Heilbrigðismál
38 39 40 41 42 43 44 45 46 … 213 ›
Hæstiréttur Bandaríkjanna stöðvar bann við þungunarrofslyfi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur ákveðið að leyfa áfram þungunarrofslyfið mifepristone á meðan málaferli standa yfir. Dómari í Texas ógilti markaðsleyfi matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) fyrr í mánuðinum. Erlent 21.4.2023 23:22
„Mikil sorg en samt svo mikil gleði“ Nýbakaðir foreldrar stúlku með Downs-heilkenni, líklega fyrsta barnsins sem fæðist með heilkennið á Íslandi í rúm tvö ár, segja fæðinguna hafa kallað fram erfiðar tilfinningar. Móðurina grunaði að ekki væri allt með felldu á meðgöngu en heilbrigðiskerfið hafi ekki hlustað á áhyggjur hennar. Dóttir þeirra sé þó, þegar allt kemur til alls, fullkomin. Innlent 21.4.2023 20:31
Nýtt afbrigði sem valdið hefur augnsýkingum ekki greinst hér á landi Alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld fylgjast náið með nýju undirafbrigði Ómíkrón XBB veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum og heitir latneska heitinu Arcturus. Fjölgun augnsýkinga hefur verið tengd við afbrigðið í frásögnum á netinu. Sóttvarnarlæknir segir ekki að merkja fjölgun slíkra sýkinga í gögnum heilbrigðisyfirvalda. Afbrigðið hefur enn ekki greinst hér á landi en tilfellum fer fjölgandi á alþjóðavísu og því megi búast við því. Innlent 21.4.2023 14:51
Mönnunarvandi og heilbrigði Flest nágrannalönd okkar hafa áttað sig á mikilvægi þess að fjárfesta í heilbrigðis- og félagsþjónustu og tilheyrandi starfsfólki. Við Íslendingar erum því í harðri samkeppni við önnur lönd um starfsfólk. Skoðun 21.4.2023 10:00
Bíður sárkvalinn eftir því að komast að Sambýliskona manns sem er sárkvalinn vegna verkja í bakinu gagnrýnir harðlega að hann þurfi að bíða fram á sumar eftir því að komast inn hjá verkjateymi Landspítalans. Hún furðar sig á því hvers vegna heilbrigðiskerfið sé ekki betra en þetta hjá fámennri þjóð eins og Íslandi. Innlent 20.4.2023 07:07
Geðsvið Landspítala fær líka nýtt húsnæði Nýtt húsnæði Landspítala undir geðþjónustu mun rísa en þrettán og hálfur milljarður er eyrnamerktur verkefninu. Fjármálaráðherra segir uppbyggingu Landspítalans langstærstu fjárfestingu Íslandssögunnar en hún hljóðar upp á 210 milljarða í heild. Innlent 19.4.2023 21:55
Árdís Björk nýr framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi Árdís Björk Ármannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Hún hefur undanfarin ár verið yfirlæknir og sinnt stjórnun við Södra Älvsborgs Sjukhus í Borås í Svíþjóð. Hún tekur við af Stefáni Yngvasyni sem sagði upp störfum að eigin ósk. Viðskipti innlent 19.4.2023 21:26
Mikil fækkun umframdauðsfalla Umframdauðsföllum á Íslandi fækkaði mikið í febrúar eftir gríðarlega aukningu í desember og janúar. Um tíma voru umframdauðsföll hvergi meiri í allri Evrópu en á Íslandi, 29 prósent, en í febrúar var hlutfallið komið niður í 10,7 prósent. Innlent 19.4.2023 15:59
„Hefði getað dáið á þessum harða stól“ Sjötug kona beið í sex klukkustundir á bráðamóttöku í nótt með einkenni blóðtappa í handlegg án þess að hitta heilbrigðisstarfsmann, þar til hún gafst upp og fór heim. Henni var vísað beint á bráðamóttöku að nýju daginn eftir. Dóttir hennar segir heilbrigðiskerfið vandamálið og þá sem því stýra. Innlent 19.4.2023 13:40
