Forseti Íslands

Guðni Th. Jóhannesson: Ekki lögfesta mannréttindabrot í þínu nafni!
Við skorum á Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands að nýta neitunarvald sitt í þeim tilgangi að stöðva atlögu Alþingis til að lögfesta ómannúðlegt útlendingafrumvarp. Frumvarpið fer þvert gegn Mannréttindayfirlýsingu og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem og jafnréttislögum.

Forsetinn fékk fyrstu sokkana
Forseti Íslands tók í dag á móti fyrsta parinu af Mottumarssokkunum sem seldir eru til styrktar árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins tileinkuðu krabbameinum hjá körlum.

Forsetinn fær fyrstu sokka Mottumars
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fær á morgun fyrsta Mottumarssokkaparið afhent á Bessastöðum.

Forsetinn efnir til sérstakra lýðheilsuverðlauna
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur ákveðið að efna til nýrra verðlauna, Íslensku lýðheilsuverðlaunanna, og er stefnt á að þau verði afhent í fyrsta sinn í vor.

Forseta Íslands fagnað á NBA-leik í nótt
Herra Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er staddur í Bandaríkjunum og var einn af fræga fólkinu sem var kynnt sérstaklega á NBA-leik í nótt.

Verkfræðinemar við HR fengu Nýsköpunarverðlaun forsetans
Axel Pálsson, Tómas Frostason og Tómas Orri Pétursson hlutu Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin hlutu þeir fyrir verkefnið „Vélræn endurhæfing í heimahúsi með sýndarveruleika“.

Skúli, Arndís, Ragnar og Pedro hrepptu bókmenntaverðlaunin
Afhending Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans fór fram á Bessastöðum nú rétt í þessu. Verðlaunin fyrir hvert verk nema einni milljón króna og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda.

Fimmtíu ár frá upphafi Heimaeyjargossins: Forsetinn á óljósar minningar um áhyggjur og angist
Vestmanneyingar minnast í dag fimmtíu ára afmælis Heimaeyjargossins. Forseti Íslands á óljósar minningar um áhyggjur og angist landsmanna þegar gosið hófst.

Viðgerð um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni lokið
Viðgerð um borð í togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni tókst síðdegis og siglir skipið nú fyrir eigin vélarafli. Togarinn heldur til Hafnarfjarðar þar sem gert er ráð fyrir að ný veiðarfæri verði sótt.

Guðni var með er Hrafn Sveinbjarnarson var dreginn til hafnar
Varðskipið Freyja er lögð af stað með togarann Hrafn Sveinbjarnarson áleiðis til hafnar. Togarinn varð vélarvana um klukkan fjögur í nótt um fimmtíu sjómílur norðnorðvestur af Straumnesi. Forseti Íslands er um borð í skipinu.

Forsetinn í varðskipi á leið til móts við vélarvana togara
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er um borð í varðskipinu Freyju, sem verið er að sigla til hjálpar vélarvana togara. Tilkynning barst frá togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni um klukkan fjögur í nótt um að togarinn væri aflvana.

Minnast þeirra sem létust í krapaflóðum á Patreksfirði fyrir fjörutíu árum
Fjörutíu ár verða á morgun liðin frá því að tvö krapaflóð féllu á Patreksfjörð með þeim afleiðingum að fjögur létust og nítján hús skemmdust. Að því tilefni verður blásið til minningarathafnar um hin látnu.

„Ætla ekki í framboð gegn Guðna“
Yfirlýsingar landsliðsmarkvarðarins Björgvins Páls Gústavssonar um að hann vilji verða forseti Íslands hafa eðli málsins samkvæmt vakið mikla athygli.

Menntaverðlaun Suðurlands fóru til Tónlistarskóla Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga hlaut Menntaverðlaun Suðurlands fyrir árið 2022 en Forseti Íslands afhenti verðlaunin. Um 550 nemendur eru í skólanum en kennslan fer fram á 14 stöðum í Árnessýslu. Átta sveitarfélög sýslunnar standa að skólanum.

Guðni forseti sér möguleika á verðlaunapalli
Forseti Íslands er sannfærður um að íslenska landsliðið í handbolta eigi góðan möguleika á að komast á verðlaunapall á HM í Svíþjóð. Hann stefnir á að fara á mótið á einhverjum tímapunkti þess.

