Kjaramál
43 44 45 46 47 48 49 50 51 … 153 ›
Neyslugleði almennings heldur uppi verðbólgunni að mati seðlabankastjóra Seðlabankastjóri segir neyslugleði Íslendinga eiga stóran þátt í að halda uppi verðbólgunni. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti sína um 0,25 prósentur í morgun sem er tíunda vaxtahækkun bankans á einu og hálfu ári. Innlent 23.11.2022 11:51
„Við munum hækka vexti eins og þarf“ Stjórnendur peningastefnunefndar Seðlabankans segja það alveg skýrt að nefndin muni hækka stýrivexti frekar, meti hún þörf á því. Seðlabankastjóri segir það alveg skýrt að Seðlabankinn geti ekki verið aðili að loforði um að stýrivextir verði ekki hækkaðir sem hluti af kjarasamningum. Viðskipti innlent 23.11.2022 11:34
Ragnar Þór segir seðlabankastjóra ganga erinda fjármagnseigenda Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur einsýnt að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri beri hag bankanna og fjármagnseigenda fyrst og síðast fyrir brjósti. Viðskipti innlent 23.11.2022 10:01
Segir krónutöluhækkanir gætu jafngilt kaupmáttarrýrnun hjá stórum hópum Friðrik Jónsson, formaður BHM, segir kaupmátt láglaunafólks hafa hækkað sexfalt á við aðra frá gerð lífskjarasamningsins. Hann segir að ef krónutöluhækkanir verða aftur ráðandi við gerð kjarasamninga gæti það jafngilt kaupmáttarrýrnun fyrir stóran hluta launafólks. Innlent 23.11.2022 07:53
Veitingamenn óttast að launakröfur ríði bransanum á slig Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT), segir ískyggilegar horfur í greininni ef kröfur verkalýðshreyfinganna Eflingar og Matvís gangi eftir. Innlent 22.11.2022 11:19
Nálgun stærsta stéttarfélagsins í Þýskalandi á „skylt“ við áherslur SA Stærsta verkalýðsfélag Þýskalands samdi um kjarasamninga sem eru nokkuð undir verðbólgu þar í landi. „Þessi hugmyndafræði í Þýskalandi,“ segir efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins, „á skylt við það sem við höfum lagt áherslu á að launaþróun samræmist lítilli verðbólgu og samkeppnishæfni atvinnulífsins.“ Innherji 22.11.2022 07:00
Boltinn er enn hjá vinnumarkaðnum Það kom mörgum á óvart þegar peningastefnunefnd Seðlabanks ákvað að hækka vexti um aðeins 0,25 prósentustig í október síðastliðnum. Vextir höfðu þá hækkað um 3,5 prósentustig á árinu og verðbólga 9,3% - langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiðinu. Á sama tíma, sem kom kannski enn meira á óvart, gaf seðlabankastjóri í skyn að ekki myndi endilega koma til frekari vaxtahækkana. Skoðun 21.11.2022 09:30
Borgarbyggð sættir sig ekki við niðurstöðu í Gunnlaugsmáli Sveitarstjórn Borgarbyggðar hyggst leita eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar eftir niðurstöðu Landsréttar í máli Gunnlaugs A. Júlíussonar, fyrrverandi sveitarstjóra, þar sem sveitarfélaginu var gert að greiða Gunnlaugi 3,7 milljónir króna vegna uppsagnar hans árið 2019. Innlent 18.11.2022 09:59
Einföld leið til að stytta vinnuvikuna Fram undan eru kjaraviðræður og er ekki annað að sjá en að hart verði tekist á við samningaborðið. Meðal þess sem verður rætt í vetur er tillaga VR um frekari styttingu vinnuvikunnar, þannig að hún verði 32 klukkustundir. Skoðun 17.11.2022 09:01
Samflot iðn- og tæknifólks vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara Samninganefndir allra stéttarfélaga iðn- og tæknifólks hafa ákveðið að vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara en kjarasamningar hafa verið lausir síðan 1. nóvember sl. Innlent 16.11.2022 20:32
