
Bretland

Sterk gróðurhúsalofttegund fylgifiskur aukinnar rafvæðingar
Brennisteinshexaflúoríð er notað til að koma í veg fyrir rafmagnsslys. Það er tæplega 24.000 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur.

Assange verður áfram í fangelsi í Bretlandi
Dómari taldi verulega hættu á að Assange hlypist aftur á brott eins og hann gerði fyrir sjö árum þegar hann leitaði hælis í sendiráði Ekvadors.

Johnson varaður við að hunsa lög um útgönguna úr ESB
Fráfarandi þingforseti segir að þingið ætti að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin brjóti lög, jafnvel þó að það þurfi að brjóta eigin reglur og þingsköp.

Adele sækir um skilnað
Söngkonan Adele hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum Simon Konecki en BBC greinir frá.

Tíu handteknir vegna drónaflugs við Heathrow
Loftslagsaðgerðasinnar í Englandi segja að þeim hafi tekist að fljúga dróna inn á bannsvæði í kringum Heathrow-flugvöll í London í þeim tilgangi að trufla flugsamgöngur.

Kastaði barni sínu fram af brú í Englandi
Lögregla í Englandi hefur handtekið föður drengsins.

Johnson neitar því að hafa logið að drottningunni
Forsætisráðherra Bretlands segir að hæstiréttur Bretlands hafi lokaorðið um hvort ákvörðun hans um að fresta þingi hafi verið lögleg.

Meiri stuðningur við sjálfstæði Skotlands
Stuðningur við sjálfstætt Skotland hefur aukist eftir að Boris Johnson varð forsætisráðherra Bretlands. Fátt virðist geta komið í veg fyrir stórsigur Skoska þjóðarflokksins á breska þinginu ef kosningar verða haldnar á næstunni.

Svört skýrsla um áhrif Brexit án samnings ekki lengur leyndarmál
Fari svo að Bretar gangi út Evrópusambandinu án samnings eins og stefnir í þann 31. október næstkomandi gæti matarverð hækkað, eldsneyti orðið dýrara og skortur á lyfjum gæti orðið viðvarandi um tíma.

Áfangasigri gegn Johnson fagnað
Breska stjórnarandstaðan fagnar ákaflega niðurstöðu æðsta dómstóls Skotlands. Dómari úrskurðaði ákvörðun ríkisstjórnar Boris Johnson forsætisráðherra um að fresta þingfundum ólöglega í dag.

Íslensk erfðagreining tekur þátt í einu stærsta raðgreiningarverkefni sögunnar
Íslensk erfðagreining mun raðgreina 225.000 erfðamengi í verkefni fyrir breska lífsýnabankann UK Biobank.

Skoskur dómstóll telur frestun þingfunda ólöglega
Úrskurðurinn hefur ekki áhrif á frestunina strax. Hæstiréttur tekur málið fyrir í næstu viku.

Bretar breyta reglum um alþjóðlega stúdenta
Bretar hafa ákveðið að breyta reglum hvað varðar alþjóðlega stúdenta í Bretlandi og framtíð þeirra eftir Brexit.

Marglytturnar komnar í land í Frakklandi
Boðsundið hófst í Dover á Englandi í morgun klukkan sjö og syntui Marglytturnar samfleytt í 15 tíma.

Marglytturnar komnar hálfa leið og synda nú í frönskum sjó
Enn eru þó margir klukkutímar í að Marglytturnar nái til lands hinum megin við sundið.

Milda dóminn yfir táningnum sem myrti Aleshu MacPhail
Dómur yfir Aaron Campbell, unglingspiltinum sem nauðgaði og myrti hina sex ára Aleshu MacPhail, var í dag styttur úr 27 árum í 24.

Engin búin að æla enn þá
Boðsund sex íslenskra kvenna yfir Ermasund sem nú stendur yfir gengur vel.

Felldu tillögu um þingkosningar
Breska þinginu var frestað í nótt undir miklum mótmælum frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar.

Þingfundum verður frestað og útlit fyrir að kosningum verði hafnað
Útlit er fyrir að breska þingið hafni í kvöld tillögu Boris Johnson forsætisráðherra um að boða til kosninga. Þingfundum verður frestað í kvöld og kemur þing ekki aftur saman fyrr en í október.

Litríkur þingforseti leggur hempuna á hilluna
Tilþrif Johns Bercow úr stóli þingforseta á breska þinginu hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana

Nánast öllum flugferðum British Airways aflýst
Nánast öllum flugferðum breska flugfélagsins British Airways í dag og á morgun hefur verið aflýst vegna verkfalls flugmanna félagsins sem hófst á miðnætti.

Boris reynir aftur að fá þingheim til að samþykkja kosningar
Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, ætlar að reyna aftur í dag að fá þingheim til að samþykkja kosningar í landinu en til þess þarf hann aukinn meirihluta í þinginu.

Segir Frakka ekki tilbúna að fresta útgöngu Breta að svo stöddu
Að óbreyttu mun Bretland yfirgefa Evrópusambandið þann 31. október næstkomandi, hvort sem nýtt samkomulag næst eður ei.

Fjárfestirinn sem vill leggja sæstreng til Íslands hótar að hætta við verksmiðjuna
Truell kveðst munu reisa verksmiðjuna í Þýskalandi, fái hann ekki stuðning breskra stjórnvalda.

Veðurglugginn lokaðist á Marglytturnar
Sundhópurinn Marglytturnar neyddist til að fresta fyrirhuguðu sundi sínu yfir Ermarsundið í nótt vegna veðurs.

Sigmundur tjáði sig aftur um Brexit í breskum fjölmiðlum: Hrósar Boris fyrir framgöngu sína
Sigmundur tjáði sig um útgöngu Breta úr ESB í breska miðlinum The Spectator á dögunum.

Breskur ráðherra hættir í ríkisstjórninni og Íhaldsflokknum
Ástæðuna segir hún vera að dyggir hófsamir íhaldsmenn hafi verið reknir úr flokknum.

Herkænska eða hrunadans Johnsons
Bresk stjórnmál eru í uppnámi og almenningur getur lítið gert annað en að fylgjast agndofa með. Líkt og í House of Cards er ráðabrugg að tjaldabaki og Boris Johnson horfir marga leiki fram í tímann.

Johnson segir stjórnarandstöðuna hrædda við vilja þjóðarinnar
Breska stjórnarandstaðan ætlar ekki að styðja tillögu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um að boða til kosninga.

Stjórnarandstaðan hafnar nýjum kosningum
Flokkarnir sem mynda stjórnarandstöðuna í Bretlandi hafa sammælst um að hafna kröfu Boris Johnson, forsætisráðherra, um að haldnar verði þingkosningar fyrir leiðtogafund Evrópusambandsins í október, þegar Bretland á að ganga úr sambandinu.