þetta samtal. Og þeir flokkar eiga ekki að óttast lýðræðislega og beitta umræðu. Þau viðbrögð að segja grundvallarmál ekki á dagskrá spegla ekki annað en ótta. Söguleg samstaða Alþjóðleg samvinna innan Evrópusambandsins, með fullri aðild Íslands, hefur sjaldan átt meira erindi við íslenskt samfélag. Heimsmyndin er einfaldlega gjörbreytt. Viðbrögðin við innrás rússneskra stjórnvalda í Úkraínu sýna það. Þetta er árás á alla Evrópu og þau gildi sem standa hjarta okkar næst; lýðræði, frelsi og mannréttindi. Þessari árás höfum við mætt með aðgerðum af áður óþekktum þunga. Með efnahagsþvingunum sem fá ef nokkur fordæmi eru fyrir. Einnig markar vatnaskil í baráttunni við rússnesk stjórnvöld að Evrópusambandið hafi heimilað vopnaflutning til varnar Úkraínu, líkt og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, komst sjálf að orði þegar sambandið samþykkti slíkan flutning í fyrsta sinn í sögu þess. Viðbrögð Íslendinga Viðbrögð íslensks almennings við stríðinu í Úkraínu taka mið af þessari breyttu heimsmynd. Þær áskoranir sem við stöndum nú frammi fyrir færa okkur sannleikann um vaxandi og brýna þörf lýðræðisþjóða fyrir samvinnu hvað öryggi og hervarnir varðar, en samvinnan snýst þó ekki síður um að varðveitaf frelsi, lýðræði og mannréttindi og tryggja áfram öflugt samstarf á sviði viðskipta og efnahags. Það er af þessari ástæðu að Evrópuríkin tala nú fyrir nánara samstarfi innan Evrópu og almenningur virðist á sama máli. Hér heima segist helmingur Ísendinga hlynntur aðild að Evrópusambandinu á meðan þriðjungur er andvígur. Þar blasir við að hagsmunum fámenns ríkis er best borgið í nánara samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir. Sterkari staða Íslands í Evrópusamstarfi Það er í þessum anda sem þingflokkur Viðreisnar hefur nú lagt fram þingsályktunartillögu um aukið alþjóðlegt samstarf í öryggis- og varnamálum sem miðar meðal annars að því að að styrkja stöðu Íslands í Evrópusamstarfinu. Þannig tryggjum við best öryggishagsmuni landsins og styrkjum pólitíska stöðu þess. Hagsmunir okkar eru samofnir hagsmunum Evrópu. Þessir hagsmunir felast í vörnum, efnahagslegu öryggi, varðveislu friðar, lýðræðis og frelsis. Þröngir sérhagsmunir mega ekki standa þessum hagsmunum í vegi. Helsta markmið Evrópusambandsins frá upphafi hefur verið að tryggja frið og lýðræði. Evrópusambandið var stofnað til að koma í veg fyrir stríð og standa saman að friði. Nú stöndum við frammi fyrir baráttu um gildi, baráttu fyrir gildum lýðræðis, frelsis, mannréttinda og friðar. Þessi gildi hafa kannski stundum gleymst í umræðu um Evrópuhugsjónina, enda hefur Evrópa blessunarlega að mestu verið laus undan hörmungum stríðsreksturs og stríðsglæpa. Áherslan hefur fyrst og fremst verið á efnahagslega hagsmuni, sem tengjast þessum gildum sannarlega sterkt en tengsl viðskipta og efnahagsmála við meginmarkmiðið um frið eru kannski ekki ofarlega í huga á friðartímum. En eftir síðari heimsstyrjöld þegar stríð var fólki ofarlega í huga gerðu lýðræðisþjóðir sér grein fyrir því að útilokað væri að tryggja frið og öryggi eingöngu með hervörnum. Viðskiptafrelsi, vaxandi hagsæld og sömu leikreglur fyrir alla eru þannig vörður að markmiðinu um frið og hafa jafnframt mikilvæga sjálfstæða þýðingu. Það breytir því ekki að varnir og viðskiptafrelsi voru á þeim tíma tvær hliðar á sama peningi. Þörf á umræðu um pólitíska stöðu Íslands í Evrópu Breytt heimsmynd hefur framkallað viðhorfsbreytingu hjá þjóðinni. Ákveðnir stjórnmálaflokkar kjósa að líta undan en vindarnir í samfélaginu blása einfaldlega eins og þeir gera,óháð þessum flokkum. Síðustu atburðir kalla á þéttara samstarf innan Atlantshafsbandalagsins og aukið framlag af hálfu Íslands til sameiginlegra verkefna bandalagsþjóðanna. ÍSvíþjóð og í