Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Maður sem var handtekinn í Króatíu á miðvikudag í tengslum við skemmdarverkin á Nord Stream 1 gasleiðslunni, starfaði sem ráðgjafi við gerð Hollywood-myndar um málið. Erlent 21.8.2026 07:27
Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Úkraínskur kafari var handtekinn í Króatíu í dag í tengslum við skemmdarverkin á Nord Stream-gasleiðslunum í Eystrasalti fyrir fjórum árum. Framselja á manninn til Þýskalands. Erlent 19.8.2026 10:32
Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Tveir létust og mörg hundruð manns voru flutt á brott af grísku eyjunni Salamis sem er nærri höfuðborginni Aþenu en tveir gróðureldar kviknuðu „nánast samtímis“ eða um klukkan 14:40 á staðartíma og svo tuttugu mínútum seinna. Fyrri eldurinn kviknaði á suðurströnd eyjunnar og að sögn slökkviliðsyfirvalda í Grikklandi breiddist hann gríðarlega hratt út vegna hvassviðris. Erlent 16.8.2026 18:14
Hræðist ekki sorgarsögu Íslendinga í Króatíu: „Við þurfum bara að skrifa betri sögu“ Fótbolti 28.7.2026 08:01
Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Króatíska handboltalandsliðið vann sannfærandi sigur í fyrsta landsleik sínum eftir að liðið vann Ísland í bronsleiknum á Evrópumótinu í handbolta í byrjun febrúar. Handbolti 19. mars 2026 17:31
Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Rússnesk flóttamannafjölskylda sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi tveimur vikum eftir keisaraskurð verður að óbreyttu send til Rússlands. Króatísk stjórnvöld hafa synjað móðurinni og börnunum um alþjóðlega vernd. Örlög föðurins, sem hefur sætt pólitískum ofsóknum í Rússlandi, eru óljós þar sem fjölskyldunni var sundrað í Króatíu. Innlent 2. febrúar 2026 19:04
Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Ein stærsta stjarna nýafstaðins Evrópumeistaramóts í handbolta er án efa Dagur Sigurðsson sem stýrði Króötum til bronsverðlauna og jós úr skálum reiði sinnar á eftirminnilegum blaðamannafundi. Dagur er orðinn svo mikil stjarna að króatískur förðunarfræðingur setti sig í líki þjálfarans. Lífið 2. febrúar 2026 13:48
Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króata í handbolta, náðist á mynd í kossaflensi með Ásu Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Vinnuverndar, eftir sigur Króatíu á Sviss. Lífið 29. janúar 2026 15:31
Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Dómsmálaráðherra segist hafa óskað eftir upplýsingum um aðstæður hælisleitenda í Króatíu í kjölfar umfjöllunar um fimm manna fjölskyldu sem vísað var frá Íslandi. Fjölskyldufaðirinn dvelur í lokaðri móttökustöð en móðirin er ein með börnin þrjú. Innlent 27. janúar 2026 14:14
Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Fjölskyldu, sem var vísað héðan úr landi skömmu eftir barnsburð, hefur verið sundrað. Móðirin er nú ein með börnin þrjú en faðirinn er fastur í lokaðri móttökustöð og tekur þátt í hungurverkfalli. Nýfæddu tvíburarnir lifa í eins konar lagalegu tómarúmi. Innlent 25. janúar 2026 16:12
Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Fulltrúum Evrópska handknattleikssambandsins, þykir það miður að lag eftir króatísku hljómsveitina umdeildu, Thompson, hafi verið spilað í keppnishöllinni í Malmö fyrir fyrsta leik Króata á EM en söngvari hljómsveitarinnar er afar umdeildur svo ekki sé fastar að orði kveðið. Handbolti 18. janúar 2026 20:31
Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Útlendingastofnun segir ekkert benda til þess að rússneskri fjölskyldu sem var á dögunum vísað úr landi fái ekki vandaða og efnislega málsmeðferð í Króatíu. Hagsmunum tveggja vikna gamalla tvíbura hafi ekki verið stefnt í hættu þegar þeir voru sendir úr landi ásamt fjölskyldu þeirra á dögunum. Innlent 8. október 2025 16:34
Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Tveggja vikna tvíburum og tveggja ára bróður þeirra var á mánudag vísað frá Íslandi ásamt foreldrum sínum og þau send til Króatíu. Amma þeirra, frændi og frænka hafa haft alþjóðlega vernd hér á landi í nokkur ár en lögfræðingur fjölskyldunnar segir Útlendingastofnun hafa neitað að upplýsa króatísk stjórnvöld um mögulega fjölskyldusameiningu. Innlent 1. október 2025 21:38
Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Nú þegar rúmur sólarhringur er liðinn frá því að forsvarsmenn Play sögðu félagið fallið eru fjölmargir farþegar í vanda og reyna eftir fremsta megni að finna annað flug heim með hraði. Tvær konur í heilsuferð í Króatíu taka þó þessu verkefni með miklu æðruleysi enda var tilgangur ferðarinnar að efla líkamlega og andlega heilsu. Innlent 30. september 2025 13:14
Neitar að eldast og nálgast 200 landsleiki Króatinn Luka Modric stýrir enn spili króatíska landsliðsins í fótbolta líkt og kóngur í ríki sínu þrátt fyrir háan aldur. Modric er fertugur í dag. Fótbolti 9. september 2025 14:00
Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Króatíski markvörðurinn Filip Ivić var ekki lengi í herbúðum serbneska handboltafélagsins RK Vojvodina. Handbolti 8. júlí 2025 07:31
Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision Keppandi Króatíu í Eurovision í ár vill að engar þjóðir í stríði fái að taka þátt í Eurovision, sama hvort þær hafi hafið stríðið eða ekki. Það sé óhjákvæmilegt að keppnin verði pólitísk með þátttöku þeirra. Lífið 20. maí 2025 15:37
Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Viðskiptavinir Play sem áttu bókuð flug til valdra áfangastaða í Króatíu, Þýskalandi og Madeiru í sumar hafa fengið tilkynningu um að fluginu hafi verið aflýst. Leiðkerfi félagsins í sumar verður breytt vegna breytinga á flugvélakosti. Viðskipti innlent 14. apríl 2025 18:44
Hálfleiksræða Dags kveikti á króatíska liðinu Króatar sóttu tvö stig til Tékklands í kvöld í undankeppni Evrópumótsins i handbolta og eru því eins og Íslendingar með fullt hús í toppsæti síns riðils. Handbolti 12. mars 2025 18:37
Prentuðu Dag Sig og strákana hans á frímerki Íslenski þjálfarinn Dagur Sigurðsson gerði frábæra hluti með króatíska handboltalandsliðið á heimsmeistaramótinu í janúar eins og frægt er. Króatar vildu líka heiðra þennan frábæran árangur með sérstökum hætti. Handbolti 11. mars 2025 23:32
Brighton lét króatískt félag breyta merki sínu Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion gerði á dögunum athugasemd við merki króatíska félagsins NK Jadran-Galeb. Enski boltinn 10. febrúar 2025 21:15
Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Sjö ára stúlka lét lífið og fimm aðrir nemendur og kennari særðust þegar ungur maður vopnaður hnífi réðst á þau í skóla í Zagreb, höfuðborg Króatíu, í morgun. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn en hann er sagður hafa gengið inn í skólann og byrjað að stinga börn inn í fyrstu skólastofunni sem hann sá. Erlent 20. desember 2024 13:41
Ítalska goðsögnin rakaði sig í fyrsta sinn í 22 ár Sumir eru tilbúnir að gefa mikið af sér fyrir gott málefni og þar á meðal var gömul knattspyrnuhetja Ítala. Fótbolti 13. desember 2024 06:30
„Verð hálf abbó þegar steggjamyndböndin eru sýnd“ „Við höfum mikla ástríðu fyrir því að efla tengslanet kvenna,“ segja vinkonurnar og þjálfararnir Lilja Sigurgeirsdóttir og Unnur María Pálmadóttir. Stöllurnar hafa í gegnum tíðina verið duglegar að ferðast saman, bæði á sólríka staði og yfir hálendi Íslands. Lífið 30. október 2024 09:00
Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Í fyrra var meðalaldur ungs fólks í Evrópu þegar það flutti að heima í 26,3 ára. Það er minna en það var árinu áður þegar meðalaldurinn var 26,4 ára. Hæsti meðalaldurinn er í Króatíu þar sem ungt fólk er að meðaltali 31,8 ára þegar það flytur að heiman. Erlent 1. október 2024 08:17