Bein útsending: Uppbygging heilbrigðiskerfisins og nýr Landspítali Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra kynna í dag kl. 11 heildstæða áætlun um uppbyggingu innviða heilbrigðiskerfisins til ársins 2030. Innlent 19.4.2023 10:26
Margir einkennalausir með blóðtappa Á bilinu 300 til 400 manns greinast árlega með blóðtappa hér á landi. Sjúkdómurinn er talsverð byrði á bæði heilbrigðiskerfinu og samfélaginu öllu því margir eru vangreindir og einkennalausir. Íslenskt fyrirtæki kemur að blóðtapparannsóknum á skógarbjörnum. Innlent 18.4.2023 21:01
„Hefði hjálpað okkur Bjarka heil ósköp“ Ástrós Rut Sigurðardóttir, varaþingmaður Viðreisnar, flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag. Í ræðunni fagnar Ástrós þingsályktunartillögu um umboðsmann sjúklinga. Ástrós missti eiginmann sinn árið 2019 eftir langa baráttu við krabbamein. Hún segir að umboðsmaður sjúklinga hefði getað hjálpað þeim á sínum tíma. Innlent 18.4.2023 15:40
Sprengja í tæknifrjóvgunum Tæknifrjóvgunum hér á landi hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum árum. Frá árinu 2019 til 2022 fjölgaði aðgerðum um 51 prósent. Þingmaður segir fjölgunina ekki koma sér á óvart. Innlent 18.4.2023 13:53
Lykilinn að lyfjum við blóðtappa að finna í blóði skógarbjarna Samkvæmt nýrri rannsókn getur blóð skógarbjarna gegnt lykilhlutverki við lyfjaþróun við blóðtappa. Birnirnir dvelja mánuðum saman í hýði án mikillar hreyfingar en hreyfingarleysi eykur á hættuna á blóðtappa hjá fólki. Erlent 18.4.2023 07:01
Kostnaður Sjúkratrygginga vegna tannlækninga 7,1 milljarður Kostnaður Sjúkratrygginga vegna tannviðgerða og tannréttinga nam 7,1 milljarði króna í fyrra. Þar af voru 450 milljónir vegna tannréttinga. Útgjöldin hafa farið síhækkandi frá 2014, þegar þau voru 2,2 milljarðar króna. Innlent 18.4.2023 06:52
Viðhaldsmeðferðir við fíkn eigi ekki að vera í höndum einstaka lækna Landlæknir segir að mál geðlæknisins, sem sviptur var ávísanaleyfi á dögunum, sé fordæmalaust vegna magns þeirra ópíóíðalyfja sem skrifað var upp á. Svokallaðar viðhaldsmeðferðir eigi ekki heima hjá einstökum læknum en kallar eftir heildstæðri stefnu stjórnvalda í vímuefnamálum. Innlent 17.4.2023 22:02
Aðgangur að lífsnauðsynlegum lyfjum við SMA strandar á fjármagni! Á föstudag var haft eftir Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra í fjölmiðlum að notkun lyfsins Spinraza til að meðhöndla einstaklinga með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) sem eru 18 ára og eldri við upphaf meðferðar verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati sem tryggi bæði öryggi lyfsins og nytsemi þess. Skoðun 17.4.2023 14:31
Lét örið ekki stöðva sig að láta drauminn rætast Ísabella Þorvaldsdóttir var einungis þriggja ára þegar hún gekk undir líffæraígræðslu. Ísabella sem fæddist með óvirk nýru þáði líffæragjöf frá föður sínum og er hún yngsti einstaklingurinn hér á landi til að gangast undir slíka aðgerð. Lífið 14.4.2023 14:00
Klókir markaðsaðilar fá ráðherra til að klóra sér í kollinum Heilbrigðisráðherra segir það mikið áhyggjuefni hversu margir landsmenn neyta nikótínpúða en vörurnar höfða meðal annars til barna og unglinga. Um sé að ræða snúna baráttu þar sem markaðsaðilar séu mjög séðir og þróa sífellt nýjar vörur. Nýtt regluverk gefi aukin færi. Innlent 15.4.2023 22:02
„Ég veit ekki hvernig ég verð eftir fimm ár“ „Ef ég hefði fæðst ellefu mánuðum fyrr hefði ég verið sautján ára þegar lyfið var samþykkt hér á landi árið 2018 og þá væri ég á lyfinu núna,“ segir Þorsteinn Sturla Gunnarsson, 23 ára leikstjóri og handritshöfundur og einn ellefu einstaklinga á Íslandi með vöðva- og taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA), sem fá ekki lyf við sjúkdómnum. Innlent 15.4.2023 14:00