Engin ástæða til gífuryrða strax Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir leitt að heyra ummæli formanns VR um að hugmyndir vinnuveitenda við kjarasamningsborðið séu allt að því niðurlægjandi. Engin ástæða sé til gífuryrða strax. Innlent 14.11.2022 19:31
Verkefnið áfram að verja kaupmátt heimilanna „Verkefnið er áfram hið sama: að ná samningum hratt og örugglega til að verja kaupmátt heimilanna,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir greindi frá því fyrr í dag að VR, Landssamband ísl. verzlunarmanna og Starfsgreinasamband Íslands hefðu tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Innlent 14.11.2022 15:42
VR/LÍV og SGS vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara VR, Landssamband ísl. verzlunarmanna og Starfsgreinasamband Íslands hafa tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Lífskjarasamningurinn, sem undirritaður var árið 2019, rann út um síðustu mánaðamót. Innlent 14.11.2022 13:49
Þrjátíu og tvær stundir eða fjögurra daga vinnuvika Í þeim kjarasamningaviðræðum sem nú standa yfir fer VR fram með kröfu um 4-daga vinnuviku. Það þýðir einfaldlega að við viljum stytta vinnuvikuna í 32 stundir, án skerðingar á launum. Þessi krafa er orðin æ háværari, ekki bara hér á landi heldur víða erlendis. Skoðun 11.11.2022 09:30
„Ég þarf bara að sækja peninginn annað“ „Það eina sem Hæstiréttur segir er að ég eigi ekki að leita til körfuknattleiksdeildarinnar heldur félagsins alls. Það er þá það sem ég mun gera,“ segir Sigurður Gunnar Þorsteinsson, körfuboltamaður, sem enn stendur í launadeilu við sína gömlu vinnuveitendur hjá ÍR. Körfubolti 11.11.2022 08:30
Borgar sig síður að fara í skóla vegna krónutöluhækkana Krónutöluhækkanir síðustu ára hafa leitt til þess að það borgar sig síður hér á landi en annars staðar að fara í skóla, segir hagfræðingur BHM. Um fjórðungur Íslendinga er einungis með grunnskólapróf og hlutfallið er það hæsta á Norðurlöndum. Innlent 10.11.2022 14:30
Bein útsending: BHM kynnir áherslur sínar í kjaraviðræðum Fulltrúar BHM munu kynna sameiginlegar áherslur allra aðildarfélaga sinna í kjaraviðræðunum framundan á opnum fundi í Grósku í Reykjavík sem hefst klukkan 9:30. Innlent 10.11.2022 09:00
Að dansa í kringum gullkálfinn Íbúar þessa lands hafa á síðustu misserum og árum tekist á við fordæmalausa tíma og aðstæður. Alheimsfaraldur skall á með harkalegum afleiðingum fyrir ríki heims þar sem fjölskyldur, heimili og fyrirtæki kljást enn við afleiðingarnar Skoðun 10.11.2022 08:31
Ákall til bæjarfulltrúa um hófsemi! Hart er lagt að verkalýðshreyfingunni að gæta hófsemi í launakröfum í yfirstandandi kjaraviðræðum, stefið er að of háar kröfur myndu hleypa verðbólgunni upp. Það gleymist hisvegar að það sem af er ári hafa heimilin sýnt gríðarlegan sveigjanleika til að mæta verðhækkunum á mat, eldsneyti og öðrum aðföngum í skugga stríðs og heimsfaraldurs. Þá er ótalin hækkun stýrivaxta með tilheyrandi áhrifum á lánaafborganir og leigugreiðslur. Skoðun 8.11.2022 15:30
Rangfærsluþrenna Diljár Mistar Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið umtalsvert í almennri umræðu undanfarin misseri. Hvort sem þar er um að ræða landsfund flokksins, brottvísanir eða umdeild lagafrumvörp. Skoðun 8.11.2022 13:03
