
Bretland

Elísabet II leiddi Breta í gegnum súrt og sætt í 70 ár
Elísabet II Bretlandsdrottning hefur leitt bresku þjóðina í gegnum súrt og sætt í sjötíu ár. Hún gerði sér grein fyrir að hún varð drottning fyrir tilviljun örlaganna og yrði að ávinna sér ást og virðingu þjóðarinnar.

Katrín minnist Elísabetar: „Ein kona sem bjó yfir allri þessari sögu“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að andlát Elísabetar II Bretlandsdrottningar marki endalok merkilegs tímabils í sögðu Vesturlanda. Hún minnist Elísabetar, sem hún hitti árið 2019, af mikilli hlýju og segist skilja hvers vegna drottningin var jafn dáð af þjóð sinni og raun ber vitni.

Verður Karl III Bretlandskonungur
Karl Bretakonungur, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, verður þekktur sem Karl III Bretlandskonungur. Hann er tekinn við sem konungur Bretlands eftir að móðir hans lést í dag.

Elísabet II Bretlandsdrottning er látin
Elísabet önnur, drottning Bretlands er látin. Hún var 96 ára gömul. Heilsu drottningarinnar hafði hrakað hratt á undanförnum mánuðum en hún lést í kastala sínum í Skotlandi.

Harry fór til Skotlands en Meghan varð eftir
Harry prins er kominn til Skotlands, vegna fráfalls Elísabetar Bretlandsdrottningar, ömmu hans. Meghan Markle, eiginkona hans, fór ekki með honum.

Vaktin: Elísabet Bretlandsdrottning er fallin frá
Elísabet II Bretlandsdrottning er látin. Karl, sonur hennar, er nú orðinn konungur Bretlands.

Drottningin undir sérstöku eftirliti lækna
Elísabet önnur Bretlandsdrottning er nú undir sérstöku eftirliti lækna í Balmoral-kastalanum í Skotlandi. Ákvörðun þessa efnis var tekin í kjölfar þess að heilsu hennar hrakaði í morgun. Allir í nánustu fjölskyldu drottningar eru þegar komin til Balmoral eða eru nú á leiðinni þangað.

Nafna Liz Truss hrekkir Íhaldsmenn og þjóðarleiðtoga
Eigandi notendanafnsins @LizTruss á Twitter er ekki nýr forsætisráðherra Bretlands, heldur bresk kona að nafni Liz Trussel. Fjöldi fólks hefur merkt Trussel í færslur á Twitter og hefur hún gripið gæsina og orðið heimsfræg í leiðinni.

Enginn stuðningsmanna andstæðingsins fær sæti í ríkisstjórn Truss
Liz Truss nýr forsætisráðherra Bretlands hefur skipað marga af sínum nánustu vinum, samstarfsmönnum og skoðanabræðrum í ríkisstjórn sína eftir að hún tók við embættinu af Boris Johnson í gær.

Truss heitir skattalækkunum og tafarlausum aðgerðum í orkumálum
Liz Truss hét því í dag þegar hún tók við embætti forsætisráðherra að lækka skatta og grípa til aðgerða strax í næstu viku til að létta byrðarnar á breskum almenningi vegna hækkandi orkuverðs. Hún er fjórði forsætisráðherra Íhaldsflokksins á sex árum.

Liz Truss stelur stíl Védísar tíu árum síðar
Védís Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Landsbankanum, rak upp stór augu þegar hún sá mynd af verðandi forsætisráðherra Bretlands í nákvæmlega sama kjól og hún átti.

Mun venjulegri stjórnmálamaður í Downing stræti
Liz Truss er nýr formaður Íhaldsflokksins og næsti forsætisráðherra Bretlands. Hún lofar skattalækkunum á sama tíma og óðaverðbólga er í landinu og er sökuð um að vera frekar umhugað um fyrirtækjaskatt en heimilin. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir að með valdaskiptunum sé kominn mun venjulegri stjórnmálamaður í Downing stræti.

Priti Patel segir af sér í kjölfar sigurs Truss
Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, hefur skilað afsagnarbréfi til Borisar Johnson, fráfarandi forsætisráðherra landsins. Hún segist vilja hætta í framlínunni núna, sinna almennum þingstörfum og síðan láta formlega af störfum um leið og nýr innanríkisráðherra hefur verið ráðinn.

Fetar í fótspor átrúnaðargoðsins Thatcher
Liz Truss hefur verið kjörin nýr formaður breska Íhaldsflokksins og verður þar með næsti forsætisráðherra landsins. Stjórnmálaferil hennar er ekki hægt að kalla glæstan en með mikilli þrautseigju er hún kominn á þann stað að hún fetar nú í fótspor átrúnaðargoðs síns, Margaret Thatcher.

Liz Truss verður næsti forsætisráðherra Bretlands
Liz Truss utanríkisráðherra Bretlands bar sigur úr býtum í baráttunni um leiðtogasæti Íhaldsflokksins í Bretlandi. Niðurstöður leiðtogakjörsins voru tilkynntar nú rétt fyrir hádegi og verður Truss því næsti forsætisráðherra landsins.

Kleif Glerbrotið berfættur
Ungur Breti var handtekinn í Lundúnum í dag fyrir að hafa í leyfisleysi klifið skýjakljúfinn Glerbrotið í morgun. Það gerði hann berfættur.