Þjóðþekktum flett upp í lyfjagátt án tilefnis Dæmi eru um það að starfsfólk apóteka fletti upp þjóðþekktu fólki í lyfjagáttinni, miðlægum gagnagrunni sem heldur utan um lyfjaávísanir fólks, án nokkurs tilefnis. Innlent 15.4.2023 07:54
Tugprósenta munur á tannlæknaþjónustu og gjaldskrár ekki alltaf sýnilegar Tugprósenta munur er á verði tannlæknaþjónustu og ekki eru allar gjaldskrár aðgengilegar á netinu. Þetta kemur fram í óformlegri verðkönnun Vísis hjá tuttugu tannlæknastofum. Neytendur 15.4.2023 07:01
„Þetta þarf að vera faglegt mat“ Heilbrigðisráðherra segir að notkun lyfs við taugahrörnunarsjúkdómnum spinal muscular athrophy (SMA) verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati. Nauðsynlegt sé að tryggja bæði öryggi notkunar lyfsins og að nytsemi hennar sé óyggjandi. Innlent 14.4.2023 23:45
Oft erfitt samtal um hvort meðferð sé vegna fíknar eða í læknisfræðilegum tilgangi Um fjörutíu prósent heimilislækna hafa orðið fyrir hótunum eða ógnunum í starfi og oftast er það vegna lyfjaávísana. Formaður félags íslenskra heimilislækna segir geta verið erfitt að greina hvort um fíkn sé að ræða eða læknisfræðileg vandamál. Innlent 14.4.2023 22:07
Ráðherraábyrgð fyrir skarðabörn Börnin okkar, skarðabörn, virðast aldrei ætla að fá það pláss í kerfinu sem þau eiga rétt á. Skoðun 14.4.2023 20:01
Skoða hvort fullorðnir með SMA geti fengið langþráð lyf: „Ég reikna með að við getum unnið þetta hratt“ Heilbrigðisyfirvöld skoða hvort tilefni sé til að leyfa fullorðnum með SMA hér á landi að fá lyf við sjúkdóminum í kjölfar ákvörðunar Norðmanna þess efnis. Hópur sjúklinga hefur undanfarið lýst langri baráttu við kerfið og kallað eftir aðgerðum. Heilbrigðisráðherra reiknar með að hægt verði að vinna málið hratt, enda ákallið sterkt. Innlent 13.4.2023 19:47
Íslenskt fyrirtæki brautryðjandi í baráttunni við fjölónæmar bakteríur Íslenska lyfjaþróunarfyrirtækið Akthelia er brautryðjandi í rannsóknum sem leitt gætu til byltingar í baráttunni við bakteríur sem í vaxandi mæli verða ónæmar fyrir sýklalyfjum. Evrópusambandið hefur styrkt rannsóknir fyrirtækisins um tæpan milljarð sem kom á elleftu stundu því horfur voru á að loka þyrfti rannsóknarstofu fyrirtækisins vegna fjárskorts. Innlent 13.4.2023 19:32
Geðlæknir ávísaði sjúklingi oxýkódóni og morfíni í kílóa vís Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Embættis landlæknis um að svipta geðlækni á Íslandi réttindum til að ávísa ópíóðalyfjum. Læknirinn er talinn hafa ávísað 2,1 kílói af oxýkódóni og 1,5 kílói af morfíni til sjúklings á fjögurra ára tímabili. Innlent 13.4.2023 13:05
Samþykkið lyf við Spinal Muscular Atrophy fyrir 18 ára og eldri! Kæri Willum Þór. Við erum ellefu einstaklingar sem erum með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) á ólíkum aldursskeiðum sem eigum það öll sameiginlegt að eiga okkur draum um lyf við sjúkdómi sem hefur mikil áhrif á vöðvastyrk, færni og hreyfigetu. Skoðun 13.4.2023 10:00
Færði slökkviliðinu þakkir og bangsa handa öðrum börnum Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst hjartnæm kveðja í gær frá stúlku sem flytja þurfti með sjúkrabíl fyrir nokkru. Innlent 13.4.2023 07:03
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent