Finnland
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 10 ›
Öryggis- og friðarmál miðpunktur umræðunnar á Norðurlandaráðsþingi Forsætisráðherra segir öryggis- og varnarmál vera miðpunkt umræðunnar á þingi Norðurlandaráðs sem nú væri haldið í skugga innrásar Rússa í Úkraínu. Ísland muni leggja áherslu á friðarmál undir formennsku hennar í ráðherraráði ríkjanna með alþjóðlegri friðarráðstefnu í Reykjavík á næsta ári. Erlent 2.11.2022 12:31
Finnskur fjöldamorðingi á flótta handtekinn Lögregla í Finnlandi handtók í gærkvöldi fangann Juha Valjakkala eftir að hann hafði flúið úr opnu fangelsi. Valjakkala var handtekinn eftir að ábendingar bárust frá almenningi. Erlent 26.10.2022 08:02
Finnlandsforseti segir innrás Rússa vandamálið en ekki aðild Finnlands að NATO Forseti Finnlands segir aðildarumsókn og síðar aðild Finna að Atlantshafsbandalaginu ekki skapa hindranir í samskiptum Finna við Rússa. Það geri innrás þeirra í Úkraínu hins vegar. Finnsku forsetahjónin komu í tveggja daga heimsókn til Íslands í dag. Innlent 19.10.2022 19:20
Allt stopp á meðan beðið var eftir Finnlandsforseta Ökumenn á höfuðborgarsvæðinu í morgun þurftu margir hverjir að bíða lengi á rauðu ljósi án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Í ljós kom að lögregla var að greiða leið Finnlandsforseta á leið í heimsókn til Bessastaða. Innlent 19.10.2022 09:10
Finnsku forsetahjónin til Íslands í vikunni Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Jenni Haukio forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í vikunni ásamt fylgdarliði. Heimsóknin stendur yfir dagana 19. til 20. október en gestirnir halda af landi brott föstudag. Á fimmtudag munu finnsku forsetahjónin meðal annars heimsækja ísgöngin á Langjökli, Húsafell og Þingvelli. Innlent 18.10.2022 07:32
„Innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins Finnskur karlmaður tók sig til og „innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins í Turku fyrir hönd Úkraínu í gær. Hann segir innlimunina í samræmi við úrslit eins manns þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann hélt sjálfur í anda þeirra sem fóru fram á vegum leppstjórna Rússa í Úkraínu nýlega. Erlent 13.10.2022 14:05
Ófullkomnun fagnað í allri sinni dýrð Myndin Karókí Paradís sem sýnd hefur verið á RIFF hefur vakið mikla eftirtekt og fengið góða dóma. Hún er tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem afhent verða í Hörpu í desember. Bíó og sjónvarp 5.10.2022 17:31
Finnsku meistararnir fá himinháa sekt fyrir „UEFA mafíu“ söngva Finnlandsmeistarar HJK Helsinki hafa verið sektaðir um 18 þúsund evrur vegna óláta áhorfenda liðsins í 2-0 tapi þess fyrir Real Betis frá Spáni í fyrstu umferð í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrr í þessum mánuði. Fótbolti 29.9.2022 15:30
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar veikja varnir sínar í vestri vegna innrásarinnar Úkraínskir hermenn eru sagðir nærri því að umkringja stóran hóp rússneskra hermanna í bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Þorp víðs vegar um bæinn hafa verið frelsuð og er útlit fyrir að Rússar eigi einungis eina undankomuleið frá Lyman. Erlent 29.9.2022 14:00
Brad Pitt óvænt með fyrstu listsýningu sína í Finnlandi Brad Pitt hefur alltaf verið þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndum en nýjasta för hans innan listaheimsins er á svið myndhöggvara. Nú stendur yfir hans fyrsta listasýning en staðsetning hennar hefur vakið athygli. Menning 20.9.2022 11:35
Bjartur logi við landamærin reyndist vera umfangsmikill gasbruni Rússa Rússar hafa verið sakaðir um brenna allt að 4,3 milljónum kúbikmetra á gasi á degi hverjum í gasvinnsluveri skammt frá landamærum Finnlands og Rússlands. Íbúar Finnlandsmegin við landamæri Rússa og Finnlands vöktu fyrst athygli á málinu, eftir að bjartur og þrálátur logi birtist við sjóndeildarhringinn. Erlent 26.8.2022 09:10
Finnskir blaðamenn sakaðir um landráð neita sök Réttarhöld yfir þremur finnskum blaðamönnum sem sakaðir eru um að hafa opinberað ríkisleyndarmál Finnlands hófust í Helsinki í dag. Þeir neita sök. Erlent 25.8.2022 13:47
Sanna Marin segir síðustu daga erfiða með tárin í augunum Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands steig upp í pontu í borginni Lahti í Finnlandi í dag og ræddi fjölmiðlaumræðu síðustu daga vegna djammmyndbanda af henni sem lekið var á netið. Með tár í augum sagði Marin síðustu daga hafa verið henni mjög erfiða. Erlent 24.8.2022 10:31
Tóku mynd berar að ofan í forsætisráðherrabústaðnum Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur beðist afsökunar á mynd sem áhrifavaldur tók inni á baðherbergi forsætisráðherrabústaðarins. Á myndinni var áhrifavaldurinn, ásamt annarri konu, búinn að lyfta bol sínum. Brjóst þeirra voru falin með skilti sem Sanna fékk á blaðamannafundi hjá Evrópusambandinu. Erlent 23.8.2022 13:24
