Birtist í Fréttablaðinu

Rauði þráður Reykjavíkur
Ilmurinn er lokkandi. Hann fyllir vitin og freistar. Dáleiðir íbúana í biðröðinni.

Spyr hvaða reglur gildi um umræður stofnana á samfélagsmiðlum
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, vill fá að vita hvaða reglur gilda um notkun og þátttöku ríkisstofnana í umræðum á samfélagsmiðlum.

Plokkarar fylltu poka á alþjóðlegum degi jarðar
Plokkarar um allt land héldu út í vorblíðunni í gær og tíndu rusl. Markmiðið var að hreinsa fjögur þúsund kílómetra. Svo virðist sem enginn skortur sé á rusli.

Síendurteknar árásir á afganska kjósendur
Fjórar árásir á fólk sem beið eftir að vera skráð á kjörskrá. ISIS lýsti yfir ábyrgð á árás gærdagsins þar sem 57 féllu. Kosið til þings í október. Kosningunum ítrekað verið frestað af öryggisástæðum.

Spilar á sögufrægt James Bond og Bítla-horn
Hornið sem Kjartan Ólafsson, lektor og formaður félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri, leikur á var áður í höndunum á John H. Burden sem blés í hornið fyrir margar frægustu kvikmyndir allra tíma.

Ákærður fyrir 50 milljóna króna skattsvik
Sigurður Ragnar Kristinsson, eiginmaður Sunnu Elviru Þorkelsdóttur, og tveir aðrir hafa verið ákærðir fyrir skattsvik sem tengjast fyrirtækinu SS verk ehf. Meint skattsvik nema um 100 milljónum króna.

Handtóku mótmælendur í stórum stíl
Nærri 200 mótmælendur og þrír leiðtogar stjórnarandstöðunnar voru handteknir í Armeníu í gær.

Tíu ár frá gas, gas, gas
Sturla Jónsson segir ástandið hafa versnað frá mótmælum vörubílstjóra á Suðurlandsvegi fyrir tíu árum. Hiti var í mótmælunum og sá lögregla sig knúna til þess að beita piparúða. Steinum og eggjum var kastað í lögreglu.

Afsökunarbeiðni skref í átt að upplausn ETA
Aðskilnaðarsamtök Baska biðjast afsökunar. Höfðu áður lagt niður vopn. Gerðu fjölda árása og myrtu meðal annars forsætisráðherra á sínum tíma. Afsökunarbeiðninni hafnað. Spænska ríkið fer fram á skilyrðislausa upplausn.

Lokins er ég lifandi
Sársaukinn sem Alexandra Sif Herleifsdóttir fann fyrir þegar hún varð fyrir grófu einelti sem barn þróaðist í kvíða og alvarlegt þunglyndi eftir því sem hún eltist.

Klukkan gæti slegið sitt síðasta slag
Hamburger SV gæti fallið úr þýsku Bundesliga-deildinni í dag en HSV er eini stofnaðilinn sem hefur aldrei fallið úr efstu deild Þýskalands.

Biðlistar eru ekki bara tölur á blaði
Leifur Á. Aðalsteinsson bíður eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Það tók spítalann tvo og hálfan mánuð að svara hvort tilvísun hans væri móttekin. Hann fær viðtal við bæklunarlækni eftir fjóra til fimm mánuði.

Gini hvað?
Það mætti halda, svona miðað við umræðuna, að hvergi á byggðu bóli væri meiri ójöfnuð að finna en hér á Íslandi.

Krúttlega Ísland
Mál strokufangans Sindra Þórs Stefánssonar er um margt lýsandi fyrir okkar litlu og saklausu þjóð.

Að leggjast með hundum
Hneyksli skekur nú Bretland. Upphaf þess má rekja til endaloka síðari heimsstyrjaldarinnar. Í kjölfar styrjaldarinnar ríkti skortur á vinnuafli í Bretlandi.

