Eins og lítil sinfónía Hljómsveitin Dikta fær góða dóma á þýsku tónlistarsíðunni Pop100.com fyrir plötu sína Get It Together sem kom út þar í landi fyrir skömmu. Tónlistin er sögð ekki jafnflott og Geysir eða Sigur Rós en samt mjög góð. Tónlist 31. mars 2011 14:00
Syngur á plötu Arctic Monkeys Josh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, syngur á væntanlegri plötu bresku sveitarinnar Arctic Monkeys. Gripurinn nefnist Suck It And See og er væntanlegur í byrjun júní. Tónlist 31. mars 2011 06:00
Hentu eldri upptökunum Þjóðlagapoppararnir í Fleet Foxes þurftu að taka upp sína nýjustu plötu, Helplessness Blues, tvisvar sinnum. Lífið 29. mars 2011 21:00
Skálmöld slær í gegn Víkingarokkssveitin Skálmöld situr nú í toppsæti Tónlistans aðra vikuna í röð með plötu sína Baldur. Þetta telst að mörgu leyti óvenjulegt, yfirleitt eiga harðar rokksveitir á borð við Skálmöld ekki upp á pallborðið hjá almenningi en blómstra frekar í einangruðum kreðsum tónlistarinnar. Innlent 26. mars 2011 10:03
Týndri plötu lekið á netið Plötu Davids Bowie, Toy, sem útgáfufyrirtæki hans hætti við að gefa út árið 2002, hefur verið lekið á netið. Á plötunni eru nýjar útgáfur af mörgum af hans eldri lögum, þar á meðal In the Heat of the Morning og Liza Jane, fyrsta smáskífulaginu hans. Platan kom aldrei út á vegum Virgin, meðal annars vegna höfundarréttarmála. Eftir að Bowie stofnaði eigið útgáfufyrirtæki, ISO, hafa fimm lög af plötunni verið gefin út. Bowie hefur ekki gefið út nýja plötu í átta ár. Lítið hefur spurst af honum síðan hann gekkst undir hjartaaðgerð árið 2004. Lífið 24. mars 2011 10:30
Apparat tvisvar á Sódómu „Við spiluðum oft á stöðum eins gamla Grand rokki þar sem var troðið af fólki og hávaði og stemning,“ segir Úlfur Eldjárn úr hljómsveitinni Apparat Organ Quartet. Lífið 24. mars 2011 09:00
Tók upp plötu á iPhone Michael Stipe, söngvari R.E.M., segist hafa tekið upp síðustu plötu hljómsveitarinnar á iPhone-símann sinn. Platan Collapse Into Now kom út 7. mars og á meðal gesta á henni eru Eddie Vedder úr Pearl Jam, Patti Smith og Peaches. Lífið 24. mars 2011 07:00
Platan Watch The Throne tilbúin Upptökustjórinn Guru sem er að vinna að nýjustu plötu rapparanna Jay-Z og Kanye West segir að gripurinn sé nánast tilbúinn. Útgáfudagur hefur samt ekki verið ákveðinn. „Ég er að reyna að fá Jay og Kanye til að drífa sig að klára Watch The Throne því heimurinn þarf að hlusta á þessa plötu,“ sagði hann. „Það þarf að lagfæra nokkur smáatriði en annars er platan tilbúin. Kanye vill bæta við það sem upptökustjórar gera og í því liggur snilligáfa hans.“ Lífið 24. mars 2011 06:00
Manchester bíður eftir Björk - Tónleikar á Íslandi ekki ákveðnir enn Björk Guðmundsdóttir frumflytur tónlist af plötu sinni Biophilia í sumar með aðstoð hugbúnaðar og nýrra hljóðfæra, þar á meðal stafræns pípuorgels og tíu metra pendúls. Lífið 23. mars 2011 17:00
Pearl Jam býr til plötu Rokkararnir í Pearl Jam byrja í næsta mánuði að taka upp sína tíundu hljóðversplötu. Síðasta plata sveitarinnar, Backspacer, kom út árið 2009. "Við gerðum fullt af prufuupptökum og við erum með 25 möguleg lög,“ sagði bassaleikarinn Jeff Ament. Lífið 22. mars 2011 14:00
