Börn og uppeldi

Komst að því að Íslendingar eru ekki með alþjóðlega dætradaginn á hreinu
Ósk Gunnars þáttastjórnandi á FM957 fékk mikið samviskubit í gær þegar hún sá á samfélagsmiðlum margar færslur um einhvern alþjóðlegan dætradag.

Móðurmál: Erfiðast að velja sæðisgjafa
„Fyrir þær sem eru óákveðnar en alltaf með þetta bak við eyrað - þá segi ég að drífa bara í þessu. Ég gæti allavega vel hugsað mér að hafa gert þetta fyrr þó að ég sé ekkert að sjá eftir neinu,“ segir leikkonan Ísgerður Gunnarsdóttir í viðtalsliðnum Móðurmál.

Hvað ef þú labbar inn á unglinginn?
Hvort sem það er forvitni um kynfærin, sjálfsfróun eða smokkinn þá er mikilvægt að foreldrar barna á kynþroskaskeiðinu séu meðvituð og tilbúin til þess að eiga samtalið við unglingana sína.

Varar við hættu sem getur stafað af papparörunum
„Það voru tvær mæður sem létu mig vita, sama sólarhringinn, að þegar börnin þeirra voru að drekka úr einhverjum umbúðum með papparörum, þá losnaði frá hluti af rörinu og varð eftir í munni barnanna.“

Arnar og Sigríður eiga von á sínu þriðja barni
Leikarinn Arnar Dan Kristjánsson og myndlistakonan Sigríður Soffía Hafliðadóttir eiga von á sínu þriðja barni. Fyrir eiga þau synina Maríus og Hafliða.

Meirihluti barna í 91 ríki fær ekki nauðsynlega næringu
Loftslagsbreytingar, átök og kórónuveirufaraldurinn eru að valda því að fjöldi barna í heiminum býr við næringarskort. Samkvæmt Unicef er ástandið raunar svo slæmt að flest börn í 91 ríki fá ekki öll þau næringarefni sem þau þurfa á að halda.

„Þetta var í raun púslið sem vantaði“
„Þetta hefur verið lærdómsríkt og alveg afskaplega gefandi,“ segir pilates-drottningin Helga Lind Björgvinsdóttir sem hefur undanfarið starfað sem stuðningsfulltrúi í skóla.

„Við sem samfélag, hversu galin erum við?
Margrét Pála segir að það sé grundvallarskekkja að pínulítil börn, jafn vel innan við árs aldur, séu sett í vist til vandalausra og fjölskyldur sendi þau frá sér.

Sérstakur frístundastyrkur – mikilvægt réttlætismál!
Sérstökum frístundastyrk er ætlað að gera börnum keift að stunda fjölbreyttar tómstundir óháð efnahag foreldra en rannsóknir hafa sýnt að þáttaka barna efnaminni foreldra er mun minni í skipulögðu tómstundastarfi en annarra. Ljóst er að tómstundastarf barna getur verið þungur baggi fyrir tekjulág heimili og kostnaður valdið því að börn tekjulágra taka síður þátt í slíku starfi.

Veittu fjórar viðurkenningar fyrir framlög til barnamenningar
Sunnudaginn 19. september veitti Íslandsdeild IBBY sínar árlegu viðurkenningar fyrir framlög til barnamenningar, Vorvinda, við athöfn í Borgarbókasafninu Grófinni. Að þessu sinni voru Vorvindahafarnir fjórir.

Biðlistar vinna gegn farsæld barna
Fjölskyldusvið Árborgar hefur unnið markvisst að því að efla þverfaglegar áherslur og snemmtækan stuðning við börn og unglinga. Til að ná árangri á því sviði er lögð áhersla á að sem flestir, sem koma að málefnum barnanna, vinni þétt saman.

Bjóst ekki við því að fá að upplifa aðra meðgöngu
„Lífið breytist auðvitað en mér líður eins og mér leið áður en ég eignaðist börnin,“ segir listakonan og ilmvatnshönnuðurinn Andrea Maack í viðtali við Makamál.

Ætlast til að börn fræði sig sjálf um kynþroska
Hvort sem það eru blæðingar, forhúðarvandamál eða hugleiðingar um kynhneigð er mikilvægt að foreldrar barna á kynþroskaskeiðinu séu meðvitum um hvað börn þeirra eru að ganga í gegnum.

Hleypur fyrir einstaka litla vinkonu: „Ég dáist að þessari fjölskyldu“
„Það er svo frábært að geta stutt við þetta málefni með þessum hætti,“ segir Bjartur Norðfjörð, sem á morgun stefnir á að hlaupa 80 kílómetra og jafnvel lengra til styrktar Einstakra barna.

Stjórnmálamenn ekki allir jafnduglegir að styðja við aðeins öðruvísi fólk
Stjórnmálamenn mættu huga betur að málefnum barna með fötlun og 16 ára og eldri ættu alla vega að fá að kjósa í sveitarstjórnarkosningu, enda eru mörg þeirra farin að borga skatta. Þessar kröfur voru á meðal þeirra sem börn settu fram á kosningafundi með frambjóðendum allra flokka í Hörpu í dag.

Sigríður Thorlacius eignaðist dreng
Söng- og tónlistarkonan Sigríður Thorlacius eignaðist sitt fyrsta barn, dreng, fyrir um viku síðan.

