Kvikugangur talinn ná langleiðina að flugvallarstæði Hvassahrauns Vísindamenn Veðurstofunnar áætla að kvikugangurinn sem myndaðist í gær sé hátt í tuttugu kílómetra langur. Þeir telja enn möguleika á nýju gosi á norðausturhluta kvikugangsins en taka þó fram að það sé að verða ólíklegra með tímanum. Innlent 2. apríl 2025 21:43
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11. mars 2025 23:17
Eldfjallafræðingur segist frekar á því að goshrinunni sé lokið Eldfjallafræðingur telur að Sundhnjúksgígaröðin gæti kannski náð einu eldgosi í viðbót en segist þó frekar á því að goshrinunni þar sé lokið. Hann spáir því að Eldvörp og Reykjanestá verði næstu gossvæði. Innlent 10. mars 2025 21:30
„Þetta eru auðvitað náttúruhamfarir“ Stór svæði eru á floti í Suðurnesjabæ eftir veðrið sem hefur gengið þar yfir síðustu daga. Bæjarstjórinn segist lengi hafa kallað eftir bættum sjóflóðavörnum á svæðinu. Bryggjunni í Vogum hefur verið lokað vegna skemmda. Innlent 4. mars 2025 21:22
Bryggjunni í Vogum lokað vegna skemmda Bæjaryfirvöld í Vogum hafa ákveðið að loka bryggjunni í bænum tímabundið vegna skemmda sem urðu á henni í óveðri síðustu daga. Innlent 4. mars 2025 12:59
Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Stefnt er að því að reisa stærðarinnar hús í Vogum, undir verslun og þjónustu fyrir íbúa Suðurnesja, íbúa höfuðborgarsvæðisins sem og túrista. Ráðgert er að húsið geti orðið allt að 30 þúsund fermetrar. Innlent 22. febrúar 2025 21:00
Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Fasteignaþróunarfélagið Íslenskar fasteignir og landeigendur Heiðarlands Vogajarða í Sveitarfélaginu Vogum hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu verslunar- og þjónustukjarna við gatnamót Reykjanesbrautar og Vogavegar. Innlent 21. febrúar 2025 23:23
Tafir á Reykjanesbraut og víða óvissustig Færð er farin að spillast á Reykjanesbraut og eru nú umferðartafir vegna þessa. Það sem af er morgni hafa tvö ökutæki runnið út af veginum, en ekki hafa þó orðið meiðsl á fólki. Innlent 30. janúar 2025 07:46
Fimmtungsfjölgun íbúa í Vogum á síðasta ári Íbúum Sveitarfélagsins Voga á Suðurnesjum fjölgaði um tuttugu prósent á síðasta ári og virðist ekkert lát vera á fjölguninni því það er byggt og byggt i sveitarfélaginu. Innlent 26. janúar 2025 14:05
Ný heilsugæslustöð opnuð í Vogum Mikil ánægja er hjá íbúum Sveitarfélagsins Voga því ný heilsugæslustöð var að opna í bæjarfélaginu en engin slík stöð hefur verið þar eftir Covid. Innlent 18. janúar 2025 21:07
Kviknaði í frystihúsinu út frá flugeldum Eldur í gömlu fiskvinnsluhúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd kviknaði út frá flugeldum. Rúnar Eyberg Árnason varðstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja segir eldinn hafa virst meiri en hann var þegar slökkvilið kom á vettvang um miðnætti í nótt. Slökkvistarf tók um klukkutíma. Innlent 30. desember 2024 09:08
Eldsvoði í gömlu frystihúsi í Vogum Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði við Hafnargötu í Vogum á Vatnsleysuströnd í kvöld. Innlent 30. desember 2024 00:40
Hafi brugðið að sjá dönsk egg í verslunum hér á landi Framkvæmdastjóri Nesbúeggja segist hafa brugðið að sjá dönsk innflutt egg til sölu í verslunum hér á landi. Hann segir stöðu eggja á Íslandi óþarflega tæpa eins og er. Innlent 6. desember 2024 21:22
Guðrún ráðin bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga Guðrún P. Ólafsdóttur verður bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Ráðning hennar var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sveitarfélagsins í gær og tekur formlega gildi eftir bæjarstjórnarfund í næstu viku samkvæmt tilkynningu. Innlent 5. desember 2024 15:27
Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum minnir á að svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar er talið mengað af sprengjum, bæði virkum og óvirkum. Tilefnið er umferð ferðamanna um svæðið vegna eldgossins sem hófst í gærkvöldi. Innlent 21. nóvember 2024 11:52