Framleiða kvikmynd Breska hljómsveitin Coldplay tekur þátt í fjármögnun kvikmyndarinnar Ashes með Ray Winstone í aðalhlutverki. Um spennumynd er að ræða sem Mat Whitecross, sem hefur leikstýrt mörgum myndböndum fyrir Coldplay, mun leikstýra. Söngvarinn Chris Martin og félagar verða einnig titlaðir sem meðframleiðendur myndarinnar. Ekki hefur verið ákveðið hvenær ræman kemur út. Coldplay er þessa dagana að taka upp sína nýjustu plötu. Tvö ár eru liðin síðan sú síðasta, Viva la Vida or Death and All His Friends, kom út. Lífið 21. mars 2011 09:00
Dúett með Doom Thom Yorke, söngvari Radiohead, er að vinna að nýrri plötu með bandaríska rapparanum Doom. „Við erum að vinna að nokkrum dúettum,“ sagði Doom. Þetta er á byrjunarstigi en við munum örugglega taka upp stóra plötu saman.“ Yorke er mikill aðdáandi rapparans og endurhljóðblandaði lag hans, Gazzillion Ear, fyrir tveimur árum. Yorke hefur unnið með fleirum að undanförnu því stutt er síðan hann tók upp smáskífulag með Four Tet og Burial. Skömmu áður tróð hann óvænt upp sem plötusnúður á klúbbi í Los Angeles. Nýjasta plata Radiohead, The King of Limbs, kom út í síðasta mánuði. Lífið 19. mars 2011 17:00
Lét drauminn rætast og gerði plötu með pabba "Þetta er hlutur sem ég þurfti að gera áður en ég varð þrítugur," segir Oddur Snær Magnússon, sonur tónlistarmannsins Magnúsar Kjartanssonar. Lífið 18. mars 2011 09:00
Fyrsta sólóplata Begga Smára Fyrsta plata tónlistarmannsins Begga Smára nefnist Mood og kemur út eftir um það bil mánuð. Þar blandar hann saman blús, sálartónlist og poppi. Við upptökurnar leitaðist hann við að ná sama hljómi og er á plötu Englendingsins Pauls Weller, Stanley Road, sem kom út 1995. Lífið 17. mars 2011 15:00
Retro skrifaði undir í Berlín Meðlimir hljómsveitarinnar Retro Stefson voru fyrr í vikunni staddir í Berlín þar sem þeir skrifuðu undir útgáfusamning við Vertigo sem risinn Universal er með á sínum snærum. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að samningur við Universal væri í bígerð og hann hefur nú verið undirritaður af hljómsveitarmeðlimum. Lífið 12. mars 2011 13:00
Geimsteinn haslar sér völl í hipphoppinu "Ég er búinn að fá grænt ljós frá Geimsteini,“ segir rapparinn Emmsjé Gauti. Gauti hyggst senda frá sér fyrstu plötuna sína í maí og segir að um sumargrip sé að ræða. Hann hefur verið áberandi í hipphopp-senunni undanfarin misseri og söng meðal annars með Erpi Eyvindarsyni í laginu Elskum þessar mellur í fyrra. Lífið 9. mars 2011 10:00
Högni í Hjaltalín syngur á nýjustu plötu GusGus Ný plata GusGus, Arabian Horse, kemur út 9. maí. Högni í Hjaltalín syngur með Daníel Ágústi í tveimur lögum og syngur svo eitt upp á eigin spýtur. Lífið 9. mars 2011 09:30
Alex Metric þeytir skífum Breski plötusnúðurinn Alex Metric spilar á Nasa í kvöld. Hljómsveitin Bloodgroup sér um upphitun. Metric kom sá og sigraði á síðustu Iceland Airwaves-hátíð. Undanfarið hefur hann hitt í mark víða um Evrópu með laginu Open Your Eyes sem hann gerði í samvinnu við Steve Angello, einum af meðlimum hópsins Swedish House Mafia. Metric er þessa dagana að vinna að sinni fyrstu plötu sem kemur út í sumar og verður gefin út hjá EMI. Hún inniheldur nýtt efni ásamt endurhljóðblandaðri útgáfu af laginu Sabotage með Beastie Boys sem hefur verið vinsælt að undanförnu. Lífið 4. mars 2011 08:00
Liam ræðst á Radiohead Skiptar skoðanir eru um nýjustu plötu hljómsveitarinnar Radiohead, The King of Limbs, sem kom út á dögunum. Platan hefur þó fengið fína dóma gagnrýnenda og er með 81 af 100 mögulegum í meðaleinkunn á vefsíðunni Metacritic.com. Lífið 3. mars 2011 12:00
Sannfærandi stílæfingar Þótt platan sé vel heppnuð og það megi hafa gaman af henni þá hljómar hún samt of mikið eins og þetta séu stílæfingar,- eins og Groundfloor eigi enn eftir að finna sína fjöl tónlistarlega séð. Ég spái því að það komi á næstu plötu. Gagnrýni 1. mars 2011 00:01
Stafræn tónleikaferð Hljómsveitin Stafrænn Hákon er á leiðinni í tónleikaferð um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 22. apríl. Um kynningarferð er að ræða vegna sjöttu plötu hennar, Sanitas, sem kom út síðasta vor. Lífið 28. febrúar 2011 14:00
Beastie Boys snýr aftur Rappsveitin Beastie Boys hefur loksins ákveðið útgáfudag á nýjustu plötu sinni, Hot Sauce Comittee Pt 2. Hún kemur út 19. apríl og bíða hennar margir með mikilli eftirvæntingu. Gripurinn átti upphaflega að heita Hot Sauce Commiettee Pt 1 og útgáfudagur átti að vera í september 2009. Lífið 28. febrúar 2011 09:00
Dusta rykið af týndu plötunni með Fídel Hljómsveitin Fídel þótti gríðarlega efnileg á sínum tíma og sendi frá sér magnaða plötu, áður en hún hætti skyndilega. Nú hafa meðlimir hljómsveitarinnar dustað rykið af týndum upptökum. Lífið 25. febrúar 2011 21:00
Kröftugir tónleikar Rokksveitin Agent Freso hélt útgáfutónleika á dögunum í tilefni fyrstu plötu sinnar, A Long Time Listening, sem kom út fyrir síðustu jól. Lífið 24. febrúar 2011 16:00
Ensími með útgáfutónleika Ensími heldur útgáfutónleika á Nasa á laugardagskvöld til að fylgja eftir sinni fjórðu plötu, Gæludýr, sem kom út fyrir síðustu jól. Hljómsveitin ætlar að leggja mikinn metnað í hljóð- og ljósavinnslu þessa kvöldstund. Lífið 24. febrúar 2011 11:00
Rosaleg stórkarlamúsík Rokkararnir í Ham lofa rosalegum tónleikum á Nasa á föstudagskvöld. Upptökur á fyrstu „alvöru“ Ham-plötunni hefjast í næsta mánuði. Lífið 24. febrúar 2011 07:00
Dylan svaraði ekki Simon Paul Simon reyndi að fá gamla félaga sinn Bob Dylan til að syngja með sér á nýjustu plötu sinni en án árangurs. Simon var ekki sáttur við að Dylan skyldi ekki svara erindi sínu. Lífið 23. febrúar 2011 14:00
Klingir í pyngjum poppara Tilkynnt var í gær hverjir hefðu hlotið laun úr launasjóðum listamanna. Nafntogaðir rithöfundar og frægir popparar eru meðal þeirra sem fengu eitthvað fyrir sinn snúð. Lífið 19. febrúar 2011 17:00
Sunna fær góða dóma í Austurríki Djasspíanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir fær góða dóma í austurríska tímaritinu Concerto fyrir plötu sína The Dream, sem var nýlega tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Lífið 19. febrúar 2011 00:01
Fyrsta platan í fimmtán ár Grunge-rokkararnir í Soundgarden eru að hefja upptökur á sinni fyrstu plötu í fimmtán ár. Í tilkynningu á heimasíðu sveitarinnar kemur fram að þeir félagar hafi samið flott lög fyrir plötuna, sem fylgir í kjölfar Down on the Upside sem kom út 1996. Lífið 17. febrúar 2011 09:00