

Katrín Halldóra Sigurðardóttir fór krókaleið að draumi sínum að verða leikkona. Með viðkomu í eldhúsi í leikskóla, þrælþungum kennslustundum í beygingarfræði í Háskólanum og söngnámi í Danmörku. Katrín komst inn í leiklistarskólann í þriðju tilraun.
Eyjólfur Pálsson hjá EPAL furðar sig á að fólk hafi áhuga á að eiga eftirlíkingar af hönnun. Ein slík eftirlíking rataði inn á borð til hans og hann segir muninn á ekta hönnun og eftirlíkingu vera augljósan.
Costco skók markaðinn í fyrra en kílóverð jarðarberja hefur hækkað þar um 21,8 prósent síðan í haust. Nú er svo komið að kílóverð jarðarberja hjá Costco reyndist það næsthæsta hjá þeim fimm verslunum sem Fréttablaðið gerði verðathugun hjá.
Allt að 50.000 almennir borgarar eru sagðir hafa flúið vígstöðvarnar í Afrin-borg og Austur-Ghouta í gær.
Fyrrverandi forseti Suður-Afríku dreginn fyrir dóm. Ákærður fyrir fjárdrátt, spillingu, fjársvik og peningaþvætti. Zuma neitar þó sök og mun væntanlega verjast með kjafti og klóm þótt hann geti ekki lengur treyst á stuðning ríkisins.
Atlantshafsbandalagið styður þétt við bakið á Bretum í Skrípal-deilunni. Jeremy Corbyn efast enn og nýtur ekki stuðnings tuga þingmanna flokks síns. Rússar hafa ekki áhyggjur af alþjóðlegum stuðningi við Breta.
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning grunnskólakennara hófst í gær. Viðmælendur Fréttablaðsins eru vonsviknir með þriggja prósenta hækkun. Væntingar til vinnuveitenda eftir fagra orðræðu undanfarið.
Á þingflokksfundi VG á mánudaginn verður reynt að bera klæði á vopnin og ræða um það sem aflaga hefur farið í samskiptum innan þingflokksins.
Sýningin Undraveröld Kron by Kronkron verður opnuð á sunnudaginn í Hönnunarsafni Íslands. Þar verða til sýnis þeir fjölmörgu skór sem Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson hafa hannað á 10 árum. Hugrún segir magnað að líta til baka í aðdraganda sýningarinnar.
Underworld spilar fyrir dansþyrsta í Hörpu um helgina. Þetta er í annað sinn sem hljómsveitin spilar á Íslandi en hún hélt tónleika hér á landi árið 1994 og meðlimir sveitarinnar gleyma seint þeirri nótt.
Á síðustu 10 árum, áratug breytinga, hafa átt sér stað margvíslegar byltingar.Á sama áratug hefur líka átt sér stað stafræn bylting. Fyrst tengdust fyrirtæki netinu, svo heimilin okkar, nú við einstaklingarnir og næst allt annað.
Fallegar hönnunarvörur geta svo sannarlega lífgað upp á heimilið og glatt augað en það virðist ekki skipta sumt fólk máli hvort hönnun er ekta eða eftirlíking.
Ekkert var athugavert við köfunarferð ferðaþjónustufyrirtækis í Silfru í janúar 2016. Kínversk kona lést eftir slys í ferðinni. Kröfu manns hennar um bætur var hafnað af úrskurðarnefnd í vátryggingamálum.
Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs, segir sjóðinn ekki hafa náð að líta á launahækkun forstjóra N1. Gildi er einn stærsti hluthafi olíufélagsins.
Þúsundir almennra borgara flúðu Austur-Ghouta í Sýrlandi í gær.
Samskiptin innan VG eru stirð og hafa verið það í nokkurn tíma að mati þingflokksformanns VG. Ekki sé búið að hreinsa loftið eftir atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á dómsmálaráðherra.
Kona sem slegin var af fyrrverandi unnusta sínum, með þeim afleiðingum að hljóðhimna rofnaði og tönn losnaði, á ekki rétt á bótum úr fjölskyldutryggingu sinni.
Ingvar Jónsson, oddviti framboðslista Framsóknarflokks í borgarstjórnarkosningunum í maí, hefur tekið við sem áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur.
Verslanir Toys 'R' Us á Íslandi eru reknar af dönsku fyrirtæki.
Vesturveldin segja í sameiginlegri yfirlýsingu að Rússar hafi framið svívirðilegan glæp með því að ráðast á Sergei Skrípal og dóttur. Rússar neita enn sök.
Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um rafrettur gengur enn lengra en frumvarp forvera hennar, Óttars Proppé.
Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segir fréttir af skattlagningu styrktarsjóða hafi hrist upp í mönnum. Vill að málið verði tekið til skoðunar. Eðlilegt væri að frumkvæðið komi frá ráðuneytinu, en ekki útilokað að nefndin
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun funda með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, á mánudaginn.
Tveimur var í vikunni sagt upp hjá Fríhöfninni ehf., einkahlutafélagi sem er alfarið í eigu Isavia ohf.
Kona, sem slasaðist í Reynisfjöru í hópferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis, fær helming tjóns síns bættan úr ábyrgðartryggingu fyrirtækisins.
Sýslumaður kyrrsetti eignir meðlima Sigur Rósar upp á tæplega 800 milljónir króna vegna meintra skattalagabrota. Hljómsveitarmeðlimir mótmæltu allir.
Laun og hlunnindi fimm helstu stjórnenda N1 hf. námu rúmum 210 milljónum króna í fyrra og hækkuðu um nærri 30 milljónir milli ára. Laun og hlunnindi forstjórans hækkuð um 20,7 prósent, eða sem nemur rúmri milljón á mánuði
Skóla- og fræðsluráð Reykjavíkurborgar vinnur nú að því, í samvinnu við þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, að fjölga nemendum í atvinnutengdu námi. Framkvæmdastjóri skóla- og fræðslusviðs segir verkefnið svínvirka.
Á þriðja tug almennra borgara, sem þurftu nauðsynlega að komast undir læknishendur, tókst í gær að flýja Austur-Ghouta í Sýrlandi.
Mæna er tímarit um hönnun sem kemur nú út í níunda sinn. Tímaritið er gefið út af hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands og hannað af þriðja árs nemum í grafískri hönnun. Í dag verður haldið upp á útgáfuna í Hafnarhúsinu í Reykjavík.