Birtist í Fréttablaðinu

Bútasaumur í borginni
Veitinga- og kaupmenn eru ósáttir við flókna ferla og skilningsleysi í garð fyrirtækja í borginni. Uppbygging sé nauðsynleg, en samráð lítið. Dæmi um týndar umsóknir og regluverki lýst sem „völundarhúsi.“

Kveðst vonbetri eftir fund ráðherranna
Aðgerða er þörf í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Þetta sögðu forsætisráðherrar Norðurlandanna auk Þýskalandskanslara á blaðamannafundi í Viðey í gær. Forsætisráðherra Finna sagðist bjartsýnni í gær en fyrir fundinn.

Lögmannsstofurnar BBA Legal og Fjeldsted & Blöndal sameinast
Áætlað er að samruninn muni taka gildi í haust, samkvæmt heimildum Markaðarins. Samanlögð velta félaganna var um 860 milljónir króna í fyrra.

Meiri einhugur um framtíðarstefnuna
Stjórnarformaður Brims segir að eftir sölu Gildis á stórum hlut í fyrirtækinu megi vænta þess að meiri einhugur verði í hluthafahópinum. FISK Seafood sjái tækifæri í aukinni sölustarfsemi í Asíu eins og Brim.

Fulltrúi ríkisins blessaði 150 milljóna starfslok
Fulltrúi Bankasýslunnar í stjórn Arion banka gerði engar athugasemdir við breytingar á ráðningarsamningi þáverandi bankastjóra sumarið 2017.

Allrahanda tapaði hálfum milljarði
Ferðaþjónustufyrirtækið Allrahanda GL, sem rekur Gray Line og Airport Express, tapaði 517 milljónum á síðast ári. Fyrirtækið á í viðræðum við viðskiptabanka sinn um endurskipulagningu lána.

Stjórnarkrísa á Ítalíu eftir afsögn Conte
Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnti um afsögn sína í gær. Sakaði hann Matteo Salvini, leiðtoga Norðurbandalagsins, um að setja hagsmuni sína og flokks síns ofar hagsmunum landsins.

Baron með yfir tveggja milljarða hlut í Marel
Baron Capital er með eignir í stýringu að jafnvirði um þrjátíu milljarða Bandaríkjadala.

550 milljónir í hagnað
Stjórn félagsins hefur lagt til að greiddur verði út arður að fjárhæð 100 milljónir króna vegna síðasta rekstrarárs. Eigið fé félagsins nam 1.982 milljónum króna í árslok 2018 og eignir 3.695 milljónum.

Íslendingar gerðu tilkall til Grænlands fyrir sjálfstæði
Áætlanir Trumps Bandaríkjaforseta um að kaupa Grænland af Dönum hafa valdið töluverðri furðu og úlfúð. Framan af 20. öldinni héldu Íslendingar fram kröfu um yfirráð yfir Grænlandi þó að Ísland sjálft væri ekki orðið sjálfstætt.

Hagnaður Orfs líftækni fjórfaldast
Líftæknifyrirtækið Orf hagnaðist um 161 milljón króna á síðasta ári en það er um fjórfalt meiri hagnaður en árið á undan þegar hann nam 38 milljónum króna.

Þing og þjóð
Hér vil ég strax taka það fram að álit mitt á Alþingi Íslendinga er í dag minna en nokkru sinni fyrr.

Kveðjan
Það var djúp og ástríðufull hugsun að baki athöfninni sem fór fram nýlega við Ok, jökulinn sem nú er horfinn.

Enginn á vaktinni
Nýlega rakst ég á mann sem rekur lítið fyrirtæki með nokkra starfsmenn í hefðbundnum rekstri.

ESB og Ísland – þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður
Þar sem maður var staddur í sumarfríi á Ítalíu þá tók maður eftir því að matarverð er um það bil helmingi lægra en heima á Íslandi.

