Landspítalinn

Víðir gaf grænt ljós á „Ég hlýði Víði“- boli til styrktar spítalanum
Hafin hefur verið framleiðsla á stuttermabolum með áletruninni „Ég hlýði Víði.“

Tveir af ellefu náðst úr öndunarvél
Fjórir eru látnir af Covid 19 hér á landi en tveir létust í gær eftir veikindi. Ellefu eru nú á gjörgæsludeildum Landspítalans en flestir eru tengdir við öndunarvél.

Lýsti yfir sérstökum áhyggjum af stöðu kjarasamninga í minnisblaði til ráðherra
Landlæknir lýsir yfir „sérstökum áhyggjum af stöðu kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og á kjaraskerðingu þeirri sem stéttin varð fyrir á Landspítala um liðin mánaðarmót þegar vaktaálagsauki var tekinn af,“ í minnisblaði sínu sem sent var á Heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur í dag.

Landlæknir óttast að kjaradeila hafi áhrif á mönnun í faraldrinum
Kjaradeila hjúkrunarfræðinga og ríkisins getur haft áhrif á mönnum í heilbrigðiskerfinu á næstu vikum, að mati Ölmu Möller, landlæknis, sem biðlar til samningsaðila um leysa deiluna. Forstjóri Landspítalans sagði til skoðunar hvernig væri hægt að umbuna heilbrigðisstarfsfólki vegna álags á tímum kórónuveirufaraldursins.

Hefði kosið að vita fyrr af andlátunum
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist fyrst hafa frétt af tveimur andlátum á Landspítalanum vegna Covid-19 sjúkdómsins eftir hádegið í dag.

Tveir til viðbótar látnir af Covid-19
Á síðasta sólarhring hafa tveir sjúklingar látist á Landspítala vegna Covid-19. Þetta kemur fram á vef Landspítalans.

Reiknar með stórflótta úr stétt hjúkrunarfræðinga eftir Covid-19
Formaður hjúkrunarráðs Landspítalans óttast flótta úr stéttinni eftir kórónuveirufaraldurinn verði kjör hjúkrunarfræðinga ekki bætt.

Bjarni bjartsýnn á samninga en segir krísuna dragast á langinn
Fjármálaráðherra segir samningum við hjúkrunarfræðinga að mestu lokið og hefur trú á að endanlegir samningar náist fljótlega.

Segir eitthvað rangt við framkomuna gagnvart hetjum faraldursins
Hjúkrunarfræðingar eru hetjurnar í faraldri Covid-19 og í langmestri snertingu við sjúklinga sem smitast hafa af nýju kórónuveirunni.

Hjúkrunarfræðingur vildi óska að lægri laun í dag en í gær væri aprílgabb
Vegna uppsagnar á vaktaálagsgreiðslum hjúkrunarfræðinga hafa laun hjá sumum hjúkrunarfræðingum Landspítalans lækkað um tugi þúsunda milli mánaða.

Karlar í miklum meirihluta á gjörgæslu
Níu einstaklingar af tíu sem voru í gær í öndunarvél vegna kórónuveirunnar eru karlar að sögn forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Hann segir þetta til marks um að karlar sýkist verr en konur. Fólkið er á fimmtugsaldri og allt upp í áttrætt

Tólf með Covid-19 á gjörgæslu
Tólf liggja inni á gjörgæsludeild Landspítala með Covid-19-sjúkdóminn, sem kórónuveiran veldur.

Sá frekar fyrir sér að vinna við þessar óraunverulegu aðstæður í hjálparstarfi erlendis
Hjúkrunarfræðingur sem unnið hefur að opnun Covid-göngudeildar á Landspítala segir að sig hefði ekki órað fyrir því að þurfa að vinna hér heima á Íslandi við þær aðstæður sem nú eru uppi vegna kórónuveirunnar.

Dauðsfallið rannsakað innanhúss og vísað til Landlæknis
42 ára kona lést innan við hálfum sólahring eftir að hafa verið útskrifuð af bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í síðustu viku. Að sögn heimildarmanns var konan lögð inn á gjörgæsludeild spítalans með sambærileg sjúkdómseinkenni fyrir tveimur árum.

Landlækni tilkynnt um andlát konu skömmu eftir útskrift af bráðadeild
Alvarlegt atvik þar sem 42 ára gömul kona lést innan við sólarhring eftir að hún var útskrifuð af bráðadeild Landspítalans hefur verið tilkynnt til embættis landlæknis, að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra spítalans. Landlæknir segir að alvarleg atvik tengist oft álagi en ekki í öllum tilfellum.