Sigríður Soffía Níelsdóttir hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022
Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé.

„Þetta var ekki minn fyrsti leiksigur“
Það var stemmning á Bessastöðum í dag en leikari, réttarmannfræðingur, kvensjúkdómalæknir og tónskáld voru meðal þeirra sem sæmd voru hinni íslensku fálkaorðu eins og hefðin býður upp á á nýársdag.

„Ráði hnefarétturinn er voðinn vís“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ræddi stöðu Íslands í samfélagi þjóða í nýársávarpi sínu fyrr í dag og þá sérstaklega í tengslum við þá stöðu sem uppi er í alþjóðasamfélaginu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.

Þessi fjórtán fengu fálkaorðuna á Bessastöðum
Guðni Th. Jóhannesson forseti sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Eins og að hoppa út í djúpu laugina
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands segir í viðtali sem Stöð 2 sýnir í kvöld, að forseti hverju sinni ætti ekki að fara gegn meirihlutavilja Alþingis. Forsetaembættið væri mikilvægt sameiningartákn þjóðarinnar á gleði- og sorgarstundum.

Forseti Íslands minnti á að það væri alltaf von
Árleg vetrarsólstöðuganga Píeta-samtakanna var gengin frá Klettagörðum að Skarfavita í Reykjavík í gærkvöldi. Á dimmasta degi ársins er þeirra ástvina minnst sem féllu fyrir eigin hendi. Fjöldi fólks lagði leið sína í gönguna. Meðal þeirra forseti Íslands.

Ísland geti sagt öðrum þjóðum hvernig tryggja megi jafnrétti
Fyrr í dag ávarpaði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands ráðherranefnd Evrópuráðs í tilefni af formennsku íslands hjá ráðinu. Hann hvatti Evrópuráðið til þess að einblína á eigin grunnstoðir og tryggja grunnréttindi almennings.

Segir Japani vilja læra af Íslendingum í jafnréttismálum
Japönsk yfirvöld eiga mikið verk fyrir höndum en þau vilja jafna stöðu kynjanna og læra af Íslandi í þeirri vegferð að sögn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, en Japanir sitja í 116. sæti jafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins.

Forseti Íslands og forsetafrú til Strassborgar
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú munu heimsækja Evrópuráðið í Strassborg í Frakklandi dagana 6.-7. desember. Þar mun forsetinn taka þátt í dagskrá og fundum í tengslum við formennsku Íslands í ráðinu.

Sólborg valin framúrskarandi ungur Íslendingur
Sólborg Guðbrandsdóttir hlaut í gær titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2022. Sólborg Guðbrandsdóttir er brautryðjandi í baráttu mannréttinda og réttinda kvenna. Hún hefur barist gegn skaðlegu feðraveldi og nauðgunarmenningu og hvatt ungt fólk til að breyta rétt og veitt þeim innblástur.

Forseti Íslands greip spreybrúsann og stækkaði verkefnið um helming
„Ég var drullustressaður,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á viðburði í Mjódd í dag. Þar var því fagnað að þrjú hundruð römpum hefur verið komið upp um landið í átaksverkefninu Römpum upp Ísland.

Bein útsending: Lúðrablástur og fyrirmenni við vígslu ramps númer þrjú hundruð
Römpum upp Ísland vígir ramp númer þrjú hundruð klukkan 11:30 í Mjóddinni. Verkefnið snýr að því að setja upp eitt þúsund rampa um allt land á fjórum árum. Sýnt verður beint frá athöfninni á Stöð 2 Vísi.

Guðni heldur í fyrirlestraferð til Bandaríkjanna
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heldur í dag í fyrirlestraferð til Bandaríkjanna. Þar mun hann heimsækja þrjá háskóla.

„Við þurfum að verja Valhöll“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og rokkaðdáandi, segir að íslenskt þungarokk með góðri textasmíði virki vel til að útrýma staðalímyndum um hina fornu æsi. Mikilvægt sé að verja norræna sagnaarfinn.

Fjölbreytt verkefni hlutu Menntaverðlaunin í ár
Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Fjórar menntastofnanir og einn kennari hlutu verðlaun.