Vita ekki hvað fór úrskeiðis Rannsókn á vettvangi eldsvoðans sem varð í einu húsi eggjabúsins Nesbús á Vogum á Vatnsleysuströnd um helgina er lokið. Ekki ligggja fyrir upplýsingar að svo stöddu um það hvað fór úrskeiðis. Rannsókn lögreglu heldur því áfram. Innlent 19. nóvember 2024 20:53
Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Brunavarnir Suðurnesja sinntu krefjandi verkefni í nótt, þegar eldur kom upp í eggjabúi á Vatnsleysuströnd. Baráttan við eldinn fór fram í sex stiga frosti og stóð yfir í margar klukkustundir. Mikil áskorun var að tryggja að eldur breiddist ekki yfir í fleiri byggingar. Innlent 17. nóvember 2024 21:36
Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Framkvæmdastjóri Nesbús segir eldsvoða sem kviknaði í varphúsi eggjabúsins í nótt vera mikið áfall. Erfitt sé að meta tjónið en bygging á sambærilegu húsi kosti um 150 milljónir. Betur fór þó en á horfðist þökk sé brunavörnum og starfi slökkviliðs. Innlent 17. nóvember 2024 11:09
Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Um sex þúsund hænsni drápust í eldsvoða á eggjabúi Nesbús við Voga á Vatnsleysuströnd í nótt. Slökkvilið glímdi við eldinn í þaki eins vinnslurýma búsins langt fram á morgun. Innlent 17. nóvember 2024 07:39
Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Gunnar Axel Axelsson lét af störfum sem bæjarstjóri Voga í dag vegna veikinda, en hann hefur verið að glíma við langtímaafleiðingar af Covid 19. Innlent 18. október 2024 18:01
Alelda bíll á Reykjanesbraut Bíll stendur í ljósum logum á Reykjanesbrautinni en ekki hefur verið tilkynnt um nein slys á fólki. Innlent 3. október 2024 15:00
Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Eldfjallafræðingur segir marga aðra staða á landinu betri valkost fyrir varaflugvöll en Hvassahraun. Sama vá steðji að því svæði og að flugvöllunum í Reykjavík og Keflavík. Betra sé að hafa ekki öll eggin í sömu öskjunni. Innlent 2. október 2024 12:35
Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Innviðaráðherra og borgarstjóri hallast að því að haldið verði áfram að undirbúa flugvöll í Hvassahrauni, eftir að starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri afar lítil. Innlent 1. október 2024 20:20
Flugvöllur í Hvassahrauni alls ekki úr myndinni Niðurstöður starfshóps um byggingu flugvallar í Hvassahrauni eru þær helstar að ólíklegt sé að náttúruvá hafi áhrif á flugvöll á svæðinu, engin veðurskilyrði mæli gegn valinu og líklega verði ekki mikil langtímaáhrif á eftirspurn í innanlandsflugi ef af flutningi þess verður í Hvassahraun. Innlent 1. október 2024 11:15
Bein útsending: Kynna niðurstöður um flugvöll og samgöngur Niðurstöður tveggja starfshópa um rannsóknir á byggingu flugvallar í Hvassahrauni og almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar verða kynntar á blaðamannafundi klukkan 11 í Hafnarborg í Hafnarfirði. Innlent 1. október 2024 10:01
Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur í samstarfi við Sveitarfélagið Voga boðar til upplýsingafundar með íbúum Voga í tengslum við jarðhræringar á svæðinu. Á fundinum munu meðal annars fulltrúar Veðurstofunnar og Umhverfisstofnunar vera með erindi og sitja fyrir svörum. Innlent 26. september 2024 19:00
Vilja halda áfram sameiningarviðræðum á Suðurnesjum Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti í gær að vísa tillögu um að hefja formlegar viðræður við nágrannasveitarfélögin Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ um sameiningu, annaðhvort eða bæði, til síðari umræðu. Innlent 12. september 2024 10:34
Geta haldið bæjum á Reykjanesi frostfríum með nýfundnum jarðhita Jarðhitaleit á Reykjanesi sem var flýtt vegna hættunnar á að eldhræringarnar þar yllu heitavatnsleysi hefur borið árangur umfram væntingar. Þrjár rannsóknarborholur eru sagðar nýtanlegar hver með sínum hætti. Innlent 9. september 2024 16:03
Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Innlent 7. september 2024 12:13
Margfölduð áhrif þegar gasmengun og svifryk blandast Líkur eru á áframhaldandi loftmengun í Vogum og Suðurnesjum í dag. Áhrif á loftgæði margfaldast þegar gasmengun frá eldgosinu blandast við svifryk frá gróðureldum á svæðinu. Vonir eru bundnar við að mikil úrkoma slökkvi eldana næsta sólarhringinn. Innlent 31. ágúst 2024 11:00