
Guðmundar- og Geirfinnsmálin

Þú sagðir þetta Katrín
Þú hefur verið með þetta mál á þinni könnu og þessi greinargerð er skrifuð af ríkislögmanni fyrir þína hönd. Það var í rauninni þú Katrín sem sagðir þetta allt saman. Förum aðeins yfir hvað þú sagðir við Guðjón Skarphéðinsson.

Gáttaður á framgöngu ríkissins vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins
"Ég get með engu móti séð að það sé rétt hjá hæstvirtum ráðherra að það sé einlægur vilji ríkisstjórnarinnar til þess að ná sátt í málinu.“

Nálgun ríkislögmanns ekki aðeins „ómanneskjuleg“ heldur einnig „lögfræðilega ótæk“
Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður aðstandenda Tryggva Rúnars Leifssonar, eins af sakborningunum í Guðmundar- og Geirfinnsmálum sem sýknaðir voru í Hæstarétti í fyrra segir nálgun ríkislögmanns í greinargerð í skaðabótamáli annars sakbornings, Guðjóns Skarphéðinssonar, ekki aðeins ómanneskjulega heldur lögfræðilega ótæka.

Vilja rannsókn á ákæru- og dómsvaldi
Tillaga til þingsályktunar um skipun rannsóknarnefndar til að kanna starfshætti ákæruvalds og dómsvalds í Guðmundar- og Geirfinnsmálum er í lokavinnslu á Alþingi.

„Katrín Jakobsdóttir hefði getað afstýrt þessari nýjustu árás“
Barnabarn Tryggva Rúnars Leifssonar segir að forsætisráðherra ætti að skammast sín fyrir sinn þátt.

Segir greinargerð ríkislögmanns grimma
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir þá stöðu sem er komin upp í máli sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum vera eins og kjaftshögg fyrir aðila málsins.

Opinberun tvöfeldninnar
Katrín Jakobsdóttir þykist hafa gildi og marka stefnu ríkisins, en keppist í reynd við að þjóna kerfi sem brýtur á, lítillækkar og þaggar niður í þeim sem minnstar varnir hafa gegn ofríki hins opinbera. Eins og ég hef árangurslítið reynt að vekja athygli á síðan ég byrjaði að tjá mig um GG-mál fer því fjarri að allar hliðar þeirrar sögu hafi verið leiddar til lykta með endurupptökuferli síðustu ára.

Segir ríkið hafna nútímavísindum til þess að „fara sem verst með sakborningana“
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar sem stefnt hefur ríkinu til greiðslu bóta með dráttarvöxtum upp á 1,3 milljarða króna, segir ríkislögmann ekki vera sjálfstæða stofnun.

Nýjustu vendingar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu furðulegar, sorglegar og með ólíkindum að mati þingmanna
Þrír þingmenn segja nýjustu vendingar í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum ýmist vera sorglegar, furðulegar eða með ólíkindum. Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir settan ríkislögmann láta eins og ekkert hafi gerst í málinu frá árinu 1990.

Svimaði við lestur greinargerðar ríkislögmanns
Lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar segir ríkið ekki fylgja reglum hins siðaða samfélags í málsvörn sinni gagnvart kröfum Guðjóns um bætur vegna ólöglegrar frelsissviptingar hans í Geirfinnsmálinu.

Sonur Sævars segir Valtý lögmann eiga ríkra hagsmuna að gæta
Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski, kemur Erlu Bolladóttur til varnar í nýrri grein. Um er að ræða viðbrögð Hafþórs við þeirri skoðun þriggja karlmanna sem sátu í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 að ekki eigi að greiða Erlu skaðabætur án þess að hún verði formlega sýknuð af dómi fyrir rangar sakargiftir.


Misbauð beiðni Erlu Bolladóttur um bætur og hittust í fyrsta skipti í 43 ár
Þrír menn sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaðir um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana telja alls ekki réttlætanlegt að greiða Erlu Bolladóttur bætur vegna dóms sem hún hlaut fyrir rangar sakargiftir.

Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu.

Dómurinn frá 1980 hafi fullt sönnunargildi um málsatvik
Ríkið telur að byggja eigi á málsatvikum eins og þeim er lýst í sakfellingardómi Hæstaréttar frá 1980 um bótakröfu Guðjóns Skarphéðinssonar. Ný gögn sem aflað hefur verið gangi ekki framar þeim dómi. Fullyrðingum Guðjóns um ólöglegar rannsóknaraðgerðir hafnað sem ósönnuðum með öllu.