Finnlandi er vaxandi umræða um fulla aðild landanna að Atlantshafsbandalaginu. Skoðanakannanir sýna meirihlutastuðning við slíka grundvallarbreytingu. Einnig hafa Danir breytt stefnu sinni í öryggismálum, annars vegar með auknum útgjöldum til varnarmála og hins vegar með því að falla frá fyrirvara þeirra gagnvart ESB um varnarmál, samþykki danska þjóðin það í þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar. Nálgun Þýskalands hefur sömuleiðis breyst, rétt eins og margra aðildarríkja Evrópusambandsins sem hafa þegar ákveðið að auka framlög til varnarmála. Nú þarf að eiga sér stað opin og beinskeytt umræða um pólitíska og efnahagslega stöðu Íslands í Evrópu. Ljóst er að varnar- og öryggismál munu fá stærra hlutverk í Evrópusamstarfinu vegna innrásarinnar í Úkraínu og þar getur Ísland styrkt áhrifastöðu sína með því að sitja við borðið í Evrópusambandinu eins og í Atlantshafsbandalaginu. Það gerir okkur kleift að taka sterkari afstöðu með friði, lýðræði og grundvallarmannréttindum á sama tíma og eigin hagsmunir eru tryggðir. Reynslan af alþjóðastarfi okkar síðustu ára og áratuga hefur sýnt okkur það og nú eigum við að taka skrefið til fulls innan Evrópu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Innrás Rússa í Úkraínu Viðreisn Utanríkismál Alþingi Mest lesið Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen Skoðun Ríkisstjórnin ræður ekki við verðbólguna Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson Skoðun Hraðahindranir fyrir strætó Sveinn Ólafsson Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon skrifar Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Átta atriði sem sýna fram á vanda hávaxtastefnunnar Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun 50 þúsund nýir íbúar – Hvernig tryggjum við samheldni? Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Framtíð nemenda í fyrsta sæti í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að setjast í fyrsta sinn á skólabekk Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ferðalag úr fangelsi hugans Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hraðahindranir fyrir strætó Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Íslenzkir sambandsríkissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Garðurinn okkar fyllist af illgresi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Nýtt landsframlag – og hvað svo? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Fágætir dýrgripir í Vestmannaeyjum Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sannleiksvél – en við getum gert svörin traustari Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Er einnig von á góðakstri Strætó í ár? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Ferðumst saman í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Þúsundir barna bætast við umferðina Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þau sem hlaupa í átt að hættunni þegar aðrir flýja Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Öndum rólega Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna versus veruleiki Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Framtíð villta laxins hangir á bláþræði Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun „Akademísk sniðganga“: gaslýsingar og hnignun háskólasamfélagsins Birgir Finnsson skrifar Skoðun Við lifum ekki á tíma fasisma Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fíknisjúkdómur – samfélagsleg ábyrgð sem við þurfum að takast á við Halldór Þór Svavarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar
Skoðun Gervigreind er ekki sannleiksvél – en við getum gert svörin traustari Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Fíknisjúkdómur – samfélagsleg ábyrgð sem við þurfum að takast á við Halldór Þór Svavarsson skrifar