Upptökur á Klaustur bar

Að líta í eigin barm
Ég held ég hafi verið átta ára þegar ég byrjaði að hlera stjórnmálamenn. Ég ólst upp á stjórnmálaheimili. Sífellt kom stjórnmálafólk í heimsókn.

Segir þingfund hefjast á óhefðbundinn hátt
Fyrsti þingfundur eftir að samtal þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins var gert opinbert verður í dag. Kollegar þeirra leita nú leiða til að koma þingmönnunum í skilning um að þeir verði að víkja.

Segja þingmennina verða að víkja
Stjórn Framsóknarfélags Grindavíkur fordæmir harðlega ummæli þingmanna á veitingastaðnum Klaustur og segir þau óafsakanleg.

Freyja gefur lítið fyrir afsökunarbeiðni Sigmundar
Hún segist ekki vilja fleiri símtöl þar sem ófatlaður karlmaður í valdastöðu talar niður til hennar og reynir að útskýra fyrir henni hvað fötlunarfordómar eru. Vísar hún þar til símtals sem hún fékk frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins í dag.

Heyrir til undantekninga að reka fólk úr flokkum
Dósent í stjórnmálafræði segist ekki vita til þess að þingmenn hafi verið reknir úr stjórnmálaflokkum á lýðveldistímanum þar til nú.

Jón Þór mun taka sæti á þingi fyrir Miðflokkinn
Varaþingmaður Miðflokksins, Jón Þór Þorvaldsson, mun taka sæti Bergþórs Ólasonar á Alþingi. Þetta staðfesti hann í samtali við fréttastofu rétt í þessu. Jón Þór sat fyrr í dag fund með Bergþóri og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins þar sem farið var yfir stöðu mála í kjölfar Klaustursupptakanna.

Segir orðræðuna á Klaustursupptökunum ekki koma fötluðum á óvart
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir orðræðuna sem opinberuð var í Klaustursupptökunum ekki koma fötluðu fólki á óvart. Fatlaðir hafi um árhundruð búið við smættun, jaðarsetningu og skerðingu á réttindum sínum.

Ekki stætt á því að vera áfram Alþingismenn vegna Klausturshneykslisins
„Þegar litið er til þeirra kvenna á þingi sem þeir töluðu um, þeirra kvenna úti í þjóðfélaginu, minnihlutahópa, þjóðarinnar allrar og virðingu Alþingis þá sé ég ekki, persónulega, að þessum mönnum sé stætt áfram að sitja á Alþingi.“

Lögreglan hefur ekki frumkvæði að rannsókn um meint pólitísk hrossakaup þingmanna
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segist ekki hafa fengið formlega ábendingu frá forsætisnefnd Alþingis.

Forseta Íslands ofbauð ummæli sexmenninganna
„Auðvitað ofbauð mér, eins og öllu fólki sem á þetta hlustaði.“

Telur rétt að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort lögbrot hafi verið framið
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata telur einboðið að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort þingmenn hafi brotið gegn 128. gr. almennra hegningarlaga, sem fjalla um brot í opinberu starfi, með meintum hrossakaupum þingmanna með sendiherraembætti en fullyrðingar þess efnis náðust á "Klaustursupptökunum“ svokölluðu.

Enginn hefur enn beðið Freyju afsökunar
Freyja staðfestir þetta í samtali við fréttastofu á tólfta tímanum.

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins: „Þetta er einhver lágkúrulegasta tilraun til yfirklórs sem ég hef orðið vitni að“
Gunnar Gíslason þykir ekki mikið til orðræðu sexmenninganna í Klaustursupptökunum koma.

Sum ummæli þingmannanna á Klaustri komu Sigurði Inga ekki á óvart
Sigurður Ingi hefur starfað náið með nokkrum umræddra þingmanna í Framsóknarflokknum.

Líkir vinnubrögðum flokksins við ógnarstjórn
Þingmennirnir sem voru reknir úr Flokki fólksins eru ósáttir við vinnubrögð stjórnarinnar og segir Ólafur Ísleifsson þau líkjast ógnarstjórn.

„Enginn af þessum dónum hefur séð sóma sinn í að biðja Freyju Haraldsdóttur afsökunar“
Freyja Haraldsdóttir, fyrrrverandi varaþingmaður og baráttukona fyrir réttindum fatlaðra, er ein þeirra sem nefnd er á nafn í Klaustursupptökunum svokölluðu.

Telur ástæðu til að virkja siðanefnd Alþingis vegna Klaustursupptakanna
Klaustursupptökurnar gefa fullt tilefni til þess að virkja siðanefnd Alþingis í fyrsta sinn að mati prófessors sem leiddi starfshóp um leiðir til að auka traust á stjórnmálum. Hann telur nokkuð ljóst að siðareglur hafi verið brotnar.

„Baneitruð karlmennska í allri sinni dýrð“
Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, fulltrúi Druslugöngunnar í mótmælum dagsins á Austurvelli, kallaði eftir því að Klaustursþingmennirnir sex segi af sér í ræðu sem hún hélt við mótmælin.

Krefjast tafarlausrar afsagnar Klausturshópsins og rannsóknar á mögulegum lögbrotum
Þá krefjast skipuleggjendur þess einnig að frumvarp stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá verði tekið upp án tafar.

„Ömurlegt að horfa upp á tilraunir þeirra til réttlætingar“
Albertína Friðbjörg þingkona Samfylkingarinnar opnar sig um Klaustursupptökurnar svokölluðu.

Áslaug Arna: „Öllum leið illa“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það hafi komið henni á óvart hversu gróft og persónulegt baktal þingmannahópsins var.

Margmenni á Austurvelli
Fjöldi fólks er nú saman kominn á Austurvelli þar sem fram fara mótmæli vegna Klaustursupptökunnar svokölluðu.

Ólafur: „Ég óttast að ákvörðun stjórnarinnar muni eftir á að hyggja þykja illa ígrunduð“
Ólafur Ísleifsson hyggst starfa áfram sem óháður þingmaður á Alþingi.

Karl Gauti segist ekki hafa kallað Eygló „galna kerlingaklessu“
Karl Gauti Hjaltason segir fjölmiðla hafa ranglega eignað sér ummæli af Klaustursupptökunni svokölluðu um Eygló Harðardóttur.

Segið af ykkur
Kvenfyrirlitningin, fötlunarfordómarnir og hommahatrið sem sex þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins sýndu þriðjudaginn 20. nóvember s.l. brýtur gegn siðareglum alþingismanna.

Bæjarstjóranum ekki borist nein afsökunarbeiðni
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum hefur ekki fengið neina afsökunarbeiðni vegna hinna svokölluðu Klaustursupptaka.

Getur reynst flókið að leysa úr yfirráðum yfir þingflokki Flokks fólksins
Þótt bæði formaður og varaformaður þingflokksins hafi verið reknir úr flokknum eru þeir enn í þingflokknum.

Tveir í leyfi og tveir reknir til áhrifaleysis
Fyrrverandi utanríkisráðherra og andlit herferðar gegn kynbundnu misrétti flýr í launalaust leyfi vegna ummæla sinna í garð kvenna.

Eygló Harðardóttir kölluð galin kerlingarklessa
Eygló Harðardóttir fyrrverandi félags-og húsnæðismálaráðherra var kölluð galin kerlingarklessa á Klaustursupptökunum.

„Það var mér mikið áfall að sjá hvaða orðfæri ég viðhafði“
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi hljóðupptökur af honum og öðrum þingmönnum Miðflokksins og Flokki fólksins á Klaustur Bar.