
Fjármálafyrirtæki

Arion banki skoðar að færa markaðsviðskiptin í sérstakt félag
Arion banki er nú með það til skoðunar að færa markaðsviðskipti bankans, sem sinnir meðal annars miðlun á verðbréfum og gjaldeyri fyrir viðskiptavini, yfir í sérstakt félag.

Nýr banki á Íslandi
Hollenski bankinn Bunq hefur opnað fyrir viðskipti á öllu Evrópusambandssvæðinu, auk Noregs og Íslands.

„Hlutverkaruglingur“ og vinkonusamband sem fór úr böndunum
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í síðustu viku Landsbankann af kröfum fyrrverandi starfsmanns bankans. Starfsmaðurinn krafði bankann um rúmar 22 milljónir króna í bætur vegna tjóns sem hún kvaðst hafa orðið fyrir við starfslok.

Óttast að dýfan verði aðeins dýpri
Forstjóri Vinnumálastofnunar segist óttast að atvinnuleysi taki frekari dýfu á komandi mánuðum. Þá segist hún jafnvel eiga von á því að það komi til frekari fjöldauppsagna.

Starfsmannagleði morgundagsins hjá Arion banka blásin af
Einn skipuleggjenda veislunnar segir að strax hafi orðið ljóst að starfsfólk væri ekki í skapi fyrir hátíðahöld.

Hundrað þrjátíu og fjórir misstu vinnuna í fjármálageiranum í dag
Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið í höfuðstöðvum Arion banka í dag þar sem um 100 manns misstu vinnuna. Um er að ræða stærstu hópuppsögn fjármálafyrirtækis frá hruni en formaður stéttarfélags fjármálastarfsmanna skoðar nú hvort vísa beri aðgerðunum til Félagsdóms vegna samráðsleysis.

Bankastjóri Arion: Búinn að vera þungur rekstur hér síðustu tvö ár
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, segir uppsagnirnar í morgun hafa verið vel undirbúnar gætt hafi verið nærgætni og virðingar hvívetna.

Tólf sagt upp hjá Valitor
Færsluhirðirinn Valitor hefur sagt upp 12 starfsmönnum.

Langstærsta einstaka uppsögnin í banka síðan í hruninu
Formaður SSF segir að þetta sé skelfilegur dagur og að breyta þurfi löggjöfinni.

Uppsagnir í Arion banka: Einum mánuði bætt við uppsagnarfrest þeirra sem missa vinnuna
Uppsagnirnar í Arion banka í morgun voru starfsfólki mikið áfall og umfangsmeiri en það bjóst við.

Tuttugu sagt upp hjá Íslandsbanka
Meirihluti þeirra sem misstu vinnuna í morgun störfuðu í höfuðstöðvum bankans.

Bréf í Arion hækka eftir uppsagnir
Fjárfestar virðast taka fréttum af stórtækum uppsögnum hjá Arion banka, sem tilkynnt var um í morgun, fagnandi ef marka má hlutabréfamarkaðinn í morgun.

Uppsagnir í Arion ná til flestra sviða bankans
Arion banki mun ekki leggja niður útibú þrátt fyrir uppsagnir.

Uppsagnir í Arion banka: „Þetta verður erfiður dagur fyrir okkur öll“
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, sendi starfsfólki bankans tölvupóst í morgun þar sem hann tilkynnti um viðamiklar skipulagsbreytingar hjá bankanum sem samþykktar voru í af stjórn Arion banka í dag.

Landsbankinn aflýsti láni, týndi frumriti en vann tugmilljónamál gegn Silju Úlfars
Frjálsíþróttakonan fyrrverandi Silja Úlfarsdóttir þarf að greiða Landsbankanum 21,4 milljónir eftir að Héraðsdómur Reykjaness dæmdi bankanum í vil í máli hans gegn Silju. Málið snerist um greiðslu á veðskuldabréfi í tengslum við íbúðarkaup Silju og fyrrverandi eiginmanns hennar, sem lést árið 2015.

Arion segir upp 100 manns
Stjórn Arion banka samþykkti á fundi sínum í morgun nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag.

