Samfélagsmiðlar

Sérsveit alríkislögreglunnar leitar á heimili YouTube-stjörnu
Sérsveit alríkislögreglu Bandaríkjanna gerði húsleit á heimili YouTube stjörnunnar Jake Paul. Skotvopn voru gerð upptæk á heimilinu.

Trufluðu fyrirtöku í máli Twitter-hakkara með klámi
Stöðva þurfti fyrirtöku sem var haldinn í fjarfundi í máli tánings sem er grunaður um innbrot í tölvukerfi Twitter í dag eftir að boðflennur trufluðu hana ítrekað með klámi. Dómarinn féllst á endanum ekki á að lækka tryggingargjald sem pilturinn þarf að greiða til að losna úr fangelsi.

Táningur segist saklaus af innbroti hjá Twitter
Sautján ára gamall piltur sem er sakaður um að hafa brotist inn í tölvukerfi samfélagsmiðilsins Twitter neitaði sök þegar hann kom fyrir dómara á Flórída í Bandaríkjunum í dag.

Segir að Bandaríkin ættu að fá hluta af TikTok-sölunni
Donald Trump Bandaríkjaforseti telur að ríkisstjórn Bandaríkjanna ætti að fá hlut af mögulegri sölu kínverska fyrirtækisins ByteDance á samskiptamiðlinum TikTok til Microsoft, ef af henni verður.

Microsoft heldur áfram viðræðum um kaup á TikTok
Bandaríski tæknirisinn Microsoft hefur staðfest að hann muni áfram eiga í viðræðum við fyrirtækið ByteDance, sem á samskiptamiðilinn TikTok, um kaup þess fyrrnefnda á bandaríska hluta miðilsins.

Facebook þarf að loka á stuðningsmenn forseta Brasilíu
Hæstiréttur Brasilíu skipaði Facebook að loka aðgangi nokkurra helstu stuðningsmanna Jairs Bolsonaro forseta sem hafa dreift því sem rétturinn telur ósannindi um dómara. Samfélagsmiðlarisinn segir skipunina ógna tjáningarfrelsi og ætlar að áfrýja.

TikTok svarar Trump: „Við erum ekki á förum“
Vanessa Pappas, framkvæmdastjóri TikTok í Bandaríkjunum, segir fyrirtækið vinna að því að gera samfélagsmiðilinn eins öruggan og mögulegt er.

Trump segist ætla að banna Tiktok
Kínverski samfélagsmiðillinn Tiktok verður bannaður í Bandaríkjunum, að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hann boðar tilskipun þess efnis, jafnvel strax í dag. Forsetanum hugnast ekki að bandarískt fyrirtæki eins og Microsoft kaupi starfsemi Tiktok í Bandaríkjunum.

Handtóku ungling vegna árásar á vinsæla Twitter-aðganga
Unglingur í Flórídaríki í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn vegna netárásar á vinsæla Twitter-aðganga fyrr í mánuðinum.

Kom heim og „allt var brjálað“ á Twitter
Færsla Emmsjé Gauta vakti mikla athygli í gær þar sem hann beindi sjónum sínum að fótboltamótinu Rey Cup skömmu eftir að hertar aðgerðir voru tilkynntar.

Telja Rússa standa að upplýsingafalsi um faraldurinn
Rússneska leyniþjónustan er sögð dreifa fölskum upplýsingum um kórónuveiruheimsfaraldurinn á enskumælandi vefsíðum sem beint er að fólki í Bandaríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum, að sögn bandarískra embættismanna. Áróðurinn er sagður ýmist upphefja Rússland eða gera lítið úr Bandaríkjunum.

Samþykktu lög til að þrengja að samfélagsmiðlum
Tyrkneska þingið samþykkti lög sem þrengja verulega að samfélagsmiðlum í landinu verði þeir ekki að vilja þarlendra stjórnvalda. Mannréttindasamtök vara við því að lögin ógni tjáningarfrelsi í Tyrklandi verulega.

MAST gefur lítið fyrir baráttu Brynju Dan
Hvatning Brynju Dan Gunnarsdóttur til fylgjenda sinna á Instagram samsvaraði „einkar óvæginni og rætinni herferð“ í garð dýragarðsins í Slakka, að mati dýralæknis hjá Matvælastofnun.

