

Hluthafar vottunarstofunnar Vottun hf. hafa selt hana starfsmönnum fyrirtækisins. Talsverð vandræði hafa verið á rekstri fyrirtækisins en það missti faggildingu sína um tíma fyrir tæpu ári.
Forseti Frakklands og kanslari Þýskalands fordæmdu í gær hernað Tyrkja í norðurhluta Sýrlands. Ákvörðun Bandaríkjaforseta um að senda herlið sitt heim mætir því helst gagnrýni heima fyrir. Átökin fara enn harðnandi.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segist sjá fram á að samningar takist um Brexit fyrir lok mánaðarins þegar Bretar eiga að ganga úr ESB. Hann viðurkennir þó að mikil vinna sé enn óunnin.
Lýðræðisfélagið Alda skorar á stjórnvöld að hafa lýðræðislegt samráð um framtíðarskipan bankakerfisins.
Aðeins ellefu af þeim 29 málum sem ríkisstjórnin hugðist samkvæmt þingmálaskrá leggja fram í september eru fram komin á Alþingi.
Dómsmálaráðherra hefur enn ekki brugðist við tillögum Dómstólasýslunnar um fjölgun dómara við Landsrétt. Þó að tillagan gæti leyst vanda Landsréttar og sparað ríkissjóði kostnað er hún ekki óumdeild.
Fordómar í garð þeirra sem ekki tala íslensku hafa slæm áhrif á viðhorf þeirra sömu til tungumálsins. Framkvæmdastjóri Retor segir íslenskuna ekki erfiðari en önnur tungumál. Fólk þurfi bara sanngjarnt tækifæri til að tala hana.
Í tengslum við kvikmyndaverðlaunin stendur Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film og TV Fond) fyrir sýningum á tilnefndum myndum í samstarfi við kvikmyndahús á Norðurlöndunum. Af því tilefni mun Bíó Paradís sýna allar fimm tilnefndu myndirnar og bjóða upp á Norræna kvikmyndaveislu dagana 15. til 20. október.
Það er ekki auðvelt að vera uppistandari, greinahöfundur eða skopmyndateiknari þessa dagana. Menn eru sífellt að móðga einhvern sem fer beina leið á netmiðlana og ásakar viðkomandi fyrir rasisma, kvenfyrirlitningu, hommahatur eða afneitun á umhverfisvandanum. Netið hefnir sín síðan grimmilega á hverjum þeim sem ekki fylgir óskráðum leikreglum þess.
Þótt ég sé búsett í Bretlandi og Brexit vofi yfir hef ég ekki gripið til nokkurra varúðarráðstafana. Fari svo að Bretland hverfi samningslaust úr Evrópusambandinu 31. október næstkomandi er spáð bæði matvæla- og lyfjaskorti í landinu.
Við lifum í upplýstu þjóðfélagi þar sem tekið er mark á niðurstöðum vísindamanna um loftslagsmál. Við erum ekki þjóð sem afneitar þeim vegna þess að þær þykja óþægilegar og raska þeirri heimsmynd sem við viljum búa við. Eða hvað?
Lára Jónasdóttir vinnur hjá Læknum án landamæra og hefur ferðast víða um heim starfs síns vegna. Hún er fædd í Reykjavík árið 1981 og ólst upp hjá foreldrum sínum í Árbænum. Hún hefur starfað að mannúðarmálum meðal annars í Suður-Súdan, Palestínu, Afganistan og Bangladess.
Fjölmiðlamaðurinn Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz, hefur fjárfest í tveimur íbúðum á Ásbrú og leigir þær nú þegar út. Hann segist hafa trú á steypu og Reykjanesi.
Karen Halldórsdóttir segir frá þeirri stund þegar hún færði börnum bróður síns fréttir sem urðu þeim þungt áfall. Að hann sæti í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegra kynferðisbrota.
Ný skýrsla Eurostat sýnir að íslenskur almenningur sinnir meiri umönnun en aðrar þjóðir og langtum meiri en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Formaður Öryrkjabandalagsins segir þessar niðurstöður ríma vel við það sem hefur verið haldið hér fram, að hið opinbera velti ábyrgðinni yfir á fjölskyldur.
Það var greinilegt af svörum Didiers Deschamps, þjálfara franska landsliðsins og Raphaels Varane, fyrirliða liðsins í fjarveru Hugo Lloris, að þeir kæmu ekki til með að vanmeta Ísland í kvöld þegar flautað verður til leiks á Laugardalsvelli.
Ísland leikur í kvöld við Frakkland í undankeppni EM 2020 í knattspyrnu karla. Frakkland og Tyrkland eru fyrir umferðina á toppi riðilsins en Ísland kemur þar á eftir.
Söngkonurnar Gerður Bolladóttir og Alexandra Chernyshova sungu eigin tónlist í Pétursborg við píanóleik Kjartans Valdimarssonar og hlutu lof hlustenda.
Sjón og Pétur Gunnarsson fagna niðurstöðunni og segja frá verkum þeirra. Pétur hefur þýtt verk eftir Handke og skáldsaga Tokarczuk hreif Sjón mjög.
Fjöldi laxa sem veiddist á stöng í sumar var sá minnsti frá árinu 2000 og sjöundi minnsti frá 1974. Þetta sýna bráðabirgðatölur sem Hafrannsóknastofnun birti í gær.
Fólk sem keypti íbúðir í Gerplustræti 2-4 í byrjun árs 2018 getur loks flutt inn á næstunni. Afhenda átti í apríl í fyrra.
Landhernaður hafinn í Kúrdahéröðum Sýrlands. Tyrkir hafa þegar náð smábæjum við landamærin og mannfall eykst með hverjum klukkutímanum.
Starfsmenn Reykjalundar lýsa yfir vantrausti á stjórn SÍBS og vilja að ráðherra grípi inn í stöðuna. Stjórnarformaður segir fjarstæðukennt að verið sé að ásælast fé Reykjalundar og skilur ekki hvers vegna verið sé að láta skoðanaágreining bitna á sjúklingum.
Alþýðusamband Íslands leggst gegn fyrirhuguðu frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um þrepaskiptingu og lækkun erfðafjárskatts.
Kristín Eva Geirsdóttir er konan sem Sverrir Bergmann syngur fyrir alþjóð að hann elski mest í heimi. Hann uppskar ást hennar eftir vinarbeiðni á Facebook.
Göngin, sem verða á milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar, verða lengstu göng á landinu, 13,5 kílómetrar.
Skútustaðahreppur segir stíflu Neyðarlínunnar í Drekagili sjöfalt lengri en leyfi var fyrir og afturkallar leyfið. Framkoma framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar sögð ósæmandi. Stjórn Neyðarlínunnar harmar hnökra á samskiptum.
Borgar- og bæjarstjórar níu sveitarfélaga á norðurslóðum undirrituðu við hátíðlega athöfn á Akureyri í gær stofnskjal Arctic Mayors Forum og formfestu þar með samtal og samstarf sveitarstjórnarstigsins á norðurslóðum.
Lífið er of stutt fyrir vont kaffi, of stutt fyrir rauðvínssull úr neðstu hillu og of stutt fyrir bíómyndaáhorf undir 6,0 á IMDb.
Á þessu hausti eru 100 ár liðin frá stofnun stærðfræðideildar í Menntaskólanum í Reykjavík. Af þessu tilefni var nýverið haldið skemmtilegt málþing um notkun stærðfræði og mikilvægi góðrar stærðfræðikennslu á Sal MR.