Segir rithöfunda bera skarðan hlut frá borði í stafrænum heimi Framkvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands segir að hlutur rithöfunda minnki sífellt í takt við aukna útbreiðslu á verkum þeirra á streymisveitum. Færri og færri geti lagt fyrir sig að verða atvinnuhöfundar í núverandi viðskiptaumhverfi. Kallað er eftir stjórnsýslulegri ákvörðun um að tryggja fjölbreytni til að ljóð og jaðarbókmenntir hverfi ekki úr bókmenntaflóru landsmanna. Innlent 4.11.2022 13:46
Mál starfsmanna Bambus og Flame fer fyrir dómstóla Mál Matvís gegn eigendum veitingastaðanna Bambus og Flame um meintan launaþjófnað gegn starfsmönnum fer til dómstóla. Í tilkynningu frá Matvís segir að umræddir atvinnurekendur hafi enn ekki gert upp við starfsfólkið að fullu. Innlent 4.11.2022 08:28
Fullyrðingar um mansal og stórfelldan launaþjófnað rökleysa Forsvarsmenn veitingastaðanna Flame og Bambus segja kolrangt að starfsfólk veitingastaðanna hafi unnið í tíu til sextán tíma, sex daga vikunnar. Ljóst sé að fullyrðingar um mansal og stórfelldan launaþjófnað eigi ekki við rök að styðjast. Undirbúningur að stefnu á hendur Matvís, félagi iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum, er hafinn. Innlent 1.11.2022 17:47
Segir millitekjufólk í vandræðum Formaður Starfsgreinasambandsins segir kröfugerð Eflingar raunhæfa og vel unna. Nauðsynlegt væri að ná fram krónutöluhækkun enda hafi framfærslukostnaður launafólks hækkað svo gríðarlega að nú væri millitekjufólk að berjast í bökkum. Innlent 1.11.2022 13:16
„Ekkert annað en eðlilegt og réttlátt“ Efling krefst 167 þúsund króna krónutöluhækkunar allra launa á næstu þremur árum. Þetta kemur fram í kröfugerð sem félagið hefur afhent Samtökum atvinnulífsins. Þá krefst félagið þrjátíu daga orlofs fyrir alla félagsmenn auk þess sem ræða þurfi af fullri alvöru um styttingu vinnuvikunnar hjá félagsmönnum. Formaður Eflingar telur kröfur þess sanngjarnar og raunsæjar. Innlent 31.10.2022 21:16
Efling krefst 167 þúsund króna hækkunar allra launa á þremur árum Efling hefur afhent Samtökum atvinnulífsins kröfugerð fyrir komandi kjarasamningsviðræður sem hljóðar meðal annars upp á 167 þúsund króna hækkun allra mánaðarlauna á þriggja ára samningstíma. Innlent 31.10.2022 13:16
Hilmar þriðji varaforseti ASÍ Hilmar Harðarson hefur verið kosinn þriðji varaforseti Alþýðusambands Íslands. Hann var kjörinn með öllum greiddum atkvæðum á fundi miðstjórnar ASÍ í gær, þann 26. október. Innlent 27.10.2022 15:23
Verðbólga hækkar lítillega og mælist 9,4 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða hækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,4 prósent en stóð í 9,3 prósent í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 27.10.2022 09:15
„Afglöpum“ Eflingarstarfsmanna um að kenna að mál Ólafar Helgu tapaðist Fyrrverandi stjórnandi og starfsmaður Eflingar gerðu afglöp þegar þeir létu ekki endurnýja trúnaðarmannskosningu Ólafar Helgu Adolfsdóttur hjá Icelandair, að mati Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Félagsdómur dæmdi Icelandair í vil þar sem hann taldi að Ólöf Helga hefði ekki lengur notið verndar sem trúnaðarmaður. Innlent 27.10.2022 07:00
Í eina sæng fyrir kjaraviðræður við SA Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Starfsgreinasambandið munu taka höndum saman í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í viðræðum um nýjan kjarasamning. Innlent 26.10.2022 13:34