Grímuskylda í leikskólum borgarinnar að minnsta kosti fram að mánaðamótum
Ákveðið var á fundi hjá Reykjavíkurborg í morgun að viðhalda og ítreka grímuskyldu í leik- og grunnskólum borgarinnar fram að mánaðamótum. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að flestir þeir sem sæta einangrun þessa dagana eru börn á yngsta og miðstigi grunnskóla.

Þú þarft víst barnabætur!
Þegar ég var að borða sand á rólóvöllum 9. áratugs seinustu aldar var ég eitt af heppnu börnunum sem fengu að fara á leikskóla. Mamma starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Borgarspítalanum í Fossvogi sem rak þar yndislega leikskóla í því skyni að starfsfólk spítalans gæti unnið eðlilegan vinnudag.

Ekki banna börnum að vera forvitin um kynfæri sín
„Mér berast, alveg grínlaust, að meðaltali tugi spurninga á viku frá foreldrum um það hvernig best sé að ræða við börn sín um samþykki, mörk, kynfærin, líkamann og kynlíf,“ segir Sigga Dögg í viðtali við Makamál.

Tvöföld ánægja: Afastrákurinn var íbúi númer tuttugu þúsund
Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, upplifði sannkallaðan tímamótadag fyrir skemmstu, þar sem hann eignaðist dótturson, sem síðar reyndist hafa verið tuttugu þúsundasti íbúi Reykjanesbæjar.

Vaxtarstyrkur fyrir þitt barn
Fjölbreytt og gott íþrótta- og tómstundastarf er okkur flestum tiltölulega aðgengilegt hér á landi. Það er eitthvað sem við sem samfélag getum státað okkur af og það sem meira er, þá getum við verið nokkuð stolt af því.

Veitir fjölskyldum langveikra barna aðstoð í gegnum Hjálparlínu
„Landspítalinn er bráðasjúkrahús. Þannig að sú þjónusta sem er í boði þar er að meginhlutanum til sniðin í kringum bráðveika. Það er kannski eitt af því sem hefur verið erfiðara fyrir þá sem eru langveikir því þeir hafa aðrar þarfir en þeir sem eru bráðveikir,“ segir Bára Sigurjónsdóttir.

Næsta skref jafnréttis
„Konur munu hafa náð fullu jafnrétti þegar karlar deila með þeim ábyrgð á því að ala upp næstu kynslóð“ svaraði bandaríski hæstaréttadómarinn Ruth Bader Ginsburg blaðamanni tímarits lögfræðingafélags New York borgar, aðspurð um stöðu jafnréttismála.

Tvö börn á rúmlega ári og aldrei eins ástfangin
„Fyrir mér hefur faraldurinn aðallega haft góð áhrif á fæðingarorlofið en til dæmis voru engar heimsóknir leyfðar upp á deild eftir fæðingu. Persónulega finnst mér það frábært þar sem þetta er svo rosalega viðkvæmur sem og dýrmætur tími fyrir foreldra og barn að kynnast.“ Þetta segir Helga Jóhannsdóttir í viðtalsliðnum Móðurmál.

Ekki vitað hvort og hvar 279 börn á grunnskólaaldri stunda nám
Ekki er vitað hvort eða hvar að minnsta kosti 279 börn á skólaskyldualdri stunda nám. Flest þeirra eru af erlendum uppruna og sveitarfélögin telja líklegt að flest þeirra séu búsett erlendis jafnvel þótt þau séu skráð til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá.

Börn sem ættu að sleppa við sóttkví þurfa samt í sóttkví vegna undirbúningsleysis
Foreldrar eru margir í óvissu vegna nýrra leiðbeininga um sóttkví barna. Þar er gert ráð fyrir að börn sem ekki eiga í nánum samskiptum við hinn smitaða geti farið tvisvar í hraðpróf og sloppið við sóttkví. Ekkert hraðpróf hefur hins vegar enn verið tekið í þessu skyni.

„Einar Áskell er einhvern veginn erkitýpískt barn“
„Einar Áskell er einhvern veginn erkitýpískt barn. Hann er hið týpiska barn. Ég held að það sé þess vegna sem maður sem foreldri hefur svo gaman af því að lesa bækurnar um Einar Áskel. Maður kannast við svo ótrúlega margt frá þeim börnum sem maður þekkir í fari hans.“

Ferðaðist um Ísland á mótorhjólinu fyrir heimildarmynd um sjaldgæfa sjúkdóma
Í vikunni lauk tökum á heimildarmyndinni Einstakt ferðalag. Kvikmyndargerðarkonan Ágústa Fanney Snorradóttir er að vinna að myndinni og hafa tökur staðið yfir í allt sumar.

Ekki lengur stúlka eða drengur
Börn verða ekki lengur nýskráð í þjóðskrá með eiginnafnið stúlka eða drengur. Framvegis verða þau skráð í þjóðskrá eingöngu með kenninafni þar til nafngjöf hefur farið fram.

Nýr tíu deilda leikskóli byggður á Hvolsvelli
Um hundrað leikskólabörn á Hvolsvelli komu saman með skóflurnar sínar í vikunni og tóku fyrstu skóflustungurnar af nýjum leikskóla. Leikskólinn verður með tíu deildum og fyrir um hundrað og áttatíu börn. Kostnaðurinn við bygginguna verður um einn milljarður króna.