Eyjamenn gagnrýna meintan flutning Ólafs Helga til Eyja
„Það liggur auðvitað í hlutarins eðli að sé lögreglustjóri óhæfur til að sinna sínu embætti á Suðurnesjum er hann jafn óhæfur til að sinna því í Vestmannaeyjum.“

Greiða atkvæði um framtíð samfélagsmiðla í Tyrklandi
Tyrkneska þingið undirbýr nú atkvæðagreiðslu um lagafrumvarp sem myndi, ef það yrði samþykkt, veita yfirvöldum víðtækar heimildir til þess hafa áhrif á samfélagsmiðla og það sem birtist á þeim.

Íbúar Kópaskers rólegir yfir „Lottumálinu“
Íbúar Kópaskers eru sallarólegir yfir Lottumálinu svokallaða en harma gífuryrði á samfélagsmiðlum.

Þrjótar komust í einkaskilaboð í innbrotinu hjá Twitter
Forstjóri Twitter staðfesti í gær að tölvuþrjótar sem brutust inn í innri kerfi samfélagsmiðilsins og tóku yfir reikninga heimþekktra notenda í síðustu viku hafi í sumum tilfellum komist í einkaskilaboð þeirra. Baðst hann afsökunar á að fyrirtækið hefði dregist aftur úr í öryggismálum upp á síðkastið.

Dr. Gunni biðst afsökunar á fjórtán ára grein um íslensk krummaskuð
Fréttablaðið birti grein um mestu krummaskuð Íslands 2006.

Twitter bannar fylgjendur fjarstæðukenndrar samsæriskenningar um Trump
Fleiri en sjö þúsund Twitter-reikningum sem tengjast fjarstæðukenndri samsæriskenningu af hægri vængnum um Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur verið eytt.

Ætlar að kæra hótanir um ofbeldi og nauðgun til lögreglu
Leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir hefur fengið skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem henni er hótað ofbeldi og jafnvel lífláti.

Flugfreyjur kallaðar „æluþrífarar á háum hælum“ og „stífmálaðar frekjur“
Flosi Eiríksson rís upp til varnar flugfreyjum og fordæmir skítkast sem þær hafa mátt sæta á umliðnum vikum og dögum.

Bandaríski sendiherrann fær það óþvegið á samfélagsmiðlum
Sakaður um rasisma og sagt að snauta heim til sín.

„Fari þessi leikhópur til andskotans“
Leikhópnum Lottu tókst að móðga landsbyggðarfólk svo mjög að nú er hvatt til sniðgöngu. Sveitarstjórinn vill lempa mál.

Fjarlægðu tíst vegna höfundaréttar Linkin Park
Twitter fjarlægði færslu sem Donald Trump Bandaríkjaforseti endurtísti frá samfélagsmiðlastjóra Hvíta hússins eftir höfundarréttarkröfu.

FBI rannsakar tölvuárás á vinsæla Twitter-reikninga
Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, rannsakar nú tölvuárás þar sem netþrjótar hökkuðu sig inn á aðganga frægra einstaklinga á Twitter.

Óttast um öryggismál Twitter eftir meiriháttar innbrot
Tölvuöryggissérfræðingar hafa áhyggjur af öryggismálum samfélagsmiðilsins Twitter eftir að tölvuþrjótar náðu stjórn á reikningum fjölda þekktra einstaklinga til þess að svíkja út greiðslur í rafmynt. Þeir furða sig meðal annars á hversu lengi það tók Twitter að stöðva þrjótana.

Obama, Biden og Kanye West á meðal fórnarlamba internetþrjóta
Fjöldi auðmanna varð í dag fyrir barðinu á internetskúrkum en Twitter-síður auðkýfinganna Elon Musk, Jeff Bezos og Bill Gates voru á meðal þeirra sem voru hakkaðar.

Facebook sagt íhuga að banna stjórnmálaauglýsingar
Stjórnendur samfélagsmiðlarisans Facebook eru nú sagðir íhuga möguleikann að bann stjórnmálaauglýsingar á miðlinum síðustu dagana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Facebook hefur sætt gagnrýni úr ýmsum áttum fyrir stefnu sína gagnvart upplýsingafalsi.

Báru kennsl á líkamsleifar sem TikTok-notendur fundu
Lögregluyfirvöld í Seattle í Bandaríkjunum hafa borið kennsl á líkamsleifar tveggja einstaklinga sem fundust í síðasta mánuði af unglingum sem voru að taka upp myndband fyrir samfélagsmiðilinn TikTok.

Sjáðu kynningarmyndbandið Visiting Iceland
Á upplýsingafundi Almannavarna í dag var sýnt brot af kynningarmyndbandinu Visiting Iceland – Official travel information.