Hver níðist á neytendum?
Ólafur Arnarson svarar Sigmari Vilhjálmssyni

Hríðlækkandi verðbólga í kortunum
Heimshagkerfið stendur frammi fyrir krefjandi niðursveiflu líkt og flestum er kunnugt um og hafa væntingar alþjóðlegra fagfjárfesta um efnahagslegan samdrátt á heimsvísu ekki mælst hærri síðan í október 2011.

Orkupakkinn á Íslandi og fréttir frá Belgíu
Síðan þriðji orkupakkinn var tekinn til umræðu á Alþingi hefur mikill tími farið í að ræða þann fyrirvara sem ríkisstjórnin segist ætla að setja á innleiðinguna.

Hið Góða og hið Illa í pólitískum skilningi – aftur
Heimspekingur útskýrir eigin skrif.

Nándin í veikindunum
Ég hef leyft mér á þessum vettvangi að ræða um aðstæður heilabilaðra og ástvina þeirra.

Örfoka land ekki fest í sessi með þjóðgarði
Guðmundur Ingi Guðbrandsson leggur áherslu á að hægt verði að græða upp land á hálendi Íslands þrátt fyrir að það verði innan þjóðgarðs.

Össur ferðast með utanríkisráðherra
Guðlaugur Þór og Össur munu heimsækja ýmis fyrirtæki og sveitarfélög í suðurhluta Grænlands en þó nokkuð er um íslenskar fjárfestingar í þessum hluta landsins.

Líklega ekki síðustu uppsagnirnar
Mikið hefur verið fjallað um rekstrarvanda fyrirtækisins og þurfti ríkið meðal annars að veita 500 milljóna króna lán síðastliðið haust.

Umhverfisvæn rjúpnaskot á markað
Skotveiðiverslunin Hlað mun brátt selja umhverfisvæn haglaskot sem finnast víða erlendis. Forhlaðið er úr feltefni en ekki plasti sem oftast er notað, og mun það þá brotna hraðar niður í umhverfinu.

Breyting í gervigras kostar borgarbúa átta milljónir króna
Reykjavíkurborg samþykkti á borgarráðsfundi í síðustu viku að greiða Gröfu og grjóti ehf. um átta milljónir vegna riftunar borgarinnar á samningi vegna endurbóta á grasvelli sem hætt var við.

Ólíðandi brot
Brot á réttindum launafólks á íslenskum vinnumarkaði eru staðreynd. Þetta hefur lengi legið fyrir og nýleg skýrsla Alþýðusambandsins ætti því ekki að þurfa að koma á óvart. Umfang og eðli brotanna er hins vegar sláandi.

Fundað vegna tapreksturs Laugardalsvallarins
Tekjur KSÍ fyrstu sex mánuði ársins eru á pari við áætlanir. Tap á Laugardalsvelli vegna fækkunar á leikjum á vellinum. Sambandið fundar með Reykjavíkurborg vegna vallarins. Ekkert bruðl í landsliðsferðum. Yngri flokka leikir í boði á erlendum veðmálasíðum.

Mussila fékk gullverðlaun
Stafræni íslenski tónlistarleikurinn Mussila fékk virt foreldraverðlaun í Bandaríkjunum sem besta appið. Það eru þriðju verðlaunin sem honum hlotnast á ári.

Líklega hávær umræða um orkupakkann fram undan
Fundarhöld um þriðja orkupakkann héldu áfram í utanríkismálanefnd Alþingis í gær. Prófessor í stjórnmálafræði segir áhugavert að sjá hvar víglínan er dregin í málinu.

Svíþjóð auðveldari kostur en höfuðborgin
Mæðgur á Akureyri ákváðu að flytja til Svíþjóðar vegna menntaskólagöngu dótturinnar. Segja það ódýrari kost en að flytja til Reykjavíkur. Engin heimavist er við menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu, sem torveldar ungu fólki af landsbyggðinni.