Vilja gera RÚV að áskriftarsjónvarpi
Landsþing Miðflokksins fer fram um helgina.

Ill nauðsyn að sækja fólk til saka segir formaður FRÍSK
Formaður FRÍSK segir dóm yfir manni sem deildi Biggest Loser á deildu.net senda skilaboð um að höfundarréttarbrot séu ekki í lagi.

Ókeypis sálfræðitímar hjá ömmu
Tæpt ár er liðið síðan Jóhanna Kristjónsdóttir lést eftir baráttu við krabbamein. Í hálfa öld bjó hún í græna húsinu við Drafnarstíg sem verður áfram ættaróðal þar sem Máni Hrafnsson hefur keypt húsið.

Tekjutap í breyttu umhverfi
Mennta- og menningarmálaráðherra horfir til Norðurlandanna og Bretlands vegna breytinga á starfsumhverfi fjölmiðla. Dönsk stjórnvöld hafa kynnt tillögur til að bregðast við rekstrarstöðu fjölmiðla.

Blaðamennirnir leiddir í gildru
Lögreglustjóri í Mjanmar skipaði lögregluþjónum að leiða tvo blaðamenn Reuters í gildru.

Freyja segir mikilvægt að finna fyrir stuðningi í baráttu sinni
Freyja segir málið fyrst og fremst snúast um að fatlaðir njóti sömu málsmeðferðar og ófatlaðir. Fullt var út úr dyrum í dómssal Héraðsdóms Reykjavíkur í gær þegar málið var tekið fyrir og færri komust að en vildu.

Segjast hafa mikið af gögnum gegn Sindra
Vísað er til mikils magns sönnunargagna í þeim gæsluvarðhaldsúrskurðum sem kveðnir hafa verið upp yfir Sindra Þór Stefánssyni. Símagögn, upplýsingar um bílaleigubíla og teikningar af gagnaverum eru meðal þess sem lögreglan skoðar.

Sumar?
Árstíðirnar á Íslandi eru aðeins tvær; vetur og haust.

Kreddur
Rekstrarskilyrði í íslensku atvinnulífi hafa versnað til muna á síðustu árum.

Nýjar niðurstöður lofa góðu í baráttunni gegn lungnakrabba
Miklar vonir eru bundnar við frekari árangur í að virkja ónæmisfrumur í baráttunni við krabbamein. Ný rannsókn sýnir fram á það hvernig ný tegund lyfja eykur lífslíkur sjúklinga þegar þau eru notuð samhliða hefðbundnum krabbameinslyfjum. Krabbamein í lungum dregur um 1,7 milljónir manna til dauða árlega.

Ungt knattspyrnufólk á betra skilið frá KSÍ
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum undrast að við undirritun samnings um Mjólkurbikarinn hafi áfengisauglýsing á búningi sést. „Einstaklega óviðeigandi og ósmekklegt,“ segir formaður samtakanna.

Yfirlýsing frá Sindra: „Ég kem fljótlega“
Sindri Þór Stefánsson, sem strauk úr fangelsinu að Sogni og flúði land aðfaranótt þriðjudags, sendi Fréttablaðinu yfirlýsingu, þar sem hann útskýrir sína hlið máls.

Kalkúnar og kjúklingar
Þegar kalkúnn er eldaður í ofni þarf einkum að taka tillit til þriggja þátta; hitastigs í ofninum, eldunartíma og þyngdar fuglsins

Úrræði fyrir börn í fíknivanda
Undirritaður hefur lagt mikla áherslu á málefni barna og í undirbúningi er vinna sem miðar að því að gera breytingar á velferðarkerfinu til að styrkja stöðu barna auk þess að endurskoða barnaverndarlögin.

Vill að Karl leiði breska samveldið
Elísabet önnur Bretlandsdrottning bað í gær leiðtoga breska samveldisins um að gera Karl Bretaprins að þjóðhöfðingja samveldisins eftir hennar dag.