

Frakklandsmegin við jarðgöngin undir Ermarsund eru búðir ólöglegra innflytjenda sem beita öllum brögðum til þess að komast yfir sundið til Bretlands.
Það vakti óhug um allan heim þegar tveir tíu ára gamlir breskir drengir myrtu hinn tveggja ára gamla James Bulger árið 1993.
Breskt par komst að því að þau ættu von á fjórburum, einungis fjórum dögum fyrir sáðrásarrofsaðgerð mannsins. Fyrir eiga æskuástirnar Daniel Morley og Dawn Tilt þrjú börn. Parið er rúmlega þrítugt og fannst nóg um börnin þrjú, þess vegna höfðu þau ákveðið að maðurinn skyldi láta rjúfa sáðrásina.
Hætt hefur verið við útgáfu á leik, sem meðal annars gekk út á það að rannsaka ránið á James litla Bulger sem var rænt úr verslunarmiðstöð árið 1993. Bulger var tveggja ára þegar honum var rænt af tveimur tíu ára drengjum sem börðu hann svo til bana og skildu hann eftir á lestarteinum skammt frá.
Brúðkaup Karls Bretaprins og Camillu Parker-Bowles hefur verið frestað um einn dag, eða fram á laugardag, vegna útfarar Jóhannesar Páls páfa sem gerð verður á föstudag. Karl og Camilla ætluðu að ganga í hjónaband á föstudaginn en í stað þess að standa við altari í Bretlandi mun Karl verða viðstaddur útför páfa í Róm.