Lögmaður Kristjáns Viðars fagnar stefnubreytingu
Lögmaður Kristjáns Viðars Viðarssonar, sem var sýknaður í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segist ánægður með þá stefnubreytingu sem virðist hafa orðið hjá stjórnvöldum. Katrín Jakobsdóttir segist hafa ákveðið að taka upp þráðinn í málum sem varða skaðabætur til þeirra sem sýknaðir voru.

Stjórnvöld reyna enn að ná sátt um bætur
Af hálfu stjórnvalda hefur verið lögð áhersla á að ríkið væri tilbúið að semja um sanngjarnar bætur til þeirra sem sýknaðir voru og aðstandenda þeirra sem fallnir eru frá og afla til þess viðeigandi lagaheimildar.

Stefnir íslenska ríkinu
Erla Bolladóttir hefur ákveðið að stefna íslenska ríkinu en hún krefst þess að niðurstaða endurupptökunefndar verði ógild.

Sáttaumleitanir að fara út um þúfur
Litlar líkur eru taldar á að sáttir náist utan dómstóla milli ríkisins og þeirra er sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Þrátt fyrir hækkuð tilboð stjórnvalda hefur einn hafnað því sem boðið er.

Þýsk stjórnvöld þurfi að axla sína ábyrgð á Geirfinnsmáli
Þýskur þingmaður segir að þýska ríkinu beri að bæta þolendum Guðmundar- og Geirfinnsmála þær þjáningar sem þýskur rannsóknarlögreglumaður hafi valdið þeim.

Falið að skoða ábendingar um hvarf Guðmundar og Geirfinns
Dómsmálaráðherra hefur sett Hölllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra til að taka afstöðu til ábendinga um mannshvörfin. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari tilkynnti ráðherra um vanhæfi sitt í desember. Ábendingar hafa komið fram um bæði mannshvorfin á undanförnum árum.

Dómsmálaráðuneyti með mál Erlu Bolladóttur til skoðunar
Forsætisráðherra hefur óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að mál Erlu Bolladóttur verði tekið til sérstakrar skoðunar. Erla var sú eina af dómfelldum í Guðmundar- og Geirfinnsmálum sem fékk mál sitt ekki endurupptekið.

Sáttanefnd vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála enn að störfum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að sáttanefnd vegna eftirmála Guðmundar- og Geirfinnsmála sé enn að störfum og bindur hún vonir við að heildarsamkomulag náist við þá fimm sem voru sýknaðir í Hæstarétti sem og afkomendur þeirra.

Fer fram á milljarð í miskabætur fyrir Guðjón Skarphéðinsson
Lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, eins sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, hefur krafist milljarðs króna í misabætur fyrir skjólstæðing sinn.

Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Finnst bæturnar ekki nógu háar
Sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru af öllum ákærum í september í fyrra hafa enn ekki borist formleg tilboð um bótagreiðslur.

Viljaleysi ríkisstjórnarinnar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum
Afi minn, eins og margir aðrir þolendur harðræðis af hálfu íslenskra yfirvalda, trúði því að á meðan lykilgerendur í ofbeldinu gegn honum væru enn á lífi myndi reynast útilokað að ná fram sannleika og réttlæti fyrir þær hörmungar sem hann þurfti að líða sem ungur maður.

Krefja þýsk stjórnvöld svara um Geirfinnsmál
Nokkrir þýskir þingmenn hafa lagt fram ítarlega fyrirspurn um rannsókn Geirfinnsmálsins. Spyrja sérstaklega um aðkomu hins þýska Karls Schütz. Fyrirspurninni beint til þýskra stjórnvalda og lögreglu. Lásu fyrst um málið í Grapevine.

Sex hundruð milljónir til skiptanna
Viðræður um bótafjárhæðir fara nú fram milli setts ríkislögmanns og þeirra sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálum síðasta haust. Því fé sem stjórnvöld hyggjast verja til sáttanna verður deilt milli fólksins meðal annars eftir lengd frelsissviptingar.

Buzzfeed fjallar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið
Nýjasti þáttur einnar vinsælustu þáttaraðar Buzzfeed, Buzzfeed: Unsolved, sem birtur var í gær, fjallar um ein þekktustu mannshvörf Íslandssögunnar.

Gætu krafið ríkið um fleiri milljarða í bætur
Engin leið er að vita hvernig dæmt yrði um bætur í Guðmundar- og Geirfinnsmálum færu þau fyrir dóm. Málin eru fordæmalaus. Ef byggt yrði á bótum til Klúbbmanna gæti heildarfjárhæðin numið nokkrum milljörðum króna.