Ráðherra og aðstoðarmaður sakaðir um kynferðisofbeldi
Ekki var brugðist við ásökunum gegn ráðherra og aðstoðarmanni í ríkisstjórn Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands þegar þeir voru sakaðir um kynferðisofbeldi á kjörtímabilinu.

Breski sjónvarpsmaðurinn Bill Turnbull er látinn
Hinn ástsæli breski sjónvarpsmaður, Bill Turnbull, er látinn, 66 ára að aldri. Turnbull var einna helst þekktur fyrir að stýra morgunþætti BBC í sjónvarpi, BBC Breakfast, um fimmtán ára skeið.

Kviðdómur í máli Giggs komst ekki að niðurstöðu
Búið er að leysa frá störfum kviðdóminn sem skera átti úr um sekt eða sakleysi Ryan Giggs, sem ákærður var fyrir að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína og yngri systur hennar líkamlegu og andlegu ofbeldi.

Tekur ekki á móti nýjum forsætisráðherra í Buckingham-höll í fyrsta sinn í sjötíu ár
Elísabet Bretadrottning mun ekki taka á móti nýjum forsætisráðherra í Buckingham-höll í Lundúnum og er það í fyrsta sinn í sjötíu ára valdatíð drottningarinnar. Þess í stað mun nýr forsætisráðherra, hvort sem það verður Liz Truss eða Rishi Sunak sem vinnur leiðtogakjör Íhaldsflokksins, ferðast til Skotlands þann 6. september og hitta drottninguna þar.

Aldarfjórðungur frá dauða Díönu
Aldarfjórðungur er í dag liðinn frá því að Díana prinsessa lést í bílslysi í frönsku höfuðborginni París, þá 36 ára gömul. Bresku prinsarnir Vilhjálmur og Harry munu verja deginum sitt í hvoru lagi, en þeir hafa vanalega komið saman á þessum degi til að minnast móður sinnar.

Verður barnið þitt jarðfjarkönnuður?
Grunnskólabörn dagsins í dag munu í framtíðinni vinna við störf sem ekki hafa verið búin til. Framfarir í nanótækni, skammtatölvum, gerð vélmenna og geimferðum munu þýða að ný starfstækifæri verða til sem við getum ekki einu sinni ímyndað okkur.

Breskir lestarstarfsmenn boða sólarhringsverkfall
Breskir lestarstarfsmenn hafa ákveðið að fara í sólarhringslangt verkfall 26. september næstkomandi vegna bágra kjara. Starfsmenn breska lestarkerfisins hafa ítrekað lagt niður störf undanfarna mánuði vegna lágra launa, lítils starfsöryggis og aðstæðna á vinnustað.

Flaggskip breska flotans vélarvana
Umfangsmikil bilun varð í vél stærsta herskips Bretlands og flaggskipi breska flotans, HMS Prince of Wales, í gær. Verið var að sigla skipinu til Ameríku þegar bilunin varð og var skipið skammt suður af Bretlandi, þar sem það lá við ankeri.

Matthildur og Aníta eyddu kvöldi með Love Island sigurvegaranum Davide
Love Island sigurvegarinn Davide Sanclimenti sást fara inn í leigubíl á skemmtanalífinu með íslenskum stúlkum í London um helgina, þegar kærastan hans Ekin-Su Cülcüloğlu var ekki á landinu. The Sun fjallaði um málið, enda er mikill áhugi á Love Island stjörnunum þar í landi.

Stökkið: Féll fyrir David Attenborough í æsku
Rakel Dawn Hanson er dýrafræðingur sem er búsett í Bristol með kærastanum sínum James Scrivens. Hún vinnur við að gera dýralífsheimildarmyndir en áhuginn á faginu kom eftir að hún varð ástfangin að störfum David Attenborough í æsku.

Hættuástand sé yfirvofandi í orkumálum í Bretlandi
Forstjóri bresku orkuyfirlitsstofnunarinnar Ofgem segir hættuástand yfirvofandi fyrir bresk heimili hvað varðar verð á gasi í landinu. Heimilin geti búist við 80 prósenta hækkun að meðaltali á verði á ári frá október og mögulega aftur í janúar á næsta ári. Hækkunin sem er spáð nemur 3.549 pundum á ári.

Idris Elba og Baltasar Kormákur skemmtu sér vel í London
Sérstök Universal Pictures sýning á kvikmyndinni Beast fór fram í London í gær. Baltasar Kormákur leikstjóri myndarinnar mætti á frumsýninguna ásamt fjölskyldu sinni.

Meghan Markle gerist hlaðvarpsstjarna
Hertogaynjan Meghan Markle hefur ákveðið að stíga inn í hlaðvarpsheiminn með þáttunum sínum Archetypes. Fyrsti viðmælandi hennar er tennisstjarnan Serena Williams sem nýlega tilkynnti að hún væri að fara að setjast í helgan stein eftir stórfenglegan feril.

Tuttugu og tveir látnir eftir eldflaugaárás á lestarstöð
Minnst tuttugu og tveir eru látnir og tugir eru særðir eftir að Rússar skutu eldflaugum að lestarstöð í bænum Chaplyne. Eldflaugar eru sagðar hafa lent á farþegalest og stóðu fjórir lestarvagnar í ljósum logum eftir árásina.