Sanna sannar að hún hafi ekki tekið eiturlyf Niðurstöður úr fíkniefnaprófi sem Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, tók fyrir helgi sýna að hún hafi ekki tekið nein eiturlyf síðustu daga. Erlent 22.8.2022 15:09
Konur dansa til stuðnings Sönnu Myllumerkið #SolidarityWithSanna, lauslega þýtt sem samstaða með Sönnu, hefur slegið í gegn á Twitter í kjölfar þess að myndbönd af Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, dansa láku á netið. Undir myllumerkinu hafa konur byrjað að birta myndbönd af sér að dansa til stuðnings við forsætisráðherrann. Erlent 22.8.2022 11:31
Nýju myndbandi af Sönnu Marin lekið Nýju myndbandi af Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur verið lekið á netið. Í myndbandinu sést hún dansa þétt upp við finnsku rokkstjörnuna Olavi Uusivirta. Talið er að myndbandið hafi verið tekið sama kvöld og hin myndböndin sem lekið var fyrr í vikunni Erlent 19.8.2022 14:58
Sanna Marin fór í fíkniefnapróf Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur farið í fíkniefnapróf til þess að sanna að hún hafi ekki verið á eiturlyfjum í myndbandi sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum fyrr í vikunni. Erlent 19.8.2022 14:00
Djammmyndbönd af finnska forsætisráðherranum valda fjaðrafoki Myndbönd sem sýna finnska forsætisráðherrann dansandi, syngjandi og að skemmta sér hafa valdið nokkru fjaðrafoki í Finnlandi eftir að þau fóru í dreifingu á samfélagsmiðlum og í finnskum fjölmiðlum í gær. Erlent 18.8.2022 10:34
Handtekinn fyrir að njósna um leikmenn Real Madrid Lögreglan í Finnland handtók í dag manneskju sem reyndi að taka myndir með dróna af leikmönnum Real Madrid inn á hótelherbergi sínu í Helsinki. Fótbolti 10.8.2022 19:31
Öldungadeildin samþykkir aðild Svía og Finna Allir þingmenn öldungadeildar bandaríska þingsins nema einn samþykktu í gær aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana, sagði aðild ríkjanna myndu efla Nató og auka öryggi Bandaríkjanna. Erlent 4.8.2022 07:40
Finnskur stórleikari skilur ekkert í íslenskum stjórnvöldum Jasper Pääkkönen, finnskur stórleikari, er staddur á Íslandi að vinna að heimildarmynd um Norður-Atlantshafslaxinn og þær hættur sem að tegundinni steðja. Jasper segist óttast að tegundin deyi út á næstu árum og gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa leyft fiskeldi að festa rætur á Íslandi, nánast eftirlitslausu fyrstu árin. Innlent 9.7.2022 10:00
Tilbúin að fullgilda aðild Svía og Finna hratt Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs segja ríki sín tilbúin til að fullgilda samninga um inngöngu Finna og Svía í Atlantshafsbandalagið. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá forsætisráðherrum ríkjanna þriggja. Innlent 5.7.2022 11:09
Gagnrýnin á framgöngu Tyrkja Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það hafi verið óviðeigandi af hálfu Tyrkja að setja óskyld mál á dagskrá í aðdraganda aðildarumsóknar Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Hún segir það skipta máli að fá tvær Norðurlandaþjóðir inn í bandalagið. Innlent 29.6.2022 14:37
Aðildarumsókn Svía og Finna afgreidd á methraða Aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir Svía og Finna fá aðild að bandalaginu með met hraða. Putin Rússlandsforseti sé nú að uppskera stærra NATO með innrás sinni í Úkraínu, þvert á það sem hann stefndi að. Forsætisráðherra fagnar aðild Finna og Svía að NATO. Erlent 29.6.2022 13:19
NATO verði enn sterkara með inngöngu Finna og Svía Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist ákaflega fegin að hindranir við inngöngu Finna og Svía í NATO hafi verið fjarlægðar. Atlantsahafsbandalagið verði enn sterkara og öruggara með inngöngu ríkjanna tveggja. Innlent 28.6.2022 20:50
Tyrkir samþykkja aðild Svía og Finna að NATO Tyrkir hafa samþykkt aðildarumsókn Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Einn sögulegasti leiðtogafundur í sögu NATO hófst formlega í Madríd í dag þar sem meðal annars verður samþykkt að auka umsvif bandalagsins í austur Evrópu. Erlent 28.6.2022 18:53
Andersson, Erdogan og Niinistö funda á morgun Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti munu hittast á fundi á morgun til að ræða umsóknir Svíþjóðar og Finnlands að NATO. Erlent 27.6.2022 07:36
Reykjavík fari að fordæmi Helsinki í húsnæðismálum Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands segir að borgarstjórn ætti að fara að fordæmi borgaryfirvalda í Helsinki og bæði fjölga félagslegum íbúðum og víkka út skilyrðin þannig að fleiri tekjuhópar geti nýtt sér úrræðið í ljósi hækkandi fasteignaverðs. Hlutfall félagslegs húsnæðis í Helsinki er um 19 til 25 prósent á meðan það er um 5 prósent í Reykjavík. Innlent 23.6.2022 13:19
Bjartsýn á að Tyrkjum snúist hugur Umræða um staðfestingu á viðbótarsamningi Atlantshafsbandalagsins um inngöngu Svíþjóðar og Finnlands í bandalagið hófst á Alþingi í gær. Yfirgnæfandi stuðningur var við málið á þinginu, þvert á flokka. Innlent 2.6.2022 10:23