Aðstandendur fá ekki að fylgja með í keisaraskurð
Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítalans ákvað í dag að taka fyrir að aðstandendur fái að fylgja konum á skurðstofu í keisaraskurð vegna kórónuveirufaraldursins. Yfirlæknir fæðingarþjónustu segir að íþyngjandi aðgerðir sem þessar séu nauðsynlegar til að vernda viðkvæma starfsemi spítalans.

Svona var 31. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14.

Á áttræðisaldri en gefur ekkert eftir í baráttunni við hinn illvíga kórónuvírus
Sigurður Guðmundsson læknir er einn þeirra sem stendur í framlínu heilbrigðisþjónustunnar.

Fleiri en 1.100 manns nú smitaðir og einn bætist við á gjörgæslu
Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur COVID-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.135 hér á landi. Þeim hefur fjölgað um 49 frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær.

Gefa Landspítala 50 þúsund skammta af malaríulyfi til meðferðar á veirusýktum
Lyfjafyrirtækið Alvogen hyggst gefa Landspítalanum 50 þúsund skammta af malaríulyfinu Hydroxychloroquine.

Mönnun gæti orðið hindrandi þáttur þegar tekist verður á við álag á gjörgæslu
Innlagnir vegna alvarlegra veikinda af völdum kórónuveirunnar ná hámarki í næstu viku samkvæmt nýrri spá. Forstjóri Landspítalans segir að aðstaða verði ekki hindrandi þáttur á deildinni, heldur mönnun.

Fjöldi rúma á gjörgæslu nú í takti við svartsýnustu spá
Mesta álag á gjörgæsludeild Landspítalans verður í annarri viku í apríl samkvæmt nýju spálíkani.

Segir gæfu að Landspítalinn sé í tveimur húsum
„Verkefnin eru að aukast og róðurinn er að þyngjast inni á spítalanum en hafandi sagt það þá höfum við haft nógan tíma til þess að undirbúa okkur og við höfum fylgst gríðarlega vel með því sem hefur verið að gerast bæði úti í heimi og í okkar samfélagi.“

Fimm barnshafandi konur með Covid-19: Aðrar barnshafandi konur kvíðnar fyrir komandi tímum
Fimm barnshafandi konur eru með Covid-19 sjúkdóminn. Yfirljósmóðir ráðleggur þunguðum konum og fjölskyldum þeirra að fara í sjálfskipaða sóttkví. Að minnsta kosti fjórir starfsmenn á kvennadeildum spítalans hafa verið settir í sóttkví eftir að smit kom upp í gær hjá nýbökuðum föður sem hafði dvalið á spítalanum í nokkra daga.

Átta á gjörgæslu og fjórar nýjar innlagnir
Átta eru nú á gjörgæslu vegna kórónuveirunnar og voru fjórir lagðir inn á Landspítalann í gær. Yfir sextíu börn eru smituð af veirunni.

Fólkið gæti verið í öndunarvél í allt að þrjár vikur
Tveir COVID-19 sjúklingar voru lagðir inn á lungna- og smitsjúkdómadeildir Landspítalans í gær og liggja nú 18 manns inni.

Fleiri starfsmenn á Landakoti reyndust smitaðir
Alls hafa fjórir starfsmenn á öldrunarspítalanum Landakoti greinst með Covid-19 sjúkdóminn. Þetta staðfestir Már Kristjánsson, yfirmaður smitsjúkdómadeildar Landspítalans í samtali við Vísi.

Sex á gjörgæslu og í öndunarvél
Sex eru á gjörgæslu smitaðir af kórónuveirunni og eru þeir allir í öndunarvél. Síðan í gær hefur fjölgað þar um þrjá.

Flestir sem liggja á Landspítala vegna Covid-19 með undirliggjandi sjúkdóm, offitu eða eru reykingafólk
Flestir af þeim sautján sem liggja inni á Landspítalanum vegna covid 19 eru með undirliggjandi sjúkdóm, offitu eða er reykingafólk.

Sjúklingar og starfsmenn á Landakoti smitaðir
Tekið hefur verið fyrir innlagnir á öldrunarspítalanum Landakoti vegna COVID-19-smita sem greindust þar og Rjóðrinu á barnaspítalanum verður lokað næstu daga.