Telja „nýja leikáætlun“ Icelandair hafa dregið töluvert úr áhrifum af falli WOW air
Á fyrstu sjö mánuðum ársins flutti Icelandair 29 prósent fleiri erlenda ferðamenn til landsins en á sama tíma í fyrra. Ef ekki hefði komið til nein fjölgun hjá Icelandair hefði ferðamönnum til landsins fækkað um 31,4 prósent.

Arion banki selur sumarhöllina
Arion banki hefur boðið til sölu sex herbergja orlofshús í eigu bankans, sem aðeins æðstu stjórnendur hans hafa haft afnot af síðustu ár, í Hörgársveit í Eyjafirði.

Starfsmenn Arion bíða fregna af uppsögnum
Vísir setti sig í samband við Harald Guðna Eiðsson, upplýsingafulltrúa Arion banka, í gærkvöldi sem sagði að það væru engar hópuppsagnir fyrirhugaðar í dag.

Skráning á markað orðin fýsilegri
Samdráttur í lánveitingum og íbúðafjárfestingu getur beint fjármagni inn á hlutabréfamarkað. Þannig verður skráning á markað fýsilegur kostur fyrir smærri fyrirtæki. Ísland að verða eina Norðurlandaþjóðin sem hefur ekki tekið upp svokallaða sparifjárreikninga.

Undirbúa innreið á bankamarkaðinn
Fjártæknifyrirtækið indó vinnur að umsókn um leyfi fyrir viðskiptabankastarfsemi. Fyrirtækið hyggst bjóða innlán sem eru tryggð að fullu með ríkisskuldabréfum og alfarið stafræna þjónustu. Stofnendurnir með víðtæka reynslu úr fj

Reglur um kaupauka hygla stóru viðskiptabönkunum
Verðbréfafyrirtækið Arctica Finance telur ekki ástæðu til að takmarka kaupaukagreiðslur verðbréfafyrirtækja og viðskiptabanka með sama hætti. Fyrirhugað frumvarp um kaupaukagreiðslur gangi lengra en efni standi til.

Arion banki biðst afsökunar á innheimtubréfi til látins manns
Grímur Atlason sagði frá nöturlegu bréfi frá bankanum stílað á látinn föður hans.

Fleiri kveðja Arion banka
Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.

Vandinn ekki krónan heldur kvaðir á banka
Benedikt Gíslason, nýr bankastjóri Arion, segir fjármögnun fyrirtækja eiga eftir að færast á skuldabréfamarkaðinn. Bankarnir ekki samkeppnisfærir. Stjórnvalda að svara hvort skoða eigi sameiningar.

Með margra milljóna úr í sparnaðarherferð
Háskólaneminn Pétur Kiernan er umsjónarmaður sjónvarpsþátta sem Landsbankinn lét framleiða um ungt fólk og sparnað. Hann lýsir sér sem námsmanni með lítið á milli handanna en skartar þó í þáttunum rándýru úri.

Birna Hlín hætt hjá Fossum og á leið til Arion
Birna Hlín Káradóttir, sem hefur starfað sem yfirlögfræðingur Fossa markaða í nærri fjögur ár, hefur sagt upp störfum hjá verðbréfafyrirtækinu.

Hættir hjá Arion banka
Jónína S. Lárusdóttir framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Arion banka hefur ákveðið að hætta störfum hjá bankanum. Svo segir í tilkynningu frá bankanum.

Ný eigendastefna forsenda fyrir bankasölu
Það er forsenda fyrir sölu á eignarhlut ríkisins í bönkunum að eigendastefna ríkisins verði uppfærð að sögn Lilju Alfreðsdóttur. Aðkoma og hlutverk ríkisins þurfi að liggja skýr fyrir.

Fjórðungshlutur verði seldur í hlutafjárútboði
Bankasýslan leggur til að annaðhvort útboðsleið eða uppboðsleið verði farin við sölu á Íslandsbanka. Tillögur stofnunarinnar kynntar ráðherranefnd um efnahagsmál í síðasta mánuði. Varaformaður Framsóknar segir mikilvægt að uppfæra eigendastefnu ríkisins fyrir söluferli á bönkunum.