Mun aldrei flytja aftur heim Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 20:02 Alexandra Björgvinsdóttir ræddi við blaðamann um lífið í Sviss. Aðsend Allt árið er eins og eitt langt ævintýri, segir Alexandra Björgvinsdóttir lífskúnstner, Instagram skvísa og pílatespæja. Hún er þrjátíu ára gömul og býr í Sviss með sambýlismanni sínum Ívari Hannesi Péturssyni verkfræðingi. Hver dagur er ævintýri úti og hverja einustu helgi heimsækir hún nýjan stað.
Alexandra er með tæplega 9000 fylgjendur á Instagram þar sem hún veitir innsýn í glæsilegan ævintýraheim sinn sem einkennist af miklum glamúr og sum myndbanda hennar eru með mörg hundruð þúsund áhorf. Hún ræddi við blaðamann um lífið og tilveruna úti. Alexandra er algjör pæja.Aðsend Hvar býrð þú og hvað varð til þess að þú fluttir þangað? Ég bý í Sviss. Það var í raun hvatvís ákvörðun. Okkur langaði burt og enduðum í þessu ótrúlega landi sem er alveg tryllt og ég elska það! Alexandra elskar lífið í Sviss.Aðsend Hvað hefur þú búið þar lengi? Í rúm fimm ár, við fluttum í ágúst 2020. View this post on Instagram A post shared by Alexandra Björgvinsdóttir (@alexandrabjorgvinsdottir) Hvað varð til þess að þú byrjaðir að ferðast og búa til samfélagsmiðlaefni? Ég hef alltaf verið virk á samfélagsmiðlum, verið í samstarfi af og til, en fór að gera þetta af meiri krafti síðasta hálfa árið því ég var ekki að vinna. Ég náði svo að landa svo nokkrum stórum samstarfsverkefnum á árinu og það er meira í vinnslu! Til dæmis fékk ég fjölmiðlapassa á sturlaðan viðburð í St. Moritz síðastliðna helgi en þessi viðburður er sá eini í heiminum af sínum toga með Michelin kokkum og öllu tilheyrandi. Mig dreymdi um að ná að komast þangað einu sinni svo það var hálf ótrúlegt að standa þarna með fjölmiðlaarmband allt í einu, á flottasta skíðasvæði í heimi. View this post on Instagram A post shared by Alexandra Björgvinsdóttir (@alexandrabjorgvinsdottir) Hefurðu búið annars staðar erlendis? Ég var eitt ár í Bretlandi. Annars bjó ég alltaf heima á Íslandi en var stöðugt að ferðast líka. Alexandra hefur alltaf verið mikið fyrir að ferðast.Aðsend Hver er uppáhalds áfangastaðurinn þinn hingað til? Ó, svo margir! Af einhverri ástæðu poppaði Sylt fyrst upp. Það er svolítið eins og Hamptons Þýskalands. Mjög falleg eyja þar sem ég hjólaði um og upplifði allt á mjög skemmtilegan hátt með vinkonu frá Zürich sem á hús þar. Ég ferðast nánast hverja helgi og einhvern veginn næ ég alltaf að toppa mig, þótt ég haldi alltaf að það geti varla orðið betra! Svo ég ætla ekki að ofhugsa þessa spurningu neitt meira og halda mig við þetta. Alexandra á eyjunni Sylt sem er í miklu uppáhaldi hjá henni.Aðsend Hvað er það fyndnasta eða steiktasta sem þú hefur lent í úti? Covid-tímabilið var líklega það steiktasta sem ég hef lent í hér. Ég hélt að allt væri alvarlegt og það var mikið um reglur en svo uppgötvaði ég leyni rave-partý og leynisamkomur. Þetta var algjörlega fullkomin blanda af ró og reglu, alvarleika og fjöri. Og ég féll í raun svolítið fyrir borginni strax útaf því! Alexandra féll fyrir Sviss í Covid.Aðsend Finnurðu einhvern tíma fyrir heimþrá? Nei ég finn í raun aldrei fyrir heimþrá. Alexandra finnur aldrei fyrir heimþrá. Aðsend Hvað er framundan? Bara að halda áfram að lifa lífinu til fulls. Alexandra nýtur lífsins og er alltaf að upplifa eitthvað nýtt.Aðsend Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Hvað þú getur upplifað mikið meira hér en heima á Íslandi. Ísland er mjög takmarkað en hér geturðu gert svo mikið, hitt alls konar nýtt fólk, verið meira utandyra, meiri fjölbreytni á vinnumarkaði og öll ferðalögin sem eru í boði. Hér er allt stútfullt af tækifærum! View this post on Instagram A post shared by Alexandra Björgvinsdóttir (@alexandrabjorgvinsdottir) Hvað er skemmtilegast við að búa erlendis? Allt! Frjálsleikinn, upplifanirnar og fólkið. View this post on Instagram A post shared by Alexandra Björgvinsdóttir (@alexandrabjorgvinsdottir) En mest krefjandi? Bara að vilja sjá fjölskylduna oftar. Alexandra elskar að ferðast en segir erfitt stundum að vilja sjá fjölskylduna oftar.Aðsend Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig? Ég mun aldrei flytja aftur heim. View this post on Instagram A post shared by Alexandra Björgvinsdóttir (@alexandrabjorgvinsdottir) Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Að allt árið sé eins og eitt langt ævintýri og það skiptir heldur engu máli hvaða árstíð það er.
Íslendingar erlendis Samfélagsmiðlar Tíska og hönnun Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira