Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn „Ég hef oft heyrt að fólk vilji gefa eitthvað í fermingargjöf sem fermingarbarnið mun eiga til lífstíðar. Ég tek eftir því að það sem helst fer í fermingarpakkann eru úr og við erum með mikið úrval af skarti og úrum fyrir öll,“ segir Björg Máney Byron aðstoðarverslunarstjóri Klukkunnar en Klukkan hefur staðið vaktina síðan 1975. Lífið samstarf 13. mars 2024 08:40
Best klæddu stjörnurnar á Óskarnum Stærstu stjörnur heimsins skína skært í hátískuhönnun á rauða dreglinum í kvöld í tilefni af Óskarsverðlaunahátíðinni. Hátíðin fer nú fram í 96. skipti og er haldin í Dolby leikhúsinu í Hollywood. Tíska og hönnun 10. mars 2024 23:22
Sparks peysan og brúnkukremið eftirminnilegt tímabil Tískan spilar hlutverk í daglegu lífi förðunarfræðingsins, meistaranemans og samfélagsmiðla ofurskvísunnar Sara Linneth. Sara er í sambúð með Árna Páli, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, og þykja þau með smartari pörum bæjarins. Sara hefur farið í gegnum fjölbreytt tískutímabil en hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 9. mars 2024 11:30
Stórbrotin íbúð í Stokkhólmi Við Nybrogatan á Östermalm svæðinu í Stokkhólmi má finna glæsilega 143 fermetra íbúð. Það er eitthvað við sænsk heimili sem er meira heillandi en önnur. Loftlistar og rósettur, sjarmerandi litasamsetning og einstakur arkitektúr eru dæmi um það. Lífið 8. mars 2024 13:56
Stjanaði við sig með hálfrar milljón króna tösku á afmælinu Lína Birgitta Sigurðardóttir athafnakona gerði vel við sig í tilefni af 33 ára afmæli sínu í gær. Hún fjárfesti í hálfrar milljón króna brúnni Louis Vuitton ferðatösku. Lífið 7. mars 2024 14:31
Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi Það er nóg um að vera hjá Manúelu Ósk framkvæmdarstjóra Ungfrú Ísland en hún er dugleg að ferðast vegna starfs síns og er því nauðsynlegt að eiga góða tösku. Manúela Ósk er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? hér á Vísi. Tíska og hönnun 7. mars 2024 11:30
Sjarmerandi eign í gamla Vesturbænum Við Ægisgötu í Vesturbæ Reykjavíkur má finna fallega og mikið endurnýjaða 94 fermetra íbúð á annarri hæð í steinsteyptu húsi frá árinu 1954. Ásett verð er 82,5 milljónir. Lífið 5. mars 2024 17:10
Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl Það var margt um manninn á efri hæð Priksins síðastliðinn föstudag við opnunarteiti Strik Stúdíó. Þotulið úr hönnunarbransanum lét sig ekki vanta og gestir skemmtu sér vel. Menning 5. mars 2024 12:21
Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Snyrtivöruverslunin Elira Beauty er flutt á Kirkjusand að Hallgerðargötu 19-23. Við flutningana úr Smáralind hefur verslunin stækkað um helming. Lífið samstarf 4. mars 2024 14:58
Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Moisture Burst Hydrating hárlínan frá Lee Stafford er sannkallaður bjargvættur þegar kemur að þurru og þreyttu hári sem þarf á smá ást að halda. Lífið samstarf 4. mars 2024 13:17
„Leyfðu öðrum að njóta lífsins og klæða sig eins og það vill“ Samfélagsmiðlastjórinn Mariane Sól Úlfarsdóttir elskar tískuna og tileinkar sér vistvænar leiðir í fatavali. Hún er í hópi kvenna sem standa fyrir forritinu Regn sem selur notuð föt, elskar að klæða sig upp og 35 ára gamall jakki er í algjöru uppáhaldi hjá henni. Mariane er viðmælandi í Tískutali. Tíska og hönnun 2. mars 2024 11:30
Tískudrottingin Iris Apfel látin Bandaríski innanhússhönnuðurinn og tískugoðsögnin Iris Apfel er látin. Hún var 102 ára. Tíska og hönnun 2. mars 2024 10:00
Er skipulagsfrík og tekur reglulega til í töskunni Kírópraktorinn og smekkmaðurinn Guðmundur Birgir Pálmason, jafnan þekktur sem Gummi Kíró, leggur mikið upp úr því að halda góðu skipulagi á töskunum sínum. Hann er viðmælandi í liðnum Hvað er í töskunni þinni? Tíska og hönnun 29. febrúar 2024 11:31
Stórkostleg áhrif á fíngert hár Hefurðu túberað á þér hárið til að það sýnist þykkara? Mokað í það efnum og blásið á háum hita til að það haldi fyllingu út daginn? Nýja vörulínan frá John Frieda PROfiller+ er sérstaklega þróuð til að gefa þunnu, fíngerðu og brothættu hári meiri fyllingu og næra það og styrkja í leiðinni. Lífið samstarf 29. febrúar 2024 08:41
Elsta vörumerki Bretlands fær nýtt útlit Lyle's Golden Syrup hefur tekið til notkunar nýjar umbúðir á vörum sínum. Í stað rotnandi ljónshræs kemur teiknuð mynd af ljóni. Breytingin á þó einungis við sírópið sem fæst í flöskum en sírópsdósirnar vinsælu verða enn með sama útlit. Viðskipti erlent 28. febrúar 2024 10:23
Konurnar á bak við Bríeti Íslenska stórstjarnan Bríet er þekkt fyrir öfluga sviðsframkomu sína og tjaldar öllu til þegar að það kemur að hári, förðun og fatnaði. Á bak við Bríeti eru þrjár öflugar listakonur sem þróa með henni þessi mjög svo einstöku lúkk en blaðamaður tók púlsinn á þeim og fékk að heyra nánar frá samstarfinu. Lífið 26. febrúar 2024 20:00
Birgitta Líf með 450 þúsund króna skiptitösku Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, birti mynd af sér með son sinn í fanginu og 450 þúsund króna Blue Dior Oblique Canvas skiptitösku yfir öxlina. Lífið 26. febrúar 2024 19:14
Finnur flottari flíkur í kvenmannsdeildunum Plötusnúðurinn Egill Ásgeirsson setti sér þá reglu að ganga alltaf um í góðum skóm og vellíðan er lykillinn að stílnum hans. Hann elskar að klæða sig upp og sækir tískuinnblástur á samfélagsmiðla. Egill er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 24. febrúar 2024 11:31
„Yfirleitt er allt sem er gefandi líka krefjandi“ Búningahönnuðurinn Karen Briem skráði sig í meistaranám í búningahönnun um þrítugt. Hún elskar að segja sögur og skapa karaktera en hún sér um búningana fyrir söngleikinn Eitruð lítil pilla, sem verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld. Tíska og hönnun 23. febrúar 2024 09:01
Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi Markaðsstjórinn og ofurskvísan Pattra Sriyanonge lifir viðburðaríku lífi og er því mikilvægt fyrir hana að vera alltaf með réttu hlutina í töskunni. Lífið á Vísi tók púlsinn á henni í nýjum föstum lið sem heitir Hvað er í töskunni þinni? Tíska og hönnun 22. febrúar 2024 11:30
Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku „Við ákváðum að breyta um stefnu og fara í meira „fashion” töku í ár. Hingað til höfum við fókusað á stílhreinar og tímalausar fermingartökur en í ár ákváðum við að leika okkur aðeins meira með fötin og hafa þetta lifandi og skemmtilegt,“ segir Tania Lind Fodilsdóttir, markaðsstjóri NTC. Lífið samstarf 22. febrúar 2024 08:45
Hjarðhegðun Íslendinga Hjarðhegðun Íslendinga endurspeglar smæð samfélagsins og hræðsluna við það að vera utangátta. Eða hvað? Hvers vegna er landinn á einu auga bragði klæddur í samskonar skó, ferðast til sömu áfangastaðanna og kaupir eins húsgögn? Lífið 19. febrúar 2024 07:00
Hrífandi hönnunarperla við Heiðmörk Við Urriðaholtsstræti 72 í Garðabæ má finna glæsilegt 180 fermetra raðhús á tveimur hæðum með útsýni að Heiðmörk. Það sem gerir eignina afar áhugaverða er að húsið er svansvottað. Ásett verð er 147,9 milljónir. Lífið 17. febrúar 2024 14:29
Klæðir sig upp í þema fyrir öll möguleg tilefni Lífskúnstnerinn Guðný Björk Halldórsdóttir hefur gríðarlega gaman að tískunni og er óhrædd við að fara eigin leiðir. Hún nýtir hvert tilefni til að klæða sig upp í skemmtileg og frumleg föt og segir að með árunum sé hún farin að taka meiri áhættu. Guðný Björk er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 17. febrúar 2024 11:31
Heitasta tískan á heimilum landsins Það er alltaf skemmtilegt að skoða það vinsælasta í stílnum á heimilum landsmanna. Stefnur og straumar í innanhússhönnun. Lífið 16. febrúar 2024 12:30
Sjarmerandi hönnunarheimili með útsýni til sjávar Við Ásbúðartröð í Hafnarfirði má finna glæsilega endurnýjaða sérhæð á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni til sjávar. Um er að ræða 168 fermetra eign í fjölbýlishúsi frá árinu 1954. Lífið 14. febrúar 2024 21:17
Fyrirsæta fyrir tískurisa erlendis en lögfræðingur hér heima Fyrirsætan og lögfræðingurinn Kristín Lilja Sigurðardóttir hefur gengið tískupalla fyrir hátískumerki á borð við Dior og Kenzo og setið fyrir í ýmsum tískuherferðum. Nýverið var hún í ljósmyndaþætti fyrir virta tískumerkið Liberty London en blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá. Tíska og hönnun 13. febrúar 2024 13:38
Deilunni um litla rauða límmiðann lokið vegna tímamóta Norrænni deilu um hvort taka eigi lítinn rauðan límmiða af iittala glösum verður brátt lokið því rauðu miðarnir eru á undanhaldi. Finnski risinn hefur breytt allri hönnun á þessu rótgróna vörumerki og segir hönnunarstjóri á Íslandi, ákvörðunina djafra. Viðskipti innlent 11. febrúar 2024 23:01
Nýtur þess að setja sig í fyrsta sætið Tískuskvísan og lífskúnstnerinn Tinna Aðalbjörnsdóttir er annar eiganda módelskrifstofunnar Ey Agency og segir tískuna alltaf hafa verið eitt af sínum uppáhalds áhugamálum. Hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 10. febrúar 2024 11:31
Engir rauðir límmiðar lengur á Iittala Nýr listrænn stjórnandi Iittala hefur nú svipt hulunni af nýjum lit og merkingum fyrir merkið. Í stað rauða litarins sem hefur einkennt merkið í áratugi, og auðvitað rauðu límmiðana, er nú tekinn við gulur ferskari litur. Viðskipti erlent 7. febrúar 2024 08:56